Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 24. febrúar 1976
[p' o □ r /°' A C. >: í(þF@ööö[p , r.
FH varð íslandsmeistari — sigraði Fram 20:17
MARKVARSLA BIRGIS
FÆRÐI FH TITILINN
Hann var sá maðurinn sem
framarar réðu ekki við
— Það var markvarslan sem réð úrslitum i þess-
um leik, á því leikur enginn vafi, sagði Reynir
Ólafsson þjálfari FH eftir að FH hafði sigrað Fram
20:17 i siðasta leik íslandsmótsins og þar með
tryggt sér íslandsmeistaratitilinn i ár. Og vissulega
eru þetta orð að sönnu. Svona markvörslu, eins og
Birgir Finnbogason sýndi i leiknum, sjáum við ekki
oft hér á landi, og það er ekki að kasta rýrð á neinn
þótt fullyrt sé að hann færði félagi sínu titilinn með
þessari stórgóðu markvörslu; hann var sá maður-
inn sem framarar réðu aldrei við. Vissulega hafði
Birgir góða vörn fyrir framan sig, FH-vörnin hefur
tekið stórstigum framförum, enda með þann fræga
varnarþjálfara Reyni ólafsson, þann er skóp hina
frægu „mulningsvél” Vals á sinum tíma. í sókninni
stóðu þeir Geir, Viðar og Guðmundur Sveinsson
fyrir sinu. Já, FH átti stórleik, sennilega sinn besta
leik i vetur gegn Fram, einmitt þegar mest reið á,
og slikum leik á örlagastundu nær ekkert lið nema
það sem skipað er jafn reyndum mönnum sem FH.
Menn hafa verið að segja að
undanförnu að FH eigi ekki titil-
inn skilið, önnur lið séu betri.
Vissulega er það rétt að Vals-
menn voru með besta liðið i fyrri
umferð mótsins og duttu svo hægt
og rólega niður uns þeir misstu af
titlinum með tapi á móti Gróttu.
FH fór hægt af stað, en fylgdi Val
eins og skugginn, og á sama tima
og Vals-liðið var að fara niður á
við seig FH á og fór fram með
hverjum leik. Um það þarf vart
að deila i dag að FH er með sterk-
asta liðið. Hitt er svo annað mál,
og um það er hægt að vera sam-
mála, að það segir nokkra sögu
um stöðu handknattleiksins á
Islandi i dag, að lið ekki sterkara
en FH er, skuli vera toppliðið
okkar.
Frá leiknum við Fram er það
að segja,aðFH komsti 5:libyrj-
un. Meðan það var að ná þessu
forskoti varði Birgir Finnbogason
svo stórkostlega, að með ólikind-
um er. Og einmitt þetta mikla
forskot i byrjun var það bil sem
Fram náði aldrei að brúa. 1
leikhléi var munurinn þrjú mörk
9:6 FH i vil. Minnstur varð hann
eitt mark, 14:13, og fékk Fram þá
mögul. á að jafna, en tókst ekki,
og FH náði aftur að breikka bilið,
komst i 16:13, og eftir það hélst
þetta 2ja til 3ja marka munur uns
flautan gall til merkis um leiks-
lok, að staðan var 20:17 og sigur
FH i mótinu þar með i höfn. Valur
hlýlur silfrið og Fram bronsið.
Birgir Finnbogason var maður
dagsins hjá FH; já, hann var besti
maður vallarins, og ég er ekki
viss um að hann hafi nokkru sinni
varið betur en að þessu sinni.
Geir Hallsteinsson, Viðar
Friðrik varð
marka-
kóngur
Friðrik Friðriksson, Þróttl
varð markakóngur 1. deildar i
liandknattleik i ár. Ilann
skoraöi S6 niörk. Metið á
Hörður Sigmarsson Haukum,
sem skoraði 128 mörk í fyrra,
met sem seint eða aldrei verð-
ur slegið. Hitt er svo annað
mál að þetta afrek Friðriks er
mjög eftirtektarvert. Hann er
kornungur leikmaður og er
þar að auki að leika i 1. deild i
lyrsta sinni.
Markhæstu menn 1. deildar
urðu:
Friðrik Friðriksson Þrótti 86
Pálmi Pálmason, Fram 79
Viðar Simonarson, FH 79
Páll Björgvinss., Vikingi 75
llörður Sigmarsson,
llaukum 73
Björn Pétursson Gróttu 69
Geir Hallsteinsson, FH 68
Stefán llalldórss., Vikingi 63
Þórarinn Itagnarsson, FH 56
Friðrik Friðriksson
Jón Karlsson, Val
Viggó Sigurðsson, Vikingi
Guðjón Magnússon Val
Geir Hallsteinsson kominn innúr horninu og skorar eitt af 5mörkum sínum. (Ijósm. S.dór)
Simonarson, Guðmundur Sveins-
son og Þórarinn Ragnarsson voru
bestu menn FH i sókn, en i vörn-
inni þeir Guðmundur Árni, Þór-
arinn og Sæmundur, og i heild var
liðið mun betra en Fram-liðið og
átti sigurinn fyllilega skilið.
Hja Fram bar Hannes Leifsson
af, en auk hans áttu Guðjón
Einarsson markvörður góðan
leik, þótt hann væri ekkert nálægt
Birgi i FH-markinu. Pálmi var
meiddur og gat litið beitt sér, og
munar um minna.
Mörk FH: Þórarinn 6, Geir 5,
Guðmundur 4, Viðar 4, og
Guðmundur Árni 1 mark.
Mörk Fram: Hannes 7, Pálmi 3,
Pétur 2, Andrés, Birgir, Gústaf og
Magnús U mark hver. —S.dór
Þetta hefur
aö koma hjá
jafnt og þétt
í þessum leik var þaö vörnin og
markvarslan sem réð úrslitum,
sagði Reynir Ólafsson þjálfari FH
— Þetta leit vissulega ekki
vel út hjá okkur um mitt mót-
ið, slysatap fyrir Ármanni I
miðju móti deyfði vonir okkar
um sigur, en siðan hefur þetta
veriö að koma hjá okkur jafnt
og þétt, og ég tel að við séum
með besta liðið i dag, sagði
Reynir ólafsson þjálfari FH
er við ræddum við liann eftir
leikinn við Fram.
— Það var markvarslan og
vörnin sem réð úrslitum i
þessum leik. Birgir varði
meistaralega, en hann hafði
lika góða vörn fyrir framan
sig, og þetta tvennt helst
vanalega I hendur. Jú, ég játa
það að ég var orðinn dálitið
smeykur þegar staðan var
orðin 14:13. Þeir höfðu verið
að saxa á forskotið, og svo
virtist sem FII væri að missa
tökin á leiknum, en 15. markið
létti spennunni af, og þá var ég
viss um að við myndum sigra.
— Hvað finnst þér um hand-
knattleikinn i vetur?
— Mér finnst hann hafa ver-
Framhald á bls. 14.
verið
okkur
Reynir ólafsson