Þjóðviljinn - 09.11.1975, Page 11

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Page 11
Sunnudagur 9. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA tl A • A • B • C •• D •• Ð • E É • • F •• G •• H • • • •• l‘ í J K L MNOÓ P Q • • • •• • • • • • •• R S T U Ú V W X Y Ý Z •• • •• •• • •• • • • Þ •• Æ O • • • • • Blindraletur Louis Brailles 1825-1975 Louis Braille hefur fremur öll- um öðrum verið brautryðjandi fyrir blinda með blindraletri sinu, sem er nú notað um allan heim. Hann var franskur, fæddist i 'Coupvray 4. janúar 1809. Þriggja ára gamall varð hann fyrir miklu slysi i söðlagerð föður sins og var ekki hægt að bjarga sjóninni á þvi auga. En slysið hafði þær afleið- ingar fyrir heilbrigða augað, að það sýktist og eftir stuttan tima missti hann einnig sjónina ú þvi og varð alveg blindur. Foreldrar Brailles voru læs og skrifandi sem i þá tið var óvana- legt meðal sveitafólks, og fékk sonurinn að fara i skóla með sjá- andi börnum. Hann sýndi fljótt afar góða námshæfileika og 10 ára gamall eða árið 1819 fékk hann skólapláss við „Institution des Jeunes Aveugles de Paris”. Við skólann voru notaðir venju- legir bókstafir sem voru upp- hækkaðir. Reyndist blindum erf- itt að læra að lesa með þessu letri og Braille gerði sér fljótt grein fyrir þvi hversu takmarkandi það var að geta ekki kynnst bókvitinu. Hann hefur lýst þessu i dagbók sinni á eftirfarandi hátt: „Ég er blindur. Ég get ekki séð. Þá vaknar sú erfiða spurning: Hvað á ég að gera til að geta séð? Hvernig get ég fengið að lesa það sem sjáandi hafa skrifað? Um heimssöguna? Um listir? Um læknisfræði? Um stjórnmál? Um konur og menn? Um sjálfanmig? Um leyndardóm fæðingarinnar og kærleikans? I stuttu máli sagt, hvernig á ég, blindur maður, að hasla mér völl i heiminum sem hluti af honum? Hvernig get ég fengið að lesa og skrifa um at- Kvikmynd um fyrstu daga friðarins Hópur kvikmyndagerðar- manna frá Moskvu er kominn til Saigon til þess að gera kvikmynd um fyrstu friðsamlegu mánuðina i Suður-Vietnam eftir frelsun landsins. Kvikmyndastjórinn J. Vermisjev, hefur sagt, að hóp- urinn eigi að heimsækja bæi þar sem háðir voru harðir bardagar, ogaðhann muni hitta þátttakend- ur i þjóðfrelsishreyfingunni. J. Vermisjev hefur áður tekið margar heimildarkvikmyndir um Vietnam meðan þjóðfrelsisstriðið stóð yfir. (APN) Met í eldamennsku Lorenzo Herrara heitir maður bandariskur sem nú gerir tilkall til að eiga heimsmet i maraþon- eldamennsku. Náungi þessi stóð samfleytt við eldavélina i 100 klukkustundir, nema hvað hann tók sér fri i fimm minútur á hverjum klukkutima. Siðustu klukkutimana jós hann saltvatni á fætur sér til að linna þreytuþjáningar sinar. Þess er ekki getið hvað hann var að malla. Lesandi hendur burðina stuttu eftir að þeir ger- ast, til þess að ég geti fylgst með og dragist ekki afturúr?” í leit sinni að aðgengilegu letri fyrir blinda kynntist hann árið 1821 letri Barbiers sem ætlað var til nota i hernum og sem átti jafn- vel að vera hægt að lesa i myrkri. Letur Barbiers er samsett af 12 punktum i 2 röðum og eru 6 punktar i hvorri. Þessa 12 punkta var hægt að setja í kerfi sem passaði við flest orð I franskri tungu. Louis Braille reiknaði út, að ef maður fækkaði punktunum niður i 6, þá var það ekki einungis nóg til þess að gefa tákn fyrir alla bókstafina heldur var einnig hægt að tjá með þeim nótur, efnafræði- og jafnvel stærðfræðitákn. Eftir 2 ár tilraunir tókst honum árið 1825, þá 16 ára gömlum, að skapa hið fyrsta nothæfa blindraletur i heimi. Hann byggði kerfi sitt á eftirfarandi hugsun: Ferhyrningur með 6 punktum, með punktana i 2 lóðréttum röð- um, þar sem 3 punktar eru i hvorri röð, myndar tákn sem fingurgómur getur vel numið. Ef táknið væri 1 punkti hærra eða breiðara gætu litlir puttar ekki numið allt bókstafstáknið. Louis Braille heppnaðist með þessum 6 punktum að mynda letur, sem hægt er að setja saman á 63 mis- munandi vegu, og er með þvi hægt að tjá alla mannlega hugs- un, formúlur og fræði. Braille byggði letur sitt á ein- faldan og skipulagðan hátt. Fyrstu 10 bókstafirnir voru myndaðir af 4 efstu punktunum i 6 punkta ferhyrningnum. Næstu 10 stafir eru myndaðir með þvi að bæta við þriðja punktinum neðst til vinstri og hinir bókstafirnir eru myndaðir með hjálp annars eða beggja neðstu punktanna. Siðan hélt hann áfram og jók við kerfið, þannig að með þvi var hægt að tjá öll leturtákn. Gagnrýnendur sögðu frá byrjun, að letrið væri ekki hentugt fyrir stærðfræði. En Braille var heldur ekki neinn stærðfræðingur, hann var bara gáfaður og hugmyndaauðugur ungur maður, sem með hjálp fingra sinna leitaðist við að finna fyrir sjálfan sig og alla aðra blinda menn hentugt og nothæft letur sem hægt væri að lesa án sjónar. Þegar námsárunum lauk gerð- ist hann kennari við skólann sem hann hafði numið við og hélt jafn- framt áfram að vinna að upp- byggingu letursins. Kennarahæfi- leikar hans vöktu aimenna at- hygli og notaði hann blindraletrið við kennslu með miklum árangri. Arið 1829 gaf hann út fyrstu bók sina, þar sem hann lýsti reynslu sinni. Osamlyndi meðal kennara skólans leiddi til þess að dr. Pignier, sem hafði stutt Braille með ráð og dáð, var sagt upp og i hans stað kom Duaf. Duaf þoldi ekki velgengni Brailles og i einni af sjúkralegum Brailles lét hann brenna allar blindraietursbæk- urnar og setti i staðinn fyrir þær gömlu bækurnar með upphækk- uðu latnesku bókstöfunum. Braille lét ekki bugast, heldur hélt áfram starfinu og beið eftir tækifæri til að geta kynnt letur sitt á ný. Þetta tækifæri kom þeg- ar vigja átti nýbyggðan blindra- skóla sem átti að taka við af þeim gamla. Við vigsluna hélt maður sem Guadet hét ræðu sem hann hafði sjálfur skrifað á blindra- letri. Hann gerði samanburð á gamla latinuletrinu og blindra- letrinu með þeim árangri, að jafnvel Duaf sá að sér og skipti um skoðun. Braille hélt áfram störfum sin- um við skólann, en slæmt heilsu- far hans hindraði hann i að vinna frekar að gerð blindraletursins og að öðrum vandamálum, sem lágu honum þungtá hjarta. Hann dó 6. janúar 1852 og var jarðsettur i fæðingarbæ sinum. 22. júnf 1952 var hann hylltur um heim allan, þá voru hinar jarðnesku leifar hans fluttar frá litla sveitakirk ju- garðinum til Parisar, þar sem hann hvilir nú i Panthéon ásamt öðrum stórménnum frönsku þjóðarinnar. (Elinborg Lárusdóttir blindraráðgjafi þýddi) 30 metrar er ekki löng leiö, en engu aö síður talsveröur áfangi til bættrar þjónustu viö viðskiptamenn Iðnaðar- bankans. Á morgun 10. nóvember færum viö okkur um set og tökum í notkun nýtt húsnæöi í norðurenda hússins aö Háaleitisbraut 58-60. Nú getum viö boöiö vistlegri húsakynni og um leið betri þjónustu. Iðnaðarbankinn Háaleitisbraut 58-60.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.