Þjóðviljinn - 21.11.1975, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. nóvember 1975.
Súgfirðingar fagna Vængjavélinni á nýja flugvellinum — mynd. Gisli,
Gísli Guðmundsson, Súganda:
NÝR FLUGVÖLLUR
Losnum við hristing og ónot
Klukkan hálf tólf miðvikudag-
inn 16.11. lenti flugvéi frá
Fordœmir
Framhald af 12. siðu.
og iátlausa varnarbaráttu og end-
urnýjun samninga á nokkurra
mánaða fresti.
Ljóst er, að vandi launafóiksins
verður ekki leystur með kaup-
hækkunum einum saman. Verð-
hækkunarflóðið verður að stöðva.
Skipulagslausum fjáraustri úr
sameiginlegum sjóðum þjóðar-
innarað linna. Reisa efnahagslif-
ið við með skipulagi og áætlunum,
þar sem hvers konar sérhags- og
afætusjónarmiðum sé visað á
bug.
Bregðist stjórnvöld hlutverki
sinu i þessum efnum, hér eftir
sem hingað til, selji útlendingum
lifsbjörgina á fiskimiðunum og
horfi aðgerðalaus upp á verð-
bólgu, lifskjararýrnun og efna-
hagslegt stjórnleysi, þá hlýtur að
verða harðari barátta framund-
an, en verkalýðsstéttin hefur
kynnst um margra ára skeið.
Starfsstúlknafélagið Sókn hvetur
verkalýðshreyfinguna til órofa
samstöðu i þeirri baráttu og hvet-
ur forystumenn hennar til að
fylgja fram þeirri stefnu, sem
hreyfingin markar, af fyllstu
hörku, enda þrengist svigrúmið
til málamiðlana með hverjum
degi, sem liður.”
Vængjum h.f. i fyrsta sinn á
flugvelii súgfirðinga. Allt gekk
að óskum. Með véiinni komu
nokkrir háttsettir Vængjamenn
að sunnan til skrafs og ráða-
gerða við æðstu menn hér. Tveir
óbreyttir borgarar voru einnig
með vélinni. Farið var héðan
aftur klukkan 14:15. Sveitar-
stjórinn og oddvitinn fóru þá
með ásamt nokkrum óbreyttum
borgurum.
Heyrst hefur að flogið verði
hingað þrisvar i viku. Það hefur
lika heyrst, að Flugfélag Is-
lands muni annast póstferðir frá
og til ísafjarðar þrisvar i viku
og þá sennilega flytja fólk lika.
bað getur máske orðið pólitiskt,
eru ekki Vængir framsókn —
hitt ihald? Smárella frá Isafirði
mun verða notuð til ferðanna.
Snjóbill hreppsins á að liggja,
en vera til taks ef slys i brælu
ber að höndum. Það er að
heyra, að töluverð ánægja sé
hér rikjandi yfir þvi að hafa nú
loks fengið flugvöll.
Afgreiðsla fyrir Vængi h.f.
verður á vegum Kaupfél. súg-
firðinga. Með þessum flugvall-
arframkvæmdum eru súgfirð-
ingar og aðrir, sem ferðast héð-
an og hingað, lausir við hristing
og djöfulskap á heiðum uppi i
snjóbil i blindbyl og vegleysu
516 metra yfir sjó.
Jú, rétt, i upphafi var áætlað,
að völiurinn yrði 600 metra
langur. Hann er nú orðinn 525
metrar og verður ekki frekar átt
við hann i vetur. Það vantar lika
hús, sima og talstöð á völlinn
svo allt sé fullkomnað.
GIsli.
Lúðvík
Framhald af bls.6
augum að draga úr rekstrar-
kostnaði og útgjöldum til ótima-
bærra framkvæmda, og fram-
kvæmda, sem beinlinis eru óæski-
legar fyrir islenskan þjóðar-
búskap, en koma hins vegar i veg
fyrir að féiagslegar fram-
kvæmdir dragist saman.
Halda þarf áfram eflingu
atvinnulifs um allt land, og miða
allar aðgerðir við það, að full at-
vinna sé tryggð.
Auðlindir lands
og sjávar eigum
við einir að nýta
Undirstaða þess, að þjóðinni
takist að vinna bug á núverandi
erfiðleikum er, að hún standi fast
á rétti sinum til að nýta ein sinar
auðlindir tli lands og sjávar.
Það er algert grundvallarskil-
yrði, við núv. aðstæður, að
landsmenn nýti einir fiskimiðin
við landið, og nú verði þvi öllum
kröfum útlendinga um undan-
þáguheimildir til veiða i fisk-
veiðilandhelginni hafnað.
Sú barátta, sem nú er háð þessa
daga og víkur gegn öllum
samningum við útlendinga um
veiðar i fiskveiðilandhelginni, fer
saman við baráttu launafólks
fyrir leiðréttingu á sinum launa-
kjörum — og öll fer þessi barátta
saman við baráttu vinstra fólks i
landinu fyrir breyttri stjórnar-
stefnu, — fyrir stefnu róttækra
vinstri manna.
Minning
Framhaid af 5. siðu.
værum þar sinn á hvorum væng,
en oft ræddum við félagsmál og
fann ég þá að þar var maður, sem
var vel heima i sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar, enda hafði hann
starfað innan þeirra samtaka um
áratuga skeið.
Á yngri árum sinum var hann
góður iþróttamaður og tók þátt i
mótum með góðum árangri. Nú
þegar Bjössi er horfinn sjónum
okkar koma fram i hugann minn-
ingarum góðan dreng, sem barð-
ist harðri baráttu i gegnum
stormasamt lif, baráttu alþýðu-
mannsins, sem að lokum féll fyrir
sláttumanninum mikla, sem eng-
um hlifir.
Ég kveð þig kæri vinur að sinni,
en við hittumst seinna i landi
ljóssins, bak við móðuna miklu.
Ég votta aðstandendum ein-
læga samúð.
Sigmar Pétursson
Alþýöubandalagiö:
Akranes
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur fund
mánudaginn 24. nóv. kl. 21 i Rein. Dagskrá: 1.
Flokksráðsfundurinn, 2. Grundartangamálið. —
Jónas mætir á fundinn. — Stjórnin.
Alþýðubandalagiö Hafnarfirði
Fundur verður I bæjarmálaráði mánudaginn 24. nóvember kl. 20.30 i
Skálanum.
Aiþýðubandalagið Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmaráðs á Suðurlandi verður haldinn föstudaginn 28.
nóv. að Hvoli
Staöa forstjóra NLFÍ
búöanna í Reykjavík
er laus til umsóknar. Veitist frá 1. jan.
1976. Umsóknum sé skilað fyrir 10. des.
nk. til forseta Náttúrulækningafélags Is-
lands, Arnheiðar Jónsdóttur, Tjarnargötu
10c Reykjavik, sem veitir nánari upplýs-
ingar.
<
Jónas
Kvennahreyfing
á Akureyri
Kvennaverkfallið á Akureyri
þótti takast svo vei að fram-
kvæmdanefndin sem sá um und-
irbúning þess kom saman til
fundar háifum mánuði eftir það
til að ræða möguieika á frekara
starfi að jafnréttismálum á
staðnum.
Soffia Guðmundsdóttir skýrði
blaðinu svo frá að Framkvæmda-
nefnd kvennafris 24. október hefði
komið saman til fundar 9. nóvem-
ber sl. til að ræða áframhald
starfs að jafnréttismálum á
Akureyri. Þar varð að samkomu-
lagi að efna til almenns fundar
laugardaginn 22. nóvember, þ.e.
á morgun, klukkan 16 f litla sal
Sjálfstæðishússins.
Þar er öllum, körlum jafnt sem
konum, heimill aðgangur.
Nokkrum konum var falið að
undirbúa fundinn og setja fram
tillögur um verkefnin framund-
an. Almennar umræður verða og
kosið i miðnefnd væntanlegra
jafnréttissamtaka.
— Við viljum hafa þessi sam-
tök i formi starfs- og leshópa
frekar en hefðbundins félags. Við
erum dálitið hræddar við yfir-
bygginguna og teljum að fólk
verði mun virkara i starfi að á-
hugamálum sinum ihópum, sagði
Soffia.
— Á fundinum 9. nóvember
komu fram ýmsar tillögur um
verkefni. Má þar nefna þjálfun i
félagsstörfum, skattamál, dag-
vistunarmál, menntunarmál
kvenna, þ.e. hvar hætta þær helst
á menntabrautinni og hvaða fög
velja þær, skipan i stöður og
launaflokka, lesefni húsmæðra
(yrði kannað á Amtsbókasafni),
málefni einstæðra foreldra, þátt-
taka kvenna i félagsstörfum og
stjórnmálum og að safna saman
erlendu og innlendu lesefni um
jafnréttismál. Einnig hafa komið
fram hugmyndir um könnun á
mynd konunnar i barna- og náms-
bókum og hvort kyngreining er
enn við lýði i námi.
— Fundurinn á laugardaginn
er fyrst og fremst haldinn til að
kanna áhuga fólks á stofnun
kvennahreyfingar. Þar verða al-
mennar umræður og fólk getur
skráð sig i starfshópa ef það hefur
Orðsending
til félagsmanna Máls
og menningar i
Reykjavík. Þeir
félagsmenn sem óska
að fá bækur félagsins
heimsendar, hafi sam-
band við umboðsmann
bókaútgáfunnar í síma
34183.
Mól og menning
áhuga á. Vonandi verður þátttaka
i þessu starfi jafnmikil og
kvennafriið gaf ástæðu til að ætia,
sagði Soffia að lokum. —ÞH
FUGLA-
SKOTT-
ÍS
Ný skáldsaga
eftir Thor
t dag kemur út hjá isafoldar-
prentsmiðju ný skáldsaga eftir
Thor Vilhjáimsson. FUGLA-
SKOTTIS heitir hún og gerist i
Suðurlöndum. Þetta er fjórða
skáidverkið sem kemur út eftir
Thor á jafnmörgum árum. A bók-
arkápu fylgir útgefandi skáldsög-
unni úr hlaði með þessum orðum:
„Þessi mikla skáldsaga Thors
Vilhjálmssonar gerist i Suður-
löndum. Hún tekur aðeins sólar-
hring, en mergð atvika og hraði
svipmynda brjóta öðru hýerju
umgjörð veruleikans, svo að leið-
ir yfir i heimi furðusagna. Frá-
bær eftirtekt og myndauðgi höf-
undarins, og kátlegt hugmynda-
flug birtist hér ef til vill i djarf-
legri samböndum og af meiri
rausn en nokkru sinni fyrr.
Fjórar islenskar persónur
koma við sögu, þar á meðal is-
lenskur burgeis, þjóðlegur hug-
sjónamaður, sem er hér i eins
konar heimspólitiskri kynnisferð,
en á sér lika einkaerindi. I sög-
unni kemur fyrir sægur fólks,
sem er lifandi og auðkennilegt, en
jafnframt ævinlega myndrænt á
einhyern hátt, þannig að það
samræmist hinu sterkt málaða
umhverfi og öru myndbrigðum.”
Á bókarkápu er teikning eftir
höfundinn, en útlitshönnun kápu
er gerð á Auglýsingastofu Gisla
B. Björnssonar. Skáldsöguna
segir Thor á 252 siðum.
* 111.......... .... .....................................
Björn E. Jónsson
verkstjóri, Bogahlið 15
sem lést 13. þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 24. nóvember kl. 13.30.
Vilborg Ivarsdóttir,
Leifur Björnsson,
Sigrún Björnsdóttir
Ilreinn Björnsson.
Maðurinn minn
Lárus Guðmundsson
kennari
lést 18. nóvember.
Fyrir hönd ættingja,
Sigriður Jónsdóttir