Þjóðviljinn - 09.11.1975, Síða 12

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. nóvember 1975. Sunnudagur 9. nóveinber 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Suður I Fossvogi hefur verið rekinn barnaskóli eins og í öðrum hverfum frá 1971. Þessi skóli er þó að flestu leyti gjöró- líkur öðrum skólum, þetta er svonefndur ,,op- inn skóli”. Skólastjóri i Fossvogi er Kári Arnórsson. Fyrir skömmu átti blaðamað- ur Þjóðviljans viðtal við Kára þar sem hann skýrði frá reynslunni af þessu nýja skólaformi. En fyrst skilgreindi hann muninn á opnum skóla og hinum hefð- bundna barnaskóla. — Það má greina þennan mun i fjóra þætti: í fyrsta lagi er skóla- dagurinn samfelldur og náms- greinaskipting hefur að mestu verið lögð niður, þ.e. reynt er að láta námsgreinar skarast eins og hægt er. 1 öðru lagi er árgöngun- um blandað saman. Þetta er fé- lagslega heppilegt og krefst þess að einhverjum einstaklingi sé sinnt meira en tiðkast hefur. Þetta atriði er reyndar einn höf- uðþáttur opna kerfisins: aö koma til móts við hæfileika einstak- lingsins. t þriðja lagi er samvinna kenn- ara mikil.Þeirvinna saman tveir eða fleiri, hver ber ábyrgð á sin- um hópi en vinnusvæðin i skól- anum skipta honum niður. Kenn- arar sinna hver sinu svæði hvort sem nemendurnir eru úr hans hópi eða ekki. Þetta krefst náinn- ar samvinnu og að kennararnir skipuleggi starf sitt vel.Þeirgeta lika tekið nemendur sem eru á svipuðu stigi i námi i það sem við nefrium kennslukróka. Þetta hef- ur i för með sér að seinfærir nem- endur líða ekkert. Eins getur dug- legur 8 ára nemandi haft náms- efni 9 ára barna án þess kerfið raskist nokkuð. SKOLIN Rætt viö Kára Arnórsson skólastjóra Fossvogsskóla þar sem gerðar eru tilraunir meö nýja tegund barnaskóla í fjórða lagi er skólabyggingin öðruvisi en venjan er. Hér er mik- ið lagt upp úr þvi að hafa um- hverfið aðlaðandi og námshvetj- andi. A vinnusvæðunum er stillt upp ýmsum hlutum sem tengjast námsefninu á hverjum tima. Það mætti raunar nefna fleira til. Skoðunarferðir eru rikur þátt- ur i náminu. Við förum með nem- endur og skoðum vinnustaði eða náttúruna og svo er unnið úr efn- inu sem safnast næstu 1-2 vikurn- ar. Með þessu reynum við að tengja skólann við daglegt lif. Bekkjarskólinn hefur á hinn bóg- inn tilhneigingu til að einangrast, verða sjálfstæður lokaður heim- ur. Aö lifa í sátt viö umhverfið Það er kannski best að lýsa ein- um skóladegi hjá okkur. Hann hefst klukkan 8.50 á morgnana þegar börnin koma í skólann (hér mætir enginnfyrr). Þá mæta þau iheimakróka þar sem þau sitja á gólfinu umhverfis kennarann og spjalla saman um heimavinnuna, starf dagsins og það sem efster á baugi. Þarhafa þauöll sinar eigin hirslur sem þau geyma i verkefni sin. Siðan velja nemendur sér verkefni og skipta sér niður á vinnusvæöin. Þar er unnið i tvær klukkustundir án friminútna. Kennararnir ganga um og leið- beina nemendum við vinnuna. Þeir eyöa litlum tima i predik- anir, nemendur eru látnir vinna eins sjálfstætt og hægt er. Að þessari tveggja tima lotu liðinni eru 20 minútna friminútur. Siðan mæta nemendur aftur i heima- króka, en svo tekur við önnur tveggja tima lota. A vinnusvæðunum sitja börnin gjaman fjögur saman við borð. Þaumega ræðastvið, vinna sam- •an og ganga um. Höfuðreglan er að enginn má trufla annan viö vinnu. Opna kerfið leggur áherslu á tillitssemi viðnáungann. Börnin verða að læra að lifa i samfélagi, læra það náttúrulögmál að lifa i sátt við umhverfi sitt. — Þú segir að námsgreina- skiptingin sé að mestu lögð niður. Hvernig birtist það? — Það má nefna, að i haust þegar skólinn hófst lá fyrir að fiskveiðilögsagan yrði færð út 15. október. Við bjuggumst við mikl- um umræðum um fiskveiðimál, friðun oþh. f kjölfar útfærslunnar. Við byrjuðum þvi náttúrufræði- kennsluna með fiskunum. Næst ræddum við friðun fiski- stofnanna, sjávarútveg og fisk- vinnslu. Siðan fikruðum við okkur upp á land og erum núna að fjalla um fjörulifið. Næst verður svo farið lengra upp á land og landa- fræðin tekin fyrir og úr henni far- ið yfir í söguna. —- En hvernig gengur að halda sig við námsskrána með þessu móti? — Námsskráin er nú að miklu levti bara rammi utan um námið, en við höldum okkur að mestu leyti við hana. Við förum hins vegar nokkuð frjálslega með röð- ina, flytjum efni gjarnan milli ára. 1 fyrra var t.d. þjóðhátiðarár og þá fórum við yfir tslandssög- una alla, þe. námsefni allra bekkjanna. Aö læra meö höndunum — Hverjar eru helstu kenni- setningar opna kerfisins? — Að sinna hverjum einstak- lingi og stuðla að alhliða þroska hans. Það leggur meiri áherslu á uppeldi en beina fræðslu, það er reynt að láta nemandann taka frumkvæöi og efla með honum sjálfstæði vinnubrögð, veita hon- um möguleika til að læra af reynslunni. Við reynum að koma til móts við hæfileika hans með þvi að veita honum valfrelsi i náminu og eins hvað snertir vinnuaðferðir. Honum er frjálst að vinna úrnámsefninuhvort sem er skriflega með teikningu eða mótun i efni. Einnig reynum viö að upphefja skilin sem algengt er að séu milli bóklegra greina ann- ars vegar og handavinnu, fönd- urs, söngs og leikfimi hins vegar en siðarnefndu greinarnar hafa gjarnan verið settar sér á pall sem einskonar aukagreinar. Með þessu viljum viðsýna nemendum að nám getur komið til gegnum hendurnar ekkertsiðuren augun. Þessi áhersla á vinnubrögðin eru mikil nauðsyn i þéttbýlisþjóð- félagi nútimans. Áður fyrr sáu heimilin um vinnuuppeldi barnanna en nú er þaö liðin tíð. Þar verður skólinn að taka við og i licimakrók. Séö yfir eitt vinnusvæðanna, Kári skólastjóri til vinstri. kenna mönnum að nýta umhverfi sitt til náms. Þessi kunnátta var fyrir hendi áður, þá kynntust börn lifinu, atvinnuháttum og vinnu- brögðum af umhverfi sinu.en nú vita fæst þeirra hvað foreldrar þeirra gera utan heimilisins. Þörfum þeirra er sinnt með gervilausnum, sjónvarpi, leik- föngum o.h. Barnið sjálft fær lítil tækifæri til að þroska hæfileika sina. Hér verður skólinn aö koma til móts við það. Fá próf — engar einkunnir — Finnst þér þetta kerfi gefa góða raun? — Já, ég er hrifnari af þessu kerfi en bekkjakerfinu. Hér eru nemendurnir virtir sem einstak- lingar og allir fá jafnari tækifæri. Einnig gefst kennurunum betri kostur að aðlaga nemandann skólanum.Þaðermikil breyting i lífi barnsins að koma i skóla og það þarf tima til að venjast þvi. Einnig gefur blöndunin góða raun, ekki sist fyrir eldri nem- endur. Þeir hafa mjög gott af að læra að umgangastsér yngri börn og læra að taka tillit til þeirra. Yf- irdrottnunin er rik i sumum börn- um en kennararnir reyna að út- rýma henni. — Nú hafa heyrst tortryggnis- raddir um að börnin læri ekkert hér, valfrelsið leiði til þess að þau ýmist vaði úr einu i annað eða sinni aðeins einni námsgrein. Hvað viltu segja um þetta? — Þetta kemur ma. af þvf að fólk þekkir ekki til skólans og ekki þá hugsun sem að baki býr. Jafn- vel kennarar sem byrja i þessu kerfi eru lengi að átta sig. En nemendur verða að gera kennur- unum grein fyrir sinni vinnu. Að öðrum kosti fá þau ekki að skipta um námsgrein. Það er vel fylgst með þvi að ekki sé vaðið úr einu I annað. Þessi tilhögun krefst að- halds en nemendur eiga að bera sjálfir ábyrgð á sinni vinnu; meö þvi öðlast hún tilgang. Við reyn- um lika að sýna nemandanum að stjórnin kemur ekki öll að ofan heldur er hann sjálfur þátttak- andi I skipulagningu námsins. Með þvi náum við fram meiri virkni nemandans og einnig sjálfsnámi hans, þe. hann biður ekki eftir að fá skipanir um hvað hann á að gera heldur ræðst i verkefnið fyrir eigin frumkvæði. En það er langt þvi frá að við höf- um náð fullkomnun enda næst hún vist ekki i neinu kerfi, guði sé lof. — Það er litið um próf hér i skólanum. —■ Já, við höfum að visu prófað nemendur i skrift og reikningi en það er aðallega til að fá saman- burð við aðra skóla. Að þeim yfir- förnum fá börnin þau aftur i hendurnar svo þau geti lært af mistökunum. Við höfum á hinn bóginn það sem við nefnum könn- unarverkefni. Með þeim athuga kennararnir hvar nemendur eru staddir i náminu. tinna veilur hjá þeim sem bæta má með brevting- um á kennslunni. Við sendum engar tölulegar einkunnir heim til barnanna. Þess i stað semja kennarar skriflegar umsagnir um nemendur. Þær knýja kennarann til aö skoðá hvern einstakan nem- anda nánarog gera sér grein fyr- ir honum. A öllum veggjum skólans hangir vinna nemenda. Malreiöslukennsla. WSm Veggskreytingar á vinnusvæöi tcngdar sjávarútvegi. Þarf aö kynna opna kerfiö betur — Hvernig ha/a kennarar brugðist við þessu nýja kerfi? — Kennararnir hér eru flestir ungir, og margirþeirra byrjuöu sinn feril hér. Þetta er á margan hátt heppilegt þvi það getur ■ reynst kennurum sem kennt hafa við hefðbundna skóla erfitt að setja sig inn i nýjan hugsunar- hátt. Það er erfitt að losna við þá hugsun að allir nemendur eigi að vinna 'eins á sama tima. Það er full þörf á að auka kennslu i þessu nýja kerfi I Kennaraháskólanum. Þar eru kenningar opna skólans kenndar en ekki vinnubrögðin. Úr þessu þarf að bæta, einkum i ljósi þess að opna kerfið er að breiðast út. I vetur byrjuðu Hólabrekku- skóli og ölduselsskóli á þessu og Viðistaðaskóli i Hafnarfirði er að Framhald á 14. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.