Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 24. febrúar 1976
vc/
%
Afram með
mjólkurbúðirnar
c
—- Ég vil eindregið mótmæla
þeirri hugmynd sem komið
hefur fram um að koma hér á
mjólkurpóstum, sem færu með
mjólkina i hvert hús. Við getum
bara rétt séð hvernig ástandið
hefði verið i vetur eins og
veðráttan og ófærðin hefur
verið. Ég var einu sinni
mjólkurpóstur i Reykjavik
meðan þetta fyrirkomulag tiðk-
aðist að láta menn hlaupa með
þetta glasaglundur i hvert hús,
og eftir að hafa unnið margs-
konar vinnu til sjós og lands
held ég að það starf hafi verið
með þvi erfiðasta sem ég hef
gert.
Hitt er svo annað mál, að
dreifingin á mjólkinni hér i
Reykjavik er orðin svo viðamik-
il, að ég held að það sé orðið
timabært fyrir fólk að athuga
það hverjir eiga að borga brús-
ann. Auðvitað er það al-
menningur sem borgar. Þegar
þannig er komið, að farið er að
dreifa mjólkinni i hverja
verslunarskonsu, eins og til
stendur, hver halda menn að
dreifingarkostnaðurinn verði?
Þess vegna tel ég að þetta
breytta fyrirkomulag komi ekki
til mála. Við eigum að berjast
fyrir þvi, að mjólkursamsalan
haldi áfram með sinar mjólkur-
búðir, menn eru ekkert of góðir
til að tölta nokkrum metrum
lengra eftir mjólkinni, ef það
verður til þess að halda
dreifingarkostnaði niðri.
— Árni Jóhannsson
„Mildi að þar
varð ekki œgileg
sprenging”
Þannig var orðuð fyrirsögn
fréttar i Dagblaðinu fyrir
skömmu, þegar eldurkom upp i
hreinsistöð við Aburðarverk-
smiðjuna i Gufunesi. ,,Það hefði
auðvitað getað farið verr, en
sem betur fer var stöðin ekki i
gangi nema að hlutá,” var haft
eftir Runólfi Þórðarsyni, fram-
kvæmdastjóra Áburðarverk-
smiðjunnar i Gufunesi i sömu
frétt.
í annarri Dagblaðsfrétt er
haft eftir Rúnari Bjarnasyni,
slökkviliðsstjóra, að áburðar-
verksmiðjan sé einhver hættu-
legasti staðurinn á svæði
slökkviliðsins, þvi sprengi- og
eldhætta er i hverri deild og ein-
ingu verksmiðjunnar.
Þessi ummæli sýna hve þessi
staður er hættulegur, og i of-
viðrinu, sem geisaði aðfarar-
nótt 14. og 15. febr. s.l. gekk yfir
áburðarverksmiðjuna þvilikt
magn af bréfarusli bg dóti af
öskuhaugum Reykjavikurborg-
ar, að þvilikt og annað eins hef-
ur aldrei sést inni á verksmiðju
svæðinu. Allar girðingar kring-
um öskuhaugana, sem snúa að
verksmiðjunni, voru svo
hlaðnar bréfarusli að hestar
Þorgeirs glimukappa i Gufunesi
gátu haft þá fyrir skjólgarða i
rokinu. Það þarf ekki að orð-
lengja það, hvað gerst hefði, ef
eldur hefði brotist út i þessu
bréfarusli, sem þarna fauk inn
um allt. Þú hefur verið varaður
við þessari hættu frá öskuhaug-
unum, áður, Rúnar slökkviliðs-
stjóri, en þú hefur ekki sinnt
þeirra aðvörun, eins og verks-
ummerkin þessar óveðursnætur
sýndu best. Það þykir manni
ansi hart, þar eð þú varst-sama
sem slökkviliðsstjóri á vegum
verksmiðjunnar i tiu ár áður en
þú tókst við þinu núverandi em-
bætti. Þessvegna gerir maður
sér meiri vonir varðandi þetta
um þig, og vonar að þú gerir
ráðstafanir til að fyrirbyggja
þennan voða áður en úr verður
stórslys. — Kunnugur.
Hvítalygi borgarstjórnarmeirihlutans enn
Læknamál rædd
í borgarstjórn
t fréttatima sjónvarpsins á
iaugardagskvöid var sagt frá þvl,
að borgarstjórn hefði samþykkt
tiilögu frá sjálfstæðismönnum um
aukna iæknaþjónustu I Rvfk.
Hvergi var minnst á, að viðbótar-
tiilögur frá tveimur borgarfuli-
trúum minnihlutaflokkanna voru
samþykktar og allir borgarfull-
trúar greiddu tillögunni svo
breyttri atkvæði sitt! Skutu smá-
þjónar ihaldsins á fréttastofu
sjónvarps þar með Morgunblað-
inu ref fyrir rass a.m.k. I þessu
máli, þvi það skýrði frá báðum
þessum breytingatiilögum án
sýnilegra tilrauna til falsana.
Tillagan ihaldsins
Tillaga borgarfulltrúa ihaldsins
leit þannig út þegar hún var fram
lögð, að tilmælum var beint til
Læknafél. Rvikur (LR) og
Sjúkrasamlags Rvikur (SR) um
að þær úrbætur yrðu gerðar hið
fyrsta á varðlæknaþjónustu i
borginni svo og neyðarvakt, að
læknum á kvöldvakt, næturvakt
og helgarvakt verði fjölgað i tvo,
og að helst hjúkrunarkona eða
læknir annist simavörslu varð- og
Dólgsleg
misnotkun
meirihlutans á
sjónvarpinu og
dœmafá þjónkun
starfsmanna
fréttastofu
þess við hann
neyðarþjónustunnar allan sólar-
hringinn.
Umræður
Greinargerð fylgdi þessari til-
lögu ihaldsins og studdist formæl-
andi hennar, úifar Þórðarson
(D), við hana er hann fylgdi til-
lögunni úr hlaði, en i henni var
leitast við að sanna nauðsyn
þessa, sem enginn hefur efast um
i langan tima, en varðlæknaþjón-
ustan i borginni hefur verið ó-
breytt i 20 ár.
Alfreð Þorsteinsson (B) sagði
sjálfstæðismenn vera að beina til-
mælum til sjálfra sin og tilefnið
væri greinilega sjónvarpsviðtal
við konu nokkra hér i borginni
(það birtist fyrir skömmu og var
þar sagt frá þvi, að hún gat ekki
með nokkru móti komið manni
sinum inn á sjúkrahús utan
venjulegs vinnudags.fyrr en hún
sagði hver hann væri!) Alfrfeð
flutti viðbótartillögu við aðaltil-
löguna og leit hún þannig út eftir
að hann hafði breytt henni á fund-
inum: ...i þessu sambandi verði
kannaðir möguleikar á því, að
annar þeirra (þ.e.a.s. vakthaf-
andi nætur- eða helgidagalæknir)
hafi aðsetur I Breiðholtshverfi.’”
Adda Bára Sigfúsdóttir (G)
sagði, að hér hefðu borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins tekið á
hluta af stóru máli, þvi lækna-
þjónustan i Reykjavik væri i mol-
um. Taldi Adda Iiklegt að borgar-
stjórn mundi finnast nauðsynlegt
að gera töluvert viðtækari tillög-
ur til SR & LR heldur en fyrir
fundinum lægju, en það kynni að
Sigurjón Pétursson: Leiörétting
hans við lygafrétt Ihaldsins var
borin undir borgarstjóra, þó svo
smáþjónum ihaldsins á frétta-
stofu sjónvarpsins hafi ekki þótt
ástæða til þess að bera sannleiks-
gildi upphafiegu fréttarinnar
undir fulltrúa minnihlutafiokk-
anna.
vera erfitt á þessu stigi, þar sem
heilbrigðismálanefnd ætlaði sér
aðkoma saman á morgun (föstu-
dag) til þess að ræða málið, og
eftir það væri fyrst hægt að gera
markvissar tillögur.
Síðan lagði Adda til að við upp-
haflegu tillöguna bættist:
„...jafnframt verði hið fyrsta haf-
in endurskoðun á samningi SR &
LR um heimilislæknaþjónustu
með það I huga, að endurbæta þá
þjónustu.”
Adda ræddi þessi mál nokkuð
meir og nefndi þá m.a. að þar
sem sjúkrahúskostnaður er hæst-
ur 18 þúsund krónur á ibúa, þar
muni heimilislæknaþjónusta
jafnframt vera lökust. Einnig
kom hún inn á tiivisunarfarganið,
Adda Bára Sigfúsdóttir: Hún kom
með breytingartillögu, sem var
samþykkt.
sem hún sagði að yrði að lagfæra
frá þvi sem nú er, en það yrði best
gert með þvi að koma upp sem
flestum heilsugæslustöðvum.
Björgvin Guðmundsson(A & F)
sagðist vera hissa á að sjá tillögu
þessa nú þar sem heilbrigðis-
málaráð ætti að fjalla um málið
daginn eftir, og það væri undarleg
málsmeðferð að rjúka upp til
handa og fóta i máli þessu þegar
formaður heilbrigðisnefndar væri
ekki á landinu.
Glfar Þórðarson (D) sagðist
gera ráð fyrir að formaður heil-
brigðismálanefndar borgarinnar,
borgarfulltrúi Páll Gislason (D),
væri tillögunni samþykkur, sem
þýðir það, að hann hefur ekki um
hana vitað!
Einnig tók til máls Margrét
Einarsdóttir og aftur Alfreð
Þorsteinsson. Siðan var upphaf-
Framhald á bls. 14.
Makaskipti
20. febr. var undirritaður
samningur milli Reykjavikur og
Seltjarnarneskaupstaðar um
breyting á lögsögumörkum o.fl.
Samninginn undirrituðu Sigur-
geir Sigurðsson, bæjarstjóri, og
Birgir Isl. Gunnarsson, borgar-
stjóri. Með þeim eru á myndinni
bæjarfulltrúarnir Njáll Þor-
steinsson og Karl B. Guömunds-
son, borgarfuiltrúarnir Magnús
L. Sveinsson, ólafur B. Thors,
Albert Guðmundsson og Kristján
Benediktsson og Jón G. Tómas-
son, skrifstofustjóri.
Það, sem um varsamið, var, að
Reykjavikurborg láti 40 þúsund
fermetra af hendi til Seltjarnar-
neskaupstaðar af landi, sem legið
hefur næst fyrri mörkum byggð-
anna, en þess i stað fái hún fulla
lögsögu yfir Viðey, Engey og
Akurey.
—úþ
„Bjartar vonir vakna”
Fiskblokkin
á uppleið
Hefur hœkkað um 7 sent
pundið síðan sl. sumar
Enn hefur oröið hækkun á fisk-
blokkinni i Bandarikjamárkaði.
Sl. sumar var verðið 58 sent fyrir
hvert pund af henni þar vestra,
siðan hækkaði verðiö i haust er
leið uppi 65 sent pundið og enn
hefur orðið hækkun, og er pundiö
nú komið uppi 67 sent. Þessar
upplýsingar eru hafðar eftir
Eyjólfi isfeld hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
Greinilegt er að fiskmarkaður-
inn i Bandarikjunum hefur
styrkst mjög verulega undan-
farið, og má allt eins búast við
meiri hækkunum á næstunni.
Enginn isl. fiskur hefur enn verið
seldur á þessu nýja verði, en
vertiðaraflinn i vetur verður þvi
væntanlega seldur á þessu háa
verði.
Þar með ætti sá barlómur sem
notaður hefur verið til að afsaka
kjararýrnunina hjá almenningi,
vegna lækkaðs afurðaverðs er-
lendis að hljóðna úr þessu. I það
minnsta hlýtur það að vera
þokkaleg búbót þegar eitt kg. af
fiski á USA-markaði hækkar um
nær 24 kr. á hálfu ári.
—S.dór