Þjóðviljinn - 09.11.1975, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 9. nóvember 1975. Leiöbeiningar Stafirnir mynda islensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti, hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við' lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, þvi að með þvi eru gefnir stafir i allmörgum öðrum orð- um. Það eru þvi eðlileg- ustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern i sinn reit eftir þvi sem töl- urnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, aö i þessari krossgátu er gerður skýr greinarmun- ur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið i stað á og öfugt. MARCEI.LUSAI SKALHOLTS B ÍSKUPS / z l T~ 22 ¥ 5- b 7 8 8 V V 9 /0 11 b (6 22 12 9 /3 II b (p 2? 13 V IV 7 8 Is 3 22 7 IV Ks> 5 IV /3 22 0 'F V <9 18 3 b (0 I5~ 18 22 20 21 8 IV 18 1/ 8 10 2Z 12 8 23 2¥ II 18 22 2S 2! 10 IV 3 22 iv 25- <P 2! 2k> 27 rt 15 V 23 92 3 b 3 22 22 23 25- V V 28 P 3 t°i u IV <y 2V ? Q2 22 21 21 2P IV V 23 ? 11 H 22 b 22 28 IV 15' V 15' 23 23 12 15 21 13 3 0? 30 22 18 b 31 22 17- 13 92 22 3 15 22 22 22 u. 1? IV 15 IV 22 IV 25- 18 92 2/ fo IV 9 10 20 b 3 22 3 19 3 92 21 1S 8 (0 3 92 IV !S~ & sz 25- /¥ 3 H 22 /3 31 /0 10 92 S2 22 IV 3 52 *K***K*Í*t;tA Wæ/ , i«9 í Setjið rétta stafi i reitina neðan við krossgátuna og mynda þeir þá nafn á sögufræg- um stað á Islandi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustig 19, fyrir 25. nóv. nk. merkt „Verðlaunakrossgáta 7”. Dregið verður úr réttum lausnum, en verðlaunabókin að þessu sinni er Ævintýri Marcell- usar Skálholtsbiskups eftir Björn Þorsteinsson sagnfræð- ing, sem kom út hjá Heims- kringlu árið 1965. Bókin fjallar að nokkru leyti um stórpólitik Vesturlanda um miðja 15. öld og er atburðum stillt upp sem baksviði islenskra atburða. Hún greinir frá örlaga- riku timabili hér á landi, skeiði, sem Björn Þorsteinsson hefur rannsakað manna best. Marcellus de Nieveris er frægastur allra þeirra sem bor- ið hafa biskupsnafn i Skálholti, en komst raunar aldrei til stað- arins. Hann var mikill æv- intýramaður, lenti margoft I fangelsi og var hengdur og bannfærður af sjálfum páfa. Samt hélt hann biskupstign til æviloka og lét mikið að sér kveða hér á landi, var m.a. herra af Vestmannaeyjum og hirðstjóri yfir öllu íslandi. \b n (9 3 1+ OPNI SKÓLINN Framhald af 13. siðu. hugsa sér til hreyfings sem og þrir skólar á landsbyggðinni. Þetta er það sem koma skal en þar með er ekki sagt að það verði alveg eins i þessum skólum og hér. Þróunin erlendis hefur orðið sú að hvert þjóðfélag og jafnvel hver skóli hefur sitt form. Hug- myndin er sú sama en útfærslan ræðst af aðstæðunum. — Er opna kerfið útbreitt er- lendis? — Já, það er að ryðja sér til rúms I Evrópu og Bandarikjun- um. A Englandi nær það td. til 80% barnaskóla sem þar lýkur við ellefu ára aldur. Þetta er lika að þokast upp eftir skólakerfinu. Það hafa orðið mistök i þessu eins og öðru en þau hafa ekki orðið til að draga úr útbreiðslunni. Meðalkröfur skapa vandamál — Nú hætta börnin hjá ykkur 12 ára gömul og fara þá i gagn- fræðaskóla. Er ekki hætta á að þau geri uppreisn þegar þau koma inn i bekkjakerfið? — Það hljóta að verða mikil viðbrigði fyrir þau þegar þau koma þangað. Það er meiri fag- kennsla, þau fá marga kennara, lenda i ákveðnum bekkjum þar sem eru fastir timar og þögn á að rikja. Erlendis hefur þróunin orð- ið sú að þessir nemendur hafa knú- ið á um breytingar á. gagnfræð- askólunum og skólarnir hafa breyst. Nemendurnir úr opna skólanum eru ekki vanir að sitja kyrrir og hlusta. En þetta fer vitaskuld eftir viðhorfunum i hverjum skóla. Við höfum hugsað okkur að kynna okkar starf meðal kennara Réttarholtsskólans en þangað fara flestir okkar nem- endur. Það er þörf á góðri sam- vinnu til að draga úr viðbrigðun- um. — Hefur verið rætt um að reyna opna kerfið i gagnfræð- • askólum? — Nei, en það væri vel þess virði. Annars þarf þetta að fara rólega af stað. Starfsfólk skól- anna þarf að þekkja kerfið vel. A cinum stað var búið að byggja heila höfn úr plasti og pappa Þessa tvo hciðursmenn rakst Ari Ijósmyndari á við sauma. En það er sjálfsagt að losa um vinnubrögðin á gagnfræða- stiginu. Raunar er ég þeirrar skoðunar að það þyrfti að ger- breyta gagnfræðaskólunum. Þeir byggja á gamla latínuskólanum þar sem mjög góðir bóknámsnem endur njóta sin best, en litið er komið til móts við hina. Þessar meðalkröfur i bekkjakerfinu skapa mörg vandamál, þeir sem ekki standast þær eru vandræða- börn og þeir sem fram úr skara reyndar einnig, þvi þeir hafa litið sem ekkert að gera. Þrengsli há skólanum — Að lokum, Kári, hvernig hef- ur samvinnan við yfirvöld gengið? — Hún hefur í höfuðatriðum gengið vel. Þessi tilraun er gerð samkvæmt ákvörðun borgaryfir- valda og i upphafi var vel búið að skólanurn. Það ríkir hins vegar varla nógur skilningur á þvi að þessi skóli er öðruvisi en aðrir skólar. Hér er mjög erfitt að tvi- setja ef skóladagurinn á að vera samfelldur. Það þýðir að seinni hópurinn byrjar ekki fyrr en klukkan tvö eftir hádegi. Við höf- um reynt að einsetja en þrengslin eru mikil. Við höfðum i fyrra nokkrar lausar kennslustofur en þær hafa nú verið fluttar upp i Breiðholt. Þessar stofur þurfum við að fá aftur. Það á eftir að byggja eina álmu við skólann, en við höfum engin svör fengið við þvi hvenær það verður gert. Við höfum 650 nemendur i tveimur húsum og nýtúm hverjaskonsuog kompu til kennslu. Það er of litið tillit tekið til nemenda hér á landi. Það er alger óhæfa að ætla nemendum að stunda sina vinnu eingöngu seinni hluta dagsins og gera sömu kröf- ur til þeirra og hinna sem byrja ó- þreyttir að morgni. Ég veit ekki um neina þjóð i Evrópu sem leyfir sér að hafa tví- eða þrisetta skóla. Þar erum við alveg sér á báti. —ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.