Þjóðviljinn - 12.12.1975, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.12.1975, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. desember 1975. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÖSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: titgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Huraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 Hnur) Prcntun: Blaðaprent h.f. DÆMISAGA UM HÚSNÆÐISMÁL í tengslum við kjarasamninga hafa oft verið gerðir hliðarsamningar við rikis- valdið um allskonar málefni. Má i þvi sambandi nefna húsnæðismál. Verkalýðs- hreyfingin hefur núorðið nokkra reynslu af þvi hversu rikisvaldið stendur við slika samninga. Sú reynsla er allt annað en góð. 1965 gerði verkalýðshreyfingin samning um byggingu 1225 ibúða sem siðar voru byggðar á vegum Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar. Urðu verulegar van- efndir á þessum samningi af hálfu rikis- valdsins um fjármögnun og tók þvi miklu lengri tima en áætlað hafði verið i upphafi að framkvæma þessa byggingaráætlun. 1974 gerði verkalýðshreyfingin samning við vinstristjórnina um húsnæðismál. Þessir samningar voru gerðir rétt um það leyti sem dauðastrið þeirrar stjórnar var að hefjast, og hafði hún á siðustu vaída- mánuðum sinum enga burði til þess að leysa þetta verkefni. Það var þvi fyrst við myndun núverandi rikisstjórnar að verkalýðshreyfingin gat tekið málið upp á nýjan leik við rikisvaldið. Það var gert strax og hægristjórnin var mynduð, en þá var þvi svarað af hálfu rikisstjórnarinnar að það væri ætlun hennar að skipa nefnd til þess að fjalla um þetta mál og önnur sem snúa að byggingum ibúðarhúsnæðis. Leið nú enn og beið og engar urðu efndirn- ar. Það var svo fyrst nú á nýliðnu hausti að nefndin kom saman til þess að hefja störf; eða einu og hálfu ári eftir að samn- ingar voru gerðir um húsnæðismál milli verkalýðssamtakanna og rikisvaldsins. í yfirlýsingum verkalýðsfélaganna og rik- isstjórnar i febrúar 1974 var gert ráð fyrir þvi að haldið yrði áfram byggingu hent- ugra ibúða fyrir efnalitið fólk á timabilinu frá 1976—1980. Það er þvi ljóst að sá seina- gangur sem orðið hefur i þessum efnum er mjög alvarlegur; nefndin fer af stað að minnsta kosti einu ári of seint, þvi nú ættu teikningar að vera tilbúnar og nauðsyn- legum lagabreytingum ætti að vera lokið ef allt hefði verið með felldu. En við engan er að sakast i þessum efnum nema rikis- valdið — og af þeim drætti og vanefndum sem orðið hafa ætti verkalýðshreyfingin að geta dregið sina lærdóma. í skýrslu Rannsóknarráðs rikisins um húsbyggingar segir að nauðsynlegt sé að byggja á árunum 1976—1985 24—28 þúsund ibúðir til þess að fullnægja eftirspurninni. Sá timi sem ofangreind yfirlýsing frá febrúar 1974 tekur til.er um það bil helm- ingur þessa timabils sem hér um ræðir. Þetta þýðir að 1976—1980 þyrfti að byggja 12—14 þúsund ibúðir ,,til þess að svara eft- irspurn”, eða 4—5 þúsund ibúðir með þeim sérstaka hætti sem yfirlýsingin frá febrú- ar 1974 gerir ráð fyrir. Það er um það bil fjórum sinnum meira en öll Breiðholts- framkvæmdin. Nú liggja engar endanlegar tillögur af neinu tagi fyrir um framkvæmd yfirlýs- ingarinnar. Það eina sem gerst hefur er að verkalýðshreyfingin hefur staðið við sinn hluta yfirlýsingarinnar sem fólst i þvi að lifeyrissjóðir verkalýðsfélaganna verðu 20% af ráðstöfunarfé sinu til fjármögnun- ar félagslegra bygginga. Annað hefur ekki gerst. Þessi forustugrein er rituð til þess að minna á þær miklu vanefndir sem orðið hafa á samningunum frá 1974, vanefndir sem einhliða skrifast á reikning núverandi rikisstjórnar. En þessar linur eru einnig birtar til þess að vara verkalýðshreyfing- una við þegar um er að ræða slika rikis- stjórn. Nú hefur verkalýðshreyfingin, auk Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins, samþykkt að gera einnig við kjarasamn- inga á þessum vetri pólitiskar kröfur. Þessari stefnu verkalýðshreyfingarinnar ber að fagna, en óneitanlega eru skilyrðin til þess að setja fram slikar kröfur óhag- stæðari nú en á valdaárum vinstristjórn- arinnar. Og þvi aðeins er unnt að gera samninga um önnur atriði en hrein kjara- mál við núverandi rikisstjórn að frá þeim samningum sé tryggilega gengið. Þar verður að vera um áþreifanlega hluti að ræða, ekki orð sem siðan eru svikin um leið og staðið er upp frá samningaborðinu. Upprifjunin hér á undan um húsnæðis- málin sannar ásamt mörgum fleiri dæm- um sem tina mætti til og kunn eru hversu litið mark er takandi á núverandi rikis- stjórn, hversu fráleitt er að gera við hana langtimasamninga, nema svo rækilega sé frá hnútunum gengið að stjórninni sé bók- staflega ekki fært að svikjast undan merkjum. —s. KLIPPT ■ ■ ■ Samþykkt andstöðulaust á alþingi A valdatima vinstristjórnar- innar voru sett lög sem fólu i sér að rikisvaldið skyldi á hverjum tima taka þátt i byggingu og rekstri dagheimila og leikskóla. Þessi lög voru sett vorið 1973 eftir nokkurt þóf innan vinstri- stjórnarinnar, en þau voru sam- þykkt á alþingi án nokkurrar umtalsverðrar andstöðu, ef ég man rétt. Lögin hafa þvi aðeins verið i gildi i hálft þriðja ár og á þessum tima hefur þegar orðið veruleg framför i byggingu dag- vistunarstofnana. Samkvæmt lögum vinstri- stjórnarinnar ber rikissjóði nii að greiða 50% af stofnkostnaði dagheimila og skóladagheimila og leikskóla og skal rikisfram- lagið greiðast á fjórum árum. I lögunum er einnig gert ráð fyrir þvi að rikið greiði allt að 30% rekstrarkostnaðar dagheimila og skóladagheimila og allt að 20% rekstrarkostnaðar við leik- skóla. Samkvæmt þessum lög- um greiddi rikið 10 milj. kr. i stofnkostnað við dagvistunar- stofnanir á árinu 1973. 1974 var þessi upphæð 40 milj. kr. og 45 milj. kr. til rekstrarkostnaðar. Á þessu ári nemur fjárveitingin 60milj. kr. til stofnkostnaðar og 57,3 milj. kr. til rekstrar. í fjár- lagafrumvarpinu sem lagt var fram i haust var gert ráð fyrir 187 milj. kr. samtals til rekstr- ar- og stofnkostnaðar dag- vistunarstofnana. Stökkbreyting í fyrra fengu 19 heimili i 18 sveitarfélögum greitt stofn- framlag, en i ár var þessi tala komin upp 139 heimili i 18 sveit- arfélögum. Þessar tölur sýna vel hversu hvetjandi lögin hafa verið fyrir byggingu dagvistun- arstofnana, en eftirfarandi tölur sýna þetta þó enn betur: A áratugnum áður en lögin tóku gildi, þe. á árunum 1963-1973 voru reist 8 ný heimiii á 6 stöðum utan Reykjavikur og 12 i Reykjavlk en alls voru dag- heimiii i iandinu 26 f árslok 1973 og leikskólar 40 talsins. A árun- um 1974 og 1975, tveimur árum, er hins vegar hafinn undirbún- ingur að smiði 39 heimila i 18 sveitarfélögum . Meö öðrum oröum: Á tveimur árum hefst bygging fleiri heimila en alls voru til i iandinu á árinu 1973! Þessi stökkbreyting sem þarna hefur átt sér stað er ákaf- lega jákvæð, en enginn deilir lengur um nauðsyn þess að reistar verði svo margar dag- vistunarstofnanir að allir sem þurfa og vilja geti komið böm- um sinum fyrir þar. Enginn deilir lengur á þessar stofnanir, og sú ihaldssama gagnrýni sem flutt var fyrir aðeins fimm ár- um eða svo, heyrist ekki lengur. Afturhald En nú hefur rikisstjóm I- haldsaflanna ákveðið að fella úr gildi lögin um þátttöku rikis- valdsins i stofnkostnaði og rekstri dagvistunarstofnana. Er frumvarps um þessi efni aö vænta á alþingi bráðlega. Full- vist er að mjög viðtæk og al- menn andstaða er við þessa af- stöðu rikisstjórnarinnar, einnig innan stjórnarflokka nna sjálfra. Og þvi verður ekki trúað nema á reyni að þeir sem þetta mál snertir mest láti það þegj- andi fram hjá sér fara. Sam- þykkt slikrar stefnu á alþingi væri ekki einasta til marks um ihaldssemi. Hún væri til marks um fáheyrða afturhaldsstefnu og kurfshátt sem hvergi finnst samjöfnuður til á byggðu bóli. Alvarlegar afleiðingar Afnám laganna um þátttöku rikisins i byggingu dagvistun- arstofnana myndi hafa marg- þættar afleiðingar þegar i stað: 1. Sveitarfélög Uti á landi hafa ekki bolmagn til þess að reka barnaheimili eða að setja þau á stofn án utanaðkomandi aðstoð- ar. Afnám gildandi laga þýðir, að landsbyggðin yrði svipt möguleikum á þvi að hafa þessa sjálfsögðu þjónustu nútima- samfélags. 2. Fimm foreldrahópar og einkaaðilar reka nú barnaheim- ili i Reykjavi'k auk Sumargjaf- ar. Forsenda þessara heimila er stuðningur rikisvaldsins, þvi borgin sjálf hefur aldrei stutt þau svo að þau geti staðist með borgarframlaginu einu. Á þessum heimilum öllum eru hærri gjöld en á öðrum barna- heimilum, en niðurfelling rikis- styrksins myndi hafa i för með sér tafarlausa lokun þessara dagheimila. 3. Daggjöld á barnaheimilum myndu hækka verulega. Falsrök Hér hafa aðeins verið dregin fram einstök augljós atriði, en það alvarlegasta við þann sam- drátt sem rikisstjórnin vili framkvæma I byggingu dag- vistunarstofnana er þó umfram allt annað sú staðreynd að hér er greinilega vegið að jafnréttis- og kvenfrelsisbaráttunni, sem náð hefur hápunktiá þessu 'ári. í ár hefur mikill fjöldi fólks Ur öllum flokkum flutt ræður og skrifað greinar til eflingar jafn- réttisbaráttu kvenna. Allar þessar ræður og öll þessi skrif dæmast markleysa nema sömu aðilar og þau hafa samið og flutt berjist harkalega gegn fyrirætl- unum rikisstjórnarinnar um af- nám laganna um þátttöku rikis- valdsins i stofn- og rekstrar- kostnaði dagvistunarstofnana. Vitanlega mun rikisstjórnin i þeirri umræðu sem fram kann að fara um þetta mál halda þvi fram, að sveitarfélögin fái i sinn hlut það fé sem rikið hefði ella notað i þessu skyni. En slikt eru að sjálfsögðu falsrök; fyrir smærri sveitarfélög gildir þessi röksemd ekki og I heildina giidir hún heldur ekki, þvi að það er að sjálfsögðu reginmunur á þvi hvort samfélagsvaldinu er lögð lagaskylda á herðar, eða hvort það cr cinungis eftir aðstæðum og politiskum duttiungum á hverjum stað hvort byggðar eru dagvistunarstofnanir eða ekki. —s. ... OG SKORIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.