Þjóðviljinn - 21.11.1975, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. nóvember 1975.
vor
i <3
Bréf úr
dreifbýlinu
Nú þegar grýlur og leppalúðar
Atlantshafsbandaiags og Efna-
hagsbandalags sækja sem ókaf-
ast aö kjarklitlum stjórnendum
okkar, þá finnst mér að nú sé
timabært að rifja upp fyrir al-
menningi nöfn þeirra manna sem
ekki hafa þorað að standa upp-
réttir þegar tunguliprir blekk-
ingameistarar eða frekir of-
beldismenn erlendir ýmist hafa
leikið sjónhverfingar eða hótað
okkur ofbeldi.
Ég skora á Þjóðviljann að gefa
nú út aukablað þar sem skýrt yrði
frá atkvæðagreiðslum á Alþingi i
sambandi við herinn og land-
helgina allt frá striðslokum,
hvernig atkvæði féllu hverju sinni
og best ef hægt væri að birta
myndiraf þeim alþingismönnum
sem komu við sögu. Þetta ætti að
fela áhugasömum blaðamanni
eða sagnfræðingi að vinna.
Kannske væri lika rétt að birta
enn einu sinni myndina af þeim
hópi marina sém einkenndur hef-
ur veriö meö tveimur bókstöfum,
litlum og rjfja upp nöfn þeirra
heiðursmanna.
Svo er það álsamningurinn ill-
frægi. Rétt væri að rifja upp
hvernig atkvæði féllu i sambandi
viö hann. Þar seldu lélegir valda-
menn islenskir erlendu auðfélagi
sjálfdæmi sem það notar sér
þannig að við erum stöðugt að
greiða fyrir það hluta af rafork-
unni, um leið og það sem við
greiðum sjálfir.
En snúum okkur nú að öðru.
Það er sorgleg staðreynd, að allt
frá þvi að islendingar öðluðust
fullt sjálfstæði þann 17. júni 1944
höfum við verið umkringdir svo-
kölluðum vinum i öllum áttum,
eða næstum þvi, að sögn okkar
ráðamanna. Vinum, sem hafa allt
viljað fyrir okkur gera, tryggja
frelsi okkar og sjálfstæði, og boð-
ist til að miðla okkur úr allskonar
sjóðum ef okkur kynni að skorta
fé. En allt háð þvi að við lytum
forsjá þeirra i einu og öllu. Undir
þetta játuðust flestir okkar ráða-
menn hugsunarlaust og vilja-
laust. Þetta leiddi til þess að ekki
þurfti að stjórna af viti. Og nú er
svo komið að nokkrar likur eru á
að við getum ekki séð okkur far-
borða mikið lengur, a.m.k. ekki
með sömu kröfum og nú eru gerð-
ar og þykja sjálfsagðar. Nú eru
auðlindir hafsins kring um landið
að verða fullnýttar eða ofnýttar
að sögn sérfræðinga, og sjálft rik-
ið riðar nú á barmi gjaldþrots,
eða svo mætti ætla, þegar hlustað
er á lýsingar okkar æðstu stjórn-
enda á þvi ömurlega búi i þeirra
höndum. Samtimis hætta menn
að virða þau lög sem kjörnir al-
þingismenn setja, hika ekki við að
brjóta þau lög bæði til sjós og
lands sem setja skorður við til-
litslausri fégræðgi. Þekkt eru
dæmi þess að menn sem árum
saman hafa svikið undan skatti,
og i leiðinni brotið fjölda laga
fyrir opnum augum kjörinna og
settra ráðamanna, fá á þessu ári
láglaunabætur og i mörgum til-
fellum greiðir það opinbera lika
fyrir þá útsvarið, þessa sóma-
menn. Við þessu geta þeir sem
ekki kunna við svona framferði
vist ekkert gert, eða minnsta
kosti ekki á meðan þeir sem eiga
að sjá um að réttlætis sé gætt,
bara brosa að lögbrotunum, þykj-
ast ekkert sjá, og lita undan.
Svona er þetta, þvi miður.
Óskar ólafsson.
Hveiti 5 Ibs. 276
Flórsykur 1 Ibs. 105
Flóru ávaxtasafi 21. 508
Snak kornflakes 500 gr. 192
Fiskbollur ORA 1/ 168
Tropicana 21. 249
Kaffi 1/4 kg. 115
SAHI w.c. pappír 25 rúllur 1.286
Hveiti og sykur í sekkjum
Kjöt, kjötvörur, ostar,
smjör og fiskur
Opið til kl. 10 föstudag
Opið til kl. 12 laugardag
OPIÐ TIL KL. 10
© Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112
sjónvarp nœstu viku
Sunnudagur
18.00 Stundin okkar. Fyrst er
mynd úr dýragarði, og
Kristin ólafsdóttir sýngur.
Þá kemur mynd um Misha,
og Hinrik og Marta leika sér
að tappaskipi. Loks sýnir
Leikbrúðuland þátt, sem
nefnist „Kabarett”. Um-
sjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og Sig-
riður Margrét Guðmunds-
dóttir. Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
Hlé.
20.40 iþróttir. Umsjónarmað-
ur Ómar Ragnarsson.
21.15 Vegferð mannkynsins.
Fræðslumyndaflokkur um
upphaf og þróunarsögu
mannkynsins. 6. þáttur.
Sendiboði stjarnanna. Þýð-
andi og þulur óskar Ingi-
marsson.
22.05 Sveítalif. Breskt sjón-
varpsleikrit úr mynda-
flokknum „Country Matt-
ers”, byggtá sögu eftir H.E.
Bates. Bartholomew-hjónin
hafa fengið sumarbústað
við sjóinn. Þau eru mið-
aldra og sambúð þeirra
heldur stirð. Þau dveljast i
i þættinum „Þaðeru komnir gestir” á sunnudagskvöldið 23. nk. ki.
22 ræðir Glsli Guðmundsson við vestur-islendinga sem hér hafa
dvalið undanfarið, þau Odd Stefánsson, Stefán Stefánsson,
Marjorie Arnason, Theodór K. Arnason, Sigriði Hjartarson og
Jóhann Jóhannsson
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Pagskrá og auglýsingar.
20.35 Silfurbrúðkaup. Sjón-
varpsleikrit eftir Jónas
Guðmundsson. Frumsýn-
ing. Persónur og leikendur:
Þóra/ Sigriður Hagalin.
Bryndis/ Bryndis Péturs-
dóttir. Leikstjóri Pétur Ein-
arsson. Leikmynd Gunnar
Baldursson. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.05 Valtir veldisstólar.
Breskur leikritaflokkur. 3.
þáttur. Sæmdin ofar öllu. 1
þessum þætti gera keisarar
þriggja stórvelda i Evrópu
með sér bandalag, en fram-
tið þess er næsta ótrygg.
Vilhjálmur I. Þýskalands-
keisari er niræður, og Frið-
rik Vilhjálmur sonur hans
er alvarlega veikur. Vil-
hjálmur II., sem er sonur
Friðriks Vilhjálms og
Vicky, tekur þá við völdum
og togstreita hefst á milli
hans og Bismarcks. Þýð-
andi óskar Ingimarsson.
22.00 Það eru komnir gestir.
Gisli Guðmundsson ræðir
við vestur-islendinga, sem
hér hafa dvalist undanfarið,
þau Ollu Stefánsson, Stefán
Stefánsson, Marjorie Árna-
son, Theódór K. Arnason,
Sigriði Hjartarson og Jó-
hann Jóhannsson um is-
lendinga i Vesturheimi og
sambandið við gamla land-
ið. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
, 23.10 Að kvöldi dags. Páll
Gislason læknir flytur hug-
vekju.
23.20 Pagskrárlok.
sumarbústaðnum um
hverja helgi. Maðurinn unir
sér vel, en konan illa — uns
hún kynnist ungum pilti úr
nágrenninu. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
22.55 Pagskrárlok.
Mánudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Oagskrá og auglýsingar.
þriðjudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsingar.
20.40 Skólamál. Þáttur um
tónmenntakennslu. Rætt er
við Herdisi Oddsdóttur, Njál
Sigurðsson og Stefán Edel-
stein. Sýnd dæmi úr kennslu
i fyrsta, fjórða og áttunda
bekk. Auk þess syngur kór
Hvassaleitisskóla. Umsjón
Helgi Jónasson fræðslu-
stjóri. Stjórn upptöku Sig-
urður Sverrir Pálsson.
21.15 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwaíd.
22.15 Utan úr heimi. Þáttur
um erlend málefni ofarlega
á baugi. Umsjónarmaður
Jón Hákon Magnússon.
22.50 Hagskrárlok.
Miðvikudagur
18.00 Björninn Jógi. Banda-
riskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Gjöf Simonar. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.50 Ballett fyrir alla. Bresk-
ur fræðslumyndaflokkur. 2.
þáttur. Ballett ryður sér til
rúms á lciksviði. Þýðandi
Hallveig Thorlacius.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Vaka.Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.15 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur. A
skeiðvelli stórborgarinnar.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.05 Englandsför.Ung stúlka
frá Pakistan dvelst um ára-
bil i Englandi við nám. Er
heim kemur, á hún erfitt
með að sætta sig við ýmsar
venjur og lifnaðarhætti,
,sem þar tiðkast. Hún hverf-
ur þvi aftur til Englands og
gerist gangastúlka á geð-
veikrahæli. Þýðandi Ingi
Karl Jóhannesson.
22.55 Ilagskrárlok.
Föstudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsingar.
20.40 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Svala Thorlacius.
21.40 Kammersveit Reykja-
vikur leika tvo þætti úr Okt-
ett eftir Schubert. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
22.00 Thérese Desqueyroux.
Frönsk biómynd frá árinu
1962 byggð á sögu eftir
Francois Mauriac. Leik-
stjóri er Georges Franju, en
aðalhlutverk leika
Emmanuele Riva og
Philippe Noiret. Thérese er
bóndakona. Henni liður illa i
sveitinni, og i örvæntingu
sinni gefur hún manni sin-
um eitur. Þýðandi Ragna
Ragnars.
23.40 Dagskrárlok.
Laugardagur
17.00 iþróttir. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.30 Oóminik. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. 3. þáttur. Barna-
vinurinn. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Pagskrá og augiýsingar.
20.35 Læknir i vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur. Svo
er margt sinnið scm skinn-
ið. Þýðandi Stefán Jökuls-
son.
21.00 „Með óljósa rönd milli
herða” (Dansað við ljóð).
tslenski dansflokkurinn á-
samt Erni Guðmundssyni
undir stjórn Helgu Magnús-
dóttur. Lestur ljóða: Sig-
mundur Orn Arngrimsson.
Stjórn upptöku Egill Eð-
varðsson.
21.10 Fjallalandið. Mynd um
Ekvador. Þýðandi og þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
21.35 Berfætta greifafrúin.
(Barefoot Contessa).
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1954. Leikstjóri er
Joseph L. Mankiewicz, en
aðalhlutverk leika Ava
Gardner, Humphrey
Bogart, Rossano Brassi og
Edmund O’Brien. Ung
stúlka verður fræg leikkona,
en frægðin færir henni ekki
eingöngu hið ljúfa lif, sem
hana hafði dreymt um. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
23.40 Pagskrárlok.