Þjóðviljinn - 20.11.1975, Side 9

Þjóðviljinn - 20.11.1975, Side 9
. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Njósnari nasista Almenna bókafélagið hefur gefið út bókina Menn og múrar eftir þýska stúlku, sem i siðari heimsstyrkjöldinni er sögð hafa áunnið sér heitið engill fanganna. Hálendið heillar Hálendið lieillar, þættir af nokkrum helstu öræfabilstjór- unuin heitir bók, sem Bókaútgáfa Þórhalls Bjarnasonar hefur gefið út. Skráð hefur Loftur Guðmundsson, rithöfundur. Loftur ræðir við og segir frá reynslu öræfabílstjóra. Bókin hefst á forspjalli Lofts er nefnist Ferðalög fyrrum. Siðan bera kaflarnir yfirskriftina: Einar Magnússon: Að opna hálendið. Páll Arason: öræfin náðu tökum á mér, Ingi- mar Ingimarsson: öræfaferðir og Heklugos, Brandur Stefánsson: Vötnin ströng, ólafur Auðunsson: Þórsmerkurferð. Bjarni Guðmundsson: Ætli það sé ekki eins og með brennivinið?, Úlfar Jacobsen: Ætli það hafi ekki veriðörlög?, Ólafur Ketilsson: Á sólsskinssumri, Sæmundur Ólafsson: I lejt að vaði, Guðmundur Jónsson: Minnsta Ferðafélagið, Ásgeir Jónsson: Óvæntir atburðir i Vonarskarðs- ferð. Þetta er sagan af mönnunum sem opnuðu almenningi hálendis- paradi's Islands, en sumir þeirra eru þegar orðnir eins konar þjóð- sagnapersónur. Bókin er 195 bls. prentuð í Vikingsprenti og prýdd fjölda mynda. íslenskir þjóðhœttir Út er komin þriðja útgáfa islenskra þjóðhátta, scm séra Jónas Jónasson frá Ilrafnagildi samdi. Einar ól. Sveinsson ritar formála að bókinni. Bókin skiptist i eftirfarandi megin-kafla: Daglegt lif, Aðal- störf manna til sveita, Veðurfarið Skepnurnar, Hátiðir og merkis- dagar, Skemmtanir, Lifsatriðin Heilgufar og lækningar Hugsunar-og trúarlifið. Nafnaskrá og atriðaorðaskrá er i bókinni. Bókina prýða margar teikningar og ljósmyndir. Bókir er 503 bls. Útgefandi er ísafold Vegur tíl verðtryggingar m Gefinn hefur veriö út nýr flokkur happdrættis- skuldabréfa rikissjóös, G flokkur, aö fjárhæö 300 milljónir króna. Skal fé þvi, sem inn kemur fyrir sölu bréfanna, varió til varanlegrar vegageröar í landinu. Happdrættisskuldabréf ríkissjóös eru endur- greidd aö 10 árum liönum meö verðbótum i hlutfalli við hækkun framfærsluvísitölu. Auk þess gildir hvert bréf sem happdrættismiði, sem aldrei þarf að endurnýja í 10 ár. Á hverju ári verður dregiö um 942 vinninga að fjárhæð 30 milljónir króna, og verður í fyrsta skipti dregið 23. janúar n.k. Vinningar á hverju ári skiptast sem hér segir: 6 vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 6.000.000 6 vinningar á kr. 500.000 = kr. 3.000.000 130 vinningar á kr. 100.000 = kr. 13.000.000 800 vinningar á kr. 10.000 = kr. 8.000.000 Happdrættisskuldabréfin eru framtalsfrjáls og vinningar, sem á þau falla,skattfrjálsir. Happdrættisskuldabréf rikissjóðs eru til sölu nú Þau fást í bönkum og sparisjóðum um land allt og kosta 2000 krónur. 'oíaíhÞ ) SEÐLABANKI ISLANDS NÝJAR BÆKUR Nýlega er komin út hjá Al- menna bókafélaginu einhver þekktasta sanna njósnasagan Ur siðari heimsstyrjöld. Bókin nefn- ist Njósnari nasista í þjónustu breta, og er sjálfsævisaga hins kunna njósnaforingja Dusko Popovs, sem meðal annars ljóstr- aði upp fyrirætlunum japana um árás á Pearl Harbor. Bókin er 287 bls. að stærð. Menn og múrar MENNOG Bókin er i þýðingu Tómasar Guðmundssonar skálds. Hið rétta nafn höfundarins er Hiltgunt Zassenhaus, og er sagan sjálfsævisaga höfundar frá timum heimsstriðsins. Bókin er 222 bls. Utboð Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i lagningu Grindavikuræðar. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suður- nesja, Vesturbraut 10A Keflavik (opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9—12) og á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri9 Reykjavik gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita- veitu Suðurnesja föstudaginn 12. desem- ber kl. 14.00.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.