Þjóðviljinn - 11.01.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.01.1976, Blaðsíða 3
Sunnudagur 11. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Kolmunni, spærlingur; kúffiskur og meiri loðna veita helstu möguleika á veiöiaukningu á íslandsmiðum Hér hefur Björn raðaö upp nokkrum skreifium til aö sýna stæröar- muninn á kolmunna, spæriingi og þorski. Efst er ein skreiö af meðaiþorski, þá koma þrjár kolmunnaskreiöar, og neöst eru þrjár skreiöar af spærlingi. Sovétmenn veiöa um 50 þús. tonn á ári af djúpfiskinum langhala á Noröaustur-Atlantshafi og fiskifræöingar telja hugsanlegt aö fs- lendingar gætu veitt um 10 þús. tonn af þessum ófriöa fiski. Möguleg aflaaukning á Islandsmiöum: Loðna: 100 þús. tonn Kolmunni: 100 þús. tonn Spærlingur: 70 þús. tonn Kúffiskur: 5-10 þús. tonn Hugsanleg: Langhali: 10 þús. tonn Skýrslur Hafrannsókna- stofnunar og Rannsókna- ráðs ríkisins um ástand fiskistofna við landið og framtíðarhorfur í islensk- um sjávarútvegi hafa valdið mörgum manninum heilabrotum. Ekki aðeins eru þessar skýrslur góðar til að veifa framan í bret- ann heldur er í þeim — einkum þó þeirri síðar- nefndu — sett alvarlegt spurningamerki við allt heildarskipulag fiskveiða. Menn hafá lagt til að skipum yrði fækkað og Forsíðumynd Listamaður dagsins er Jens Kristleifsson. Hann er fæddur 1940. Stundaði nám i Mynd- lista- og handiðaskólanum og Listaháskólanum i Kaup- mannahöfn. Hann hefur haldið eina einkasýningu á grafik i Reykjavik og hefur tekið þátt i mörgum samsýningum út um „hvippinn og hvappinn”; t.d. var hann þátttakandi i fjórum sýningum erlendis 1975. Jens hefur þrisvar sinnum tekið þátt i alþjóðlegri grafiksýn- ingu, sem haldin er annað hvert ár i Ljublana i Júgó- slaviu. Myndin hér á siðunni er gerð 1968 og heitir hún Þorsti. fengið aðra upp á móti sér fyrir bragðið. Aðrir hafa bent á skipulagsleysi fisk- veiðanna þar sem auðveldara sýnist að fá sér togara en bíl. Þessar um- ræður standa enn og sér ekki fyrir endann á þeim. Eitt er það sem fIjótlega kemur upp i hugann í þess- um umræðum. Er ekki hægt að snúa sér að ein- hverjum öðrum sjávar- kvikindum en einmitt þorskinum? Um það spUrðum við Björn Dagbjartsson forstöðu- mann Rannsóknastof nun- ar f iskiðnaðarins. — I „Svörtu skýrslunni” kemur fram að ekki sé nægilega mikil vitneskja til um nokkrar fiskteg- undir en þar eru þó nefndir fjórir möguleikar á veiðiaukningu. Þeir eru veiðar á kolmunna, spærlingi og kúffiski og aukin nýting á loðnustofninum. Spærlingur, kolmunni Gallinn á kolmunna og spærlingi er hve smáir þeir eru. Kolmunninn er fullvax- inn 30-35 sm langur og um 200 gr að þyngd en spærlingurinn er mikiu minni, verður fullvaxinn 16—20 sm langur og aðeins 50 gr að þyngd. Hingað til hefur litið verið veitt af kolmunna en árið 1974 veiddust þó aðeins 4 þúsund tonn en það stafaði af lágu bræðsluverði. Spærlingurinn veiðist einkum fyrir suður- og suðvesturlandi en er sennilega viðar i minna magni. Fiskifræðingar telja að veiða megi um 70 þúsund tonn af spærlingi á ári. Kolmunninn heldur sig mest úti fyrir Aust- fjörðum en um stærð stofnsins er ekki mikið vitað. I skýrslunum er Rætt við Björn Dagbjartsson forstöðumann Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins talað um að etv. megi veiða 100 þúsund tonn á ári af honum. Kol- munninn er miðsjávarfiskur sem best yrði að veiða með flotvörpu en gallinn við hann er að hann þéttist ekki mikið i torfur. Menn geta þvi ekki vænst þess að hér verði um mikil uppgrip að ræða. Spærlingurinn er hins vegar botn- fiskur sem heldur sig á grunnu vatni og er best veiddur i smá- riðið botntroll. Menn hafa óttast að við veiðar á spærlingi fylgi mikið af seiðum annarra fiskteg- unda en á þvi hefur ekki mikið borið. Hingað til hafa einkum Þorlákshafnar-og Vestmanna- eyjabátar fengist við spærlings- veiðar. — Hvernig má nýta kolmunna og spærling? Fer aflinn eingöngu i bræðslu? — Við gerðum tilraunir með vinnslu á þessum tegundum til manneldis i Þorlákshöfn nú i haust og snerust þær einkum um að herða i skreið. Þessir fiskar eru báðir af þorskfiskastofni og bragðið er ekki ósvipað og af þorski. Aðalspærlingstilr. var gerð i desember og er ekki enn fullafgreidd en það komu engin veruleg vandkvæði i ljós hvað vinnsluna snertir. Við vitum hins vegar ekki um kostnaðarhliðina, hvort það borgar sig að veiða þessa smáfiska og isa um borð. Okkur hefur dottið i hug að það mætti nýta þá eins og loðnuna, þe. að aflinn væri tekinn til vinnslu en það sem ekki nýttist færi i bræðslu. — Hvernig er með verðið? — Menn geta ekki búist við sama verði fyrir skreiðina og þvi sem fæst fyrir þorskskreið. Verð á spærlingsmjöli yrði sennilega sambærilegt við loðnumjöl en það fengist minna lýsi úr spærlingn- um en loðnunni þar sem hann safnar aðeins fitu i lifrina. Erlendar tilraunir — Hafa útlendingar ekkert átt við spærlings- og kolmunna- veiðar? — Jú, danir og norðmenn veiða hundruð þúsunda tonna af spærlingi á hverju ári og setja hann i bræðslu. Þeir siðarnefndu ásamt bretum hafa einnig gert al- varlegar tilraunir með vinnslu kolmunna til manneldis. Norð- vestur af Bretlandi er hann 5-10 þúsund tonn telja fiski- fræðingar liklegt aflamagn af kúffiski ef veiðar væru hafnar á honum og markaöir finnast. veiðanlegur i miklu magni þegar hann hrygnir á vorin. 1 Fishing News International frá þvi i júni sl. segir frá þvi að togarar hafi veitt 460 tonn af kolmunna i til- raunaskyni. Þar segir einnig af flökin af honum séu hæfilega stór i þjóðarrétt breta „fish 'n chips” en ekki er greint frá neinum niðurstöðum tilraunanna. Norðmenn veiddu á sömu miðum upp undir 10. þús. tonn af kolmunna i april og mai. Þessi afli fékkst á 3 nótabáta á innan við 8 vikum og þess voru dæmi að dagsaflinn færi upp i 200 tonn. Meirihlutinn fór i bræðslu en eitt frystihús fékk nokkurt magn til tilraunavinnslu. Þar var einkum reynt að búa til svonefndan marning úr fiskholdinu. Úr þessu Framhald á 22. siðu. r ORKAR LANDSFRÆGA ÚTSALA HEFST mánudagínn 12.janúar Terelyne buxur frá kr. 2.200,— islenzk alullarteppi kr. 1.950-, 1,50 x 2 m. Geysilegt úrval af skyrtum frá kr. 1.490-. Herrajakkaföt frá kr. 8.900 — einnig stakir jakkar frá kr. 3.000-. Bolir i úrvali frá kr. 750- ásamt fjölbreyttu úrvali af peysum á laugavegi 89-37 ýmsum verðum. Stórkostleg útsala á hafnarstræti 17 hljómplötum — allar aðrar nyjar 13008 12861 13303 hljómplötur með 10% afslætti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.