Þjóðviljinn - 09.11.1975, Side 24

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Side 24
Sunnudagur 9. nóvember 1975. Rafmagns- truflanir á Snæfellsnesi Á árínu 1974 var meira en helmingur raforku á Snæfellsnesi framleiddur með disilorku, en á útmánuðum i fyrra var svæðið tengt kerfi Landsvirkjunar með háspennulinu frá Andakil. Hins vegar hafa verið þrálátar truflanir á raforkukerfinu á Snæ- fellsnesi eftir tenginguna, og lagast það ekki fyrr en aðveitu- stöðvar við Vegamót og i Stykkishólmi verða fuilbúnar, en það verður væntanlega fyrir áramót. Þetta var inntakið i svari Gunnars Thoroddsens iðnaðar- ráðherra við fyrirspurn Benedikts Gröndals um raforkutruflanir á Snæfellsnesi. Friðjón Þórðarson langaði til að vita hvort iðnaðarráðherra treysti sér til að láta skógstrend- inga fá rafmagn, og taldi Gunnar að það gæti komið til greina þegaj- aðveitustöðin i Stykkishólmi er fullgerð. Jónas Árnasontók undir nauð- syn þess að rekstraröryggi Snæ- fellsnesveitu yrði bætt. Hins veg- ar vildi hann benda á að ekki að- eins snæfellingar hefðu orðið fyrir tjóni vegna spennufalls, það hefði einnig gerst I uppsveitum Borg- arfjarðar og hefði þar verið um alvarlegar truflanir að ræða, t.d. um siðustu páska. Þegar hefðu komið skýrslur frá 40 bæjum um tjón, aðallega á mjaltavélum og dælumótorum. Væri ekkert ef- unarmál að þarna hefði orðið mil- jóna, ef ekki tugmiljóna tjón. Fram- kvæmdir í auraleysi Samdráttur er ckki hjá öllum né í öllu. i Breiðholti III við Norðurfell, framan við Æsufell, byggir oliu- félag forsætisráðherra, Geirs Hallgrimssonar, bensinstöð þvert gegn vilja ibúa Æsufells og þvert ofan i frumgerð skipulagsins. Og byggingin er reist á þrengingar- timum, timum peningaleysis. Myndin er af þessum fram- kvæmdum. Fremst á henni er steypt þvoltaplan, fjær sér i oliu- og bensinsöluhúsið. Enn fjær ber Scljahverfi i Breiðholt II. Þess má geta i leiðinni, að þegar vinnuvélar voru að raska jörð fyrir þessar „nauðsynlegu” framkvæmdir fyrir Skeljung, komu oliubilar frá BP til þess að fylla á þær eldsneyti. —úþ (Ljósm. A.K.) Jónina Kristjánsdóttir, Keflavik Sigriður Karlsdóttir, Selfossi. — formaður Bil. ÁHUGA- LEIKHÚS ER UNDIRSTAÐA ATVINNULEIKHÚSS Sextíu og tvö leikfélög eru innan vébanda Bandalags íslenskra leikfélaga. Fulltrúar frá 40 leikfélögum komu saman í Reykjavík fyrir siöustu helgi og settust á rökstóla um fjármál áhugaleikfélaganna á landsbyggðinni og þátt þeirra í menningu byggðarlaganna. Við hittum Jónínu Kristjáns- dóttur formann Bil og ræddum við hana um ráðstefnuna og fleira sem viðkemur starfi leik- félaganna og einnig lögðu þau Nanna Tómasdóttir frá Blöndu- ósi, Helga Hjörvar fram- kvæmdastjóri Bil, Sigriður Karlsdóttir, Selfossi og Theódór Júliusson frá Siglufirði orð i belg. Jónina: Tilgangur þessarar ráðstefnu var m.a. sá að fræðast um hvert annað, efla kynnin til þess að betur gengi að efla sam- skiptin milli hinna ýmsu leik- félaga. Samskiptin, sem reynd- ar eru þegar mjög að aukast, væru þá helst i þvi fólgin að félögin skiptust á leiktjöldum, skipulegðu leikferðir og jafnvel samvinna um uppsetningu leik- rita. í fyrra settu 35 leikfélög upp 47 verkefni og menn geta af þvi séð, að áhugaleikfélögin eru mjög mikilsverður þáttur i menningu hvers staðar. llelga: tslenskt atvinnuleik- hús er sprottið upp úr áhuga- leikhúsinu. Áhugaleikhúsið hér á landi er miklu eldra en at- vinnuleikhúsið, t.d. á Leikfélag Húsavikur 75 ára afmæli nú i ár. Og Bil er 25 ára núna, en það er þriðja elsta samband leikfélaga sem starfar á Norðurlöndum. Það má lika taka fram, að hvergi á Norðurlöndum er sam- vinna áhugaleikfélaganna og atvinnuleikhúsa eins góð og eins mikil og hér. Theódór: J.á — og i framhaldi af þvi tökum við fram að við fögnum sérstaklega stefnu Klemensar Jónssonar leik- listarstjóra útvarpsins, en hann hefur lýst yfir að hann stefni að þvi, að gefa fólki utan af landi færi á að spreyta sig við flutning leikrita i útvarp. Kemur til mála að Bil ráði leikstjóra eða kennara til sín og sendi til leikfélaganna? Helga: Það er ofarlega á óskalistanum, en fjárskortur stendur i vegi fyrir þvi. Banda- lagið getur aðeins haft einn starfsmann á launum núna. Þegar svo leikfélögin fá leik- stjóra t.d. frá atvinnuleikhúsun- um hér i Reykjavik, verða þau sjálf að greiða þann kostnað, sem er reyndar aðalútgjalda- íiðurinn. Það væri reyndar æskilegt, að Þjóðleikhúsið geti aðstoðað leikfélögin með þvi að senda menn sem eru á launum hjá þvi, en hafa ekki verkefni um tima, út á land til félaganna. Og það verður reyndar gert i vetur. Gunnar Eyjólfsson mun fara Theódór Júliusson, Siglufirði Ilelga Iljörvar, framkvæmda- stjóri Bil. Nanna Tómasdóttir, Blönduósi. norður á Húsavik og leika Pétur Gaut. Það virðist sem verkefnaval leikfélaganna á landsbyggðinni hafi breyst — er fólk búið að missa áhugann á försunum? Nanna: Já. Kannski það — reyndar hefur verið sett fram sú skýring, að sjónvarpið metti hungrið eftir försunum (Læknir i vanda osfrv.) og þvi sé nú risin upp þörf fyrir alvarlegri leik- verk. Það hefur t.d. komið i ljós, að á einum stað i fyrra þar sem bæði var sýndur farsi og alvar- legt verk, þar var mun betri að- sókn að alvarlega verkinu. Bil hélt þrjú námskeið i sumar — cinhver árangur kom- inn i Ijós? Hclga: Já reyndar. Theódór sem hér situr var á leikstjórnar- námskeiðinu á tsafirði og hann mun stjórna uppfærslu á „Ertu nú ánægð kerting” á Siglufirði. Og við spyrjum Theódór nán- ar um aðstæður á Siglufirði og Úlhögun uppsetningarinnar. Theódór: Við verðum með sömu sýningu og var hér i Þjóð- leikhúsinu, en að auki leikþátt eftir Jakobinu Sigurðardóttur. Kynningar og sitthvað fleira smálegt verður frá okkur sjálf- um. Allir þeir sem vinna að sýn- ingunni heima, eru úr héraðinu. Aðstæður eru afleitar — við hrekjumst milli staða með æfingar, reynum að fá inni hér og þar, t.d. i skólum og svo sýn- um við i Bióhúsinu. Þar eru eng- in búningsherbergi.aðstaðan raunar þannig, að leikhúsin i Reykjavik eru hætt að senda okkur leikhópa með sýningar. Húsið er ekki talið nothæft. En við sýnum þarna. Við spurðum Sigriði Karls- dóttur frá Selfóssi hvort fólk úr Reykjavik og nágrenni sækti leiksýningar til Selfoss? Sigriður: Yfirleitt held ég nú ekki, en það var þó i fyrra, þeg- ar við sýndum „Sjö stelpur”. Þá urðum við vör við að fólk úr Reykjavik og viðar að kom. Og það var mjög uppörvandi. Blöð- in sýndu okkur lika áhuga og við fengum góða dóma. En annars hgld ég að fólk sé ekki vant að sækja leiksýningar út fyrir Reykjavik, jafnvel ekki fólk i heimabyggðinni. Blaðaskrif verða oft til að ýta við heima- mönnum — allt i einu man fólk eftir leikfélaginu. Nokkur leikfélaganna hafa nú þegar ákveðið vetrarverkefni sin, þ.e. þau sem hefja starf fyrir áramót. Og verkefnin eru ekki af lakari endanum — þannig mun Leikfélag Þorlákshafnar frumsýna leikritið „Skirn" eftir Guðmund Steinsson. Á Selfossi verður sýnt barnaleikrit fyrir jól, „Hási drekinn” eftir sviann Kent Anderson og stjórnar Jón Hjartarson þvi. „Ertu nú ánægð kerling” verður á Siglufirði, Patreksfirði og Höfn, Horna- firði. i Grindavik verða þeir með „Karólina snýr sér að leik- listinni” eítir Harald Á. Sigurðssin, „Hart i bak” verður i ólafsvik og i Vestmannaeyjum og i Neskaupstað setja þeir á svið leikritið „Gunna” eftir Ásu Sólveigu, en það verk var fyrst flutt i útvarpið. Reyndar gæti upptalningin verið lengri — en við látum þetta duga i bili, og gefum Jón- inu formanni orðið að iokum: Bil er i Nordisk amatör-teater- forbund og einnig i alþjóðlegum samtökum áhugaleikhópa. Það er afarmikilsvert fyrir okkur að taka þátt i starfi beggja þessara sambanda, t.d. sækja þau nám- skeið sem norræna bandalagið heldur á hverju ári, en þessi þátttaka hefur reynst kostnaðarsöm. Og i alþjóðlega bandalaginu eigum við is- lendingar einn stjórnarmanninn af 12, Jónas Árnason rithöfund, en leikfélög úr 34 löndum mynda þetta bandalag. Það heldur leik- listarhátiðir og getum við, ef fjárhagur leyfir, tekið þátt i þeim hátiðum. — GG

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.