Þjóðviljinn - 19.05.1976, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 19. mai — 41. árg. 107. tbi.
Nató-ráðstefna í Osló:
Leynifundur
Einars og
Croslands?
Noregur sagður
hafa lengi reynt
málamiðlun á
bak við tjöldin
OSLÓ 18/5 Reuter-NTB — Ráðstefna utanrikisráðherra
Nató-ríkja verður haldin i Osló nú í vikunni, og segir i
Reuter-frétt að Noregur muni nota tækifærið til að
leggja sig fram við það bak við tjöldin að greiða fram úr
fiskveiðideilu íslands og Bretlands.
Er þetta haft eftir áreiðanleg-
um diplómatískum heimildum.
Knut Frydenlund, utanrikisráð-
herra Noregs, mun ræða einslega
við utanrikisráðherra deiluaðila
hvorn um sig, en ekki hefur enn
verið ákveðið hvort þeir Einar
Agústsson og Anthony Crosland,
utanrikisráðherra breta, ræðist
við sér á parti.
A blaðamannafundi sagði
Frydenlund að hann ætti von á þvi
að islenski utanrikisráðherrann
yrði harðorður þegar hann tæki
til máls um fiskveiðideiluna, en
kvaðst ekki búast við neinum á-
hrifamiklum ráðstöfunum af
hálfu Islands.
í NTB-fréttsegir aö þorskastrið
islendinga og breta verði eitt af
málum ráðstefnunnar, sem hefst
á fimmtudaginn, en þar að auki
verður til umræðu kólnandi sam-
búð Nató- og Varsjárbandalags-
rikja og horfurnar á að kommún-
istar komist i stjórn á ftaliu. Það
mál á það sammerkt með þorska-
striðinu að vera talið svo við-
kvæmt að það verði ekki rætt
nema á bakvið tjöldin.
Þá segir NTB að aðilar, sem
fylgst hafi vel með fiskveiðideilu
islendinga og breta, telji nú góðar
horfur á þvi að takist að finna
grundvöll að málamiðlun. Þá
segir að Noregur hafi þegar haft
Framhald á bls. 14.
l', , - * y X
jr-ðv '
Við þingslit I dag verður sjálfsagt að vanda gcfiö yfirlit yfir þingstörfin i vetur. Margt er óafgreitt og
skjalastaflar hafa hrúgastupp á borðum alþingismanna. Þessa mynd tók eik. I þingsalnum I gær i kaffi-
hiéi og er myndin tekin yfir efrideiidarsalinn frá forsetaboröi.
Landhelgissamn-
ingar afgreiddir
i gærdag voru af-
greiddar þingsályktunar-
tillögur frá Alþingi um
heimildir til veiða fyrir
færeyinga, norðmenn og
belga i landhelginni.
1 sambandi við veiði-
heimild til Færeyinga sátu þing-
menn Alþýðubandalagsins og
Alþýðuflokksins hjá við atkvæða-
greiðsluna, auk Magnúsar Torfa
Ólafssonar, en Karvel Pálmason
greiddi atkvæði á móti samþykkt-
inni. Hún var samþykkt með 31
atkvæði gegn 1. Þingmenn
Alþýðubandalagsins greiddu at-
kvæði á móti samningnum við
norömenn, þingmenn Alþýðu-
flokksins studdu þá, Magnús
Torfi Ólafsson sat hjá, en Karvel
Pálmason var á móti. Samn-
ingarnir voru samþykktir með 34
atkvæðum gegn 10. Á sömu lund
fór atkvæðagreiðslan um samn-
ingana við belga og féllu atkvæði
35 gegn 10.
Þingmenn stjórnarflokkanna
greiddu allir atkvæði með
samningunum við þessar þrjár
þjóðir.
Á þingfundunum i gær voru
samþykkt sem lög frá Alþingi
breyting við vegalög þess efnis að
vegaáætlun gildi aðeins i eitt ár i
stað fjögurra og fjáraukalög fyrir
'73 og '74.
Jafntefli í báðum
skákunum i gær
Friðrik ólafsson við skákborðið i Van Gogh-
salnum i Amsterdam. Myndina tók Gunnar
Steinn og á 3. siðu birtast glænýjar fréttir frá
skákmótinu ásamt báðum skákum gærdagsins.
Skákunum i gær lyktaði báðum með jafntefli.
Þingslit í dag
Gert var ráð fyrir þvi i
gærkvöldi að fundir á
Alþingi stæðu fram á
nótt og reyna átti að
ljúka afgreiðslu mála.
Þingslit munu þvi fara
fram i dag, ef þing-
störfum hefur lokið i
nótt.
Vœngjamál:
Verkfall hjá öðrum
starfsmönnum
Alþýðusamband islands hefur
boðað vinnustöðvun hjá
afgreiðslufólki og flugvirkjum
þehn, sem hjá Vængjum hf.
vinna. Viku fyrirvari er með
vinnustöðvunina.
Eins og kunnugt er þá stendur
enn deila stjórnar Vængja við
flugmenn félagsins, og beinist
hún helst að því, aö flugmennirnir
fá ekki að vera i stéttarfélagi, en
stjórn Vængja vill gjarnan semja
við flugmennina, afneiti þeir
stéttarfélagi sinu, sem þeir að
sjálfsögðu hafa harðneitað.
Það nýjasta i málinu er það, að
verkfall hefur verið boðaö hjá
þeim, sem við flugreksturinn
vinna, eins og að framan greinir.
Einn flugmanna félagsins
komstsvo að orði við Þjóðviljann
i gær, að þeir litu á uppsagnir
sinar úr flugmannsstörfum sem
ólöglegar, en eins og kunnugt er
sagði stjórnin öllum flugmönnum
félagsins upp frá og með 1. mai.
Mál þetta er að einhverjum
hluta til i höndum rikissátta-
semjara.
—úþ
Z úr sögunni í bili
Efrideild vísaði málinu
til ríkisstjórnarinnar
Efri deild samþykkti með 16
samhljóða atkvæðum i gær-
kvöld að visa z-málinu til
rikisstjórnarinnar.
Laust fyrir kl. 7 i gærkvöld
kom lram i efri deild nefndar-
álit frá menntamálanefnd.
Var það samhljóða álit
nefndarinnar að leggja til að
r ramhald á bls. 14.