Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 13

Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 13
Þriðjudagur 24. febrúar 1976 ÞJóÐVILJINN — StÐA 13 O 1=1 Sjónvarp í kvöld Austur-þjóðverjar og rússar hafa um langt skeið sent verksmiðjuflota sina á miðin hér við land, enda þótt þeir hafi jafnan virt fiskveiðilögsögu islendinga. Austur-þýski flotinn á miðum Eystrasalts Fyrir nokkru var stór floti austur-þýskra verksmiðju- togara á Eystrasalti og eyddi fiskimiðum sænskra og finnskra sjómanna þar. Um það licfur sænska sjónvarpið látið gera kvikmynd, sem sýnd verður i sjónvarpi kl. 22.20 i kvöld', en þar er lýst viðbrögðum sjómann- anna við eyðileggingunni. íslenskum sjómönnum er verksmiðjufloti austur-þjóð- verja ekki siður kunnur en vestur-þýski flotinn, enda þótt sá fyrrnefndi hafi i alla staði virt landhelgi okkar og aldrei haft i frammi ofbeldisaðgerðir innan hennar. Hinsvegar þekkja allir islenskir sjómenn, sem stundað hafa grálúðuveiðar á línu- bátum, vel til framkomu aust- ur-þjóðverja og rússa á mið- unum út af Austfjörðum og djúpt út af Norðurlandi. Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að grálúðustofninum hér við land hefur að mestu verið eytt með ofveiði, og verður þar ekki um kennt sókn okkar eigin li'nubáta. Þessi mið liggja nokkuð djúpt, allavega miðin Utaf Norðurlandi, og hafa þar til i vetur legið utan fisk- veiðilögsögu okkar. Undirritaður varð vitni að þvi fyrir tæpum fimm árum, er austur-þjóðverjar létu greipar sópa á grálúðumiðunum 60-70 milur norðvestur af Kolbeinsey og vorú þar með stóran togara- flota, sem fylgt var af verk- smiðjutogaranum,,JungeWelt”, 10.000 tonna skipi. Þeir voru þarna i sinum fulla rétti utan allra fiskveiðimarka, en engu að siður gætti gremju meðal is- lensku sjómannanna, sem þarna stunduðu veiðar á 2-300 tonna li'nubátum og höfðu litið upp úr krafsinu eftir tveggja vikna útivist, stundum aðeins 25-30 tonn. Sló jafnvel i brýnu með islensku skipstjórunum og þeim erlendu, þegár lóðin höfðu verið lögð, þvi oft vildi það brenna við, að togararnir toguðu i átt að linunni, sem lá i sjó Til að verja veiðafæri sin, urðu islensku skipstjórnarmennirnir oft að gripa til þess, að skjóta upp aðvörunarflugeldum, en ef það dugði ekki, að sigla þá á fullri ferð i átt að stjórnborðshlið tog- arans, sem i hlut átti, og neyða hann til að vikja. Sýndist þetta ójafn leikur mjög og olli g jarnan taugaspennu, þvi stærðarmunur var mikill með útlensku tog- urunum og litlu islensku linu- bátunum. Hinsvegar var lika gott að vita af verksmiðjutogurunum þarna i grenndinni, ef skyndileg veikindi eða slys bar uppá, þvi jafnan var islendingum vel tekið, er þeir leituðu til austur-þjóðverjanna um læknis- hjálp. ráa útvarp 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30 og 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barn- anna kl. 8.45: Sigurður Gunnarsson heldur áfram sögu sinni „Frændi segir frá” (8). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. Fiski- spjall kl. 10.05: Ásgeir Jakobsson flytur. Hin gömlu kynni kl. 10.25: Val- borg Bentsdóttir sér um þáttinn. Morguntónieikar kl. 11.00: Roberto Szidon leikur á pianó Sónötu nr. 1 i f-moll op. 6 eftir Skrjabin/Melos hijóðfæra- flokkurinn leikur Kvintett op. 39 f g-moll eftir Prko- fjeff/Richard Frisch og félagar úr Columbiu- sinfóniuhljómsveitinni flytja „Abraham og ísak” helgiballöðu fyrir bari- tónrödd og kammersveit eftir Stravinsky. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Merkar konur; frásögu- þáttur Elinborgar Lárus- dóttur Jóna Rúna Kvaran leikkona les fyrri hluta þriðja þáttar. 15.00 Miðdegistónleikar Filharmoniusveit Lundúna leikur „Cockaigne”-for- leikinn op. 40 eftir Edward Elgar; Sir Adrian Boult stjórnar. Roman Totenberg og óperuhljómsveitin i Vin leika Fiðlukonsert eftir Ernest Block; Vladimir Golschmann stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tónleikar. 16.40 Litli barnatiminn.Sigrún Björnsdóttir stjórnar. 17.00 Lagið mitt. Anne-Marie Markan sér um óskalaga- þátt fyrir börn yngri en tólf ára. 17.30 Framburðarkennsla i spænsku og þýsku. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Til hvers eru skólar? Arnór Hannibalsson flytur fyrra erindi sitt. 20.00 Lög unga fólksins.Sverr- ir Sverrisson kynnir. 20.50 Frá ýmsum hliðum. Guðmundur Arni Stefáns- son sér um þátt fyrir ung- linga. 21.30 Sónata III i C-dúr fyrir cinleiksfiðlu eftir Bach. Itzhak Perlmann leikur. — Frá tónlistarhátiðinni i Salzburg i ágúst s.l. 21.50 Kristfræði Nýja testa- mentisins. Dr. Jakob Jóns- son flytur niunda erindi sitt: Æðstiprestur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (8). 22.25 Kvöldsagan: „1 verum”, sjálfsævisaga Theódórs Friðrikssonar. Gils Guð- mundsson les sfðara bindi (22). 22.45 Harmonikulög. Frankie Yankovic leikur. 23.00 A hljóðbcrgi. „Bókin bannaða” Judith Anderson les söguna af ekkjunni Júdit úr apokrýfum bókum Bibli- unnar. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 20.40 Skólamál. Iðnfræðsla. Þessi þáttur fjallar um breytingar á skipulagi iðn- fræðslunnar. Sýndar verða myndir úr verkdeildum iðn- skólanna i Reykjavik og Hafnarfirði og rætt við Ósk- ar Guðmundsson fram- kvæmdastjóra Iðnfræðslu- ráðs. Umsjónarmaður er Helgi Jónasson fræöslu- stjóri, en upptökunni stjórn- aði Sigurður Sverrir Páls- son. 21.05 Colombo. Bandariskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Jón Thor Haralds- son. 22.20 Austurþýski togaraflot- inn. Fyrir nokkru var stór floti austurþýskra verk- smiðjutogara á Eystrasalti og eyddi fiskimiðum sænskra og finnskra sjómanna þar. í myndinni er lýst viðbrögðum fiski- manna við eyðileggingunni. Þýðandi og þulur Ellert Sig- urbjörnsson. (Nordvisiön — Sænska sjónvarpiö) Nýja tlmaskiptingm Tlmaskipting bóknáms 1968-74. Námsgretnar Faggremar Kennslust á viku Kennsluvikur 2 bekk 3 bekk '■i' /27 22 u 15 17 22 Iðnfræðsla Þátturinn um skólamál verð- ur enn á dagskrá i sjónvarpi i kvöld kl. 20.40 og verður að þessu sinni fjallað um iðn- fræðslu. Umsjónarmaður þátt- arins er Helgi Jónasson, fræðslustjóri. I þættinum verða teknar fyrir breytingar á skipulagi iðn- fræðslunnar. Verða i þvi sam- bandi sýndar myndir úr verk- deildum iðnskólanna i Reykja- vik og Hafnarfirði, en einnig verður rætt við Óskar Guðmundsson, framkvæmda- stjóra Iðnfræðsluráðs. Þeim sem ætla að hefja iðn- nám er alveg sérstaklega bent á að horfa á þáttinn i kvöld, en myndin hér að ofan sýnir breyt- ingar á skipulagi iðnfræðslu. Annarsvegar það skipulag, sem gilti fram til 1974, og hinsvegar Útvarp í kvöld þá timaskiptingu, sem gekk gildi siðastliðið haust. Erindi um tilgang skóla Dr. Arnór Hannibalsson flytur Dr. Arnór Hannibalsson mun i kvöld flytja erindi i útvarp, og nefnist það Til hvers eni skólar? Hefst erindið kl. 19.35 og verður i kvöld fluttur fyrri hluti þess, en seinni hluti veröur á dagskrá næstkomandi þriðjudagskvöld, eftir rétta viku. 1 samtali við blaðamann, sagðist dr. Arnór i erindi þessu velta fyrir sér spurningunni um bekkjarkerfið, hvort það hafi ekki gengið sér til húðar, og hvort ekki sé nauðsynlegt að sveigjanlegra kerfi verði látið leysa það gamla af hólmi. Þá komi það einnig til áiita, hvort skólarnir séu ekki neyddir til þess að sinna meira uppeldis- hlutverki sinu en þeir hafa hingað til gert, enda þótt skólinn geti aldrei tekið við þeim uppeldisskyldum eða þvi upp- eldisstarfi, sem á herðum fjöl- skyldunnar hvílir. Dr. Arnór Hannibalsson var Dr. Arnór llaunibalsson að þvi spurður, hvort hann setti fram i erindi þessu gagnrýni á grunnskólalöggjöfina nýju. og hvað hann svo ekki vera. Það vandamálsem hann fjallaði um i erindi sinu yrði ekki leyst með neihu tilteknu kerfi útaf fyrir sig, heldur væru það mennirnir sem á verkfærinu héldu og starf þeirra, sem máli skipti. Hér væri þvi fyrst og fremst um að ræða kennslufyrirkomulag og innra starf skóíanna.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.