Þjóðviljinn - 12.12.1975, Síða 16
Skýrsla Landhelgisgæslunnar um sjóorrustuna í Seyöisfiröi:
Föstudagur 12. desember 1975.
Smith og
Nkomo
sammála
um
viðrœður
SALISBURY 11/12 — Ian Smith,
forsætisráðherra Ródesiu, og
Joshua Nkomo, einn af leiðtogum
þarlendra blökkumanna, hafa
orðið sammála um að hefja
samningaumleitanir um fram-
tiðarstjórnskipan Ródesiu i Salis-
bury næstkomandi mánudag.
Ekki er mikil bjartsýni rikjandi
um árangur. Nkomo hefur sagt að
hann krefjist meirihlutastjórnar
svartra manna þegar i stað, en
Smith leggur áherslu á að sú
krafa sé óaðgengileg fyrir hina
hvitu valdhafa landsins.
Asiglingarnar innan
eigin legrar landhelgi
Talsverðar skemmdir og einn slasaðist
I morgun bárust Landhelgis-
gæslunni upplýsingar um að 3
breskir dráttarbátar væru
grunnt undan landi i mynni
Seyðisfjarðar og var gæsluflug-
vélin SYR svo og varðskipið
ÞÓR beðin um að grennslast um
gerðir dráttarbátanna.
Varðskipið hafði verið inni á
Seyðisfirði við að ljúka við að
grennslast eftir duflum sem
tilkynnt höfðu verið þar á floti.
Varðskipið fór á vettvang og
fann 3 dráttarbáta rúmlega 1
sjómilu frá landi og var að þvi
er virtist taug á milli 2ja
dráttarbátanna.
Þegar varðskipið nálgaðist
dráttarbátana var þessari taug
sleppt og tveir dráttarbátanna
héldu til hafs STAR AQUARIUS
og STAR POLARIS. Þriðji
dráttarbáturinn LLOYDSMAN
hélt hinsvegar kyrru fyrir og
töldu varðskipsmenn hann
bilaðan.
Varðskipið hélt á eftir
dráttarbátunum 2 og gaf þeim
stöðvunarmerki með ljósmorsi
og hljóðmerkjum og dró
varðskipið um leið úr ferð sinni
er það nálgaðist bátana.
Þessu svaraði STAR AQUAR-
IUS með þvi að beygja skyndi-
lega þvert inn á bakborðshlið
varðskipsins, sem snéri undan
til stjórnborða til að forðast á-
rekstur.
Sigldi þá LLOYDSMAN allt i
einu inn á varðskipið bakborðs-
megin. Þegar hér var komið tók
varðskipið ofan af byssu sinni
og skaut aðvörunarskoti, lausu
skoti, að LLOYDSMAN sem
svaraði með þvi að sigla aftur á
varðskipið. Gaf þá skipherra
varðskipsins skipun um að
skjóta föstu skoti að LLOYDS-
MAN og kom það i bol hans. Við
það lauk þessari viðureign.
Skemmdir á varðskipinu urðu
talsverðar og er verið að athuga
þær. Aðeins einn af varðskips-
mönnunum slasaðist smávegis
á hendi.
Atburður þessi átti sér stað
laust eftir hádegi i dag, langt
innan islenskrar landhelgi. Þeg-
ar dráttarbátarnir sáust fyrst
austur af Borgartanga, milli
Seyðisfjarðar og Loðmundar-
fjarðar, voru þeir aðeins 1,1
sml. frá landi, en ásiglingin
sjálf skeði 1,9 sml. frá landi.
A þessu korti sést hvaða svæði bætist við islenska flugstjórnarsvæðið
en það er svæðið yfir Grænlandi og norður að pól sem afmarkað er með
heilli linu. Brotalinan norðan og vestan við tsland sýnir hvar gömlu
mörkin voru.
Islenska flugstjórn-
arsvœðið þrefaldast
Um áramótin stækkar fslenska
flugstjórnarsvæðið verulega. Þá
taka islendingar við stjórn flug-
umferðar iefra loftrými — þe. yf-
ir 20 þúsund fetum — Suður-
straumsflugstjórnarsvæðisins. —
Nær nýja svæðið yfir allt Græn-
land nema suðuroddapn og allt til
Norðurskautsins.
Fram til þessa hefur bandariski
flugherinn annast alla flugstjórn
frá Syðra-Straumsfirði I umboði
danskra stjórnvalda, en fyrir
tveimur árum tilkynnti hann að
hann myndi hætta þeirri þjónustu
um næstu áramót. Danir treystu
sér ekki til að setja upp nýja flug-
stjórnarstöð sjálfir i
Syðra-Straumsfirði og leituðu þvi
til islenskra og kanadiskra flug-
málastjórna um að þær tækju
þessa þjónustu að sér.
Varð það úr að danska stjómin
mun annast upplýsingaþjónustu
fyrir innanlandsflug i Grænlandi,
Kanada tekur að sér efra loftrými
suðurodda Grænlands og verður
þvi svæði þjónað frá Gander, en
islendingar taka að sér efra loft-
Burt með börnin —
það vantar bílastœði!
rýmið fyrir meirihluta Græn-
landsogallt norður að Norðurpól.
Við þessa breytingu stækkar is-
lenska flugstjórnarsvæðið og
verður nú þrefalt stærra en hing-
að til. Annir islenskra flug-
stjórnarmanna munu samt ekki
aukast að sama skapi, þvi yfir-
gnæfandi hluti umferðar á þessu
svæði og i þessari hæð er þotuum-
ferð sem hvort eð er kemur inn á
gamla islenska svæðið. Vegna
þessarar stækkunar verður flug-
umferðarstjórum fjölgað um
fimm, úr 25 i 30. Þess má geta að
islendingar bera aðeins 7% af
kostnaði við rekstur þessarar
þjónustu.en heildarkostnaður við
hana er áætlaður 447 miljónir
króna á næsta ári. íslendingar
hafa hins vegar um 340 miljónir i
gjaldeyristekjur af þessum
rekstri. Alls fóru 34.109 flugvélar
um islenska úthafsflugstjórnar-
svæðið árið 1974, þar af 80% þot-
ur. Búist er við að fjöldinn verði
svipaður i ár.
— ÞH
Tillaga þingmanna Alþýðubandalagsins:
Stofnaður verði
Lánasjóður dag-
vistunarheimila
Þrir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, Svava Jakobsdóttir,
Lúðvik Jósepsson og Vilborg
Harðardóttir flytja frumvarp til
laga um Lánasjóð dagvistunar-
heimila. Frumvarpið gerir ráð
fyrir að tekna i sjóðinn verði afl-
að með launaskatti, sem gefi
um 220 milj. kr. á ári i sjóðinn. t
greinargerð er bent á að nú liggi
fyrir umsóknir vegna byggingar
10 nýrra dagheimila. A fjár-
lagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir 68,4 milj. kr. til stofn-
kostnaðar dagvistunarheimila,
en tillaga menntamálaráðu-
neytisins hafði hljóðað upp á 165
milj. kr. Það er þvi ljóst, segja
flutningsmenn, að þörfin á
byggingu dagvistunarheimila
er brýn og frekari fjármögnun-
ar þörf.
Við Grettisgötu hefur um ára-
tugaskeið staðið gæsluvöllur fyrir
börn. Nú er verið að brjóta niður
steypta girðingu fyrir framan
völlinn þvi bilarnir krefjast þess
að fá undir sig landsvæði i
verslunarhverfinu, sem þarna er
komið i kring.
Til að byrja með verður gæslu-
völlurinn minnkaður um helming
og tekinn undir bilastæði fyrir
verslunarhús Olympiu. í framtið-
inni verður siðan allur völlurinn
lagður undir bilana en i staðinn
mun fyrirhugað að koma upp
gæsluvelli á landi Reykjavikur-
borgar hinum megin götunnar.
Langt mun þó i land með að af þvi
geti orðið og á meðan verða börn-
in að sætta sig þegjandi við það að
umráðasvæði þeirra minnki
verulega. Ekki mun hafa verið
leitað álits þeirra á framkvæmd-
inni. — gsp-
Stálkúlan hlífir engu sem á vegi
hennar verður
Norræn búnaðarorðabók
Búnaðarfélagið fékk Gisla
Kristjánsson ritstjóra til þess að
vinna að þessu máli hér á landi,
sem hann og hefur gert á þessu
ári.
—S.dór.
I fyrra veitti Norræni menning-
armálasjóðurinn Búnaðarfélagi
tslands 800 þúsund kr. styrk til
þess að vinna hlut Islands i gerð
norrænnar búnaðarorðabókar,
sem fyrirhugað er að gefa út.
Öryggisráð SÞ undirbúið
Ingvi Ingvason, fastafulltrúi
íslands hjá Sameinuðu þjóðun-
um, sendi Ivor Richard, for-
manni öryggisráðsins, sem er
breskur fulltrúi, i gær orðsend-
ingu, þar sem gerð er grein fyrir
herskipainnrás breta og for-
sendum fyrir stækkun islensku
fiskveiðilögsögunnar. I niður-
lagi orðsendingarinnar kemur
fram að rikisstjórn Islands
áskilji sér fullan rétt til þess að
skjóta hinni vopnuðu innrás
breskra herskipa inn i islenska
fiskveiðilögsögu siðar formlega
fyrir öryggisráðið i þvi mark-
miði að ráðið beiti viðeigandi
aðgerðum i málinu. Þá er þess
óskað að orðsendingunni verði
dreift sem opinberu skjali
öryggisráðsins.