Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 6. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Ivar Orgland. Kvœði 76 íslenskra skálda á norsku Islandske dikt frá vdrt hundreárheitir stórt ljóðasafn islenskt sem Fonna Forlag i Noregi hefur gefið út. Það geymir þýðingar Ivars Org- lands á ljóðum eftir sjötiu og sex íslensk skáld þessarar aldar og þarf ekki getum' að þvi að leiða að þetta muni vera stærsta úrval islenskra ljóða á erlendri tungu til þessa. Ivar Orgland skrifar for- mála um islenska ljóðlist, en hann hefur áður gefið út úrval ljóða eftir niu af helstu skáld- um Islands á nýnorsku. Safnið hefst á nokkrum ljóðum eftir Guðmund skála- skáld, Sigurð frá Arnarholti og Jóhann Sigurjónsson og síðan fylgir bókin stórum og smáum skáldum allt til Steinunnar Sigurðardóttur, Ragnheiðar ófeigsdóttur og Stefáns Snævarrs, sem öll eru fædd eftir 1950. Bókin er 433 bls. Bandarískt blað upplýsir: 300 bandarískir mála- liðar í Angólu og álika margir tilbúnir að fara þangað BOSTON 1/1 — Hundruð fyrrver- andi hermanna I Bandarikjaher hafa verið sendir til Angólu og álika margir hafa verið þjálfaðir og útbúnir til að fara þangað, seg- ir I grein, sem til stóð að banda- riska blaðið Christian Science Monitor birti á morgun. Segir blaðið að þrátt fyrir tilraunir bandariskra þingmanna til að halda Bandarikjunum fyrir utan borgarastriðið i' Angólu, fariihlut- um Bandarikjanna vaxandi og sé stöðugt betur skipulögð. Höfundur greinarinnar, David Anable, hefur það eftir heimild- um, sem standa nálægt leyniþjón- ustunni CIA, að CIA ráði til sin fyrrverandi hermenn gegnum þriðja aðila, þjálfi þá og sendi þá siðan gegnum Suður-Afriku til liðs við FNLA og UNITA, stjórn- málahreyfingarnar þær tvær i Angólu sem Bandarikin styðja. Anable segir einnig að Bandarik- in sjái hreyfingum þessum fyrir miklu magni léttra og þungra vopna. t greininni segir að bandariskir aðilar hyggist sjá FNLA og UNITA fyrir 150 vopnuðum þyrl- um og þjálfa á þær áhafnir. Þrettán af þeim þyrlum séu þeg- ar á leið til Angólu frá Frakklandi gegnum Suður-Aíriku. Anable Áfram stelpur Leiðrétting Plötugagnrýnandinn i Klásúl- um Sunnudagsblaðs Þjóðviljans hefur verið einn af þeim óheppnu. Hann talar um að það sé ófyrir- gefanlegt að ekki skuli vera neinar upplýsingar um flytjend- ur, texta- og lagahöfunda o.s.frv. á plötunni ÁFRAM STELPUR. Það er rétt að af tæknilegum á- stæðum var nokkrum hluta af upplaginu dreift i verslanir án fyrirhugaðs upplýsingablaðs, sem fylgja átti sem innlegg i um- slagi plötunnar. Samdægurs og dagana á eltír var þessu blaði þó dreift lausu i verslanir og eru á þvi allar nauðsynlegar upplýsing- ar ásamt textum. Vera kann að einhver misbrest- ur hafi orðið á dreifingu upp- lýsingablaðsins, sem fylgja á plötunni, og ættu þeir sem fyrir þvi verða að fá það ekki með, er þeir kaupa eintak af Áfram stelpur, að ganga eftir þvi i hljómplötuverslunum, eða að hafa samband við dreifingafyrir- tækið sem er Demant hf. Ægis- götu 10. Steinunn Jóhannesdóttir. Tvö Ijóð eftir Maó PEKING 2/1 — Maó Tse-túng, formaður Kom m únistaf lokks Kina, hefur birt tvö áður óútkom- in ljóð, og er efni þeirra hvatning til iandsmanna að halda áfram byltingunni og vera á verði gegn endurskoðunarhyggju sovét- manna. Ljóðin voru liður i nýárs- kveðjum kinverskra ieiðtoga til þjóðarin nar. Kinversk blöð skýra svo frá að fólk hvarvetna i landinu hafi safnast að útvarpstækjunum til að nema og ihuga efni ljóðanna. I þeim stendur meðal annars: Stöðugleiki og eining þýðir ekki að við hættum við stéttabarátt- una. Stéttabaráttan er höfuðat- riðið, sem allt annað snýst um. Jólatrésfagnaður Félag þroskaþjálfa heldur jólatrésfagnað fyrir börn félagsmanna þriðjudaginn 6. jan. 1976 i Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Æskilegt að félagar taki með sér gesti. Stjórnin segir I grein sinni að 300 banda- riskir málaliðar séu þegar komn- ir til Angólu og hafi verð að tinast þangaðsiðustuþrjá mánuðina, og CIA sé reiðubúin að senda álika marga i viðbót. Hermenn þessir eru ekki allir bandarikjamenn að ætterni, þannig eru i hópi þeirra að minnsta kosti fimmtán viet- namar, fyrrverandi liðsforingjar i her bandarisku leppstjórnarinn- ar I Saigon. Anable gefur i skyn að sumir málaliðanna hafi verið lánaðir frá ýmsum úrvalssveitum Bandarikjahers, sem sérþjálfað- ar hafa verið til vissra verkefna. 1 greininni segir að bandarisku málaliðarnir i Angólu fái 1000 tii 1500dollara mánaðarkaup og auk þess 20.000 dollara liftryggingu, þegar þeir hafi undirritaö endan- legan þjónustusamning I Afriku. Bandarisku málaliðarnir berjast að sögn flestir i liði UNITA, semá i bardögum á suðurvigstöðvunum i Angólu, en einhverjir þeirra eru þó i liði FNLA á norðurvigstöðv- unum. Anable segir að auk bandarikjamannanna berjist 3000 manna suðurafrisk lið með UNITA, 500 af þvi hvitir menn. hinir blakkir. Samkvæmt bandariskum lögum er ólöglegt aðráða banda- riska þegna til þjónustu i erlend- um her. VERÐLÆKKUN Þaníf ie'' verðl*kku.,. imfluttum" ga0rifteD'ækkuðu tollar á 35*. Um le| og«* i fjoJmargar nviflr n1 xto^um heim verði, vijjum vJirs !,gerðlr á Jækkuðu viðskiptavini okkar oe fÚ^Óts viö utsoJuverð vörubirgða oktkUm þvi svarandí hinu nýj^ZZöT' enneuws^nni nÚ auku bætum við sýninl? eppaúrval með mesta 0g beztí 7^ Jandsins á einum stað. PP3 Nú bjóðum VÍð einnia .. Seröir af Ai Jnc g Upp á vyateppin vinLm stepPUn? andi i ótrúlegu litaúrvalL^ Við bjóðum ykkur gólfteppi með aðeins 30% útborgun o stöðvarnar ó 6 til 12 mónuðum. Munið hina þægilegu J.L samninga — engir víxlar — og þér fóið sendan gíróseðil aðarlega, sem greiða mó í banka, sparisjóði eða pósthús aðarlega, sem gre Gerið verðsamanburð iða mó í banka, sparisjóð Verzlið þar sem verðið er Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum Verzlið þar sem úrvalið er mest og, < kjörin bezt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.