Þjóðviljinn - 22.10.1975, Qupperneq 9
Miðvikudagur 22. október 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Agúst
Islenskir
Stefán
Vésteinn
Þnrgeir
höfundarIðunnar
Iðunn, Skálholt og Hlaðbúð
gefa i ár út margar bækur eftir
islenska höfunda. Agúst H.
Bjarnason menntaskólakennari
skrifar þar bókina Almenn vist-
fræði. Guðlaugur Arason gefur
út sina fyrstu skáldsögu, en hún
hefur ekki hlotið endanlegt
nafn. Guðrún Helgadóttir skrif-
ar nýja bók um þá bræður Jón
Odd og Jón Bjarna. Njörður P.
Njarðvik skrifar einnig barna-
bók. Sú heitir Sigrún fer á
sjúkrahús. Þessar siðarnefndu
bækur eru myndskreyttar af
Sigrúnu Eldjárn. Páll Skúlason,
prófessor, skrifar bókina Hugs-
un og veruleiki. Þá er gefin út
bókin Sálarfræði II eftir Sigur-
jón Björnssn sálfræðing. Ný
skáldsaga eftir Stefán Júliusson
heitir Agúst. Skáldsaga Vé-
steins Lúðvikssonar heitir
Eftirþankar Jóhönnu og eftir
Þorgeir Þorgeirsson koma út
tvær bækur, Það er eitthvað
sem enginn veit, sem byggð er á
frásögn Lineyjar Jóhannesdótt-
ur skáldkonu frá Laxamýri og
ljóðabókin 9563-3005:11.
Flensborgardeilan
Svar „ur héraði”
Þess hefur nokkuð gætt, að fólk
geri sér ekki fulla grein fyrir þvi,
um hvað „Flensborgardeilan”
svonefnda stóð — né heldur hver
hafi um sinn orðið lok þeirrar
deilu. Þvi þykir okkur kennurum
við Flensborgarskóla rétt að
taka fram eftirfarandi:
Deilan stendur framar öllu um
viðurkenningu á „fjölbrautaskól-
anum”. I mjög stórum dráttum
má segja, að fjölbrautaskóli
starfi á sama grundvelli og
menntaskóli, þó með þeirri breyt-
ingu, að i fjölbrautaskóla geta
nemendur valið sér ákveðnar
verklegar greinar, auk bóklegra.
Auk stúdentsprófs geta nemendur
brautskráöst eftir skemmri
námsbraut.
Fyrr á þessu ári var Flensborg-
arskóla formlega breytt i fjöl-
brautaskóla. 1 siðari hluta júli-
mánaðar voru fyrstu fjölbrauta-
skólakennararnir settir i stöður
við Flensborgarskóla frá og með
1. sept. Gerðar voru sömu kröfur
til menntunar og gerðar eru til
menntaskólakennara.
Endursendir
útreikningar
Nú gerist það, að skipa á
þessum kennurum i launaflokka,
að ágreiningur ris. Menntamála-
ráðuneytið hafði fyrir sina parta
þegar skipað þessum kennurum i
launaflokka samkvæmt samningi
FM, Félags menntaskólakenn-
ara. Fjármálaráðuneytið neitaði
hins vegar að viðurkenna þá
niðurröðun, sendi alla þessa út-
reikninga til baka og krafðist
þess, að þessir kennarar
fengju laun samkvæmt samningi
LSFK og FHK, þ.e. Landsam-
bands framhaldsskólakennara og
Félags háskólamenntaðra kenn-
ara. Og hvað gerist? Mennta-
málaráðuneytið lætur sig hafa
það að éta ofan i sig sinn eigin úr-
skurð og reikna út upp á nýtt
launin samkvæmt kokkabókum
fjármálaráðuneytisins.
Fjármálaráðuneytinu hafði
þannig tekist að hunsa yfirlýstan
vilja þriggja stéttarfélaga: A
fundi um þetta mál 13. ágúst stóð
fulltrúi fjármálaráðuneytisins
einn uppi gegn deildarstjóra
menntamálaráðuneytisins, for-
stöðumönnum fjölbrautaskól-
anna beggja og fulltrúum LSFK,
FHK og FM. Menntamálaráð-
herra hlýtur þvi að hafa verið
fullkunnugt um þann ágreining,
sem upp var kominn, enda reit
hann fjármálaráðuneytinu bréf
og itrekaði afstöðu ráðuneytis
sins, — enda þótt hann virðist,
samkvæmt viðtali við Morgun-
blaðið, telja það eðlilegt og sjálf-
sagt, að hann sé ekki virtur svars
i tvo mánuði.
Reynt aö
múta kennurum
Eftir þenna umrædda fund taldi
skólameistari Flensborgar, að
málið væri úr sögunni. En á kenn-
arafundi i byrjun skólaárs kom i
ljós, að fjármálaráðuneytið hafði
ekki greitt laun samkvæmt samn-
ingi sinum við FM. Kom þá sterk-
lega til álita, hvort gripa ætti til
aðgerða af hálfu kennara. Skóla-
meistari fór hins vegar fram á
það, að ekki komi til vinnustöðv-
unar, heldur yrði sér gefinn timi
til mánaðamóta sept. okt. að
leysa þetta mál eftir eigin leiðum.
Þegar sýnt var, að tilraunir
skólameistara höfðu ekki borið
árangur og fjármálaráðuneytið
sat fast við sinn keip, töldu kenn-
arar sig nauðbeygða til að taka til
sinna ráða og lögðu niður vinnu 7.
október.
Þann sama dag átti skóla-
meistari fund með fjármála-
ráðherra og menntamálaráð-
herra. Siðar um daginn flutti
skólameistari kennurum þau boð
fjármálaráðherra, að hann æskti
þess, að kennsla hæfist á ný, og
skyldi hann þá sjá til þess, „að
málið kæmist á skrið”. Enn-
fremur benti hann kennurum
Flensborgar á það, að þar sem
þeir væru allir bóknámskennar-
ar, gætu þeir vænst þess að fá
leiðrétting sinna mála. Þetta gátu
téðir kennarar ekki skilið nema á
einn veg: Ætlunin var að múta
þeim til þess að svikja verknáms-
kennara i Flensborg og Breiðholti
Framhald á bls. 10
Minningarorð
Svava Thordersen
nújcGCQ
toQkni í
ýungumú
Með snældum (kassettum) og kennslubókum getur
nemandinn af eigin rammleik náð góðu valdi á
tungumálum með 10 — 15 mínútna daglegu námi í
3 — 6 mánuði. Hann þarf ekki aðra leiðsögn en
þá sem er að finna í námsgögnunum.
ú eru á boðstólum:
Enska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk þýðing.
Þýska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk þýðing.
Spænska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk
þýðing.
Sænska handa ykkur: kennslubók, æfingabók, 4 snældur
og íslensk þýðing.
French without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Italian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Russian Wlthout toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Ennfremur eru á boðátólum bréfanámskeið
í ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og
esperanto.
HEIMANÁM SEM HENTAR ÖLLUM
BRÉFASKÓLINN
Suöurlandsbraut 32 Reykjavík sími 81255
SAMSÆTI
Undirritaðir aðilar hafa ákveðið að efna
til samsætis i tilefni sjötugsafmælis Ragn-
ars Guðleifssonar mánudaginn 27. október
nk. Samsætið hefst kl. 20.30. öllum vinum
og velunnurum hans er boðin þátttaka.
Uppl. i sima 92-2085.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavikur
og nágrennis.
Bæjarstjórn Keflavikur.
Kaupfélag Suðurnesja.
Sóknarnefnd Keflavikur.
Byggingarfélag alþýðu,
Reykjavík
2ja herbergja ibúð i 1. byggingarflokki til
sölu. Umsóknum sé skilað á skrifstofu fé-
lagsins, Bræðraborgarstig 47, fyrir kl. 19
föstudaginn 31. þessa mánaðar.
skrifstofustjóri, Hafnarfirði
Samverkamennirnir hverfa
sjónum okkar einn og einn. Á
langri vegferð verður ekki komist
hjá þvf að sjá á bak þeim ættingj-
um, vinum og félögum, sem
herða gönguna til fyrirheitna
landsins umfram okkur hin, sem
á eftir komum.Straumur lifsins
stendur aldrei i stað. Hann stefnir
upp á við, hærra og hærra, og
miklu lengra en skyn okkar nær.
Samt sem áður verður eftir i
hugum okkar söknuður og tóm-
leiki, það er eins og við höfum
misst eitthvað af okkur sjálfum i
hvert skipti sem kallið kemur.
Sjálf erum við ekki eins og áður.
Það vantar eitthvað i lifsmynd
okkar, eitthvað, sem við getum
aldrei bætt okkur upp.
Þannig er þvi farið þegar við
kveðjum Svövu Thordersen,
skrifstofustjóra hjá Kaupfélagi
Hafnfirðinga i siðasta sinn. Ara-
tug eftir áratug gekk hún til
starfa sinna með þeim áhuga og
af þeirri trúmennsku, sem ein-
kenndi hana allt hennar lif. Hljóð-
lát og góð öllum, sem með henni
unnu, leysti hún hin margþættu
störf sin af hendi.
Svava Thordersen var fædd 30.
jan. 1911 og var þvi burt kölluð
mitt i önnum starfsdagsins. Hún
gekk í st. Danielsher nr. 4 hinn 29.
nóv. 1926 og vigðist þar með til
stárfa I Góðtemplararegluna. Þar
einsog i skyldustarfi sinu var hún
afburða trú og vinsæl og allra
hugljúfi. Hún var hlédræg og lét
aldrei mikið á sér bera en það
munaði um verkin hennar hvar
sem hún tók til hendi. Svava var
sérstaklega traustur og góður
félagi, sem við söknum og eigum
bágt með að átta okkur á að sé
horfinn úr okkar hópi.
Við stúkufélagarnir þökkum af
hlýhug Svövu Thordersen fyrir
samfylgdina, fyrir öll hennar
góðu störf og framúrskarandi
trúmennsku og skyldurækni við
sameiginlegan málstað okkar.
Blessuð sé minning hennar.
Blessun fylgi henni héðan frá
okkur.
Stefán H. Halldórsson
Stjórnin.
HVIRFINGUR
Hvirfingur heldur fund miðvikudaginn 22.
október kl. 20.30 að Freyjugötu 27.
Umræðuefni: Framtið islensks iðnaðar.
Framsögumenn: Guðmundur Ágústsson,
hagfræðingur og Gunnar Guttormsson,
fulltrúi i iðnaðarráðuneytinu.