Þjóðviljinn - 12.12.1975, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. desember 1975. WÓÐVILJINN — SÍÐA I'I
Úr greinargerð
fyrir nýju
álsamningunum
sem nú liggja
fyrir alþingi
VIÐHORF
ALUSUISSE
Lagt er til, aö lögfest verði-
samkomulag, er tekist hefur með
rikisstjórninni og Swiss
Aluminium Ltd. (Alusuisse) um
tilteknar breytingar á f járhagsat-
riðum i aðalsamningi þeirra frá
28. mars 1966 (með áorðnum
breytingum frá 28. október 1969)
um álbræðslu i Staumsvik, sam-
fara breytingum á rafmagns-
samningi milli Landsvirkjunar og
íslenska Alfélagsins hf. (ISAL),
er honum fylgir. Eru breytingar
þessar settar fram i svonefndum
öðrum viðauka við aðalsamning-
inn, dags. 10. desember 1975, sem
iðnaðarráðherra hefur undirritað
fyrir hönd rikisstjórnarinnar með
fyrirvara um staðfestingu af
hálfu Alþingis.
Viðauki þessi er lagöur fram
sem hluti af frumvarpinu, en hon-
um fylgja eftirtaldir viðaukar við
fylgisamninga aðalsamningsins,
er lagðir eru fram til upplýsingar
sem fylgiskjöl með greinargerð
þessari:
Annar viðauki við rafmagns-
samning milli Landsvirkjunar og
ISALs. — Annar viðauki við
hafnar- og lóðarsamning, milli
Hafnarfjarðarkaupstaðar og
ISALs. — Annar viðauki við að-
stoðarsamning — hönnun og
byggingu, milli ISALs og
AÍusuisse. — Annar viðauki við
aðstoðarsamning — rekstur, milli
ISALs og Alusuisse. — Annar við-
auki við aðstoðarsamning — sölu
milli ISALs og Álusuisse.
Efnisbreytingar þær á álsamn-
ingunum, sem hér er um að ræða,
varða annarsvegar framleiðslu-
gjald það, er tSAL greiðir i stað
almennra skatta, og hinsvegar
orkuverð fyrir rafmagn til ál-
versins frá Landsvirkjun, en
hvorttveggja hefur verið endur-
skoðað frá grunni. Er ráðgert að
taka ákvæðin um þetta upp i gild-
andi samninga i stað þeirra, sem
fyrir voru, en samningarnir haldi
almennu formi sinu að öðru leyti.
Jafnhliða þessu hefiir i þriðja
lagi verið samið um heimild til
stækkunar hjá tSAL sem svarar
1/7 hluta af núverandi bræðslu-
mannvirkjum álversins, þ.e. með
lengingu annars kerskála til jafns
við hinn fyrsta. Gildir heimildin
til ársloka 1979, og mun þessi hluti
bræðslunnar sæta sömu samn-
ingskjörum og þeir, sem fyrir
eru, ef hún verður notuð timan-
lega. Með tilliti til þessa er miðað
við að fella ákvæði um viðbótina
inn i hina eldri samninga, aðal-
samning og fylgissamninga. Ekki
er um að ræða neinar raunveru-
legar breytingar á hafnar- og
lóðarsamningi, eins og sá viðauki
ber með sér, og i aðastoðarsamn-
ingum ISALs og Alusuisse er ein-
ungis skotið inn ákvæðum til að
fullnægja formskilyrðum um
gildi þeirra gagnvart stækkun-
inni.
Samið frá 1/10 1975
Við það er miðað i frumvarp-
inu, að hinir nýju breytingar-
samningar fái sömu meðferð og
var um álsamningana i upphafi,
en aðalsamningurinn var þá stað-
festur með lögum nr. 76/1966 og
honum veitt lagagildi. Þessari
aðferð var einnig fylgt við gerð
fyrstu viðauka við samningana,
sbr. lög nr. 19/1970, er samið var
um að flýta byggingu annars ker-
skála bræðslunnar og lengja hinn
fyrsta. Er þetta og i samræmi við
Tafla 1. Greiðslur fSAL vegna orku og skatta — Dæmi A.
Forsendur: Dæmi A gerir ráð fyrir svipaðri verðþróun á áli og undanfarna tvo
áratugi, en dæmi ii gerir ráð fyrir mun iirari verðhækkunum á áli eða
um 5% á ári að meðallali i dollurum. Einnig gerir dæini B ráð fyrir
nmn meiri liagnaði.
1 ntillj. $ . greiðslur fyrir skatt- skattinneign (4-)
1.—5. ár: raforku greiðslur í lok timabils samtals
Núgildandi reglur 14.1 10.0 4- 12.0 12.7
Nýjar rcglur án stækkunar 23.1 7.5 -r- 5.8 24.8
Nýjar reglur með 20 MW stækkun 24.8 8.0 -4- 5.8 27.0
1.—10. ár:
Núgildandi reglur 28.1 18.1 -r- 15.8 30.4
Nýjar reglur án stækkunar 50.0 15.0 4- 7.6 57.4
Nýjar reglur með 20 MW stækkun 55.0 16.6 -7- 7.6 04.0
1.—19. ár:
Núgildandi reglur 53.4 37.1 17.9 62.6
Nýjar reglur án stækkunar 103.4 28.5 4- 12.4 119.5
Nýjar reglur með 20 MW stækkun 110.7 32.0 -4-12.4 136.3
Tafla 2. Greiðslur ÍSAL vegna orku og skatta — Dæmi B.
Forscndur: Sjá atlis. um Dæmi A.
í millj. $ grciðslur fyrir skatt- skattinncign (-í-)
1.—5. ár: raforku greiðslur í lok timabils samtals
Núgildandi reglur 14.1 13.8 -4-11.8 10.0
Nýjar reglur án stækkunar 24.4 7.5 4- 5.8 26.1
Nýjar reglur með 20 MW stækkun 26.3 8.0 4- 5.8 28.5
1.—10. ár: Núgildandi reglur 28.1 35.8 -4.18.3 45.6
Nýjar reglur án stækkunar 55.2 15.0 4- 6.5 03.7
Nýjar reglur með 20 MW stækkun 70.5 10.0 4- 6.3 80.8
1.—19. ár: Núgildandi reglur 53.4 103.1 4-33.5 123.0
Nýjar reglur án stækkunar 122.5 31.2 — 153.7
Nýjár reglur með 20 MW stækkun 147.5 30.7 — 184.2
fyrirmæli 51. gr. aðalsamningsins
um breytingar á honum, sem
kveöa á um staðfestingu frá Al-
þingi.
Fyrirhugað er, að hin nýju fjár-
hagsákvæði gildi afturvirkt frá og
með 1. október 1975, og er þvi
æskilegt að hraða staðfestingu
þeirra.
Nýtt orkuverð
Gefinn er kostur á stækkun ál-
bræðslunnar sem svarar 20
megavöttum (10.700 árstonnum
áls), er getur leitt til aukinnar
orkusölu sem þvi nemur fljótlega
eftir að Sigölduvirkjun tekur til
starfa. Þar af eru 12 MW afgangs-
orka.
Tekið er upp nýtt orkuverð frá
1. október 1975, en það átti þá að
lækka úr 3,0 i 2,5 mill. Er nýja
verðið sett á stigbreytingar-
grundvöll i tengslum við álverð
frá 1. janúar 1978, en það var áður
litt breytilegt (aðeins vegna
rekstrarkostnaðar Búrfells), fyrr
en við lok 25 ára samningstima.
Nýja verðið er þannig:
Til ársloka 1975, 3,0 mill. —
Næstu 6 mánuði, 3,5 millj. —
Næstu 12 mánuði, 4,0 mill. —
Næstu 6 mánuði, 4.0—4.5 mill.
eftir álverði.
Frá 1. janúar 1978 til 1. október
1994 fylgir orkuverðið álverði
þannig:
Alverð Orkuverð
(cent/pund) (niill/kwst.)
40eðaminna 1%, þó ekki
undir 3.5 mill
40—50 0.85% afviðbót
50—60 0.70% — —
60—70 0.55% — —
Yfir 70 0.40%— —
Framleiöslugjald
Hinum fasta taxta framleiöslu-
gjalds ISALs sem átti að hækka
úr $12.50 i $20.00 á tonn 1. október
1975, er breytt frá þeim degi i lág-
marksskatt, sem greiða ber mán-
aðarlega á skattárinu eftir út-
skipunum. Er lágmarksskattur-
inn (grunntaxti gjaldsins) $20.00
á tonn eða sem svarar $1.500.000 á
ári við fulla framleiöslu án stækk-
unar (75 þús. tonn). Þessi lág-
marksskattur greiðist án tillits til
taps eða hagnaðar hjá fyrirtækj-
inu og myndar enga skattinneign
gagnstætt þvi sem er um núver-
andi framleiðslugjald. Það gjald
getur myndað skattinneign að þvi
leyti sem það er umfram $235.00,
þ.e. hinn eldri lágmarksskatt,
sem nú mundi falla niður. Við
hækkanir á álverði umfram 40
cent á pund (það er nú 39 centDfer
framleiðslugjaldið hækkandi eftir
leiðréttum taxta, i stiglækkandi
hlutföllum sem hér segir:
Alverð Taxtahækkun
(cent:pund) ($/tonn)
40—50 90% af hlutf. hækkun
50—60 80% af hlutf. hækkun
60—70 70% af hlutf. hækkun
Yfir70 60% af hlutf. hækkun
Með þessari stighækkun og á-
kvæðum um lágmarkstekjuskatt
er eldri skatthækkunarregla leyst
af hólmi, enda hefur hún leitt til
óraunhæfrar skattlagningar.
Viðbótarskatturinn vegna hins
leiðrétta taxta fellur i gjalddaga i
byrjun næsta árs eftir skattárið,
og fer þá fram endanlegt upp-
gjör fyrir árið með hliðsjón af
tekjum tSAL, ef við á. Um mynd-
un nýrra skattinneigna verður þvi
ekki að ræða.
Um framleiðslugjaldið gildir sú
hámarkstakmörkun, að hækkun
þess vegna stigbreytinga má ekki
leiða til skattlagningar umfram
55% af nettóhagnaði ISALs ( i
gildandi samningum er 50% há-
mark). Þar á móti hefur verið
tekið upp nýtt tekjulágmark,
þannig að framleiðslugjaldið i
heild má aldrei vera lægra en
35% af nettótekjum. Um útreikn-
ing nettóhagnaðar gilda sömu
takmarkanir gagnvart ÍSAL og
áður, sem er mikilvægt atriði, að
öðru en þvi, að fyrirtækinu verður
heimilað að mynda 20% varasjóð
eftir svipuðum reglum og gilda
eftir islenskum skattalögum.
I skattamálunum hefur loks
verið samið um skattinneign
ISALS samkvæmt eldri reglum
vegna reksturs fram til 1. október
1975, en hann hefur á þessu ári
verið með stórfelldu tapi og inn-
eignin þvi mikil, eða 4,4 millj.
dollara. Þessi inneign mun bera
vexti samkv- forvöxtum banda-
riska seðlabankans (meðaltal
siðustu 1J ára 5,6%) og greiðist af
framleiðslugjaldi umfram iág-
markið 20 dollara á tonn. Ef enn
er um að ræða eftirstöðvar i lok
samningstimabilsins skulu þær
greiddar, þegar samningstima-
bilið er útrunnið.
Heimild til
stækkunar
t samkomulaginu felst, að á
timabilinu frá 1. april 1978 til 31.
desember 1979 hefur tSALkaup-
rétt á orku, sem er 20 MW að afli
(176 gigavattstundir á ári), og
skiptist hún þannig, að 40% (8
MW.70GWst) er forgangsorka en
Framhald á 14. siðu
Umsögn Landsvirkjunar
„Fyrir liggur nú endanlegt
uppkast að breyttum raforku-
sölusamningi milli Landsvirkj-
unar og tSAL og eru megin nið-
urstöður þess eftirtalið:
1. Verð á raforku til tSAL
hækkar mjög verulega frá nú-
verandi samningi. Þannig er
gert ráð fyrir þvi i uppkastinu,
að núverandi verð 2,5
mills/kWh hækki þegar i stað i 3
mills/ kWh eða 20% og strax i
byrjun næsta árs upp I 3,5
mills/ kWh, sem jafnframt
verður lágmarksverð á raforku
það sem eftir er samningstim-
ans, og siðan á miðju ári 1976
hækki verðið upp i 4,0
mills/ kWh og nemur þá hækk-
unin frá núverandi samningi
60%.
A árinu 1977 er gert ráð fyrir
verði sem er ákveðið hlutfall af
heimsmarkaðsverði á áli, en þó
ekki minna en 4,0 mills/ kWh.
Frá og með 1. janúar 1978, mun
raforkuverðið verða tengt
heimsmarkaðsverði á áli eftir
ákveðnum reglum, en þó aldrei
um breyttan
raforkusölu -
samning
við ÍSAL
lægra en áðurnefnt lágmark, 3,5
mills/kWh.
Liklegt þykir, að heimsmark-
aðsverð á áli hækki á bilinu 2,5-
5% á ári yfir samningstímabilið
og er þvi mjög mikilvíegt að fá
þetta ákvæði inn i samninginn,
þar sem öll likindi eru á þvi að
það leiði af sér verulegar hækk-
anir á raforkuverðinu i framtið-
inni. Þetta er mikil bót á núver-
andi samningi sem ekki hefur
teljandi verðhækkunarákvæði á
raforku. Hækki álverð eins og
nú er fastlega búist við, hækka
orkusölutekjur Landsvirkjunar
um 50-70 milljón dollara yfir
samningstimabilið miðað við
núverandi samning.
2. Tekjuaukning sú, sem um
er að ræða samkvæmt hinum
breytta samningi, mun hafa
mikil jákvæð áhrif á fjárhag
Landsvirkjunar og auka til
muna svigrúm fyrirtækisins til
að mæta hækkuðum reksturs-
kostnaði og til hæfilegrar eigin-
fjármögnunar nýrra fram-
kvæmda. Þannig er þess að
vænta, að þörf Landsvirkjunar
til hækkana á orkuverði til al-
menningsrafveitna á hverjum
tima muni verða mun minni en
ella, og t.d. ekki reiknað með að
orkuverð til almenningsveitna
verði hækkað nú um áramót.
3. Samningsuppkastið gerir
ráð fyrir lengingu seinni ker-
skála tSAL til jafns við þann
fyrri. Þessi lenging gerir það að
verkum, að Landsvirkjun getur
selt sem svarar 20 MW af afli i
viðbót við þau 140 MW, sem nú-
verandi samningur gerir ráð
fyrir. Af þessum 20 MW verður
hægt að selja 60% af samsvar-
andi orku sem afgangsorku með
sömu skilmálum og i samningn-
um við járnblendiverksmiðj-
una. Þessi aukna orkusala er
Landsvirkjun mjög hagstæð.
Forgangsorkuverð i ofan-
greindri viðbótarsölu samsvar-
ar rúmum 10 mills/ kWh. sem
er hliðstætt eða betra en það
verð, sem samdist um til járn-
blendiverksmiðjunnar. Orku-
sala þessi þýðir auknar jekjur
sem svara til 13-16 milljónum
dollara reiknað yfir samnings-
timabilið, ef álverð á heims-
markaði hækkar eins og linurit-
ið sýnir. Þá má taka fram, að
þvi fyrr sem orkusala þessi
hefst, þvi hagstæðara fyrir
Landsvirkjun. Gert er ráð fyrir
nú, að stækkunin geti verið
komin i gagnið vorið 1978.
Að lokum skal tekið fram. að
tæknilega eru ekki vandamál
hjá Landsvirkjun samfara áð-
urnefndri söluaukningu til
tSAL. Þessi aukna orkusala
skerðir heldur ekki öryggi orku-
afhendingar til almennings-
veitna.
E. Briem
framkvæindastjóri.