Þjóðviljinn - 06.01.1976, Page 3
Þriðjudagur 6. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
VEÐUROFSI Á SUÐVESTURLANDI:
Bílar víða í ógöngum og
ekkert flogið frá Reykjavík
Blindbylur, tólf vind-
stig, skafrenningur og
snjókoma var meðal þess
sem gekk yfir Suðveetur-
land í gær og var raunar
þungfært um mestallt
landið. Verstvar ástandið
þó fyrir sunnan, bilar í ó-
göngum í Kollafirði og
víðar og á sjálfu Reykja-
víkursvæðinu gekk um-
ferð afar treglega og með
þeim erfiðleikum og ó-
höppum sem jafnan
fylgja i kjölfarið.
Þýskt skip statt suðvestur af
Reykjanesi tilkynnti tólf vind-
stig i gær en austanátt var um
allt land og langverst á suövest-
urhorninu. Úrkomulaust var og
sæmilega stillt fyrir austan en
frosthörkur töluverðar. 1
Reykjavik var þriggja stiga
frost seinnipartinn. Vindur var
aö aukast á Vestfjöröum og bú-
ist var við snjókomu þar i gær-
kvöldi. Reiknaö var meö þvi aö
veður myndi ekki breytast mik-
iö á morgun, frostiö minnkaöi
e.t.v., en ekki þótti ástæða til
þess að búast viö breyttu veöri
að ööru leyti fyrir sunnan. Snjó-
komu er spáð fyrir norðan i dag.
Hjá Flugleiöum fengust þær
fréttir að flogiö heföi veriö á
Akureyri, Húsavik, Patreks-
fjörö, Þingeyri og Egilsstaði i
gær, en siðan var flugvellinum i
Reykjavik lokaö um fjögurleyt-
iö i gær. Ekki var flogiö á Isa-
fjörö i gær né fyrradag.
1 gærmorgun var stórum bll-
um og jeppum fært til Akureyr-
ar en Vegaeftirlitiö haföi ekki
nákvæmar fréttir um færöina
þar sem veörinu haföi ekki slot-
aö og vegir aö opnast og lokast
eftir ástandinu á hverjum staö
hverju sinni. Um fimmleytiö i
gær var ennþá fært viöast um
suðvesturland fyrir stærri bila
en gjörófært var i Mýrdalnum
og á Vik. Almannaskarð og
Lónsheiði viö Höfn i Hornafiröi
voru lokuö.
Sunnan til á Snæfellsnesi var
sæmileg færö, en aftur verri á
þvi norðanverðu. Fært var
vestur i Búðardal um Heiðdal,
ófært allt i kringum Patreks-
fjörö nema stutta spotta sem
ruddir höföu veriö. Sama var aö
segja um tsafjörö, allar heiöar
lokaöar og ófært niöur i Bolung-
arvik og Súöavik. Færöin var
hins vegar sæmileg i Húna-
vatnssýslum og stórir bilar
komust til Siglufjarðar og
Dalvikur, en Ólafsfjarðarmúli
var lokaöúr. Mokaö var til
Húsavikur I gærmorgun, en á
noröausturlandi voru flestir
vegir ófærir.
A Austurlandi voru flestir
vegir ófærir, en ráögert var að
ryöja Fagradal og Fjaröarheiði
i gærmorgun. Ekki var unnt aö
moka i kringum Vik i Mýrdal
vegna veöurs en að ööru leyti
var tækjabúnaöi Vegageröar-
innar beitt óspart við snjóruön-
inginn. — gsp
Flugumferðin um islenska flug-
stjórnarsvæöiö hefur minnkað
um 5,2%, en verulegur samdrátt-
ur varð á árinu I öllu flugi yfir
Norður-Atlantshaf. Um 80% flug-
umferðarinnar er þotu-umferð.
Núna um áramótin 1975/76 tók is-
lenska flugstjórnarmiðstöðin við
flugumferðarstjórn i efra loft-
rými Grænlands-svæðisins, þann-
ig að flugstjórnarsvæðið er nú I
reynd orðið þrefalt stærra.
A Keflavikurflugvelli hefur
lendingum farþegaflugvéla i
millilandaflugi fækkað um 11,0%.
A Reykjavikurflugvelli er fjöldi
lendinga svo til hinn sami og varö
árið áður, en hreyfingum, þ.e.
Þröstur Sigtryggsson, skipherra
á Ægi.
Ægir
klippti
aftan úr
tveimur
Varöskipið Ægir náði að klippa
vörpuna aftan úr tveimur bresk-
um landhelgisbrjótum sl. laugar-
dagskvöld og varð ekki fyrir
neinni áreitni gæsluskipanna
bresku. Ástæðan fyrir þvi var sú,
að Fjallfoss átti leið um þetta
svæði á svipuöum tíma og héldu
verndarskipin bresku aö þar færi
varðskip og tók að rannsaka mál-
ið nánar.
Ægir sigldi með fullum ljósum
eins og flutningaskip gera og
vöruöu togararnir sig ekki á
þessu bragði hans, en verndar-
skipin voru að elta Fjallfoss. Og
án þess að eiga i erfiöleikum
klippti svo Ægir aftanúr tveimur
breskum togurum, en missti við
það klippurnar og varö að sigla til
lands eftir nýjum, þar eð vara-
klippur voru ekki um borö.
Skipherra á Ægi er Þröstur Sig-
tryggsson. Tiðindalaust var á
miðunum i gærdag. —S.dór
Flugumferð
minnkaði litil-
lega árið 1975
samtals fjölda lendinga og flug-
taka, hefur fækkað um 16%, eink-
um vegna samdráttar i kennslu-
og æfingaflugi. Um 6,9% aukning
hefur orðið i áætlunarflugi innan-
lands, en reglubundið áætlunar-
flug er nú stundað til 36 flugvalla
utan Reykjavikur.
Fjölgun lendinga á flugvöll-
um úti á landi varö mest á
Sauðárkróki eöa 57,4%, en
þarnæst á Akureyri, eða 16%. I
Vestmannaeyjum fækkaði lend-
ingum um 16%.
Rannsókn mannshvarfsins:
F réttaf lutn
ingi lokið að
sinni
— Við höfum tekið þá ákvörðun
aö láta ekki uppi neinar frekari
fréttir um rannsókn þessa máls
fyrr en niðurstöður liggja fyrir
HELSINKI 2/ — Atvinnuleysi fór
mjög vaxandi i Finnlandi í des-
ember, og um áramótin voru um
80.000 manns þar atvinnulausir,
eða um 3.5% vinnuaflsins i land-
inu. Verst er ástandið i þessum
efnum i landinu norðan- og aust-
anverðu.
eða eitthvað mjög sérstakt kemur
upp, sagði örn Höskuldsson rann-
sóknarlögreglumaður þegar Þjv.
forvitnaðist i gær um framhald
rannsóknar á mannshvarfi þvi úr
Hafnarfirði, scm leitt hefur til
gæsluvarðhaldsvistar fjögurra
ungra manna.
Enn mun lögreglan ekki hafa
komist til þess að leita aö liki
Guðmundar Einarssonar, sem
hvarf i janúar árið 1974. Einn
fjórmenninganna mun telja sig
hafa ekiö félögum sinum meö lik-
ið og beðið þeirra meöan þaö var
dysjað á ákveðnum staö i hrauni
fyrir utan Hafnarfjörö. Frost-
Hörkur og snjóþyngsli hafa komiö
i veg fyrir leit þar.
—gsp
Barnaflokkar — Unglingaflokkar — Flokkar fyrir fullorðna einstak-
linga — Flokkar fyrir hjón — Byrjendur og framhald
Allir nýjustu táningadansarnir — svo
sem Hustler, Bump (Boom), Kung Fu,
El Bimbo, Brazilian Carneval, Harlem
og margir fleiri.
SIÐASTI INNRITUNARDAGUR er fimmtudaginn. 8. jan.
J
Innritun daglega frá kl. 10-12 og 1-7.
Reykjavík
Brautarholt 3 slmar 20345 og 24959.
Breiöholt. Kennt veröur I nýju húsnæöi
aölDrafnarfelli 4 sími 74444.
Kópavogur
Félagsheimiliö simi 84829.
Hafnarf jöröur
Góötemplarahúsið slmi 84829.
Seltjarnarnes
Félagsheimiliö simi 84829.
Unglingor