Þjóðviljinn - 09.11.1975, Qupperneq 5
Sunuudagur 9. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Odvar Nordli væntanlegur for-
sætisráöliera Verkamannaflokks-
ins, brosað til hægri og vinstri.
Um siðustu helgi var haldinn i
Osló landsfundur Kommúnista-
flokks Noregs, NKP Þetta er
smár flokkur, hefur verið sam-
starfsaðili að Sósialiska vinstri-
flokknum, sem vann mikinn sigur
i kosningunum 1973 og fékk 16
1 september fóru fram bæjar-
og sveitastjórnarkosningar i
Noregi. llægriflokkurinn undir
lorystu Erlings Norviks vann
miicinn sigur i þeim — og hefðu
þettaverið þingkosningar þá hefðu
borgaraflokkarnir fengið all-
drjúgan meirihluta. Siðan þá hafa
hægrimenn óspart blasið i lúðra
og hvatt alla borgaralega flokka
til samfylkingar um að sigra i
næstu þingkosningum, sem fram
eiga að fara 1977.
Þýðingarmiklir aðilar að sliku
samstarfi, Miðflokkurinn og
Kristilegi flokkurinn, eru hins-
vegar nokkuð hikandi. Þeir eru að
sjálfsögðu andsósialiskir flokkar,
en á hinn bóginn þora þeir ekki að
marséra undir lúðrablæstri
hægrimanna. Þeim finnst að þeir
gætu ef til vill átt meiri mögu-
leika á að koma sinu fram, með
þvi að bjóða Verkamannaflokkn-
um samstarf ef að SV gæti ekki
lengur eða vildi ekki vera lóð það
sem úrslitum ræður á voga-
skálum.
Hinir nýju leiðtogar Verka-
mannaflokksins, Reiulf Steen
formaður, og Odvar Nordli, sem
Þessi mynd varð til á stofnþingi Sósialiska vinstriflokksins: Finn Gustavsen (til vinstri) frá SF og
Keidar I.arscn frá kommúnistum, gera báðir hosur sinar grænar fyrir Beril As, frá Lýðræðissósialistum.
og jafnvægi
Þing lítils flokks
í norskri pólitík
þingsæti. Af þeim hafa tveir verið
frá kommúnistum. Enaðstæðuri
norskri pólitik eru allar svo
tvisýnar, að þing þessa litla
flokks getur haft óvenju
margþættar afleiðingar.
Sameiningarþróun
stöövuð
Helstu niðurstöður þingsins
urðu þær, að kosinn var nýr for-
maður, skólastj. að nafni Martin
Gunnar Knudsen, en fyrrverandi
formaður, Reidar Larsen þing-
maður, og hans menn biðu mikinn
ósigur. Meirihlutinn, 117 fulltrú-
ar, gerðu þá samþykkt, að norski
kommúnistaflokkurinn mundi
ekki fylgjast lengur með i þróun
SV, en samkvæmt fyrri
samþykktum hinna þriggja hópa
sem að flokkinum standa (NKP,
Sósialiski alþýðuflokkurinn SF,
og Lýðræðissamtök vinstri-
manna, sem yfirgáfu Verka-
mannaflokkinn i sambandi við
átök um EBE) átti að leysa þessa
flokka og samtök upp nú fyrir ára-
mót, og skyldu menn eftir þaö
eiga aðeins einstaklingsaðild að
Sósialiska vinstriflokknum.
Meirihlutinn i kommúnista-
flokknum hefur með öðrum
orðum neitað að leggja flokkinn
niður — en býðst hinsvegar til að
eiga „viðtækt og ekki skuldbind-
andi samstarf” við SV. Reyndar
er það svo, að kommúnistarnir
teljast áfram meðlimir SV til ára-
móta, þegar búast má við þvi, að
þeir þurfi að velja um það hvar
þeir ætla að starfa i framtiðinni.
Reidar Larsen (honum fylgdu
að málum 30 þingfulltrúari lýsti
þvi yfir eftir þingið, að rninni-
hlutinn mundi ekki virða
ákvörðun meirihlutans. Mundi
hann og liðsmenn hans halda
áfram að starfa innan SV og
reyna að fá sem flesta liðsmenn
NKP með.
Blásið í lúðra
Sem fyrr segir geta þessi úrslit
haft margskonar afleiðingar. í
Noregi situr núyerkamanna-
flokksstjórn, sem styðst við 62
þingmenn sins flokks — og þar að
auki við 16 þingmenn SV i þeim
málum, sem einskonar vinstri-
samstaða næst um. Þessir tveir
flokkar hafa hinsvegar aðeins eitt
þingsæti saman umfram
borgaraflokkanna, sem hafa 77
þingsæti, svo að ekki munar
miklu.
tekur við forsætisráðherra-
embættinu eftir áramót, blása
einnig i lúðra. Flokkurinn kom
ekki sérlega glæsilega út i
septemberkosningunum, en var
þó i sókn miðað við afhroðið sem
hann beið 1973. Aftur á móti
tapaði SV miklu fylgi, eða
næstum þvi helmingi atkvæða frá
þingkosningum — ekki sist vegna
átakanna um framtið flokksins.
Verkamannaflokkurinn sér þvi
þann leik á borði að benda bæði á
hættur þær sem félagshyggju
stafaraf framgangi hægri manna
og á sundrungu i SV til þess að
hvetja nú alla vinstrisinna til að
sameinast undir merkjum þessa
stærsta flokks landsins.
Kommúnistar
og SV
Þau tiðindi sem gerðust á þingi
kommúnistaílokksins norska
munu að sjálfsögðu gera hinni
nýju forystusveit Verkamanna-
flokksins leikinn auðveldari. Sem
fyrr segir kveðst hinn nýji
formaður llokksins, Martin
Gunnar Knudsen, vilja áfram
vera með i SV, ef að sá flokkur
verður lausleg kosningasamtök
eins og áður, "regnhlif”, en ekki
eiginlegur I lokkur. Enginn vafi er
á þvi, að SV muni hafna slikum
hugmynduni og halda áfram
þróun til eins flokks, sem byggi á
einstaklingsaðild og séu meðlimir
ekki i nema einum flokki.
Af öðrum vandkvæðum sem SV
hefur átt við að glima má nefna
nokkur átök um einn helsta fyrir-
liða flokksins, Finn Gustavsen,
sem á sinum tima hafði forystu
fyrir þeim vinstrisinnum i Verka-
mannaflokkinum sem voru
flæmdir úr flokknum fyrir róttæk
viðhorf og stofnuðu Sósialiska
alþýðuflokkinn, SF. Gengið var
fram hjá honum þegar valdir
voru talsmenn SV i pólitiskum
kappræðum i sjónvarpi i haust, og
hann hefur vikið sem formaöur
þingmanns SV fyrir Berge Furre.
Janusarhöfuð
Sem fyrr segir eru það einkum
tveir flokkar sem telja sig hafa
tromp á hendi i hinu tvisýna taíli
borgaraflokka og verklýðsflokka
i norskri pólitik. Hægrimenn, sem
reyna af öllum mætti að efna til
samfylkingarsósialisma eins
og það heitir — reyndar af svo
miklum fyrirgangi, að aðrir
helstu borgaraflokkar, nær
miðju, eru skelkaðir og óttast að
þeir verði kaffærðir i látunum. Á
hinn bóginn reynir Verkamanna-
l'lokkurinn að halda stjórnarhlut-
verki sinu með þvi aðsemja á vixl
til vinstri (við SV) og hægri (við
miðflokkanna) eftir þvi hvers
eðlis málin eru. Það er dæmigert
um það janusarandlit sem
flokkurinn reynir aö setja upp, að
meðan forsætisráðherraefnið
Odvar Nordli reifar það á þingi,
að eignlega sé enginn grund-
Reidar Larsen
vallarmunur á viðhorfum sósial-
demókrata og miðflokka. þá
veifar formaðurinn Reiulf Steen
rauðum fána i kappræðu um
klofninginn i verklýðshreyfing-
unni: Sósialistar sameinist! — en
vel að merkja innan Verka-
mannaflokksins.
Veturinn verður liklega rikur
að pólitiskum tiðindum i Noregi.
Lengst til hægri verða einnig
ýmsar nýjungar — þar hefur nu
verið stofnuð svonefnd Norsk
I y 1 k i n g ", framvarðalið
kommúnistahatara og nýlasista.
sem alltaf telja sig eiga eitthvað
ósagt. ekki sist á timum þegar
hinar fjölmennu millistéttir eru
venju Iremur ráðvilltar og
ruglaðar.
AB tók saman.