Þjóðviljinn - 09.11.1975, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Qupperneq 15
Sumiudagur í). nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Alfa Beta er nýtt tríó skipað gömlum popp- grúppukempum úr Roof Tops og Borgís. Þeir eru Guðmundur Haukur Jóns- son, Halldór Olgeirsson og Atli Viðar Jónsson. t fyrri viku röbbuðum við heil- lengi saman, en ég hafði hugsað mérað sjóða saman viðtal við þá. Þegar ég svo fór að hlusta á rabb- ið komst ég að raun um það, að liklega höfðaði meginhlutinn ekki til neinna nema okkar sjálfra, svo viðtalið minnkaði að mun. Hvenær var Alfa Beta stofnuð? GH: Það er liðlega mánuður siðan við byrjuðum að æfa, en við getum liklega talið að hljómsveit- in hafi verið stofnuð er við skemmtum okkur allir þrir sam- an i fyrsta sinni og ræddum mál- in. Það er frumskilyrði að hljóm sveitin geti skemmt sér saman, ef hún ætlar að skemmta öðru fólki. Hvernig hljómsveit teljið þið ykkur vera? AB: Við viljum alls ekki kalla okkur gömlúdansahljómsveit, eins og kvisast hefur út. Við spil- um lög sem við höfum gaman af sjálfir, við erum með rúmlega 20 ALFA BETA nýtt tríó lífsglaðra hljóðfæra leikara lög með islenskum textum, og svo erum við með erlend hröð lög og róleg. Þar fyrir utan leikum við lika borð-tónlist (dinner-music), polka og ræla svona til aukinnar skemmtunar. Við erum að spila til þess að skemmta öðrum og okkur.. Er það ekki dálitið einhæft að vera bara þrir, þ.e.a.s. það eru alltaf sömu hljóðfærin sem heyr- ist i? AB: Við ætlum nú reyndar að hafa þetta nokkuð frjálst. Guðmundur Haukur kemur t.d. til með að spila eitthvað á bassa og Atli Viðar á gitar, svo syngjum við allir eitthvað. Þar fyrir utan eru allir saxafónleikarar á land- inu velkomnir að spila nokkur lög með okkur á kvöldi. Og eins aðrir sólóistar. Eruð þið búnir að konia eitt- hvað fram að ráði? AB: Nei, bara 3—4 sinnum og einu sinni meö Stormum. Það vildi nefnilega svo til, að bassa- leikarann og söngvarann vantaði, svo þeir báðu Guðmund Hauk að syngja með sér og leika á bassa. En Guðmundur var hálf-smeykur við að spila á bassa og syngja um leið, svo hann lét þá ráða Atla með á bassa, nú, og fyrst við vor- um komnir tveir út i þetta þá tók- um við Halla bara með og hann söng lika. Og hver er svo stefnan? AB: Stefnan er að vera i lausa- bisniss. Festa okkur ekki við neitt öldurhús. Við sem erum búnir að spila i átta ár og lengur látum ekki hafa okkur út i það að spila upp á lágmarkstaxta FÍH. Við munum spila fyrir þá sem bjóða okkur mannsæmandi kaup. HICKORY WIND í TÓNABÆ Siðastliðið sunnudagskvöld bauð Tónabær upp á konsert með bandarisku „hillbilly” -grúppunni Hickory Wind. Hickory Wind hefur til þessa einungis gefið út eina breið- skifu, en önnur er væntanleg. Nafnið Hickory Wind hafa þeir tekið upp eftir samnefndu lagi hins frábæra Gram Parsons sem fyrst kom fram á plötu Byrds, „Sweetheart Of Rodeo”. Hickory Wind notuðu þetta lag til að klykkja út ágætum, en kannski full-löngum konsert. Til að byrja með léku þeir mest bluegrasstónlist, en eftir fyrra hléið komu þeir islendingum til að klappa með ,,hoedown”-lag. (Það er alltaf hægt að fá islend- inga til að klappa, en sjaldan meira). Þeir tóku þarna lika lag Chuck Berrys „Promised Land” i skemmtilegri hill- billy-útsetningu og eins „Its All Over Now”. Reglulega skemmtileg hljómsveit. mStmk NYJAR HLJÓM- PLÖTUR MEGAS: , „SPÁÐU í MIG”/ „KOMDU OG SKOÐAÐUí KISTUNA MÍNA” (Demant hf/ D2-003) 1975 Um leið og Demant hf. gaf út þessa plötu Megasar: „Spáðu i mig” og „Komdu og skoðaðu i kistuna mina”, lofuðu þeír end urútgáfu fyrstu breiðskifu kappans nú fyrir jólin. Það get- ur varla þýtt annað en það, að útgáfa breiðskifunnar Milli- lendingar hefur borgað sig og Demant hf. treysti á áframhald- andi plötuframleiðslu Megasar. Það er visst gleðiefni, þvi þar með hefur öllum hrakspám ver- ið hrundið. Og Ragnheiður biskupsdóttir er meira að segja komin i óskalagaþætti. Þessi smáskifa Megasar, sú fyrsta, er ein af skemmtilegri slikum. „Spáðu i mig”, eitt melódiskasta lag hans og auk þess eitt af hans allra bestu lög um, kom reyndar út sem loka- lag á fyrri breiðskifu hans en upptaka og útkoma þess þar var svo herfileg að ekki er nema von að hann hafi viljað fá lagið aftur á plötu. Auk þess er textinn svo fallegur og einfaldur og allur flutningur (kannski undanskil- inn Megas sjálfur) er svo „commercial”, að lagið hlýtur að ná vinsældum. A plötumiðanum eru kær- komnar upplýsingar um hljóð- færaleikara hverju lagi. f lag- inu „Spáðu i mig” koma fram auk Megasar, Vignir Bergmann (rafmagnsgitar), Kristján Möndull (kassagitar), Finnbogi Kjartansson (bassagitar) og Hrólfur Gunnarsson (tromm- ur). Þessi hljómsveit mallar mjúklega á bak við Megas eins og bestu stúdió-músikantar. Kristján Möndull er sá sem á eitt andlitið aftan á Megasar- plötunni siðustu. Reyndar heitir hann nú annað i þjóðskránni, en vill vist vera enn einn huldu- maðurinn. Vignir á allfallegan gitarsólókafla i lok lagsins. „Komdu og skoðaðu i kistuna mina” er svo sannarlega ekki með sama texta og hitt lagið með sama heiti. Textann segist Megas hafa samið vegna þess að sér hafi fundist að það mætti gera meira úr þessi heiti. Hann hefur svo sannarlega gengið lengra. jafnvel út fyrir vel- sæmismörkin. Þó að Dylan hafi nokkrum sinnum verið hrotta- fenginn og kaldur.... Lagið er byggt á hinu frábæra lagi Dylan’s ,Only A Hobo”, sem reyndar finnst ekki nema á bootleg. En mig minnir nú lika að Dylan hafi hnuplað laginu frá Woody Guthrie. Óttar Felix leikur hér á ritmagitar og Magnús Eiriksson á munn- hörpu, og ganga báðir frábær- lega frá sinu verki. Besta draugasaga sett á plötu! BJARKI TRYGGVASON: (Demant hf/D2 D-2 004) 1975 „WILD NIGHT”/ „HVER ERT ÞÚ?” Héma i gamla daga var Bjarki ofsa-vinsæll. Það er að segja þegar hann var með „Gló- koll”. Þðlag dundi á öldum ljós- vakansárog sið, það hljóta allir að muna. Svo hætti Bjarki með Póló (hljómsveitin hans i gamla daga) og fór að syngja og leika á bassa i Hljómsveit Ingimars Eydal, söng meðal annars i „Sól og sumaryl”, og var áfram vin- sæll. Nú er Bjarki kominn i hljómsveitina Mexikó og leikur þar á bassa og syngur. A þessari tveggja laga plötu sem er, eins og Bjarki sjálfur hefur sagt, ekkert „mikið mál”, eru tvö erlend lög: lag Van Morrisons „Wild Night” með upprunalegum enskum texta, og „Tequila Sunrise” sem er með islenskum texta og nefnist „Hver ert þú?” tslenski texinn er eftir Böðvar Guðmundsson ogvarla neitt meistaraverk sem slikur. Lagið er svo eftir þá kumpána i Eagles, Don Henley og Glenn Frey, en sá siðar- nefndi er ekki krediteraður á plötu Bjarka, en á „Desperado”, plötu Eagles er ekki gefið upp hvor semji tón- listina og hvor textann. Útsetning Bjarka, eða hvers þess sem útsetti, á lagi Van Morrisons er fremur léleg og sama ogekkert breytt, en flutn- ingur stenst alls ekki saman- burð við útsetningu höfundar, sem er i alla. staði það góð að varla er þörf á algerri eftirlik- ingu, meira segja er Bjarki slappur, og góður hljóðfæraleik- ur Júdasar og Rúnars Georgs- sonar fara fyrir ofan garð og neðan. „Hver ert þú?” er aftur á móti þó nokkuð betra og vel flutt og gæti orðið óskalag i svo- nefndum þáttum. Söngur Bjarka er mjög góður og lagið bara sæmilega frágengið. Reynir Sigurðsson, vibrafón- leikari virðist ætla að verða eft- irsóttur stúdiómúsikant hér. EIK: „HOTEL GARBAGE CAN”/ „MR. SADNESS” (Demant hf/ D2-005) 1975 Það var nú orðið timabært að Eik sendi frá sér plötu, þó að hljómsveitin virðist ekki vera i neinum sérstökum uppgangi núna. Eik skipa nú Ólafur Sigurðsson (trommur), Harald- ur Þorsteinsson (bassa), Þor- steinn Magnússon (gitar), Lár- us H. Grimsson (pianó og flautu) og Sigurður K. Sigurðs- son (söngvari). Þeim til aðstoð- ar á þessari tveggja laga plötu eru saxafónleikarinn Sigurður Long og söngkonurnar Janis Carol, Berglind Bjarnad. og Helga Steinsson. Bæði lögin eru eftir þá Harald Þorsteinsson og Þorstein Magnússon. A hlið eitt er lagið „Hotel Garbage Can”, reglulega lélegt og leiðinlegt lag sem orðum er ekki eyðandi á, en lagið á b-hlið plötunnar er bara allsæmilegt, en hefði mátt vera mun betur unnið, gitarinn og flautan eru sæmileg og kven- raddirnar lika, en ég hélt að Haraldur væri blæmeiri bassa- leikari.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.