Þjóðviljinn - 06.01.1976, Side 7
Þriðjudagur 6. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Hér að framan hef ég aðeins
rifjað upp það helsta i samskipt-
um okkar Lárusar á siðastliðnum
27 árum, en hinsvegar læt ég öðr-
um eftir sagnfræðilegu hliðina.
Samskipti okkar snerust jafnan
um vinnu og félagsmál, en sjald-
an var rætt um einkamál eða ætt
og uppruna.
Við þessa óvæntu brottför þessa
samstarfsmanns eru mér þakkir i
huga fyrir góð og lærdómsrik
kynni af sönnum félagsmála-
manni og góðum dreng. Slikt
hlýtur ætið að vera gott veganesti
fyrir þá sem á eftir fara.
Ég votta eftirlifandi konu og
nánum ættingjum samúð mína
með von um að á öðrum vettvangi
biði Lárusar störf við hans hæfi,
þótt oft hafi gætt efasemda um þá
hluti i tali hans.
Hjálmar Jónsson.
Andlátsfregn vinar mins,
Lárusar Bjarnfreðssonar, kom
mér á óvart. Við ætluðum saman
verk að vinna i janúar og höfðum
lítillega undirbúið það, en nú er
hann allur. Það er vegur okkar
allra að deyja, en það er ætið sárt,
þegar menn deyja ungir. Við
Lárus erum að visu báðir öfugu
megin við fimmtugt nú, þegar
hann kveður, en sem æskumenn
börðumst við saman með eld i æð-
um og minningin um þá samveru
yngirmann upp og veldur þvi, að
á þessari skilnaðarstundu finnst
mér Lárus deyja langt fyrir
timann.
Við kynntumst skömmu eftir að
Sósialistaflokkurinn var stofn-
aður og störfuðum þar saman uns
flokkurinn var lagður niður. í
félagsskap ungra sósialista urðu
kynni okkar nánari,en Lárus var
um langt árabil einn af helstu
burðarbitum Æskulýðsfylkingar-
innar. Skilningur Lárusar á
þjóðfélagsmálum almennt og
baráttuaðstæðum liðandi stundar
var framúrskarandi.og nutum við
þess félagarnir i rikum mæli.
Lárus áleit það æðstu skyldu
hvers marxista að starfa i sinu
eigin stéttarfélagi, ef hann ætti
þess kost, og. um sjálfan hann
gildir sá vitnisburður, að i
málarafélaginu lá hann aldrei á
liði sinum. Lárus leit alltaf á
Sósialistaflökkinn sem pólitiskt
tæki stéttasamtakanna, og á
sama hátt og stéttarfélögin áttu
að styrkja flokkinn, efla hann,
veita honum faglega vitneskju og
þekkingu á kjörum alþýðunnar,
— gefa honum ,,jarðsamband” —,
á sama hátt átti flokkurinn að
veita verkalýðsstéttinni i heild
hina pólitisku leiðsögn og vaka
yfir heildarhagsmunum hennar.
Að mati Lárusar mátti aldrei
þessi gagnkvæmu tengsl rofna
eða samfylgni pólitiskra og fag-
legra ákvarðana detta niður.
t hinu pólitiska og félagslega
starfi Lárusar komu mannkostir
hans einkar vel i ljós. Hann fór
aldrei með hávaða, var raunar
stundum of hlédrægur, en fastur
fyrir i skoðunum og tillögugóður.
t hópi okkar félaganna var Lárus
friðsemdarmaðurinn, sem ætið
valdi leið hinna félagslegu sam-
ráða út úr öllum vanda, og þótt
hart væri deilt, eignaðist hann
aldrei óvini, enda þótt okkur hin-
um, sumum hverjum að minnsta
kosti, yrði það á. Lárus tók alltaf
íúslega að sér sin félagslegu
verkefni og skilaði þeim af ósér-
hlifni og samviskusemi. Nokkurri
birtu slær á minningu þessa tima-
bils, er við Lárus vorum sam-
ferða og sem spannar yfir gerðar-
dómsslaginn, baráttuna gegn
Keflavikursamningnum og at-
burðina 30. mars, svo að eitthvað
sé nefnt, að maður tali nú ekki um
kosningavinnuna alla, kappræðu-
lundina, Landnemahátiðarnar og
kaffikvöldin, en minningin um
þessa tima er samofin minning-
unni um hinn góða félaga, Lárus
Bjarnfreðsson.
Ég var einn þeirra mörgu, sem
fengu notiðvináttu Lárusar, sem
ég þakka nú, svo og það, hversu
reiðubúinn hann var ætið að rétta
manni hjálparhönd. 1 starfi minu
kynntist ég siðar dæmafárri
hjálpfýsi hans gagnvart litlu
barni, en hjörtu annarra geyma
þá sögu um kærleikann, sem bjó i
brjósti hans.
Lárus giftist 1965 eftirlifandi
konu sinni, Guðrúnu Benjamins-
dóttur; henni votta ég samúð
mina við fráfall hans, svo og öll-
um ættingjum hans.
Ingi R. Helgason.
Allir minnast þess, að mestall-
ur fiskiskipafloti landsmanna
sigldi i höfn seinni hluta október-
mánaðar, eða fyrir rúmlega
tveimur mánuðum vegna mikill-
ar óánægju sjómanna um ákvörð-
un fiskverðs. Þessari deilu sjó-
manna lyktaði með þvi, að rikis-
stjórnin lofaði að „endurskoðun
sjóðakerfis sjávarútvegsins”,
skyldi verða hraðað, og lokið i
byrjun desembermánaðar.
Auðvitað er „endurskoðun
sjóðakerfisins” ekki lokið enn,
enda ekkert áhlaupaverk að leysa
þann hnút, sem þar hefir verið
hnýttur.
Um hvaða sjóðakerfi er
deilt?
Sjóðakerfi sjávarútvegsins er
orðið mikið og flókið. Talið er að i
þá sjóði, sem um er rætt, renni á
árium 8800miljónir króna. Heild-
ar-aflaverðmæti fiskiskipaflotans
er hins vegar talið um 16300 milj.
kr. og allir aflahlutir og aflaverð-
laun sjómanna um 7400 milj.
króna á ári.
Þeir sjóðir sjávarútvegsins,
sem deilan stendur um eru þess-
ir:
greiðslur
á ári
milj. kr.
1. Oliusjóður 3180
2. Vátryggingasjóður 1109
3. Stofnfjársjóður 2905
4. Ahafnadeild Aflatr.sjóðs 547
5. Aflatrygg.sj. alm. deild 455
6. Fiskveiðasjóður 462
7. aðrir 92
Alls 8750 milj. kr.
Hér er Verðjöfnunarsjóður
fiskiðnaðarins ekki talinn með.
Væru allir þessir sjóðir lagðir nið-
ur mætti hækka fiskverð um rúm-
lega 50%.
Hvernig eru þessir
sjóðir tilkomnir?
Þeir af þessum sjóðum, sem
mestu máli skipta, og deilan
snýstum, eru allir komnir til með
ákvörðun stjórnvalda og upphaf-
lega settir til þess að raska um-
sömdum hlutaskiptakjörum sjó-
manna, sjómönnum i óhag.
Vátryggingarsjóður kom fyrst-
ur þeirra sjóða, sem máli skipta.
Hann tók til starfa 1961, upp úr
gengislækkunarhrotunni 1960 og
1961. Með þeim sjóði var verið að
koma vátryggingarkostnaði skip-
anna að hálfu leyti á herðar sjó-
manna, með þvi að taka tekjur
sjóðsins af óskiptum afla í gegn-
um útflutningsgjöld.
Stofnfjársjóðurinn var mynd-
aður árið 1968eftir gengislækkun-
ina þá. Með honum var verið að
koma, á sama hátt. greiðslum af-
borgana og vaxta af stofnlánum
skipanna, yfir á hlut sjómanna,
með þvi aðlækka fiskverðið, áður
en til skipta kom, um framlagið i
stofnfjársjóð.
Framlagið i stofnfjársjóð var
enn hækkað af núverandi rikis-
stjórn eftir gengislækkanir henn-
ar.
Oliusjóðurinner stofnaður með
bráðabirgðalögum i september-
mánuði 1974, af núverandi rikis-
stjórn.
Niðurgreiðsla á oliu, sem áður
átti sér stað á árinu 1974 var ó-
veruleg og tekin af peningum,
sem annars áttu að renna i Verð-
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins og
hafði þvi engin áhrif á fiskverð.
Oliusjóðurinn er stærstur þess-
ara sjóða og hefir áhrif á fiskverð
er nemur 18-20%. Með honum eru
sjómenn látnir greiða oliukostnað
skipanna, um það bil að hálfu.
Áhafnadeild Aflatrygginga-
sjóðs konifyrst til árið 1969, þeg-
ar Jónas Haralz, þá efnahags-
ráðunautur viðreisnarstjómar-
innar, beitti sér fyrir þeirri lausn
á deilu sjómanna og útgerðar-
manna um greiðslu á fæðiskostn-
aði, að hluti fæðiskostnaðar
skyldi greiðast með sérstöku út-
flutningsgjaldi. Þar með var tek-
in upp sú regla, að þvi meir sem
bátur fiskar, þvi hærri skal fæðis-
kostnaður skipverjanna teljast.
Þessir sjóðir, sem hér hafa ver-
ið taldir, valda mestum deilum,
enda öllum það sameiginlegt, að
með þeim er verið að velta óum-
deilanlegum kostnaði útgerðar-
innar yfir á herðar sjómanna.
Það er verið að knýja þá með
laga-ákvæðum til að búa við lægri
aflahlut, en þeir hafa samið um,
með fastákveðinni aflaprós. af
heildarafla verðm æti.
Um hvað stendur deil-
an?
Eins og nú standa sakir, stend-
ur deilan um það, að sjómenn
vilja ekki lengur una þeirri kjara-
skerðingu, sem felst i sjóðakerf-
inu.
Þeir krefjast þess, að sjóða-
kerfið verði lagt niður og fiskverð
verði skráð rétt.
Sjómenn hafa i mörg ár barist
gegn þessu sjóðakerfi og öllum á-
kvörðunum rikisvaldsins til að
skylda þá til þátttöku i reksturs-
kostnaði útgerðarinnar. t tið
vinstri stjórnarinnar miðaði þar
nokkuð með niðurfellingu lagaá-
kvæða um hluttöku sjómanna i
reksturskostnaði.
Kristinn Einarsson
Guðný Isleifsdóttir
Dóróthea Jóhannsdóttir
Eirikur Böðvarsson
Páll Sveinbjörnsson
Valgerður G. Jónsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir
Katrin Jónsdóttir
1 Þjóðviljanum 17. des. birtu of-
angreindir nemendur i isl nútima
bókmenntum við Menntaskólann
á Isafirði opið bréf til rithöfund-
anna Jennu og Hreiðars þar sem
ráðist var með harkalegri gagn-
rýni á ungiingabókina Adda trú-
lofast og þvi m.a. haldið fram að
bókin sé mannskemmandi. Hvað
átt er við með þessu er erfitt að
gera sér grein fyrir, nema ef vera
skyldi viljandi eða óviljandi mis-
beiting orðsins á grófasta hátt.
Merkingin felur i sér spillingu
siðgæðis eða ærutjón og beinist
þvi vissulega að höfundum bréfs-
ins fremur en bókinni. enda kem-
ur nianifckemmandi illa heim við
umsögn nemendanna um téða
bók. 1 völdum köflum úr ritgerð-
um þeirra segir m.a.: „Þema
bókarinnar er sakleysi" (E),
...allir eru góðir og vingjarnleg-
ir, engir svartir sauðir” (D).
„Páll er imynd hins fullkomna
manns sins tima” (P). og einn
En nú hefir ágengni rikisvalds-
ins gengið úr hófi fram, með lög-
um, sem núverandi rikisstjórn
beitti sér fyrir, uni stofnun oliu-
sjóðs. Iiækkun framlags til stofn-
fjársjóðs og hækkun á framlagi til
Vátryggingarsjóðs.
Þegar lög um þessi ákvæði voru
sett i árslok 1974 og fyrrihluta árs
1975, mótmæltu samtök sjó-
manna, og stjórnarandstaðan á
Alþingi varaði sterklega við þess-
um ráðstöfunum og greiddi at-
kvæði gegn þeim.
En rikisstjórnin fór sinu fram,
enda var meginstefna hennar sú,
i sambandi við gengislækkanir,
að skerða þyrfti launakjör jafnt
sjómanna sem annarra.
Nú situr rikisstjórnin i þessari
klemmu vegna ósanngirni sinnar
og fyrirhyggjuleysis.
Nauðsyn á hækkun
fiskverðs
Ein af mörgum ástæðum til
þess að nú hefir soðið upp úr hjá
sjómönnum, er sú staðreynd, að
fiskaflinn hefur farið minnkandi.
Fiskverðshækkanir sem rétt hafa
haldið i við hækkanir á almennu
kaupi i landi, duga sjómönnum
ekki, við slikar aðstæður.
Þegar afli minnkar frá ári til
ás, miðað við hliðstæða sjósókn,
þá er ljóst, að aflahlutur sjó-
manna, þ.e.a.s. kaup þeirra, fer
einnig sifellt minnkandi.
Það er óhjákvæmilegt að fisk-
verði fái að hækka til samræmis
við gangandi markaðsverð, en
hinu verður að hætta að halda
fiskverði niðri með allskonar
sjóðagreiðslum, greiðslum, sem
eru jafnt og þétt hækkaðar af
rikisvaldinu.
Þurfi óhjákvæmilega að bæta
hag útgerðarmanna, þá verður að
gera það með öðrum hætti en
þeim að sækja peningana til sjó-
bréfritara virðist meira að segja
hafa orðið fyrir jákvæðum áhrif-
um af bókinni (Ei), hann segir:
„Bara að ég hefði ekki nema eitt
af þessu öllu til að bera, þá væri
ég ánægður”, o.s.frv.
„Viðhorf okkar er rökstutt i
meðfylgjandi greinargerð", segir
i upphafi bréfsins, en þar rekur
hver þversögnin aðra. Yfirleitt
ber greinargerðin vitni um slæ-
lega bókmenn_takennslu þvi
hvorki-er tekið nægilegt tillit til
útgáfuárs né gerður samanburð-
ur á unglingabókum frá sama
tima. Adda trúlofast var gefin út
1952 (endurútgáfa 1967. óbrevtt).
Á þeim árum var ekki jafn venju-
legt og nú „að maður keypti sér
skó en mátaði þá ekki" i merk-
ingu bréfritara (G). Viðhorfin
gagnvart frjálsu kynlifi voru önn-
ur en i dag þegar prins martröð
kemur þeysandi inn á sjónarsvið-
ið á svörtum graðfola i stað
„fvrirmyndar draumaprinsins" á
hvitum hesti. Klámfaraldur og
ofbeldishneigð höfðu sem sé ekki
haldið innreið sina i isl. unglinga-
bækur. og það sást ekki einu sinni
hilla undir rauðsokkahreyfinguna
út við sjóndeildarhringinn.
Barna- og unglingabækur eins og
þær tiðkast nú hefðu ekki fengist
gefnar út.
manna. Slik stjórnarstefna hlýtur
að enda með ósköpum.
Væru þrir stærstu sjóðirnir,
Oliusjóður. Vátrvggingasjóður og
stofnfjársjóður, lagðir niður,
niætti hækka fiskverðið um
45-50%.
Hvað vilja útgerðar-
menn gera?
Nú er svo komið. að margir út-
gerðarmenn vilja einnig, leggja
sjóðakerfið niður, eða draga úr
þvi verulega. En þeir eru þó ekki
á þvi, að fiskverð til sjnmanna
megi hækka. Þeir vilja losna við
galla sjóðakerfisins, sem þeir á-
samt stjórnvöldum hafa komið
upp.meðþvi, aðþeir einirfáinot-
ið hækkaðs fiskverðs.
Auðvitað geta sjómenn aldrei
samþykkt slika breytingu. Sjóða-
kerfið var sett til þess að lækka
laun sjómanna og þegar það
hverfur eiga laun sjómanna eðli-
lega að hækka um leið.
Þaðer rétt, að sjóðakerfið kem-
ur mjög misjafnlega við einstak-
ar útgerðargreinar. Það hefir
alltaf legið fyrir, að þeir sem best
afla hafa greitt með hinum i
gegnum sjóðakerfið. Eins og
jafnan áður stendur rikisvaldið
með útgerðarmönnum og vill, að
sjómenn sætti sig við óbreytt á-
stand, annað hvort með þeim
hætti, að þeir fallist formlega á að
greiða hluta af oliukostnaði skip-
anna, eða breyti hlutaskiptapró-
sentu sinni til lækkunar. Hér er á
ferðinni sama skilningsleysið og
áður. Útgerðarmenn og rikisvald
halda að útgerðinni vegni betur
með lágu sjómannskaupi.
En nú hafa sjómenn varað
stjórnvöld landsins við með sigl-
ingu skipanna i land. Sú sigling
var ekki að ástæðulausu. Þvi
verður nú að fást fram breyting á
kjörum sjómanna, ef ekki á illa
að f ara.
Fvrrnefnt bréf kvað hafa verið
sent fjölmiðlum til birtingar. og
má þvi teljast herferð gegn vin-
sælum höfundum bókarinnar.
hvað svo sem liggja kann að baki.
Þess skal þó getið að bréfið fékkst
ekki birt nema i tveimur dagblöð-
um: Þjóðviljanum og Dagblað-
inu. t Þjóðviljanum var bréfið
birt i heiid. en i Dagblaðinu var
glefsum úr þvi slegið upp sem
æsifregn. Yonandi verður þetta
frumhlaup bóknienntafræðing-
anna in spe til þess að unglingar.
tæplega vaxnir úr grasi. liugsi sig
tvisvar um áður en þeir hlaupa i
fjölmiðla sem sjálfskipaðir gagn-
rýnendur
Gréta Sigfúsdótlir
Kanada:
Engin dauðaslys
í umferðinni um
nýárshelgina
OTTAWA 2/1 —Engin d.iuðaslys
urðu i umferðinni i Kanada um
nýárshelgina. og er slikt slysa-
leysi eindæmi t sögu landsins frá
þvi að bilaöld hófst þar. tbúar
Kanada eru 22 miljónir.
Gréta Sigfúsdóttir:
Þá var öldin önnur