Þjóðviljinn - 09.11.1975, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN
Athyglisvert frumkvæöi
Umsjón: Vilborg Haröardóttir.
Til að breyta
viðhorfum
Aðstæður geta verið mjög ólik-
ar i byggðarlögum og staða kynj-
anna misjöfn frá einum stað til
Kópa vogska u pstaöa r
Jafnréttisnefnd Kópavogs leggur til viðfræöslunefnd, aö verkleg kennsla veröi hin sama fyrir bæöi kyn I
öllu skyldunámi, svo og iþróttakennsla til 11—12 ára aldurs. En Kópavogur er reyndar einn af fáum
stööum þar sem handavinnukennsla er sú sama fyrir bæði kyn. Myndir hér aö ofan voru teknar I einum
barnaskólanna þar.
UM ALLT
Það var Helga Sigurjónsdóttir
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins sem i sumar bar fram tillögu
um skipun jafnréttisnefndarinn-
ar, en hugmyndin er komin frá
Noregi þar sem slikar nefndir
hafa verið skipaðar i flestum
sveitarfélaganna. Þetta mál var
m.a. rætt á kvennaársfundinum
að Hótel Loftleiðum i sumar og
þar setti einn umræðuhópurinn
upp sem markmið á hálfnuðu
kvennaári, að kosnar yrðu jafn-
réttisnefndir i öllum bæjar- og
sveitarfélögum, sem vinni að
jafnréttismálum hver á sinum
stað. Ennfremur að unnið verði
að þvi að fræðsla um stöðu kynj-
anna verði liður i námsefni
skyldunámsskóla á næsta skóla-
ári.
Einhverjum kann að þykja
óþarfi fyrir sveitarfélögin að hafa
starfandi jafnréttisnefndir þar
sem rikið hefur skipað sérstaka
opinbera kvennaársnefnd til að
fjalla um jafnréttismál og þá
væntanlega taka mið af landinu
öllu. En það er einmitt. i anda
stefnumiða ársins og ekki siður
þeirrar stefnu sem mótuð var
með tiu ára heims*áætluninni,
sem samþykkt var á aðalráð-
stefnu kvennaárs Sameinuðu
þjóðanna i Mexikó i sumar, að
unnið sé að þessum málum sem
viðast og fólk takist á við vanda-
málin hvert á sinum stað auk hins
sameiginlega stóra átaks.
annars, þannig að verkefni þau
sem glima þarf við þurfa engan
veginn að vera þau sömu þótt þau
séu skyld. Enginn er færari að
dæma um þetta en þeir sem sjálf-
ir búa á staðnum, að þvi tilskildu
auðvitað, að augu þeirra hafi
yfirleitt opnast fyrir þeirri mis-
munun sem konur eru beittar i
okkar þjóðfélagi.
En það er ekki eingöngu vegna
þess að fólk ætti að vera dómbær-
ast á það sem aflaga fer i nánasta
umhverfi þess sem æskilegt er að
það vinni að jafnréttismálum
hvert á sinum stað. Hitt er mikil-
vægara, að virk þátttaka
einstaklinganna við úrbætur i sin-
um bæ, sinni sveit eða á sinum
vinnustað, er áhrifarikasta tækið
til að breyta gamaldags, úrelt-
aum viðhorfum i raun. 011
höfum við i umhverfi okkar og
uppeldi tekið vi. arfi fastmótaðra
viðhorfa t.d. til hlutverkaskipt-
ingar kynjanna og þessi gömlu
viðhorf geta verið ótrúlega lif-
seig, jafnvel meðal þeirra sem
einlæglega vilja berjast fyrir
jafnrétti. Þefta sér hver og einn
best þegar hann er farinn að
vinua að jafnréttismálum, en
skilyrði þess að hægt sé að upp-
ræta úrelt viðhorf hjá sjálfum sér
og öðrum er að maður geri sér
grein fyrir þeim.
Upplýsingasöfnun
Við störf jafnréttisnefnda að
úrbótum hver á sinum stað mundi
safnast dýrmætur sjóður upp-
lýsinga, sem nýta mætti sam-
eiginlega fyrir landið allt. Það
sem einna mest hefur háð þeim
sem hingað til hafa barist fyrir
jafnréttismálum hér á landi er
einmitt skortur upplýsinga um
hin margvislegustu efni og þá
ekki sist um raunverulegt ástand
viða úti um landið. Eðli.legt væri,
að jafnréttisnefndir úti um landið
LAND?
hefðu tengsl sin á milli og við
rikisskipuðu kvennaársnefndina
og gætu þannig hagnýtt sér
reynslu og vitneskju hver annarr-
ar. Kvennaársnefndin gæti þrýst.
á framkvæmdir opinberra aðila,
einkum i þeim málum sem sam-
eiginleg reynast fyrir marga
staði.
Þótt litið sé eftir kvennaársins
1975 er enn timi til að skipa jafn-
réttisnefndir i tilefni ársins og
þær reyndar jafn þarfar þótt ekki
sé i tilefni einhvers sérstaks árs,
heldur fyrst og fremst i þágu mál-
efnisins. Enda siður en svo ætlast
til, að hætt verði að starfa að
þessum málum þegar árið er
liðið. Þetta er aðeins upphafiö að
tiu ára áætlun og með þvi að
koma af staö starfi jafnréttis-
nefnda mundu sveitarfélögin
leggja sitt af mörkum til hennar.
Reykjavík?
Þegar þetta er skrifað hefur
Adda Bára Sigfúsdóttir þegar
lagt fram i borgarstjórn Reykja-
vikur tillögu um stofnun jafn-
réttisnefndar að dæmi Kópavogs,
en ekki er enn kunnugt um afdrif
hennar. Eru þó verkefni slikrar
nefndar hér i höfuðborginni
áreiðanlega ekki siður brýn en i
nágrannabyggðunum.
—vh
Já, Kristin, þessa væri
sannarlega óskandi. En þvert
á móti virðast kyngreindar
auglýsingar fara i vöxt ef
nokkuð er. Ég held að meðan
þær eru ekki bannaðar sé eina
ráðið að hunsa þær og að kon-
ur sæki um þau störf sem þær
hafa áhuga á og telja sig hafa
þekkingu og getu til að vinna,
hvort sem auglýst er eftir
konu eða karli i starfið. Gam-
an væri að frétta af viðbrögð-
um auglýsenda við sliku. Auð-
vitað ættu karlar að gera hið
sama, þegar auglýst er sér-
staklega eftir konu i störf sem
þeir hafa áhuga á.
Hafið
samband
Ég vil benda þeim, sem
leggja vilja orð i belg, á að
ekki er hægt að ná i umsjónar-
mann i sima Þjóðviljans.
Hinsvegar er heimasiminn
20482 (fyrir hádegi) og bréf
má senda til: Jafnréttissiðu
Þjóðviljans, Skólavörðustig
19, Rvik. Hafið samband sim-
leiöis eða skrifið þegar ykkur
liggur eitthvað á hjarta varð-
andi jafnréttismálin. —vh
Carmen misskilin?
Mikil lifandis ósköp hafa
allir verið óréttlátir i garð
Carmenar öll þessi hundrað ár
frá þvi hún varð til, bendir
leikkona á. Allsstaðar hafa
allir verið að vorkenna
þessum óþokka, honum Don
Camillo, en enginn hefur
vorkennt Carmen, sem er
drepin fyrir það eitt að verða
leið á elskhuga sinum og fá sér
annan. Er það ekki mjög
venjulegt meðal fólks, að sá
fyrsti sé ekki endilega sá rétti
eða sú fyrsta ekki sú eina
sanna? Og hvað er þá eðli-
legra fyrir unga, lifsglaða
stúlku einsog Carmen en að
skióta sig i öðrum, þegar
sá fyrsti hæfir henni ekki?
— Og veistu það, bætti hún
við. Ég held að þessi fáránlegi
mórall karlmannaveldisins sé-
að renna upp fyrir fólki. Það
hafa fleiri en ég haft orð á
þessu núna eftir að farið var
að sýna óperuna i Þjóðleik-
húsinu.
tWm
Þaö framtak Kópavogs-
kaupstaðar að skipa jafn-
réttisnefnd í bænum i til-
efni alþjóðakvennaársins
hefur vakið verðuga at-
hygli og verður vonandi
fordæmi öðrum bæjar- og
sveitarf élögum áður en ár-
ið er liðið. Eins og fram
hefur komið í fréttum
hefur jaf nréttisnef nd
Kópavogs þegar tekið til
starfa af fullum krafti og
undirbýr nú kynningu og
kennslu jaf nréttismála í
skólum bæjarins, en eftir
áramót á að gera skoðana-
könnun meðal kvenna í
bænum á stöðu þeirra og
viðhorfum til einstakra
þátta bæjarmála.
IAFNRÉTTI — JAFNVÆGI
JAFNRÉTTISNEFNDIR
ORÐ
í
BELG
Kyngreindar auglýsing-
ar bannaðar
Kristin skrifar:
,,Ég las i Visi, að þeir i
Kópavogi hefðu bannað kyn-
greindar auglýsingar á sinum
vegurn, þ.e.a.s. bannað að
auglýsa sérstaklega eftir karli
eða konu i ákveðið starf.
Þessu vil ég hrópa húrra fyrir.
Hversvegna gera ekki allir
opinberir aðilar það sama?
Kannski mundu meira að
segja einkaatvinnurekendur
feta i fótsporin á eftir.”