Þjóðviljinn - 22.10.1975, Page 8
8 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 22. október 1975.
Hvað
gera
Hauk-
arnir
gegn
FH?
er liðin mætast í
1. deildar
keppninni í kvöld
Einn af þýAingarmestu
leikjum fyrri umferðar 1.
deildar keppninnar i hand-
knattieik fer fram i kvöld i
iþróttahúsinu i Hafnarfirði
þegar erkifjendurnir FH og
Haukar mætast. Þá fer einnig
fram annar leikur, sem gæti
orðiðþýðingarmikill 1 fallbar-
áttunni, en þá mætast Grótta
og Fram.
Það er raunar leikur Gróttu
og Fram, sem fram fer á und-
an og hefst hann kl. 20.15. Mið-
að við frammistöðu Fram-
liðsins að undanförnu verður
ekki annað séð en að liðið
verði i fallbaráttunni i vetur.
Vissulega er kannski of
snemmt að spá neinu fyrir um
hana, en þaö verður mikil
breyting að verða á Fram-lið-
inu ef það á að sleppa við aö
taka þátt i henni og vist er um
það að leikurinn i kvöld verður
mjög jafn, Grótta og Fram
virðast vera með áþekk lið um
þessar mundir.
Hinn leikurinn á milli FH og
Hauka verður áreiðanlega
mikill baráttuleikur. Flestir
hafa spáö þvi að Haukarnir
komi til meö að eiga i erfið-
leikum i vetur þar eð þeir eru
þjálfaralausir, leikmenn sjá
sjálfir um þjálfunina. beir
komu hinsvegar mjög á óvart
er þeir sigruðu meistara Vik-
ings með miklum mun sl.
laugardag og þvi er þaö
spurningin, hvað gera þeir
gegn erki óvininum FH?
Sennilega hefur Reynir
Ólafsson ekki enn lokiö við
smiði mulningsvéiarinnar hjá
FH, en einhver hluti hennar er
tekinn til starfa og verður
gaman að sjá hvernig hún
virkar i kvöld. En eitt er vist
að ef Haukarnir leika jafn
grimman varnarleik og gegn
Vikingum, þá mega FH-ingar
taka á öllu sinu i sóknarleikn-
um, ætli þeir að vinna leikinn.
— S.dór
Ársþing
FRÍ 23.
nóvemb.
Ársþing Frjálsiþróttasam-
hands islands fer fram að Hótel
Esju dagana 29. og 30. nóvember
n.k.
Málefni, sem sambandsaðilar
óska eftir að tekin verði fyrir á
þinginu skulutilkynnt stjórn FRt
minnst 2 vikum fyrir þing.
EB í knattspyrnu:
Jón Alfreðsson, fyrirliði islandsmeistara ÍA sést hér I viðureign við leikmenn kýpurliðs-
ons Omonia sem skagamenn sigruðu 4:0 á Laugardalsvelli I 1. umferð EB og
tryggðu sér þar með rétt til þátttöku i 2. umferðinni. Hans og félaga hans bíður erfitt
hlutverk f kvöld, að verjast stórstjörnum Dynamo Kiev-liðsins. (Ljósm. GSP)
Skagamenn íeldlínunni
í kvöld þegar þeir mæta úkraínumönnum austur í Kiev
— Þaö hafa áreiðanlega
verið uppörfandi fréttir
fyrir ÍA-Iiðið þegar því
barst fregnin af 5:0 tapi
andstæðinga þeirra í EB
meistaraliða, Dynamo
Kiev um síðustu helgi eftir
hina erfiðu ferð islending-
ana til Ukrainu, segir í
fréttaskeyti frá Reuter í
gær þar sem rætt er um þá
EB leiki sem fram fara í
kvöld.
Og það er einmitt i kvöld sem
skagamenn mæta Dynamo Kiev
austur þar. Sennilega skiptir 5:0
tap Dynamoliðsins engu máli I
sambandi við þennan leik, nema
ef vera skyldi að úkrainu-
mennirnir leggi enn meiri áherslu
en áður á stór sigur yfir ÍA til að
sanna umheiminum að 5:0 tapið
hafi aðeins verið slys og vist er
um það að skagamenn mega
þakka fyrir að tapa með minni
mun en 5 mörkum gegn þessu
sterkasta félagsliði Evrópu.
En sá leikurinn sem flestir
munu biða eftir með hvað mestri
eftirvæntingu er leikur Real Mad-
rid og ensku meistaranna Derby
County. Sumir segja að það liðið
sem vinnur þá viðureign, (úr báð-
um leikjunum) komist i úrslit
keppninnar og vissulega hefur
Derby mikla möguleika, liöið
virðist vera að ná sama styrk-
leika og i fyrra og klifrar hratt
upp stigatöfluna i 1. deild i Eng-
landi.
Aðeins eitt annað lið en 1A, frá
Norðurlöndunum komst i 2. um-
ferð EB meistaraliða en það er
sænska liðið Malmö FF. Það leik-
ur i kvöld gegn Evrópumeistur-
um Bayern Munchen og verður
fróðlegt að bylgjast með þeirri
viðureign. Og það verða fleiri
leikir i kvöld sem gaman verður
að fylgjast með úrslitum úr en við
munum segja frá úrslitum þeirra
i blaðinu á morgun. —S.dór
Nýi grasvöllurinn í Kópavogi
stórskemmdur?
Allt útlit er nú fyrir, að
Breiðablik, kandidatar 1. deildar
i knattspyrnu næsta ár, leiki ekki
á hinum nýja grasvelli sinum i
Kópavogi og kemur þrennt til,
sem kemur i veg fyrir að það
verði hægt. I fyrsta lagi vantar
bilastæði og áhorfendastæði við
völlinn, i 2. lagi á eftir að girða
völlinn, en úr þvi er þó hægt að
bæta með tiltölulega litlum til-
kostnaði og i 3ja lagi og það sem
er alvarlegast, er það að sjálfur
Akureyrarliðin sigruðu
Tveir leikir fóru fram
norður á Akureyri um siðustu
helgi, en þá fór Breiðablik
norður og lék við KA og Þór i
2. deildarkeppninni i hand-
knattleik.
Akureyrarliðin birðast bæði
rnjög sterk um þessar mundir
og sigruðu bæði með yfirburð-
um. KA sigraði UBK 25:12 en
Þór 28:15. Ef marka má þessa
lciki virðast þau mjög áþekk
að styrkleika.
völlurinn mun vera stórskemmd-
ur.
Ástæðan fyrir þvi er talin sú, að
i sumar var óvart settur alltof
mikill hiti á leiðslurnar sem
liggja undir grasinu og mun rótin
hafa skemmst við það, þannig að
hún er svo meir að engin festa er i
henni.
Menn i Kópavogi óttast það
fyrir alvöru aö Breiðablik verði
að fá lánaðan Melavöllinn, enn
einu sinni, fyrir heimaleiki sina I
1. deild næsta ár. —S.dór.
Bikarkeppni í kvenna-
flokki í handknattleik
Stjórn HSt hefur ákveðið að i
vetur fari fram bikarkeppni i mfl.
kvenna i handknattleik og verður
þá háð bikarkeppni i mfl. karla og
kvenna og 2. fl. karla.
Fyrirhugað er að bikarkeppni
HSÍ i öllum þessum flokkum fari
fram i mars og april.
Núverandi stjórn HSt hefur
gert meira fyrir kvennahand-
knattleikinn á þeim tveimur ár-
um sem hún hefur setið en nokkur
önnur stjórn HSI og er þessi
bikarkeppni einn liðurinn i þvi að
lyfta kvennahandknattleiknum
uppúr þeim öldudal sem hann
hefur verið i nokkur undanfarin
ár.
Fyrir svo utan þetta eru fyrir-
hugaðir nokkrir landsleikir
kvenna i handknattleik i vetur, sá
fyrsti gegn færeyingum fyrir
næstu áramót. — S.dór