Þjóðviljinn - 09.11.1975, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sumiudagur 9. nóvember 1975.
Sextugur á morgun:
Benedikt Þorsteinsson
hreppsnefndarmaöur, Höfn í Hornafirði
Rétt í þessu var ég að frétta, að
á mánudaginn kemur, þann 10.
nóvember, yrði Benedikt Þor-
steinsson hreppsnefndarmaður á
Höfn sextiu ára.
Fyrir okkur alþýðubandalags-
menn er rik ástæða til að senda
Benedikt afmæliskveðju á þess-
um timamótum, traustari og
einlægari liðsmann sósialiskrar
hreyfingar er torvelt aðfinna, þar
fer drengur góður i þeirra orða
fornu merkingu.
Sá sem kunnugur er á Höfn veit
gjörla hviliks trausts Benedikt
nytur heima þar, sæti hans þykir
hvarvetna vel skipað, hann er
enginn ákafamaður, en fastur
fyrir og alúðin i viðmótinu, skap-
gerðin trausta og siðast enn ekki
sist einlægni baráttumannsins,
sem stöðugt sækir að markinu án
áhlaupa eða hávaða, allt þetta
hefur um fjölda ára gert hann að
sjálfkjörnum leiðtoga hornfirskra
sisialista i verkalýðsbaráttunni
og i sveitarstjórn. Og vandfund-
inn hygg ég að sé sá andstæðingur
hans, sem ekki aðeins virðir hann
og metur, heldur ber til hans hlýj-
an hug, þrátt fyrir allan málefna-
ágreining.
Benedikt var um árabil i for-
svari fyrir verkafólk á Höfn,
formaður Jökuls og fulltrúi þess
félags heima og heiman. t
sveitarstjórn Hafnarhrepps hefur
hann einnig setið um fjölda ára,
Lausar stööur
Rafmagnsveitur rikisins auglýsa laus til
umsóknar störf bókhalds- og skrifstofu-
fulltrúa að svæðisskrifstofum Rafmagns-
veitnanna á ísafirði, Akureyri og Egils-
stöðum.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til Rafmagnsveitna
rikisins, Laugavegi 116, Reykjavik, sem
gefa allar nánari upplýsingar.
verið þar tillögugóður og þokað
fram mörgu framfaramáli.
Það sýnir traust Hafnarbúa á
Benedikt að þegar óvist var um
kjör hans i kosningunum 1970, þá
tvöfaldaðist fylgið allt i einu og
þar átti hlut að fólk langt út fyrir
flokksraðir Benedikts.
Sósialisminn á sterk itök i
Benedikt, hann er prýðilega
greindur, vel lesinn jafnt i fræði-
greinum ýmsum, sem sigildum
bókmenntum, og réttlætiskennd
hugsjónarinnar er honum i blóð
borin.
Alþýðubandalagið á Austur-
landi á mörgum góðum liðsmönn-
um á að skipa, ekki sist úr röðum
verkalýðsins, þar er Benedikt i
fremstu röð. Fyrir flokkinn hefur
hann ötullega starfað, áhrif hans
eru ótrúlega mikil i heimabyggð-
inni og áróður hans, sannfærandi
og hvetjandi i senn, fluttur af hóg-
værð, en einurð.hefur reynst okk-
ur góður liðsauki. Benedikt er
mikill náttúruunnandi, kann góð
skil á ýmsum þáttum náttúru-
fræðinnar, steinasafn hans er
fágætlega gott'og vandað, sann-
kallað augnayndi. Ég læt það biða
seinni timamóta i ævi hans að
rekja æviatriði hans, þó af mætti
segja langa og mikla sögu. Þetta
átti aðeins að vera stutt afmælis-
kveðja með þökk fyrir okkar
ágætu kynni, fyrir allt hans mikla
starf i þágu sameiginlegra
áhugamála.
Slikir liðsmenn bregðast ekki i
sviptibyljum einstakra atburða,
þeir eiga sina sannfæringu,
grundvallaða á þeirri hugsjón
samhjálpar og jafnréttis, sem á
að vera leiðarljós hverjum sönn-
um sósialista.
Mannleg mistök villa þeim ekki
sýn, þvi þeir eiga hið innra með
sér þá réttlætiskennd, þann
baráttueld, sem fölskvast ekki þó
ár liði.
Þegar móti blæs er gott að
hugsa til manna eins og Bene-
dikts Þorsteinssonar, læra af
fordæmi hans og starfi.
Fátt glæðir betur trú okkar á
sigur sósialismans, þann sigur,
sem verið hefur draumur Bene-
dikts, en þeim draumi hefur hann
fórnað ærnum hluta af lifsstarfi
sinu, og viljað gera að veruleika.
Ég færi Benedikt innilegustu
heillaóskir á þessum afmælisdegi
hans, þakkir flokks okkar fyrir
fórnfúsa liðveislu fjölda ára.
Megi draumur hans verða sem
fyrstað veruleika og hann þannig
sjá ávöxt starfs sins og baráttu.
Benedikt er gæfumaður i einkalifi
sinu og hvarvetna á hann góða
vini meðal samferðafólksins. Ég
veit, að þeir eru margir, sem taka
undir óskir minar og árna honum
gæfu og gengis um ókomin ár.
Helgi Seljan.
Fylgist með vöruverði
25 DÆMI
um vöruverð
hjá KRON
Niðurs. bl. ávextir l/l Corn flakes, 500 gr. kr. 245,-
d. kr. 265,- Coco Puffs, 1. pk. — 220,-
Niðurs. ferskjur, l/l d. — 210,- Cheerios, 1 pk. — 155,-
Niðurs. perur 1/1 d. — 210,- Súpujurtir, 200 gr. — 386,-
Jarðarber 1/1 d. — 270,- Fjallagrös, 1 pk. — 50,-
Haframjöl, 1 kg. — 108,- River Rice, 1 pk. — 95,-
Sólgrjón, l kg. — 167,- W.C. pappír 24 rúllur — 1344,-
Co-op ræstiduft, 510 gr. — 44,- Royko súpur, 1 pk. — 42,-
Cirkel Caco, 500 gr. — 287,- Vex þvottaefni, 3 kg. — 566,-
Appelsí nusafi, 2,2 1. — 573,- Hunang, 450 gr. — 177,-
Brauðrasp Paxo pk. — 54,- Kaffi, 1 pk. * — 120,-
Sveskjur 1 kg. — 310,- Vex þvottal. 3,8 1. — 455,-
Nesquik 800 gr. — 399,- Þvol, þvotta 1.2,2 1. — 276,-
Heilhveiti 1 kg. — 103,-
MATVORU-
AAARKAÐUR
Lúxemborgarlistinn
vikuna 4.-11. nóvember
1. (4) Love Is The Drug Roxy Music
2. (1) Space Oddity David Bowie
:s. (<;> Rhinestone Cowboy Glen Campbell
4. (11) Ilold Back The Night Tramps
5. (5) What A Diffrence A Day Makes Esther Phillips
<;. <:s> Dont Play Your Roek N Roll To Me Smokey
7. < —> D.I.V.O.R.C.E Billy Connelly
8. (10) Blue Guitar Blue Jays
9. (2) I Only Have Eyes For You Art Garfunkel
10. < 18) Love Ilurts Jim Capaldi
11. (12) 1 Aint Lying George McCrae
12. (17) New York Groove Hello
i:s. <i:s> Highfly John Miles
14. (21) Ride A Wild Horse Dee Clark
15. (25) Sky High Jigsaw
Iti. <7) s.o.s. ABBA
17. <!)) Feelings Morris Albert
18. <—) lmagine John Lennon
1». < —) (iet Right Back Three Degrees
20. (8) Island Girl Elton John
21. < —) Supérship George VanHenson
22. (11) Iloid Me Close David Essex
2:s. <2:s> Darlin' David Cassidy
24. CS0)Change With The Tiines Van McCoy
15. <—) Lying Eyes Eagles
26. (—) Goodbye 14.80
27. <—) You Sexy Thing Hot Chocolate
28. < —r) Papa Oooin Mow Mow Gary Glitter
20. (20) Look At Me Moments
::o. <—) Why Do You Do It? Stretch
Pistill
Framhald af bls. 8.
þróun svo ég muni. Nema þá kin-
verjar, sem eru hvort sem er and-
vigir öllu þvi sem indversk
stjórnvöld taka sér fyrir hendur.
Sovétmenn þegja, þvi þeir hafa
gott samband við Indiru Gandhi.
Bandariskir þegja að mestu, þvi
þeir vonast til að geta bætt sam-
Smáauglýsingar Þjóðviljans
30.000 LESENDUR
Skólavörðustíg 19
Simi 17500
búð sina við Indiru. Og öðrum
finnst barasta að Indland sé svo
langt I burtu og finnst þeir séu
vanir að heyra þaðan ótiðindi ein.
Þeir menn sem hafa hugrekki
til að standa fáliðaðir andspænis
ofurefli og hvika ekki frá rétt-
lætiskröfum sinum ættu sannar-
lega skilið betri heim.
Árni Bergmann.
Iðja félag
verksmiðjufólks
Félagsfundur
heldur almennan félagsfund i Lindarbæ
mánudaginn 10. nóvember 1975 kl. 8.30
e.h.
Fundarefni:
1. Uppsögn samninga.
2. Kosning fulltrúa á annað þing Lands-
sambands iðnverkafólks.
3. önnur mál.
Fjölmennið stundvislega. — Sýnið
skirteini við innganginn.
Félagsstjórnin.
Félag viðskipta- og hagfræðinga efnir til
fundar um
SKATTAMÁL
þriðjudaginn 11. nóv. kl. 20.30 i Kristalsal
Hótel Loftleiða.
Framsögu hafa:
Guðmundur Magnússon prófessor
ólafur Björnsson prófessor
ólafur Nilsson skattrannsóknarstjóri
Þá mun Bjarni Bragi Jónsson hagfr.
stjórna panelumræðum.