Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 5

Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 5
Þriöjudagur 24. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 5 A þessu ári, þegar Bandarikin veröa 200 ára sem sjálfstætt riki, fyrirfinna þau sig i and- iegri kreppu. Efnahagslega séö hefur ástand þeirra oft veriö björgulegra, þannig er nú at- vinnuleysi þar meira en nokkru sinni siöan fyrir sföari heims- styrjöld, en á þvi sviöi sjást þó viss batamerki. Hinsvegar bendir margt til þess að Banda- rikin séu komin yfir háteig ferils sins sem stórveidi. Orku- kreppan, Watergate, hrakfar- irnar i Indókina, herinn kjark- iaus eftir þær og sósaður i fikni- og eiturlyfjum og nú siöast skakkaföllin I Angólu — allt þetta hefur fært bæði banda- rikjamönnum og öörum heim sanninn um að Bandarikin eru ekki lengur heimsveldi i þeim bandarisku flokkanna fyrir- finnst bæði rakið ihald eða afturhald og tiltölulega frjáls- lynd og jafnvel róttæk öfl. (Um sósialisk öfl er ekki rétt að tala, þvi að áhrif macchartyæðisins eru ennþá það mikil i Banda- rikjunum — og ýtt undir þau af stjórnarvöldum og fleirum — að enginn stjórnmálamaður þorir að orða sig við sósialisma.) Flokkar demókrata og repú- blikana eru nánast einskonar fyrirtækjakeðjur atvinnu- Hver verður Reagan —hefur fullt svo mikla möguleika og Ford. Wallace — verður varla forseta- efni demókrata sjálfur, en gæti ráðiö miklu um hver yrði þaö. Carter, Wallace, Jackson 1 hinum demókratahópnum eru þeir helstir Jimmy Carter, bóndi og fyrrverandi rfkisstjóri i Georgiu, hinn kunni kynþátta hyggjumaður George Wallace og Henry Jackson öldunga- deildarþingmaður. Tveir þeir fyrstnefndu eru úr Suður- rikjunum, sem voru lengi sterkasta vigi demókrata, meðan flokkurinn i heild var ihaldssamari en hann er nú. Wallace hefur nú lægra en áður um aðskilnaðarstefnu sina gagnvart blökkumönnum, en ekki fer leynt að hann er sem áður ihaldssamur i þeim efnum og íélags- og mannréttinda- málum yfirleitt. Hinsvegar leggur hann kapp á að auglýsa sig sem sérstakan baráttumann hvitra manna af efnaminni stéttunum. í áróðri hans gætir mikið andúðar á mennt- amönnum, sem hann kallar „öfgafulla frjálshyggjumenn" 39. forseti Bandaríkjanna? skilningi sem þau voru fyrstu tvo áratugina eftir heimsstyrj- öldina siöari, þegar segja mátti meö nokkrum sanni aö hnött- nrinn hverföist í hendi húsbænd- anna i Hvita húsinu. Heima fyrir hefur þetta komið fram i einskonar allsherjar þunglyndiskasti þjóðarinnar. Bandariska þjóðin virðist að mestu hafa glatað þessari barnalegu bjartsýni á kerfið sitt, hagvöxt þess, neyslu, vel- ferð og annað sem þvi fylgdi — The American Way of Life — sem hún hefur i allmiklum mæli verið haldin fram að þessu. Þetta nýja vantraust á kerfið kom áþreifanlegast fram i sið- ustu þingkosningum, þegar rúmlega 60% kjósenda sáu ekki ástæðu til að neyta atkvæðis- réttar sins. Það kemur einnig fram i einskonar upplausn i stjórnmálaflokkunum. „Laumusósialistinn" Reagan Bandarisku stjórnmáiaflokk- arnir hafa raunar alltaf verið nokkuð skrýtin og órökræn fyrirbæri á evrópskan mæli- kvarða. Hugmyndafræði þeirra er vægast sagt þokukennd, að svo miklu leyti sem hægt er yfirhöfuð að tala um nokkuð svoleiðis viðvikjandi þessum flokkum. Innan beggja stóru stjórnmálanna, sem lifa og hrærast i nánum tengslum við aðra valdaaðila þjóðfélgsins, rikisstjórn, auðhringa, herinn, CIA, jafnvel verkalýðssamtök. Engu að siður hafa málin siðustu áratugina þróast i þá átt að frjálslyndari og róttækari stjórnmálamenn hafa safnast i demókrataflokkinn, en repú- blikanaflokkurinn að sama skapi meir og meir fengið á sig svip hreinræktaðs ihaldsflokks. t samræmi við það er ekki nema eðlilegt að þeir tveir repúblik- anar, sem stefna að þvi að verða i kjöri fyrir flokkinn i forseta- kosningunum á þessu ári, Gerald forseti Ford og Ronald Reagan fyrrverandi leikari i kúrekamyndum, leggja báðir áherslu á að þeir séu miklir ihaldsmenn. Ford viröist einkum óttast að fylgismenn flokksins taki Reagan fram yfir hann einmitt vegna þess, að þeir telji Reagan meira ihald. Tii þess benda heiftarleg ummæli forsetans um þennan keppinaut sinn nýverið, er hann kallaði „lýðskurmara og laumusósial- ista.” Það leynir sér ekki hverra eyrum þau orð eru ætluð. 9 demókratar t repúblikanaflokknum er ihaldið svo magnað að þeir framámenn flokksins, sem orðaðir eru við hófsemi og frjálslyndi i stjórnmálum, menn eins og Nelson Rockefeller varaforseti og miljarðamær- ingur og Charles Mathias, öldungadeildarþingmaður frá Marylanú, eru ekki taldir hafa minnstu möguleika á að komast i framboð nema þvi aðeins að svo undarlega vildi til að annar- hvor þeirra Fords eða Reagans drægi sig i hlé. 1 demókrataflokknum eru hin ýmsu pólitisku öfl miklu jafn- sterkari, með þeim afleiðingum að þar er sundrungin og upp- lausnin mikiu meiri. Hvorki meira né minna en niu demó- kratar hafa þegar lýst þvi yfir að þeir vilji verða þritugasti og niundi forseti Bandarikjanna. Einhverjir munu sjálfsagt fljót- lega heltast úr lestinni, en aðrir eru liklegir til að bætast við. Frjálslyndir demókratar Segja má að frambjóðendur demókrata skiptist nokkurn- veginn i tvo hópa: annarsvegar menn með tiltölulega frjáls- lyndisleg og róttæk viðhorf og hinsvegar menn, sem blanda saman ihaldssemi og einskonar lýðhyggju i málflutningi sinum. Úr fyrrnefnda hópnum má nefna þá Morris Udall, bróður Stewarts Udall, sem þjónaði sem innanrikisráðherra undir Kennedy og Johnson. Hann er sagður hafa talsverða persónu- töfra og það gæti haft viss áhrif á timum, þegar daufir og von- sviknir kjósendur kynnu helst að heillast af „nýjum and- litum.” Annar er Birch Bayh öldungadeildarþingmaður, af sumum kallaður „John Kennedy Miðvestursins”. Kunnáttumenn um hugarástand bandariskra kjósenda telja hann fylgismikinn meðal kvenna, negra, frjálslynds fólks af yngri kynslóðunum og verka- manna i verkalýðsfélögum. Hubert Humphrey, vara- forseti Johnsons, er talinn geta komið til greina sem frambjóð- andi af hálfu demókrata ef ekki náist samkomulag i flokknum um nokkurn þeirra, sem nú eru taldir líklegastir. Annar demó- krati, sem enn hefur ekki gefið kost á sér, en er talinn hafa vax- andi möguleika er Frank Church, öldungadeildarþing- maður frá Idaho. Hann hefur öðlast þjóðar- og heimsfrægð sem forkólfur þingnefnda, sem rannsakað hafa myrkraverk bandariskra leyniþjónustu- stofnana og mútugreiðslur bandariskra auðhringa erlendis. og fleiri álika nöfnum. Óliklegt er taliö að Wallace hljóti út- nefningu sem frambjóðandi demókrata, en hann gæti samt sem áður reynst nógu fylgis- mikill til að ráða miklu um hver yrði fyrir valinu. Wallace er lamaður fyrir neðan mitti eftir banatilræði, en ekki virðist neitt hafa dregið af honum fyrir það. Henry Jackson kemur fram sem frjálslyndur i innanlands- málum en harðlinumaður i utanrikismálum. Hann krefst harðari afstöðu gagnvart Sovét- rikunum og gagnrýnir ákaft sáttastefnu Kissingers. Jackson hefur haft sig meira i frammi i kapphlaupinu um framboðið en nokkur annar demókrati, en möguleikar hans eru taldir fara heldur minnk- andi, meðal annars vegna þess að hann þykir heldur litlaus persónulega og þvi slæmkjós- endabeita. Ennþá er allt i þoku um það hvort einhver þessara manna, eða einhver annar, verður kjörinn forseti Bandarikjanna i haust. Eða eins og Brian Bain. fréttamaður Reuters i Washing- ton, sagði: Það eina, sem ennþá er öruggt varðandi bandarisku forsetakosningarnar á þessu ári er að einhver vinnur þær. -dþ. Grískir kommúnistar eflast í Plaka, gamla hverfinu við rætur hinnar fornheigu hæöar Akrópólis í Aþcnuborg, er klúbb- ur sem nefndur er Limeri (At- hvarf). Þar hanga uppi myndir af Marx, Lenúi og Stalin, og undir þeim sitja hópar ungra og einarð- legra manna og syngja baráttu- söngva skæruliöanna, sem börð- ust gegn þjóðverjum i heims- styrjöldinni siöari og siöan gegn rikisstjórn þeirri, er Vesturveldin studdu til vaida I Iandinu aö strfö- inu loknu. Eins og vföast annars- staðar i þeim löndum Evrópu, sem þjóöverjar og bandamenn þcirra hernámu, voru kommún istar h'fiö og sálin i baráttu and- spyrnuhreyfingarinnar i Grikk- landi gegn hernámsveldunum. Þegar hernámsiiö þjóöverja flýöi landið i striðslok, komst meiri- hluti þess á vald skæruliöahreyf- ingarinnar undir stjórn kommún- ista, en hernaöarihlutun breta að skipun Churchilis hindraöi að þeir yrðu leiöandi afliö I stjórn lands- in, cins og cðlilegast heföi vcriö með.tilliti til þcss, scm á undan var gengið. Frá Sovétrikjunum og öörum Austur-Evrópurikjum fcngu þeir enga tcljandi hjáip, enda höfðu þeir Stalin og Chur- Loftmynd af Jaros fangabúðunum. chill samiö svo um aö Grikkland skyldi heyra til áhrifasvæöi Vesturvcldanna og í þvi tilfelli sem ööru sýndi Stalin aö hann virti til hins ýtrasta samkomu- lagið við Churchill og Roosevelt um skiptingu Evrópu i áhrifa- svæði milli stórveldanna. Um siðir voru hinir kommúnisku skæruiiðar þvi gersigraöir af her stjórnarinnar í Aþenuborg, sem vopnaðir voru af Bandarikjunum og stjórnað af bandariskum hers- höfðingjum. Eftir ósigur skæruliðanna 1949 flýðu leiðtogar þeirra til Aust- ur-Evrópu og i Grikklandi var flokkurinn bannaður óslitið þang- að til 1974, hvort sem svo var látið heita að i landinu rikti „lýðræði” eða grimulaust einræði. Eftir að herforingjastjórninni var steypt þótti ekki stætt á öðru en að leyfa kommúnistum að starfa opinber- lega á ný, enda hafði þeim aukist fylgi og samúð á valdaárum her- foringjanna. Og nú eru þeir at- hafnasamir i grisku þjóðlifi og þeirra gætir þar mikið. Árangur i kosningum Griskir kommúnistar eru þó að tiltölu við fólksf jölda hvergi nærri eins fylgismiklir og þeir itölsku eða eins vel skipulagðir og Kommúnistaflokkur Portúgals. Ógnir borgarastriðsins, þar sem grið voru gefin á hvoruga hlið, eru lika enn það skammt undan að þjóðin er mjög klofin i afstööu sinni til þeirra. Engu að siður er ljóst.aðsögn fréttamanna eins og Steven V. Roberts hjá New York Times, að fleiri og fleiri snúast til fylgis við kommúnista eða gerast fúsir til samvinnu viö þá á ýms- um sviðum þjóðlifsins. Griskir kommúnistar tþeir skiptast i nokkra flokka) buðu fram i sið- ustu þingkosningum i kosninga- bandalagi, sem nefndist Samfylk- ingarflokkurinn. Bandalag þetta fékk nærri tiu af hundraði greiddra atkvæða, þrátt fyrir harða keppni við annan vinstri- flokk undir forustu Andreasar Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.