Þjóðviljinn - 15.01.1976, Side 4

Þjóðviljinn - 15.01.1976, Side 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. janúar 1976. DJOÐVIUINN MÁL'GAGN SfiSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviijans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri; Ejnar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. MÁLFUNDAKHJBBUR ÁLYKTAR SAMKYÆMT PÖNTUN FRÁ LONDON Það hefur vakið mikla athygli á Islandi, að eftir ýtarlegar umræður i fastaráði At- lantshafsbandalagsins um herskipainnrás breta og siendurteknar tilraunir þeirra til að sigla niður islensk varðskip, — þá hefur Atlantshafsbandalagið alls engar athuga- semdir að gera við framferði bresku rikis- stjórnarinnar og breska NATO-flotans við ísland. Eina efnisatriðið i nýrri samþykkt fastaráðs NATO er, að hernaðarbanda- lagið ,,hafi áhyggjur” af deilu islendinga og breta, — og það fyrst og fremst sjálfs sins vegna! En slikum áhyggjum hefur breski for- sætisráðherrann, herra Wilson, sem stendur fyrir sjóhernaði við Islands- strendur, einnig lýst af sinni hálfu, og virðist þvi sannarlega ekki ganga hnifur- inn á milli bresku rikisstjórnarinnar og NATO-ráðsins i þessu máli. Þeir islendingar, sem hafa trúað þvi i alvöru, að þátttaka okkar i NATO og dvöl herliðs á þess vegum á Keflavikurflugvelli tryggði okkur vernd voldugra vina gegn utanaðkomandi árás, hafa að sjálfsögðu orðið fyrir mjög alvarlegum og lærdóms- rikum vonbrigðum. Það er ekki aðeins, að NATO komi sér undan valdbeitingu gegn bretum, heldur neita ráðamenn þess, að beita breta refsiaðgerðum af nokkru tagi, — og þeir ganga lengra, þeir neita að samþykkja af hálfu NATO vitur á breta, þeir neita að beina til breta vinsamlegum tilmælum um að draga innrásarflotann út úr islenskri landhelgi, þeir neita að fara þess i allri hógværð á leit, að bretar láti af tilraunum sinum til manndrápa hér með grófustu ásiglingum. Ekkert af þessu vill NATO gera fyrir okkur islendinga, svo sem ljóst er eftir fundinn i Brússel nú i vikunni, samkvæmt niðurstöðum hans. Frá þeim „vinafundi” fékkst ekki eitt einasta orð okkur til styrktar, hvað þá aðgerðir. Skýringin er auðvitað engin önnur en sú, að helstu ráðamenn NATO eru með bret- um en á móti islendingum, enda sam- þykktin, sem NATO sendi frá sér, eins og pöntuð frá London. Auðvitað vilja NATOherrarnir gjarnan að friður riki með bretum og islendingum. En hvaða friður? Þeir vilja gjarnan, að herskipin fari heim, en þeir vilja bara lika, að við látum breska togara i friði, að islenska ríkis- stjórnin taki sem sagt að sér það hlutverk bresku herskipanna, að sjá til þess, að ránsmennirnir fái að vera i friði við sina iðju, hvað sem öllum upplýsingum um ástand fiskistofna líður. Ráðamenn NATO vilja frið, en þeir hreyfa hvorki tungubrodd né litlafingur til að tjá það álit, að sá friður eigi að byggjast á óskoruðum yfirráðum islendinga einna yfir sinni fiskveiðiland- helgi, — enda eru þeir ekki þeirrar skoðunar. Þvert á móti er fyllsta ástæða til að ótt- ast, að tilraunir ráðamanna NATO beinist að þvi, að knýja islensku rikisstjórnina til að endurnýja það tilboð til breta um 65.000 tonna ársafla, sem dregið hefur verið til baka, — þetta svivirðilega tilboð, sem aldrei átti að leggjast fram Þjóðviljinn hvetur alla alþýðu landsins til að vera alveg sérstaklega á verði gegn þessari hættu frá NATO. Morgunblaðið segir, að ástæða þess að NATO reynist ófáanlegt til að láta frá sér fara eitt orð okkur til stuðnings, — hún sé sú, að bretar geti stöðvað alt slikt sam- kvæmt reglum bandalagsins. Það er alveg nýtt fyrir islendinga að heyra það, að það mikla NATO sé þá bara einhvers konar málfundaklúbbur, þar sem menn æfi sig i mælskulist, en alls enga afstöðu megi taka, nema allir séu al- veg sammála. Eða geta þeir Geir Hallgrimsson og Ólafur Jóhannesson þá máske beitt sinu ægivaldi innan NATO til að hindra að bandarikjamenn og bretar hreyfi legg eða lið, þótt þeir voðalegu rússar væru komnir vestur að Ermasundi? — Það eru afsakanir Morgunblaðsins fyrir hönd NATO, sem gefa tilefni til svo sérstæðrar spurningar. Eins og málum er nú komið, getur islenska rikisstjórnin með engu móti komist undan þvi, að slita stjórnmála- sambandi við breta nú þegar, til að sýna alvöruna af okkar hálfu. Allt annað væri. pólitiskt sjálfsmorð á íslandi. Sist af öllu geta orðsendingar frá málfundaklúbbnum NATO nokkru breytt um þá staðreynd. —k. KVEÐJA TIL KÓPASKERS 1 fyrradag gerðist það, að flestir ibúar litils þorps á Norðurlandi urðu að yfirgefa heimili sin vegna náttúruhamfara. Náttúröflin i iðrum jarðar eru óspör á að minna okkur islendinga á tilvist sina, og enginn veit, hvenær þeirri hrinu, sem hófst með gosinu hjá Leirhnjúk skömmu fyrir jól, linnir. Það er von okkar allra, að með jarð- skálftanum mikla á Kópaskeri i fyrradag, hafi hámarki verið náð, og ró taki nú að færast yfir jarðarmögnin. Tjónið á Kópaskeri, i Kelduhverfi og i Axarfirði, þar sem tvær bújarðir hafa einnig verið yfirgefnar, er orðið mikið, hús og mannvirki stórsködduð og sum eyðilögð. Allt bætanlegt tjón ber samfé- laginu i heild að taka á sig, þegar slikar náttúruhamfarir verða. Að þvi er Viðlaga- tryggingu íslands ætlað að stuðla. Þjóðviljinn óskar ibúum Kópaskers, og öðrum norður-þingeyingum, sem orðið hafa að yfirgefa heimili sin, þess, að þeir geti sem fyrst snúið heim úr útlegðinni og hafið sitt uppbyggingarstarf i friðsæld. k. KfSegjum aldrei neitt lum kjarnorkovopn" H— segir Rich, flotaforingi ó Keflavíkurflugvelli Fyrirsögnin úr Visi I gær Kjarnorkuvopn á íslandt Þjó’ðviljinn birti í gær þýdda grein eftir alþjóðlegu riti kjarn- eðlisfræðinga, þar sem fram kemur að kjarnorkuvopn eru á Islandi. Þessi grein hefur vakið mikla athygli en frétt byggð á henni var birt hér í blaðinu rétt fyrir jóiin. I greininni segir meðal ann- ars, að „taktisk” kjarnorku- vopn bandarikjamanna séu „i öllum evrópsku NATO-rikjun- um að frátöldum Noregi, Pan- mörku, I.uxemburg og Frakk- landi.” Þá segir i greininni: „Meira en helmingur kjarn- orkuvopna Bandarikjanna er staðsettur erlendis eða á höfum úti. Meðal rikja, þar sem bandarisk kjarnorkuvopn eru að sögn (reportedly) staðsett, eru Belgia, Sambandslýðveldið Þýskaland, Grikkland, Island, Italia, Lýðveldið Kórea, Hol- land, Filippseyjar, Portúgal, Spánn, Tyrkland og Bretland.” Vísir spyr Þessi grein i Þjóðviljanum hefur vakið mikla athygli og þvi eðlilegt að Visir i gær skyldi inna eftir þvi hjá hernum og i varnarmáladeild utanrikis- ráðuneytisins hvort hér á landi væru kjarnavopn. Flotaforinginn á Keflavikur- flugvelli, Rich að nafni, sagði i viðtalinu við Visi: „Við getum hvorki staðfest né neitað að kjarnavopn séu geymd cinhvers staðar.” Og Visir bætir við: „Það mun vera stefna bandarikjastjórnar, að gefa aldrei neitt upp um slik mál.” Semsagt ekkert að hafa hjá hernum. En hvað segir þá yfir- maður varriarmáladeildarinnar Páll Ásgeir Tryggvason: „Mér vitanlega hafa aldrei verið kjarnorkuvopn á Islandi og munu aldrei verða að ó- breyttri stefnu islenskra stjórn- valda. Það hefur aldrei verið farið fram á slikt og það þvi aldrei leyft. Ef geymd væru kjarnavopn á islandi myndi það ekki fara fram hjá neinum vegna þess að slikur útbúnaður leynir sér ekki.” Með kjarnorkuvopn í vasanum Svo mörg voru þau orð hins sérfróða Páls Ásgeirs. En þvi miður eru tilvitnuð ummæli hans byggð á hrapallegum mis- skilningi og væri synd að segja að það væri i allrafyrsta sinn sem slikt kæmi fram af hans halfu. I fyrsta lagi myndi Rich, flotaforingi sennilega aldrei segja Páli Ásgeiri frá því ef bandariski herinn hefði hér kjarnorkuvopn. Og i annan stað myndi skoðunarferð Páls As- geirs um svæðið lítinn árangur bera úr þvi að hann heldur að kjarnorkuvopn sé að minnsta kosti á stærð við miðlungsein- býlishús. Bandarikjamenn hafa nefnilega á liðnum árum fram- leitt kjarnorkuvopn smá i snið- um t.a m. 155 mm sprengikúlur fyrir stórskotalið eins og fram kemur i áðurnefndri grein i Þjóðviljanum i gær. Páll Ásgeir gæti þvi þess vegna gengið með alla vasa úttroðna af kjarnorku- vopnum næst þegar hann fer að hengja heiðursmerki Golf- klúbbs Ness á KGB-njósnara frá Sovétrikjunum. Rannsókn á málinu Ummæli flotaforingjans i Visi i gær staðfesta frétt og grein Þjóðviljans um að á Islandi geta veriðkjarnorkuvopn og ummæli Páls Ásgeirs Tryggvasonar staðfesta að hann hefur ekki hugmynd um hernaðarleg mál- efni og þvi allsóhæfur til þess að gegna þeirri stöðu sem honum hefur verið falin. Eina leiðin til þess að komast að þvi hvort hér eru kjarnorku- vopn — eins og raunar flest bendir til — er að islensk stjórn- arvöld láti fara fram rannsókn á þessu máli þegar i stað. 1 slikri rannsókn má hvorki treysta orðum Rich flotaforingja né Páls Asgeirs heldur aðeins og eingöngu staðreyndum málsins. Þegar Watergate málaferlin hófust i Bandarikjunum og rannsóknirnar samhliða þeim, var byggt á þvi efni sem birst hafði i þarlendum blöðum. Ein- hvern tima hefur verið sagt að Votergeit-mál gæti ekki komið upp á íslandi vegna þess að stjórnarvöld hér hunsa dagblöð- in. En hér sannast vonandi hið gagnstæða, þvi hér er á ferðinni mál sem snertir lif allrar þjóð- arinnar og það er i senn for- dæmanlegt og hættulegt ef stjórnarvöld láta undir höfuð leggjast að kanna málið til hlit- ar. —s. OG SKORIÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.