Þjóðviljinn - 09.11.1975, Síða 11
Sunnudagur 9. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA tl
A • A • B • C •• D •• Ð • E É • • F •• G •• H •
• • ••
l‘ í J K L MNOÓ P Q
• • • •• • • • • • ••
R S T U Ú V W X Y Ý Z
•• • •• •• • •• • • •
Þ •• Æ O • •
• • •
Blindraletur Louis
Brailles 1825-1975
Louis Braille hefur fremur öll-
um öðrum verið brautryðjandi
fyrir blinda með blindraletri sinu,
sem er nú notað um allan heim.
Hann var franskur, fæddist i
'Coupvray 4. janúar 1809. Þriggja
ára gamall varð hann fyrir miklu
slysi i söðlagerð föður sins og var
ekki hægt að bjarga sjóninni á þvi
auga. En slysið hafði þær afleið-
ingar fyrir heilbrigða augað, að
það sýktist og eftir stuttan tima
missti hann einnig sjónina ú þvi
og varð alveg blindur.
Foreldrar Brailles voru læs og
skrifandi sem i þá tið var óvana-
legt meðal sveitafólks, og fékk
sonurinn að fara i skóla með sjá-
andi börnum. Hann sýndi fljótt
afar góða námshæfileika og 10
ára gamall eða árið 1819 fékk
hann skólapláss við „Institution
des Jeunes Aveugles de Paris”.
Við skólann voru notaðir venju-
legir bókstafir sem voru upp-
hækkaðir. Reyndist blindum erf-
itt að læra að lesa með þessu letri
og Braille gerði sér fljótt grein
fyrir þvi hversu takmarkandi það
var að geta ekki kynnst bókvitinu.
Hann hefur lýst þessu i dagbók
sinni á eftirfarandi hátt:
„Ég er blindur. Ég get ekki séð.
Þá vaknar sú erfiða spurning:
Hvað á ég að gera til að geta séð?
Hvernig get ég fengið að lesa það
sem sjáandi hafa skrifað? Um
heimssöguna? Um listir? Um
læknisfræði? Um stjórnmál? Um
konur og menn? Um sjálfanmig?
Um leyndardóm fæðingarinnar
og kærleikans? I stuttu máli sagt,
hvernig á ég, blindur maður, að
hasla mér völl i heiminum sem
hluti af honum? Hvernig get ég
fengið að lesa og skrifa um at-
Kvikmynd
um fyrstu
daga friðarins
Hópur kvikmyndagerðar-
manna frá Moskvu er kominn til
Saigon til þess að gera kvikmynd
um fyrstu friðsamlegu mánuðina
i Suður-Vietnam eftir frelsun
landsins.
Kvikmyndastjórinn J.
Vermisjev, hefur sagt, að hóp-
urinn eigi að heimsækja bæi þar
sem háðir voru harðir bardagar,
ogaðhann muni hitta þátttakend-
ur i þjóðfrelsishreyfingunni. J.
Vermisjev hefur áður tekið
margar heimildarkvikmyndir um
Vietnam meðan þjóðfrelsisstriðið
stóð yfir. (APN)
Met í eldamennsku
Lorenzo Herrara heitir maður
bandariskur sem nú gerir tilkall
til að eiga heimsmet i maraþon-
eldamennsku.
Náungi þessi stóð samfleytt við
eldavélina i 100 klukkustundir,
nema hvað hann tók sér fri i fimm
minútur á hverjum klukkutima.
Siðustu klukkutimana jós hann
saltvatni á fætur sér til að linna
þreytuþjáningar sinar. Þess er
ekki getið hvað hann var að
malla.
Lesandi hendur
burðina stuttu eftir að þeir ger-
ast, til þess að ég geti fylgst með
og dragist ekki afturúr?”
í leit sinni að aðgengilegu letri
fyrir blinda kynntist hann árið
1821 letri Barbiers sem ætlað var
til nota i hernum og sem átti jafn-
vel að vera hægt að lesa i myrkri.
Letur Barbiers er samsett af 12
punktum i 2 röðum og eru 6
punktar i hvorri. Þessa 12 punkta
var hægt að setja í kerfi sem
passaði við flest orð I franskri
tungu.
Louis Braille reiknaði út, að ef
maður fækkaði punktunum niður
i 6, þá var það ekki einungis nóg
til þess að gefa tákn fyrir alla
bókstafina heldur var einnig hægt
að tjá með þeim nótur, efnafræði-
og jafnvel stærðfræðitákn. Eftir 2
ár tilraunir tókst honum árið 1825,
þá 16 ára gömlum, að skapa hið
fyrsta nothæfa blindraletur i
heimi. Hann byggði kerfi sitt á
eftirfarandi hugsun:
Ferhyrningur með 6 punktum,
með punktana i 2 lóðréttum röð-
um, þar sem 3 punktar eru i
hvorri röð, myndar tákn sem
fingurgómur getur vel numið. Ef
táknið væri 1 punkti hærra eða
breiðara gætu litlir puttar ekki
numið allt bókstafstáknið. Louis
Braille heppnaðist með þessum 6
punktum að mynda letur, sem
hægt er að setja saman á 63 mis-
munandi vegu, og er með þvi
hægt að tjá alla mannlega hugs-
un, formúlur og fræði.
Braille byggði letur sitt á ein-
faldan og skipulagðan hátt.
Fyrstu 10 bókstafirnir voru
myndaðir af 4 efstu punktunum i 6
punkta ferhyrningnum. Næstu 10
stafir eru myndaðir með þvi að
bæta við þriðja punktinum neðst
til vinstri og hinir bókstafirnir eru
myndaðir með hjálp annars eða
beggja neðstu punktanna. Siðan
hélt hann áfram og jók við kerfið,
þannig að með þvi var hægt að
tjá öll leturtákn. Gagnrýnendur
sögðu frá byrjun, að letrið væri
ekki hentugt fyrir stærðfræði. En
Braille var heldur ekki neinn
stærðfræðingur, hann var bara
gáfaður og hugmyndaauðugur
ungur maður, sem með hjálp
fingra sinna leitaðist við að finna
fyrir sjálfan sig og alla aðra
blinda menn hentugt og nothæft
letur sem hægt væri að lesa án
sjónar.
Þegar námsárunum lauk gerð-
ist hann kennari við skólann sem
hann hafði numið við og hélt jafn-
framt áfram að vinna að upp-
byggingu letursins. Kennarahæfi-
leikar hans vöktu aimenna at-
hygli og notaði hann blindraletrið
við kennslu með miklum árangri.
Arið 1829 gaf hann út fyrstu bók
sina, þar sem hann lýsti reynslu
sinni.
Osamlyndi meðal kennara
skólans leiddi til þess að dr.
Pignier, sem hafði stutt Braille
með ráð og dáð, var sagt upp og i
hans stað kom Duaf. Duaf þoldi
ekki velgengni Brailles og i einni
af sjúkralegum Brailles lét hann
brenna allar blindraietursbæk-
urnar og setti i staðinn fyrir þær
gömlu bækurnar með upphækk-
uðu latnesku bókstöfunum.
Braille lét ekki bugast, heldur
hélt áfram starfinu og beið eftir
tækifæri til að geta kynnt letur
sitt á ný. Þetta tækifæri kom þeg-
ar vigja átti nýbyggðan blindra-
skóla sem átti að taka við af þeim
gamla. Við vigsluna hélt maður
sem Guadet hét ræðu sem hann
hafði sjálfur skrifað á blindra-
letri. Hann gerði samanburð á
gamla latinuletrinu og blindra-
letrinu með þeim árangri, að
jafnvel Duaf sá að sér og skipti
um skoðun.
Braille hélt áfram störfum sin-
um við skólann, en slæmt heilsu-
far hans hindraði hann i að vinna
frekar að gerð blindraletursins og
að öðrum vandamálum, sem lágu
honum þungtá hjarta. Hann dó 6.
janúar 1852 og var jarðsettur i
fæðingarbæ sinum. 22. júnf 1952
var hann hylltur um heim allan,
þá voru hinar jarðnesku leifar
hans fluttar frá litla sveitakirk ju-
garðinum til Parisar, þar sem
hann hvilir nú i Panthéon ásamt
öðrum stórménnum frönsku
þjóðarinnar.
(Elinborg Lárusdóttir
blindraráðgjafi þýddi)
30 metrar er ekki löng leiö, en engu
aö síður talsveröur áfangi til bættrar
þjónustu viö viðskiptamenn Iðnaðar-
bankans.
Á morgun 10. nóvember færum viö
okkur um set og tökum í notkun nýtt
húsnæöi í norðurenda hússins aö
Háaleitisbraut 58-60.
Nú getum viö boöiö vistlegri húsakynni
og um leið betri þjónustu.
Iðnaðarbankinn
Háaleitisbraut 58-60.