Þjóðviljinn - 20.11.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN • Fimmtudagur 20.nóvember 1975.
Framkvæmdaráð og
könnun á skóladvöl
Borgarfulltrúar Alþýðubandalags leggja fram tillögur
Sigurjón Pétursson, borgar-
ráðsmaður, leggur fram tillögu á
borgarstjórnarfundi í kvöld þar
sem gert er ráð fyrir að stofnað
verði framkvæmdaráð, sem fái
það hlutverk að fylgjast með
stofnunum, sem heyra undir em-
bætti borgarverkfræðings og
samræma starfsemi þeirra.
Þá leggur Þorbjörn Broddason
fram tillögu um að fræðsluráð
gefi skýrslu um hversu algengt
sé, að skólabörn þurfi að gera sér
fleiri en eina ferð i skóla á dag,
hversu algengt sé að kennsla fari
fram i hádeginu og hversu al-
gengt sé, að börn þurfi að ferðast
á milli skólahverfa til þess að
sækja kennslu i sundi og leikfimi.
Borgarstjórnarfundurinn hefst
klukkan 17:00 i Skúlatúni 2,—úþ
„Verðstöðvun” hert
Verðstöðvun er eins og undan-
farin ár enn i gildi, en samt sem
áður varð verðbólgan 50 prósent á
siðasta ári. Nú hefur rikisstjórnin
ákveðið að herða framkvæmd á-
kvæða laga um verðstöðvun. Við-
skiptaráðuneytið hefur ákveðið
að ekki skuli hækka vcrð á vöru
eða þjónustu eða breyta i óhag
kaupendum afsláttarreglum og
greiðsiukjörum frá þvi sem i gildi
var 20. þessa mánaðar.
Fyrirtæki munu þó geta fengið
hækkanir ef um hráefnahækkun,
efniskostnað hjá þjónustufyrir-
tækjum, og innkaupsverð hjá
verslunarfyrirtækjum erað ræða.
Ekki er heimilt að heimila
hækkun álagningar i hundraðs-
tölu frá þvi sem hún var 20.
nóvember.
Ráðuneytið hefur ritað verð-
lagsnefnd og öðrum ráðuneytum
bréf þar sem brýnt er fyrir við-
komandi að herða verðstöðvun-
ina.
Ræktun og vernd
íslensks forystufjár
i siðustu viku mælti Sigurður
Björgvinsson, varaþingmaður
Alþýðubaandalagsins á Suður-
landi fyrir frumvarpi sinu um
ræktunog vernd islensks forystu-
fjár.
Ákvæði frumvarpsins ásamt
greinargerð þess voru birt i Þjóð-
viljanum þann 12. nóvember, en
meginefni frumvarpsins er að
kveða með breytingu á búfjár-
ræktarlögum á um, að Búnaðar-
félag tslands sjái um ræktun og
vernd islensks forystufjár,
þannig að það glatist ekki sem
sérstætt fjárkyn.
1 framsöguræðu sinni með
frumvarpinu benti Sigurður
Björgvinsson á, að enn væri
sauðfé á tslandi að mestu af
upprunalegum stofni frá land-
námstið. Tilraunir til innflutnings
sauðfjár hafi valið stórskaða á
Vín 19/11 reuter — Alþjóða-
samtök skálda og rithöfunda,
PEN-klúbburinn, samþykktu I
dag ályktun þar sem skorað er á
tékknesk yfirvöld að hætta of-
sóknum á hendur þarlendum
rithöfundum. Einnig var lýst yfir
samstöðu með tékkneskum
menntamönnum.
Ályktunartillaga þessi er komin
frá tveimur útlægum tékkneskum
rithöfundum, þeim Pavel Tigrid
og Gabriel Laub. Þrir félagar
þeirra i Prag, Vaclav Havel,
Pavel Kohout og Ludvik Vaculik
fyrri öldum. tslenski sauðfjár-
stofninn hafi verið tviskiptur, það
er i forystufé og annað fé. Áður
kostuðu bændur kapps um að eiga
sem best forystufé, og var
forystusauðum yfirleitt aldrei
slátrað fyrr en þeir voru orðnir
farlama af elli. Forystusauðir
hafi verið bændum mjög gagn-
legir við fjárrekstra fyrrum,
jafnvel notaðir til að reka prests-
lömbin um sóknina.
Sigurður Björgvinsson gerði
ýtarlega greinfyrir meginkostum
forystufjár og vitnaði máli sínu tíl
stuðnings i Ferðabók Eggerts og
Bjama og i bókina „Forystufé”
eftir Ásgeir Jónsson frá Gottorp.
Kom þar ekki sist við sögu
Kúlu-Glúmur séra Stefáns Jóns-
sonar á Auðkúlu i Svina-
vatnshreppi, sem dó 16 vetra
gamall árið 1892 og var heygður
heima á Auðkúlu, en prestur
sem allir voru virkir „Vorið i
Prag” árið 1968, sendu þinginu i
kveðjur sinar og hörmuðu að geta
ekki setið það. Þeir hvöttu til þess
að „detente”, eða friðsamleg
sambúð, yrði látin ná til allra
þátta mannlegs lifs.
Samþykktin var gerð með 19
atkvæðum gegn 9 en fimm sátu
hjá. Ekki var greint frá þvi
hvemig hver einstakur fulltrúi
greiddi atkvæði en óstaðfestar
fregnir herma að austur-þýskir,
ungverskir og búlgarskir rit-
höfundar hafi verið henni and-
vigir en pólverjar meðmæltir.
talaði yfir moldum hans. Frá
Kúlu-Glúmi segir hjá Ásgeiri frá
Gottorp.
Sigurður Björgvinsson tók
fram, að forystufé hefði nú tapað
fyrra mikilvægi, þar sem ekki
væri lengur um að ræða útbeit og
fjárrekstra eins og áður var,
þessi fjárstofn væri hins vegar
ekki afurðahár og þvi hætta á, að
hann dæi út, ef ekki væru gerðar
sérstakar ráðstafanir honum ti)
verndar.
Frumvarpi Sigurðar var visað
til nefndar og 2. umræðu.
36 breskir
Framhald af 12. siðu.
sem ekki eru talin fengsæl fiski-
mið og giskuðu gæslumenn á að
þar gæti verið um dráttarbátana
að ræða. Stefnan var þá tekin enn
meira i austur og viti menn, —
þar slóuðu þeir allir þrir og virt-
ust biða frekari fyrirmæla. Var
flogið yfir þá margsinnis og var
ekki fritt við að i vélinni kæmu
menn upp um baráttugleði sina
og þjóðarstolt með viðeigandi
orðfari.
Svæðið, sem dráttarbátarnir
skömmtuðu bresku togurunum til
að veiða á og sagt er frá á for-
siðunni, nær alveg upp að tólf
milna mörkunum. Er það ræma,
sjötíu milna löng meðfram
austurströndinni og er á móts við
Borgarfjörð annars vegar og
þaðan suður með ströndinni til
móts við Hvalbak. i gráðutölu
nær það frá 64.30 til 65.40.
Varðskipið Týr var eina skip
islenska flotans á þessum slóðum
og splundraði i fyrrakvöld -
togarahóp sem var að veiðum.
Elti það siðan hluta hópsins i
norðurátt og hélt sig þar með tog-
urunum.
Ekkert var af togurum við
norðurlandið enda engin mið bar
en út af 'Vestjarðakjálka var
flogið framhjá mörgum skipum.
Norðvestur af Kögri‘ voru fimm
bretar og eirin færeyingur. Á
Kögurgrunni voru i einum hnapp
36 islenskir togarar og ljósa-
dýrðin mikil þegar flogið var þar
yfir i myrkrinu um klukkan hálf-
sjÖ i gærkvöldi. Einn breti var þar
einnig að sniglast.
Ekki er útilokað að fleiri skip
hafi verið á miðunum suður af
Ingólfhöfða en ekki var flogið þar
yfir að þessu sinni. Fimm
belgiskir togarar voru þar i
fyrradag en enginn sást i fluginu i
gær. Þjóðverjarnir munu allir
halda sig utan 200 milna, annað
var a.m.k. ekki vitað um borð i
TF-SÝR i gær.
—gsp
Alþýðubandalagið:
Akranes
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur fund
mánudaginn 24. nóv. kl. 21 i Rein. Dagskrá: 1.
Flokksráðsfundurinn, 2. Grundartangamálið. —
Jónas mætir á fundinn. — Stjórnin.
Jónas
PEN-klúbburinn:
Mótmælir
ofsókmim í
T ékkóslóvakíu
Umsjónark.
Framhald af 3. siðu.
starf kennara og lögreglu sem
reynst hefir þýðingarmikið.
Kynningar- og fræðslufundir
standa yfir. Ný verkefni eru i
vinnslu. Arleg spurningakeppni
og jólagetraun eru i undirbúningi,
teiknimyndasamkeppni fyrir 9
ára börn fyrirhuguð i febrúar.
Undanfarin ár hafa nemendur i
Kennaraháskóla tslands átt þess
kost að sækja námskeið i um-
ferðafræðslu- og sótt hefir verið
um fjárveitingu til námskeiðs við
K.H.Í. næsta haust fyrir starfandi
barnakennara.
Orðsending
til félagsmanna Máls
og menningar í
Reykjavík. Þeir
félagsmenn sem óska
aö fá bækur félagsins
heimsendar, hafi sam-
band viö umboðsmann
bókaútgáf unnar í síma
34183.
Mál og menning
Píanó-
kennsla
Kenni byrjendum
píanóleik.
Kristin Olafsdóttir
Hlyngeröi 7. Sími
30820.
Víkingur
Framhald af bls. 8.
Mörk Vikings: Páll 6, Viggó 4,
Stefán 2, Þorbergur 2, Ólafur,
Skarphéðinn og Magnús 1 mark
hver.
Mörk Gróttu: Björn 6, Atli 6,
Axel, Magnús og Árni 1 mark
hver. —-S.dói
IGNIS
þvottavélar
BflHÐJflN
SÍmh 19294
BflFTDBE
sími: 2GBB0
Happdrætti
Hdskóla Islands
Umboðið í Árbæjarhverfi er laust til
umsóknar frá næstu áramótum.
Allar upplýsingar gefur Anna Árnadóttir
fulltrúi i sima 14365 frá kl. 10-12 daglega.
Umsóknir berist aðalskrifstofu Happ-
drættis Háskóla Islands, Tjarnargötu 4,
fyrir þann 27. þ.m.
Heimskreppa
auðvaldsins og
verkefni Fjórða
Alþjóðasambandsins
Einn af forystumönnum Fjórða Alþjóða-
sambandsins, Ken Lewis, sem jafnframt
er einn af stofnendum sænsku deildar
Fjórða Alþjóðasambandsins, hefur fram-
sögu um þetta efni og svarar fyrirspurn-
um á almennum fundi i Tjarnarbúð i
kvöld, 20. nóv. kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Fylkingin
— Baráttusamtök Sósialista
Otför
SigurbjörnS Árnasonar,
Tjarnargötu 20,
verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. þ.m. kl
1.30 sd.
Ilallur Sigurbjörnsson
Benedikt Sigurbjörnsson