Þjóðviljinn - 21.04.1976, Side 16
DIOÐVIUINN
Miðvikudagur 21. apríl 1976
r '
Ovænt
sumar-
gJof 1
boði -
t dag, siðasta vetrardag,
veröur bóksala við Bernhöfts-
torfu til fjáröflunar fyrir Rit-
höfundasamband íslands.
Seldar verða áritaðar og
innpakkaðar bækur og er verð
hverrar bókar 1500 krónur.
Bókatitlar eru 60, skáldsögur,
ljóðabækur. leikrit, þjóðlegur
fróðleikur, viðtalsbækur og
bókmenntasaga. Allt eru þetta
islensk verk. hvert áritað með
sumarkveðju frá höfundi og
má þvi segja að hver bók verði
kaupanda sinum óvænt sum-
argjöf.
öllum sem áhuga hafa gefst
þarna kostur á bók á hagstæðu
verði og siðan ræður heppnin
hvaða bók hver kaupandi hlýt-
ur, þvi bækurnar verða allar
seldar i umbúðum.
Fundi mið-
stjórnar er
frestað
Midstjórnarfundinurri/
sem boöað var til laug-
ardaginn 24. apríl er
frestaö af óviðráðanleg-
um ástæðum. Verður
nýr fundartimi auglýst-
ur í blaöinu.
38%
hækkun
á sementi
Sement hækkar frá og með
deginum i dag um :18%. Þann-
ig hækkar tonnið af Portland-
sementi úr 10.000 kr. i 13.800
kr. án söluskatts. Aðrar teg-
undir hækka samsvarandi.
Fyrirlestur
finnsks há-
skólakennara
Þessa dagana dvelst hér á
landi finnskur háskólakennari
i hagfræði og millirikjasam-
skiptum, Jan-Otto Andersson.
Hann starfar við hagfræði-
stofnun sænska háskólans i
Turku (Ábo Akademi) en
kemur hingað á vegum Nor-
ræna sumarháskólans i sam-
vinnu við Norræna húsið.
Andersson flytur opinberan
fyrirlestur á sænsku i Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn
21. april kl. 20.30. Fyrirlestur-
inn nefnist „Föránderingar af
ekonomiska styrkeförhSlland-
en i várlden”.
Reykjavikurdeild Norræna
sumarháskólans gengst enn-
fremur fyrir málþingi (semi-
nar) meðþátttöku Anderssons
um efnið „Riki, auðmagn og
kreppa”.Fer það fram i Lög-
bergi, stofu 308, laugardaginn
24. april og hefst kl. 13.30. Mál-
þingið er opið öllum þátttak-
endum i námshópum sumar-
háskólans og öðrum sem á-
huga hafa. Auk þess sem hér
hefur verið taliö mun Anders-
son hitta að máli einstaka
námshópa og e.t.v. fleiri aðila.
Castro harðorður
Hótar uppsögn samnings um
meðferð flugrœningja ef
kúbanskir útlagar hœtta ekki
árásum á kúbanska fiskimenn
Havana 20/4 reuter Prensa-
latina — Fidel Castro forsætis-
ráðherra Kúbu hótaði i dag að
segja upp samningi þeim sem i
gildi er milli Kúbu og Banda-
rikjanna um meöferð flugræn-
ingja o.fi. ef kúbanskir útiagar i
Bandarikjunum héldu áfram
árásum á kúbanska fiskimenn.
Forsaga þessa máls er sú að
aðfaranótt 6. april sl. réðust
menn vopnaðir vélbyssum á
kúbanskan fiskibát þar sem
hann var að veiðum á hafinu
milli Kúbu og Florida. Skipuðu
þeir bátsverjum að staðnæmast
en þegar þvi var ekki sinnt hófu
þeir vélbyssuskothrið sem ekki
lauk fyrr en báturinn sökk.
Mennirnir komust i björgunar-
bát og i land. Árásarmennirnir
réðust þá á annan kúbanskan
fiskibát og drápu einn skipverja
með vélbyssuskothrið.
Siðar tóku kúbanskir útlagar i
Miami á sigábyrgð á þessum
verknaði. Arásir sem þessar
voru daglegur viðburður frá þvi
byltingin var gerð á Kúbu fram
til ársins 1973 þegar fyrrnefnd-
ur samningur var gerður. Þá
slotaði þeim vegna þess að i
samningnum skuldbundu
Bandarikin sig til að vinna gegn
þeim.
Hótun Castros um uppsögn
samningsins kom fram i ræðu
sem hann hélt i tilefni þess að 15
ár eru liðin frá þvi kúbanskir
útlagar fjármagnaðir af CIA
gerðu innrás á Kúbu þar sem
heitir Svinaflói.
I ræðu sinni komst Castro ma.
svo að orði að árásin á fiskibát-
ana væri „augljóst brot á samn-
ingnum um meðferð flugræn-
ingja. Ef slikir atburðir endur-
taka sig og þeim sem að þeim
standa verður ekki refsað harð-
lega þýðir það riftun samnings-
ins.”
Castro sakaði einnig þá Ford
og Kissinger um „grófar lygar”
i ummælum þeirra um aðstoð
kúbumanna við MPLA f Angólu.
Framhald á bls. 14.
i Kína á sér nú stað hörð barátta innan kommúnistaf lokksins og standa öll spjót á
garminum Teng Hsiao-ping. Hér sést hjólandi hljómsveit sem hvetur menn til að
fylkja sér um Maó og flokkinn.
LÍBANON:
Barist
þrátt
fyrir
vopnahlé
Beirut 20/4 reuter ntb — Barist
var af fullri hörku i Beirut i dag
þrátt fyrir yfirlýsingar um
vopnahlé deiluaðiia. Að sögn lög-
reglu hafa um 110 manns fallið sl.
sólarhring og 220 særst.
Vopnahléið átti að ganga i gildi
á miðnætti aðfaranótt þriðjudags
en skothriðin hélt áfram og
ágerðist er leið á daginn. Virðist
vopnahléið ekki virt af hvorugum
deiluaðila.
Palestinska fréttastofan WAFÁ
skýrði frá þvi i dag að það hefði
verið yfirherstjórn landsins sem
lýst hefði yfir vopnahléinu og var
hverjum þeim sem bryti gegn þvi
hótað tafarlausu lifláti. 1 her-
stjórninni eiga sæti fulltrúar
vinstri- og hægriafla i Libanon,
palestinuarabar og sýrlendingar.
FRAKKLAND:
Stúdentar enn í verkfalli
Nanterre 20/4 reuter — Stúdentar
við háskólann i Nanterre i Frakk-
landi eru enn i verkfalli og hafa
nú ekki mætt i kennslustundir á
aðra viku til að mótmæia
breytingum þcim á mennta-
kerfinu sem stjórnvöld hyggjast
gera.
í Nanterre sem er útborg
Parisar eru 25 þúsund stúdentar
og hefur enginn þeirra mætt i
tima að undanförnu. Veggir
skólahúsanna eru þaktir slag-
orðum gegn breytingunum og
borðum hefur verið raðað upp
fyrir framan kennslustofur til að
hindra kennslu. A morgun,
miðvikudag, hyggjast stúdentar
um allt land halda opna fundi og
skýra málstað sinn fyrir almenn-
igi. A föstudaginn er hins vegar
fyrirhuguð ganga i Paris þar sem
stúdentar hvaðanæva að úr
landinu ætla að mæta.
í breytingum stjórnarinnar er
gert ráð fyrir þvi að fækka náms-
brautum i háskólum og eru
einkum lista- og félagsvisinda-
brautir i hættu. 1 stað þeirra eiga
nefndir sérfræðinga og atvinnu-
rekenda að gera tillögur um nýjar
námsbrautir sem gagna atvinnu-
lifinu betur.
Framhald á bls. 14.
Stjórnarkreppan á Ítalíu:
Lítil von um lausn
Róm 20/4 reuter — Viðræöur
kristiiegra demókrata við aðra
italska stjórnmálaflokka um
lausn stjórnarkreppunnar i
iandinu drógust enn á langinn i
dag vegna þess að formaður
kristilegra, Benigno Zaccagn-
ini, var ókominn úr páskaleyfi.
Zaccagnini er ekki talinn eiga
mikla möguleika á að afstýra
kosningum i júni i sumar.
Blaðið Corriere Della Sera i
Milanó skýrði frá þvi i dag að
flokkur hans hefði i bigerð nýjar
áætlanir til að reisa við bág-
borið efnahagslif landsins. Þótt
þær hlytu náð fyrir augum sam-
starfsflokkanna er annað stórt
ágreiningsmál óleyst sem er
deilan um rétt kvenna til fóstur-
eyðinga. í þvi máli vilja sósial-
istar og kommúnistar að konan
sjálf fái að taka ákvöröun um
fóstureyðingu á fyrstu þremur
mánuðum meðgöngutima en
kristilegir vilja leggja
ákvörðunarvaldið i hendur
lækna.
Ef til kosninga kemur i júni
nk. má búast við þvi að
kommúnistar og sósialistar fái
nauman meirihluta samanlagt.
Dagblaðið La Republica sem er
vinstrisinnað birti i dag úrslit
skoðanakönnunar meðal
italskra kjósenda. 50,5% þeirra
sem spurðir voru kváðust
myndu kjósa annað hvo’rt'
kommúnista eða sósialista ef
kosið væri i dag.
Til óeirða kom i Parfs i fyrri viku þegar um 50 þúsund stúdentar efndu
til mótmælagöngu. t óeirðunum siösuðust nokkrir tugir stúdenla og
fimmtán lögreglumenn. 200 stúdentar voru handteknir. Myndin er frá
óeirðunum.
Vínþorstinn tók völdin
MOSKVU 20/4 reuter —
Rússneskur landbúnaðarverka-
maður var nýlega dæmdur i
fjögurra ára fangelsi fyrir að
aka dráttarvéi sinni á áfengis-
búð i heimabæ sinum eftir að
hafa verið neitað um afgreiðslu.
Isvestia segir frá þvi að
verkamaðurinn, Khiistunof að
nafni, sem á heima i Kilmez
héraði i Mið-Rússlandi, hafi
fyrstbariðað dyrum vinbúðar-
innar og heimtað eina vodka-
flösku. Var honum sagt að fara
heim og sofa úr sér
vimuna. Þá rauk karl i burtu en,
stuttu siðar skalf búðin og
nötraði undan dráttarvél
Khlistunofs. 1 fyrstu atrennu
braut hann niður hluta fordyris
og i annarri eyðilagðist eitt horn
búðarinnar. I þriðju atlögu
festi hann dráttarvélina i dyrum
verslunarinnar og varð það
öðrum viðskiptavinum og af-
greiðslufólki tii lifs.