Þjóðviljinn - 09.11.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Blaðsíða 9
NÍELS HAFSTEIN SKRIFAR UM MYNDLIST Sunnudagur 9. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Listasafn íslands Núverandi húsnæöi Listasafns tslands Hljóð úr horni Fyrir skömmu fóru kippir um þá opinbera stofnun hérlenda sem sklrö var foröum því virðulega nafni Listasafn Islands. Kjartan Guðjónsson listmálari skrifaði menntamálaráðherra bréf og baðst undan þeirri áþján að þurfa að svolgra i sig kaffi I sölum safnsins sem skipaður fulltrúi menntamálaráðuneytisins, enn- fremur kvaðst hann ekki geta lengur horft uppá innkaupanefnd úr Kópavogi festa sér mynd- listarverk I stórum stil, á sama tlma og Listasafnið væri fjár- hagslega svelt. Bréf þetta er ánægjulegur vottur þess að myndlistarmenn séu loks að vakna af dvalanum, og að þeir láti sig málefni safnsinseinhverju skipta. Þá skýrir það greinilega hve Listasafnið er ein- angrað og afskipt á rikisjötunni og f járhagur þess litt til þess fall- inn að standa undir myndarleg- um rekstri. Hitt er svo auðvitaö undrunarefni hvers vegna safn- ráðið I heild, ásamt forstöðu- manni þess, lagði ekki niður vinnu þar til viðunandi lausn hef- ur fengist. Ekki aðeins peningar í lögum um Listasafn íslands segir m.a. I 2. grein, lið a, að þvi sé ætlað að ,,afla svo fullkomins safns islenskrar myndlistar sem unnt er” eða með öðrum orðum: Listasafn Islands á að sýna þver- skurð af islenskri myndlist, það á að safna verkum i öllum þeim stiltegundum sem Islenskir myndlistarmenn vinna I. Lista- safn tslands á þvi að geta sett upp yfirlitssýningar frá ýmsum skeiðum og gert grein fyrir þróun myndlistar á íslandi, frá upphafi og framá þennan dag. En nú bregður svo undarlega við að I safnráði hafa aðeins setið fulltrUar af tveimur tegundum myndlistarmanna, myndhöggv- arar og oliumálarar, — grafik- listarmenn og vefarar hafa til dæmis aldrei komið þar nálægt. Og ekki nóg með það, þeir hafa helst tilheyrt tveimur stefnum myndlistar, Abstrakt og Ex- pressionisma (bátar, hús og blóm), og þaraðauki allir vérið félagar í FÍM. Ef þetta er ekki einsdæmi, þá er það ekki til. Nú- verandi forstöðumaður safnsins hefur starfað við það dslitið I tutt- ug og fimm ár! Nú þarf ekki s jónskarpan mann tilað sjá hvað hefur atvikast i listaverkakaupum safnsins; næg- ir að rölta um salina og berja augum þau verk sem venjulegast hanga á veggjum og standa á gólfum, öll eru þau unnin út frá áhrifum af raunsæisstil (Real- isma) og stælingastefnu (Naturalisma). í myndaeign Listasafnsins eru þvi miklar eyð- ur, inná milli fyrirferðarmikilla þátta. I þessu sambandi er ekki úr vegi að spyrja nokkurra spurn- inga: 1. Hvar er Alþýðulistin, verk þessarar aldar manna i vefn- aði, málverkum og höggmynd- um? 2. Hvar er Hreyfilistin, verk nú- lifandi manna, hlaðin raf- magni, hita, titringi, skjálfta o.fl.? 3. Hvar er Surrealisminn, verk þeirra sem túlka veröld draums og martraðar, t.d.? 4. Hvar er Oplistin, þau verk sem erta augað? 5. Hvar er Poplistin, verkin sem skóku til listallfið uppúr 1965? 6. Hvar er Conceptualisminn, þau verk sem nátengdust eru hugsuninni, rannsóknir á ein- faldleik, hugmynd? Tiivonandi húsnæði Listasafnsins Það má nefna fleiri dæmi: Listasafnið á ekkert verk i Dada- iskum stll, Concretstefnan er ekki sjáanleg, Minimalismi ekki held- ur, engin dæmi eru til um Per- fomance og Happenings, svo ekki sé talað um Environments (um- hverfisverk), engar ljósmyndir, ekkertl Það er vægt til orða tekið þegar fullyrt er að þetta sé HNEYKSLI. Vísvitandi fölsun. En hvaða til- gangi er þjónað með þessari hag- ræðingu á myndlistarkaupum Listasafns Islands? Hvað stjórn- ar þessu, budda kunningjanna og félaganna I FIM? Glötuö tækifæri Arið 1957 fluttist hingað til lands svissneskur myndlistar- maður að nafni Diter Rot og vann hér að list sinni I mörg ár, kenndi, hélt sýningar og kom á sambönd- um sem enn haldast. Það er öllum kunnugt sem með myndlistar- málum fylgjast, og raunar ó- hrekjanleg staðreynd, að enginn myndlistarmaður hefur haft eins mikil áhrif á kollega sina og Diter Rot, ekki slst þegar haft er I huga að hann er upphafsmaður eða byrjunarþátttakandi i flestum Hugleiðing- ar í tilefni 90 ára afmælis á þessu ári þeim stefnum myndlistar sem taka mið af nútimalegri hugsun. Meðlimir I safnráði Listasafns Is- lands héldu að sér höndum og þóttust ekki sjá hver hér var á ferð, þeir skildu ekki timanna tákn. 1 öðrum löndum áttuðu menn sig fljótt og söfnuðu verk- um þessa manns og fengu fyrir lltið, en nú hefur Listasafnið end- anlega misst af lestinni, mynd- verk Diters eru pyngju þess of- viöa. Þessi mistök Listasafnsins eru þau sem einna erfiðast verður að fyrirgefa. Annað dæmi i lista- sögunni er tengt islenskum myndlistarmanni ERRO, kannski er til ein mynd eftir hann i sölum eba geymslum safnsins, engin yfirlitssýning á verkum hans hef- ur verið haldin, ekkert verið gert, samt er þetta heimsfrægur mað- ur og á myndir útum alla jarð- kringluna. Og ekki er allt búið enn, núna eru aumingja mennirn- ir að glata einu tækifærinu enn: I Holíandi starfa þrir islenskir myndlistarmenn og eru að afla sér viðurkenningar fyrir listsköp- un sina, eftirsóttir i timarit og til sýningarhalds. Bráðum verður ó- gerningur fyrir Listasafn Islands að eignast verk eftir þessa mynd- listarmenn. Það ætti að vera ó- þarfi að taka það fram að ungir og starfandi listamenn á íslandi eru sniðgengnir af margnefndu safni. Þegar höfð eru I huga vinnu- brögð safnráðsins á undanförnum árum er ekki nema eðlilegt að ungir og framsæknir listamenn liti þá hornauga, — og það yrði voðaleg lifsreynsla fyrir þessa menn ef ráðið falaðist eftir verk- um þeirra. Þar með fengju þeir stimpilinn: gamaldags, hættu- laus, þurrausinn. Ungir menn vilja selja verk sín á meðan þau eru fersk og hvöss, en ekki blða þess að aðrir hafa óskapast með hugmyndir þeirra, útvatnað þær með brengluðu hugarfari og blandað I þær óskyldúm hlutum. Hvaö skal gera? Þeir sem láta sig máiefni Lista- safnsins eitthvað varða hljóta að krefjast þess aðöll starfsemi þess verði tekin til gagngerðrar rann- sóknar, að dregin verði fram öll gögn safnsins og þau gerð opin- ber. Gera verður úttekt á eigum safnsins, gjafir skulu flokkaðar annars vegar, keypt verk skulu flokkuð hins vegar. Lögum skal breyta til samræmis við lög skyldra stofnana erlendis, ný- tiskulegra listasafna. Kjósa skal menn af mismunandi sauðarhúsi i safnráð og veita þeim aðhald myndlistarfélaga. Nú, þegar stendur fyrir dyrum stækkun Listasafnsins og flutn- ingur þess I Glaumbæ, þá vilja velunnarar fylgjast með gangi mála. Hvað á aðgera? Hvernig er skipulagið? Einhverjar nýjung- ar? Opinberlega hefur ekkert verið sagt. Allt leynimakk i kringum Listasafn landsins verð- ur að vikja fyrir upplýsinga- skyldu og frjálsri skoðanamynd- un. Nú er það svo, að engin meiri- háttar breyting verður gerð á rekstri Listasafnsins nema að undangenginni samþykkt lög- gjafarvaldsins þarað lútandi, þess vegna eru allar tillögur til úrbóta miðaðar við það að lögun- um verði breytt. Listasafnið hef- ur átt að striða við bágborginn fjárhag, hér eru fimm leiðir tilað bæta hann: 1. Listasafnið selur megnið af þeim Abstrakt- og Expression- isku myndum sem það hefur sankað að sér á undanförnum áratugum. 2. Listasafnið leigir út myndir. 3. Listasafnið fær heimild I lög- um til þess að innheimta sektir hjá þeim aðilum, sendiráðum, skólum o.fl. sem ekki hafa skilað innkölluðum verkum. 4. Listasafnið tekur verk I um- boðssölu. 5. Listasafnið tekur inngangseyri af gestum safnsins. Þessu til viðbótar eiga allar op- inberar ölmusur til myndlistar- manna, listamannalaunin, að renna i sjóði safnsins, til kaupa á myndlis ta rverkum. Önnur nýbreytni Þegar horft er til framtiðarinn- ar og málefni Listasafns Islands skoðuð með tilliti til hennar, þá sýnist hugsanlegt að skipta starf- semi safnsins i tvær deildir sem hefðu sameiginlega yfirstjórn i ákvaröanatöku, fjármálum og listmati, en hefðu siðan nokkuð frjálsar hendur i daglegum störf- um. Til dæmis: 1. Rannsóknardeild, er tekur mið af núverandi starfi. 2. Rekstrardeild, er tekur mið af þeim nýjungum i safnrekstri sem vanræktar hafa verið hingað til. Rannsóknardeildin sinnir rann- sóknum á fornri myndlist og lýs- ingum ibókum, sér um viðhald og viðgerðir og skráir sögu mynd listar á Islandi, o.fl. Rekstrardeildin sér um þanr þátt, sem snýr að gestum, skipu leggur sýningar, hefur umsjói með bókakostinum, gefur ú timarit um myndlist, lánar og selur myndir, skipuleggur fyrir- lestra, færlistamenn til umræðn:i og kynningar á verkum si'num, heldur saman öllu þvi sem skrifa ) er I blöð og tfmarit um myndlist o.s.frv. Þessu til viðbótar getur Rekstrardeild Listasafnsins geit tilraunir i myndfræðslu, t.d. mel þvi að útbúa i' salarkynnum sir - um föndurstofu fyrir almenning og alið þannig upp listnjótendur með þvi' að höfða til sköpunar- gleðinnar. önnur leið til þess að koma myndlistinni til fólksins er sú, að útbúa strætisvagn þannig að i honum geti farið fram eiii- hver liststarfsemi, siðan eki r vagninn um borgina á vinnustaði. skóla, opinberar stofnanir og að ■- ar sem hýsa farlama fólk, gamalt fólk og annað þaö fólk sem býr við miklar kyrrsetur. Með þessu móti verður Listasafnið að lifrænni c g fjörlegri stofnun sem tekur tiliit til þarfa fólksins, aðlagast sifellt nýjum hugmyndum og er farveg- ur fyrir skapandi öflin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.