Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 16

Þjóðviljinn - 24.02.1976, Síða 16
WDVIUINN Þriöjudagur 24. febrúar 1976 2 veiði- þjófar stýf ðir Fréttaritari Reuter, Uli Schmetzer, sem er um borð i varöskipinu Tý segir frá þvi i fréttaskeyti i gær aö stuttu eftir hádegiö hafi varöskipin Týr og Baldur klippt báöa togvira tvcggja togara. Týr stóð i fimm tima eltingar- leik við freigátuna Scylla áður en færi gafst á að klippa á vira tog- arans Luneda frá Hull. Á meðan reyndi Scylla að hindra klipp- inguna og tveir dráttarbátar voru i grenndinni en Týr slapp frá þeim eftir vel heppnaða klipp- ingu. Þetta gerðist stuttu fyrir kl. 15. Um kl. 14.30 slapp Baldur úr gæslu freigátunnar Bacchante og klippti á báða togvira togarans Arctic Vandal 48 milur út af Langanesi. Varðskipið Óðinn var einnig i nágrenninu og greinir Schmetzer frá þvi að skipið hafi tilkynnt um itrekaðar ásiglingar- tilraunir freigátunnar Yarmouth. —ÞH Engar tillögur komnar fram — sagði Einar Ingvarsson formaður nefndar um skipulag og stjórn fiskveiða — Þaö er ekki rétt sem sagt var frá i Alþýðubiaðinu sl. laugardag aö þessi nefnd hafi samiö ákveðnar tiliögur um aö banna allar fiskveiðar hér viö land nema á linu og handfæri yfir sumariö og aö islendingar fái aö veiða 180 þúsund tonn á ári en útlendingar 100 þúsund tonn. Hitt er annaö mál að þessi hugmynd hefur veriö sett fram innan nefndarinnar en engin ákvöröun verið tekin og andstaöa gegn þessari hugmynd var mikil, sagði Einar Ing- varsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra og for- ■naöur nefndar sem gera á tillög- ur um stjórn og skipulag fisk- veiða hér viö land, er Þjóöviljinn spuröi hann um sannleiksgiidi uppsláttarfréttar Alþýöublaösins sl. laugardag. Einar sagði ennfremur að mjög margar hugmyndir hefðu komið fram innan nefndarinnar, en eins og áður segir alls engin tillaga veriðsamin. Einar sagðist vonast til að nefndin gæti lokið störfum um næstu helgi. Þjóðviljinn hefur fregnað eftir Framhald á bls. 14. BÚNAÐARÞING HAFIÐ Búnaöarþing hófst i Súinasalnum á Hótel Sögu I gær. Þingfulltrúar eru 25 og er ráögert aö þingiö sitji aö störfum i 15-20 daga. Mcðal helstu mála þess eru rafmagnsmál, lög um fjallskil og afrétti, varnir gegn of mikiili grágæs, verslun meö varahluti I landbúnaðarvélar, aðild kvenna að Búnaöarfélagi íslands og fæðingarorlof bændakvenna. For- seti þingsins er Asgeir Bjarnason. A myndinni sjást þingfulltrúar aö störfum. Halldór Pálsson, búnaöarmálastjóri, er I ræöustól. Krafa Alþýðusambandsins: LÖGBANNÁ NORGLOBAL Þetta er verkfallsbrot ríkis- stjórnarinnar, og sjávarútvegs- ráöherra alveg sérstaklega, sagöi Björn Jónsson, forseti Alþýöusambandsins um starf- semi Norglobal hér viö land, þegar Þjóöviljinn ræddi viö liann klukkan 7 síðdegis i gær. Björn Jónsson sagði, að verk- fall hafi hafist á Reyðarfirði aðfaranótt sunnudags s.l., en þar hefur sildarbræðsluskipið. Norglobal legið að undanförnu. Við hjá Alþýðusambandinu höfðum tilkynnt fyrir löngu að það væri verkfallsbrot, ef Nor - global héldi áfram loðnu- móttöku á stöðum þar, sem verkfall væri hafið. Þeir hugðust haida áfram að taka við loðnu liggjandi upp i land- steinum á Reyðarfirði og sögðust hafa fyrirmæli frá Noregi um að taka á móti svo lengi sem loðnunefnd beindi til þeirra skipum. Málið er hins vegar þannig vaxið, að þar sem komið er á verkfall á Reyðarfirði og að sjálfsögðu einnig á Seyðisfirði og i Reykjavik, en á þeim stöðum eru fyrirtækin, sem hafa skipið á leigu skráð, þá er hér um ótvirætt verkfallsbrot að ræða. Hér er einnig á það að lita, að þeir erlendu menn, sem vinna við loðnumóttöku og loðnubræðslu um borð i Nor - global hafa ekki einu sinni neitt atvinnuleyfi hér á landi, þótt þeir hafi verið að störfum innan islenskrar fjögurra milna land- helgi. Matthiasi Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra lá svo mikið á að veita Norglobal leyfi á sinum tima, að þessa var ekki gætt. Samkvæmt islensk- um lögum, þá þarf viðkomandi verkalýðsfélag að láta uppi álit sitt til félagsmálaráðuneytisins áður en atvinnuleyfi er veitt erlendum mönnum, en eftir þessu hefur alls ekki verið leitað varðandi Norglobal. 1 lögum um atvinnuréttindi útlendinga er tekið fram, að sé þess ekki gætt, að fá umsögn verkalýðsfélagsins, þá sé hægt að setja lögbann á atvirtnustarf- semi slikra manna hér á landi, og það án þess að setja þurfi tryggingu. Skrifstofustjóri ASl Ólafur Hannibalsson var sendur austur, og fór hann ásamt for- mönnum verkalýðsfélaganna á Reyðarfirði og Eskifirði um borð i skipið og ræddi við yfir- menn þess. Engin lausn fékkst á málinu. Alþýðusambandið tók þvi þann kost, að óska lögbanns samkvæmt 3. grein laga um atvinnuréttindi útlendinga. Var sú krafa borin fram við sýslu- mannsembættið á Eskifirði. Þegar svo var komið hélt Nor - global á brott frá Reyðarfirði, en reiknað var með að það héldi til Vestmannaeyja. Verði gerð tilraun til að landa loðnu i Nor - global þar eða annars staðar, þá mun Alþýðusamband tslands setja fram kröfuna um lögbann, sagði Björn Jónsson. Þetta skip er hér með sér- stöku leyfi islensku rikis- stjórnarinnar, án þess að lög- mætra réttinda islenskra verka- lýðsfélaga hafi verið gætt. Það verkfallsbrot, sem hér er á döfinni er þvi alfarið á ábyrgð islensku rikisstjórnarinnar og Matthiasar Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra sérstak- lega, sagði Björn. Ennþá ekki samið um skiptaprósentuna .Þessi langi fundur, frá hálf fjögur á sunnudag til klukkan hálf niu á mánudagsmorgun, var að þvi leyti jákvæður, aö nú eigum við „aöeins” eftir að scmja um 12 tölur viðkomandi skiptaprósent- unni af þeim 83 tölum, sem um þarf að semja,” sagði Sigfinnur Karlsson, um ganginn i dcilu sjó- manna um launakjör sin við út- gcrðarmenn. Það sem nú er eftir að semja um er skiptaprósenta á megin- þorra flotans. Eru það hlutaskipti á netum, linu og botnvörpu á bát- um af stærðinni frá 51 tonni og upp úr. I fyrrinótt náðist samkomulag um skipti á grálúðuveiðum, spærlingsveiðum, rækjuveiðum og um skipti á veiðum i reknet. Fyrr hafði verið gengið frá ýms- um þáttum, sem frá var skýrt i blaðinu fyrir helgi. Þá var nú um helgina gengið frá skiptaprósentu á loðnuveiöi- bátum. Er hún nokkru lægri en hún hefur verið til þessa, en vegna breytinga á sjóðakerfinu er talið, að hún gefi sjómönnum 7—8% meir i sinn hlut en þeir hafa haft tii þessa. Framhald á bls. 14. Prentaraverkfall í kvöld? Miklar likur á að svo verði sagði Olafur Emilsson formaður HÍP — Við höfum verið á fundum meö sáttasemjara undanfariö. Það er boðaöur fundur i kvöld kl. 21 (mánudag), og um helgina störfuðu tvær undirnefndir, scm skila áliti i kvöld. Ég vil taka fram að við erum ekki i neinu samfloti með ASl i samn- ingunum, þar scm viösemj- endur okkar eru ekki i Vinnu- veitendasa m bandinu, og ég verð aö segja eins og er aö ég er frekar svartsýnn á að málin leysist fyrir kvöldið i kvöld, en verði ekki svo kemur til verk- falls, sagði ólafur Emilsson, formaður Hins Isl. prentara- félags. — Þrátt fyrir það að FIP sé ekki i VSl segja þeir alltaf við okkur, að þeir verði að biða og sjá til hvað kemur útúr heildar- samningunum áður en þeir vilja ræða við okkur af alvöru. Þess vegna á ég ekki von á þvi að neitt gerist hjá okkur fyrr en heildarsamningar hafa tekist, sagði Ólafur. — Og þótt samningar takist I dag, þá eru þessir samningar svo flóknir að það tekur okkur, sem ekki höfum verið með i samningsgerðinni nokkurn tima að skoða málið niður i kjölinn. Annars verður haldinn almennur félagsfundur hjá prenturum i dag kl. 17, og hann mun taka afstöðu til þess hvort farið verður i verkfall i kvöld eða ekki og þess vegna get ég i raun ekkert ákveðið sagt um málið. Við höfum boðað verkfall frá og með miðnætti i kvöld og eins og málin standa núna tel ég meiri likur á þvi að til verkfalls komi en ekki, sagði Ólafur Emilsson formaður HIP aö lokum. —S.dór Knut Frydenlund Frydenlund reynir milligöngu Norski utanrikisráöherrann, Knut Frydenlund, gekk i dag á fund Joseph Luns frainkvæmda- stjóra Nató til viðræðna við hann um fiskveiöideilu breta og isiend- inga. Að fundinum loknum vildi hann ekkert segja annað en að þeir hafi orðið sammála um að ræða máiið aftur. Frydenlund bauðst á föstu- daginn til að miðla málum i fisk- veiðideilunni en kvaðst þó helst vilja að deilan yrði leyst fyrir til- verknað Nató. Gerði hann stjórnum tslands og Bretlands viðvart um þetta. Þá segir i fréttastofuskeytum að fastaráð Nató hafi komið saman til fundar i Briissel i dag til að ræða deilu breta og islendinga sem snertir viðkvæma bletti á Nato-bræðralaginu. ASÍ berst stuðnings- yfirlýsing Alþýðusambandi tslands hafa borist margar stuöningsyfirlýs- ingar frá alþýðusamtökum annarra landa. Þannig hafa Alþýðusamböndin i Sviþjóð, Noregi, Færeyjum og Austur- Þýska alþýðulýðveldinu sent stuðningsyfirlýsingar til ASt. Þá hefur borist skeyti til skrifstofu ASt frá Alþýðusamtökunum i Portúgal og er islensk alþýða hvött til átaka I óaráttunni við arðrán og kapitalisma. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja i Svi- þjóð hefur einnig sent stuðnings- yfiriýsingu. Loks skal getið skeytis frá Thomas Nielsen, forseta Alþýðu- sambandsins i Danmörku. t skeytinu segir að danir hafi fylgst vel með gangi kjaramála á Is- landi og það er harmað að ekki skuli hafa náðst samkomulag i deilunni. Framkvæmdastjórn danska Alþýðusambandsins fullvissar ASl um stuðning I baráttu þess fyrir réttlátum lifs- kjörum islenskrar alþýðu og þvi er lýst yfir að danskt verkafólk sé reiðubúið til þess að styðja baráttu islenskrar alþýðu i sam- vinnu við alþýðuhreyfingarnar annars staðar á Norðurlöndúm með fjárstuðningi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.