Þjóðviljinn - 15.01.1976, Qupperneq 1
UÚÐVIUINN
Fimmtudagur 15. janúar!976—41. árg. —11. tbl.
Aukið ofbeldi á Spáni
MADRID 14/1 —
Svo er að sjá
að spænska stjórnin ætli nú að
taka upp meiri hörku til að
binda enda á verkföllin, sem
lamað hafa mikinn hluta iðnað-
arins og opinberrar þjónustu i
landinu siðustu tvær vikurnar.
Póstmenn hafa verið settir und-
irheraga,ennokkurhluti þeirra
hóf verkfall i gær. Þúsundir
manna tóku þátt i mótmæla-
fundum i Madrid i dag, en lög-
regla réðist á fundina og dreifði
þeim. 1 Berriz i Baskalandi var
maður nokkur numinn á brott af
liðsmönnum úr ETA, þjóðfrels-
ishreyfingu baska.
við breta
Á fundum utanrikismálanefndar alþingis i gær
var rætt um væntanleg stjórnmálaslit við breta.
Samkvæmt þvi sem Þjóðviljinn hefur fregnað varð
það einróma niðurstaða i utanríkismálanefnd, að
leggja til við rikisstjórnina, að stjórnmálasambandi
við breta yrði slitið, vegna framkomu herskipa
þeirra innan islenskrar landhelgi.
í utanrikismálanefnd mun jafnframt hafa orðið
um það samkomulag, að áður en til stjórnmálaslita
komi, kanni þrir dómkvaddir menn niðurstöður sjó-
dóms á Seyðisfirði vegna siðustu ásiglingar á Þór
og láti i ljós álit sitt á þeim niðurstöðum. Staðfesti
hinir þrir dómkvöddu menn, sem gert er ráð fyrir
að ljúki störfum sinum fyrir vikulok, niðurstöður
sjódóms, þá mælir utanrikismálanefnd alþingis
með þvi að stjórnmálasambandi verði slitið án
frekari tafar.
Rœtt við Ölaf Jóhann — Sjá baksiðu
Um Ólaf Jóhann — Sjá 9. siðu
Stj órnmálaslit
á næsta leiti
Utanríkismálanefnd alþingis mœlir
einróma með stjórnmálaslitum
KOPASKER
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Ólafur Jóhann Sigurðsson
I gær fór blaðamaður frá
Þjóðviljanum flugleiöis tii
Kópaskers og ræddi þar viö Ibúa
um afleiðingar jarðskjálftans
mikla I fyrradag, sem olli geysi-
legu tjóni á ibúðarhúsum,
bryggjunni og öðrum mann-
virkjum á staðnum. Friðrik
Jónsson, oddviti staðarins,
sagði það vera ljóst, að tjónið
yrði ekki reiknaö i tugum milj-
óna heldur hundruðum.
Myndin hér að ofan er tekin i
kaupfélaginu. Þar hrundi allt úr
hillum og meira en það, hillu-
samstæður urðu einnig undan
að láta i heilu lagi eins og sjá má
á þessari mynd.
Fréttir frá Kópaskeri eru á
bls. 3 og I opnu. —gsp
Ölafur Jóhann Sigurðs-
son hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1976
fyrir Ijóðasöfn sín Að
Laufferjum og Að brunn-
um, sem út hafa komið í
sænskri þýðingu Inge
Knutsson undir heitinu Du
minns en brunn. Var
ákvörðunin um þetta tekin
á fundi dómnefndar bók-
menntaverðlauna Norður-
landaráðs í Reykjavík í
gær. Ólafur Jóhann er
fyrsti islendingurinn, sem
fær bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs.
1 greinargerð dómnefndarinnar
segir: ,,i ljóðrænni list og boð-
skap ólafs sameinast norræn befð
i Ijóðagerð vitund skáldsins um
hinn flókna vanda mannsins i nú-
timanum. Þessuni vanda lýsir
skáldið i ljóðum siimm sem trag-
iskri andstæðu náttúrunnar og
hins tæknivædda samfélags."
Verðlaunin, sem eru að upphæð
50.000 krónur danskar, verða af-
hent i Kaupmannahöfn á fundi
Norðurlandaráðs 29. febr. nk.
Auk ljóðabóka Ólafs Jóhanns
var lögð fyrir dómnefndina að
þessusinni af tslands hálfu skáid-
sagan Lifandi vatnið eftir Jakob-
inu Sigurðardóttur. sem einnig
fékk mjög góðan hljómgrunn hjá
dómnefndarmönnum, að sögn
Ólafs Jónssonar, sem sæti á i
dómnefndinni.
Auk verka islensku höfundanna
komu þessar bækur til dóms út-
hlutunarnefndarinnar nú: Haks-
ringariia, skáldsaga eftir sviann
Framhald á 10. siðu