Þjóðviljinn - 09.11.1975, Síða 20
20 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur !). nóvember 1975.
Dagskrá
fjölmiölanna eöa
RÉTT STEFNA
Mánudagur. Hljóðvarp kl.
20.30 Erindi: Frelsisbaráttan i
góugróðrí. 20 ára ritstjórnar-
ferill Matthiasar Johannessens.
Guðmundur G. Hagalin flytur.
Þriðjudagur. Sjónvarp. Kl.
21.30. Þátturinn A alþjóðlegum
viðernum. Jón Hákon Magnús-
son, biskupinn yfir Islandi og
utanrikisráðherra spyrja
Matthias Johannessen ráða um
kúgun kommúnismans.
Miðvikudagur. Sjónvarp kl.
20.30. Nýjasta tækni og visindi.
Matthias Johannessen og Buck-
mister Fuller ræða saman um
innri gerð efnisins. Fyrsti þátt-
ur af tiu.
Miðvikudagur. Hljóðvarp kl.
22.15. Bókmenntaþáttur Ég og
Steinn. Rætt við Matthias
Johannessen.
Fimmtudagur. Hljóðvarp kl.
20.30 Vanrækt snilldarverk 1.
„Sólmyrkvi” eftir Matthias Jo-
hannessen. Frumflutningur.
Höfundur hefur skotið inn i
verkið nýjum kafla um Búdda,
Casanova, Jesú Krist og Stalin.
P’östudagur. Sjónvarp kl.
21.00. Varðberg, þáttur um listir
á hraðfleygri stund. ,,Við
opnuðum Ijóðið” Jóhann
Hjálmarsson ræðir um
Matthiasarskólann i islenskri
Ijóðlist.
I,augardagur, Hljóðvarp kl.
14. Vikan sem var. Skálkarnir.
Rætt við Matthias Johannessen
um ofsóknir fjölmiðla á hendur
honum.
Sunnudagur. Sjónvarp kl.
18.00 Stundin okkar. Prakkara-
strik Matta litla, sjónvarpsleik-
rit eftir Ingimar Erlend
Sigurðsson. Hrafn
Gunnlaugsson stjórnar.
Sunuudagur. Sjónvarp kl.
20.30 Það er kominn góður gest-
ur. Árni Johnsen flytur lög við
Ijóð eftir Matthias Johannessen.
Strengjasveit Morgunblaðsins
leikur með.
Á eftir flytur forsætisráðherra
leikmanns-hugvekju um listir og
menntir og efnahagsvanda
þjóðarinnar.
Skaði
Kona ein i Dublin segir við
lækni sem hefur lýst orsökum
þess að maður hennar er veikur:
— Hvernig getur hann haft
vatn á heilanum þegar hann hef-
ur ekki bragðað dropa i fjörtiu
ár?
SÖGUR
AF
ÍRUM
írasögur enn — og það er bless-
að áfengið sem er á dagskrá.
Striðssögur og slagsmála eru og
margar sagðar um ira. Hér fer á
eftir ein af uppáhaldssögum
Johns Costellos, sem var um tima
forsætisráðherra ira:
Tveir dyflinarbúar voru að
skeggræða um efnahagsástand
trlands sem var slæmt eins og
venjulega. Þá segir annar þeirra
sem svo: Það er eina vonin fyrir
okkur að segja Bandarikjunum
strið á hendur. Hversvegna það?
spyr hinn. Jú, sjáðu til, þeir
myndu náttúrlega berja okkur i
plokkfisk kanarnir, og þegar þeir
væru búnir að þvi, þá þætti þeim
það svo leiðinlegt að þeir mundu
senda okkur milljónir dollara i
huggunarskyni og við mundum
lifa betra lifi en nokkru sinni fyrr.
Hinn náunginn tók stóran sopa
úr glasi sinu og hugsaði djúpt. Svo
sagði hann:
— En hvað gerist nú ef við
vinnum?
Dómarinn: Þér ætlið þó ekki að
segja að þér hafið fengið yður að-
eins einn viski?
Verjandi: Jú, einmitt, herra
minn
Dómari: Og hvar fenguð þér
yður þennan eina?
Verjandi: Ó, það var nú i and-
skoti mörgum stöðum.
Irskur hermaður bar særðan
félaga á bakinu frá fremstu vig-
linu, og án þess að hann tæki eftir
sneið kúla höfuðið af þeim særða.
Þegar hermaðurinn kom til
sjúkraskýlis var honum bent á að
það vantaði höfuðið á byrði hans.
— Já, sagði hermaðurinn, hann
hefur alltaf lyginn verið. Mér
sagði hann, að harin hefði fengið
skot i fótinn.
Nokkrir hermenn voru á und-
anhaldi og einn þeirra kallar yfir
skotgröfina til félaga slna:
Komdu nú, Jack Dargan.
— Ég get það ekki.
— Af hverju ekki?
— Ég er búinn að taka mann til
fanga.
— Komdu þá með hann.
— Hann vill ekki koma.
— Komdu þá án hans.
— Hann vill ekki sleppa mér.
tri einn hrósaði sér af þvi að
,,ég á sjö sonu og hefi aldrei lyft
hendi gegn neinum þeirra —
nema i sjálfsvörn.”
Hermaður var sakaður um að
hafa stolið viskiskammti félaga
sins. Málsvörn hans var þessi:
— Mér þætti leitt, herra, ef ég
er kallaður þjófur. Ég setti hans
viski og mitt viski i sömu flösk-
una, og mitt viski var á botninum,
svo ég var neyddur til að drekka
hans til að geta náð i mitt viski.
Kaup - saia
Hjónarúm
Höfum úrval af hjónarúmum
m.a. með bólstruðum höfðagöfl-
um og tvöföldum dýnum. Erum
einnig með mjög skemmtilega
svefnbekki fyrir börn og
unglinga. Framleiðum nýjar
springdýnur. Gerum við notaðar
springdýnur samdægurs. Opið frá
kl. 9-7 og laugardaga frá kl. 10-1.
KM Springdýnur
Helluhrauni 20, Hafnarfirði
Simi 53044.
Olíukynditæki
til sölu með öllu tilheyrandi. Selst
ódýrt. Simi 40310.
atvinna
Atvinna
óskast hálfan daginn (e.h.) eða
vinna við sjálfstæð verkefni, helst
bókaútgáfu. Tilboð merkt ,,19”
sendist afgreiðslu Þjóðviljans
sem fyrst
ökukennsla
Ökukennsla,
æfingatímar
Okukennsla, æfingatimar. Kenni
á Volgu, 73 módel. Simi 40728 kl.
12—13 og eftir kl. 20.30. Okuskóli
og prófgögn. Vilhjálmur Sigur-
jónsson.
þjónusta
Verkfæraleigan
Hiti,
Rauðahjalla 3, Kópavogi. Simi
40409. Múrhamar, málningar-
sprautur, hitablásarar, steypu-
hrærivélar.
húsnæði
óskum eftir
að taka á leigu 3ja herbergja ibúð
i miðbænum eða nágrenni
Háskólans. Bjóðum skilvisar
greiðslur, þægilegt viðmót og
góða umgengni.
Þeir sem ekki vilja leigja ein-
göngu leigunnar vegna vinsam-
legast hringi i sima: 53951 —
Ingibjörg G. Guðniundsdóttir,
19038 — Auður Styrkársdóttir.