Þjóðviljinn - 08.01.1976, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 08.01.1976, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJöÐVILJINN Fimmtudagur 8. janúar 1976. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SfiSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bcrgmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri; E;inar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 <5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. ENGIN TAKMÖRK? í ritstjórnargrein málgagns Fram- sóknarflokksins i gær er komist svo að orði um kjarasamninga verkalýðsfélag- anna á siðasta sumri: ,,Þeir lýstu góðum skilningi beggja aðila á þvi erfiða efnahagsástandi, sem þjóðin bjó við, en það er hið erfiðasta, sem hér hefur verið um 40 ára skeið sam- kvæmt upplýsingum Hagrannsóknastofn- unarinnar, en þá er átt við þjóðartekjur.” Litum nú á þessi orð, sem formaður þingflokks Framsóknarflokksins skrifar i blað sitt. Það er að sjálfsögðu rétt, að verkalýðs- hreyfingin sýndi i kjarasamningum á siðasta ári alveg sérstaka tillitssemi vegna nokkurra efnahagsörðugleika þjóð- arbúsins, en Þórarinn Þórarinsson segir meira en þetta. Hann leyfir sér að full- yrða, að efnahagsástand hér á landi hafi á siðasta ári með tilliti til þjóðartekna verið það erfiðasta i 40 ár. Þessi fullyrðing rit- stjórans og þingflokksformannsins, sem heiðarlegum Framsóknarmönnum er ætlað að trúa, er svo glórulaus, svo óra- langt frá veruleikanum, að ekki er hvers- dagslegt i pólitiskum málflutningi á ís- landi. Hvað varðar staðreyndir um þjóðar- tekjur á mann á íslandi á nýliðnu ári, þá þarf ekki að fara 40 ár aftur i timann til að finna ár með álika útkomu, eins og Þórar- inn Þórarinsson heldur blákalt fram, heldur aðeins 3 ár. Það þarf sem sagt ekki að leita allt aft- ur til fátæktar kreppuársins 1935 til að finna sambærilega útkomu, hvað þjóðar- tekjur varðar, heldur aðeins til velmegun- arársins 1972, þegar þjóðartekjur á mann á íslandi voru á föstu verðlagi hærri en þær höfðu nokkru sinni fyrr verið i allri sögu landsins. Það sem er þó ef til vill alvarlegast við fölsun Þórarins Þórarinssonar er, að hann ber fyrir sig upplýsingar frá „Hagrann- sóknastofnun”, til þess að gera boðskap sinn trúverðugri, eins og tilvitnunin hér að ofan ber með sér. Sú stofnun hefur að visu aldrei verið til, en fyrir fáum árum starfaði Hagrannsóknadeild Fram- kvæmdastofnunarinnar, en við verkefnum hennar tók á sinum tima sú Þjóðhags- stofnun, sem nú starfar að hagrannsókn- um. Almennir blaðalesendur hljóta að gera ráð fyrir þvi, að þarna eigi ritstjóri Timans við Þjóðhagsstofnunina, þegar hann ber fram falsanir sinar. Fróðlegt verður að sjá, hvort stjórn- málaritstjóri Timans sér ástæðu til að leiðrétta i blaði sinu þær grófu falsanir, sem hér hefur verið vakin athygli á, eða máski hann vildi gera tilraun til að fá Þjóðhagsstofnun til að skera úr þeim „ágreiningi,” hvort þjóðartekjur á íslandi hafi á siðasta ári verið likari þvi sem hér var 1935 eða 1972? Þær staðreyndir liggja reyndar fyrir i mörgum skýrslum frá þeirri stofnun þótt Þórarinn Þórarinsson virðist hins vegar ekkert kannast við þau plögg. Engin dul skal á það dregin hér, að auð- vitað hljóta ytri skilyrði og heildaraf- koma þjóðarbúsins jafnan að hafa nokkur áhrif á möguleika verkalýðshreyfingar- innar til að knýja fram raunhæfar kjara- bætur, þótt meðferð hins pólitiska valds i landinu skipti i þeim efnum oftast enn meira máli. Það er hins vegar fyllsta ástæða til, að hvetja almenna launamenn og þá sérstak- lega lágtekjufólkið til að vera vel á verði gegn þeim óprúttnu loddurum, sem reyna að mála fjandann á vegginn og draga upp ‘miklu dekkri mynd en fyrir hendi er, i þeim skuggalega tilgangi einum, að fá al- menning til að sætta sig við mun lakari kjör en þjóðarbúið getur borið. Talsmenn rikisstjórnarinnar og fésýslu- manna reyna nú með ofurkappi að telja almenningi trú um, að hér standi valið óhjákvæmilega milli smánarkjara eða at- vinnuleysis. Gjörið svo vel og veljið, segja stjórnarherrarnir við fólk með 50—70 þús. kr. i dagvinnutekjur á mánuði, og setja upp helgisvip. í þessum efnum eru einnig mjög grófar falsanir viðhafðar. Sannleikurinn er sá, svo sem dæmin sanna frá fyrri tið, að einmitt minnkandi kaupmætti almennings fylgir með beinum hætti stórkostleg hætta á samdrætti i at- vinnulifi og atvinnuleysi, vegna þess, að til þess að hjól atvinnulifsins geti haldið áfram að snúast þarf að vera hægt að selja það sem framleitt er, hvort sem það eru t.d. ibúðir, iðnaðarvörur eða neysluvörur. Og til þess, að hægt sé að selja fram- leiðsluna, með sama hætti og áður, má kaupmáttur almennings ekki lækka að marki. — Dæmi um slikan samdrátt af völdum minnkandi kaupgetu höfum við nú þegar i ibúðarbyggingum og viðar. Þvi er það, að til þess að tryggja fulla atvinnu og koma i veg fyrir atvinnuleysi þurfa rauntekjur almennings að hækka, en mega alls ekki lækka. —k. KLIPPT... Lagercrantz hœttir ritstjórn Olof Lagercrantz lét um siðustu áramót af störfum aðal- ritstjóra menningarmála á sænska blaðinu Dagens Nyheter eftir 16 ár, enda kominn á sænskan eftirlaunaaldur. Alls hefur hann starfað á blaðinu i 25 ár og mun áfram skrifa greinar reglulega i það. Skáldið, rithöfundurinn og rit- stjórinn Lagercrantz er mörg- um islendingum að góðu kunn- ur. Hann væri hægt að sæma nafnbótinni fslandsvinur eins og svo margan annan. Hann hefur eldlegan áhuga á islenskum máiefnum, góða þekkingu á islenskum bókmenntum, og er góðkunningi margra mætra manna hér á landi. Og hann hef- ur glætt skilning svia á islensku þjóðlifi, m.a. með greinaflokki fyrir nokkrum árum, þar sem hann bar saman „minnstu” og stærstu þjóð i heimi, islendinga og kinverja, og sambúð þeirra við löndin er þau byggja. Á ritstjórnarárum Lager- crantz hefur Dagens Nyheter tekið miklum stakkaskiptum. Bonniers-ættin ræður þeim marghöfða þursi, Bonniers- auðhringnum, sem gefur DN út. Blaðið studdi Frjálslynda flokk inn, Folkpartiet, en á menn- ingarsiðunum og á erlendum fréttasiðum fór á siðasta áratugi að gæta sivaxandi rót- tækni. Og nú hafa starfsmenn blaðsins svarað sivaxandi drottnun borgarapressunnar i Sviþjóð með ,,hallarbyltingu” og hafa nú samning upp á það að ráða einir stefnu blaðsins án af- skipta Bonniers-ættarinnar. Ætla má að Lagercrantz hafi Lagercrantz með pennann og blokkina. þarna átt einhvern hlut að mál- um. Lagercrantz er sérstæður og skemmtilegur blaðamaður, og greinar hans eru talandi dæmi um það að hægt er að stunda biaðamennsku um árabil án þess að festast i meðalmennsku og rútinu. Þær lýsa yfirgrips- mikilli þekkingu, skilningsleit og vilja til þess að skrifa auðskiljanlega og halda uppi samræðum við lesendur. Að þvi leyti hefur hann verið sam- starfsmönnum sinum bæði hvatning og fyrirmynd. Olof Lagercrantz lýkur ritstjórnarferli sinum með löngu viðtali við nafna sinn Palme, sem á það sameiginlegt með Þjóðviljanum að vera aðeins áskrifandi af einu sænsku dagblaði — semsagt Dagens Nyheter. Lifandi goðsögn andfasista La Pasionara, Dolores Ibarruri. Þetta nafn og viður- nefniðá undan hljómar ef til vill ókunnuglega i eyrum flestra okkar eftirstriðsbarna. En fyrir þá sem fylgdust með spænsku borgarastyrjöldinni 1936 til 1939 og baráttunni gegn fasismanum i kjölfar hennar er þetta hetju- nafn. Og lifandi goðsögn þeim sem tóku beinan þátt i barátt- unni, og einkum og sérilagi spænskum andófsmönnum. Hún var þjóðhetja i spönsku borgarastyrjöldinni og æ sfðan hefur hún verið fyrirmynd og forsvari allra andfasista. Dolores Ibarruri varð áttræð i byrjun siðasta mánaðar og var þess meðal annars minnst með 25 þúsund manna afmælishátið i tþróttahöllinni i Róm 14. des. sl. Þar talaði hún af eldmóði ásamt meðal annars S'antiago Carrillo, leiðtoga spænska kommúnista- flokksins. Hún hefur lifað höfuð- fjanda sinn Franco, og mann- fjöldinn kyrjaði allan fundinn: Dolores á Madrid — Dolores á Madrid. Ef til vill á þessi aldna þjóðhetja lýðræðissinna á Spáni eftir að lifa þann dag, að standa á ný sem sigurvegari i Madrid, heimt úr útlegð sem varað hefur frá þvi 1939. No Pasaran Dolores Ibarruri fæddist i baskaheruðum Spánar árið 1895. Fjölskylda hennar hafði framfæri sitt af námuvinnu og hún hlaut strang-kaþólskt uppeldi. Afskiptaleysi kirkjunn- ar af vesaldarkjörum verka- fólks og rússneska byltingin gerði hana að kommúnista. Hún var valin i miðstjórn kommúnistaflokksins árið 1930 og nokkrum árum siðar kusu námamenn i Asturia hana á þing. 1 borgarastyrjöldinni varð hún tákn hinnar andfasisku bar- áttu. Það var hún sem mótaði slagorðin frægu NO PASARAN (Þeir komast aldrei i gegn) og „Vale más morir de pie que vivir de rodillas’* (Það er betra að deyja uppréttur en að lifa á hnjánum). Hún varð brátt að þjóðsagna- persónu, sérstaklega sem frá- bær ræðumaður. A fimmta áratugnum var hún kjörin formaður spænska kommúnistaflokksins og æ siðan hefur hún haft mikil áhrif Dolores Ibarruri á stefnumótun og endurnýjun flokksins. Hún er nú búsett i Moskvu, þar sem hún hefur dvalist útlegðarárin. Pasaremos Tuttugu og fimm þúsund manns hylltu Dolores Ibarruri i Róm, og i hópi þeirra voru fimm þúsund spanverjar, sem gert höfðu sér ferð á afmælishá- tiðina. Og enn getur þessi aldna og hvithærða kona haft þúsundir á valdi sinu með snilld sinni i ræðustólnum. Eftir að hafa rætt um baráttuna fyrr og nú lauk hún ræðu sinni á orðunum: „HASTA PRONTO en MADRID” (Sjáumst brátt i Madrid). Og mannfjöldinn svaraðiikór: „Si, si, si, Dolores á Madrid!” Það hefur verið stemmning það. La Pasionaria er þekkt fyrir það að velja rétta augnablikið til þess að framkvæma rétta ákvörðun. Nú blandar hún sér i sókn lýðræðisaflanna á Spáni og vonandi verður þessi eiginleiki hennar gott veganesti fyrir spænska kommúnistaflokkinn. Á biaðamannafundi i Róm 13. desember áttu sér stað eftir- farandi orðaskipti milli hennar og fransks blaðamanns sem segja sina sögu um þessa konu: Franski sjónvarpsmaðurinn spyr: „Þér urðuð fræg um ailan heim fyrir slagorðin: NO PASARAN. Mynduð þér nú velja yður annað slagorð?” Og hún svaraði án þess að hika: „PASERAMOS” (Við komumst i gegn). Við þetta er engu að bæta, bara að vona að það verði sem fyrst. Biðin er orðin löng og ströng. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.