Þjóðviljinn - 19.05.1976, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Miövikudagur 19. mai 1976
Myndirnar þær arna tók Einar Karlsson, Ijósm, Þjóðviljans af nemendum
Víghólaskóla í Kópavogi sem þreyttu landspróf á f immtudaginn var. Prófið
var i landafræði.
LANDSPRÓF
ÞREYTT í SÍÐASTA SINN
landsprófi svo og i amk. fjórum
greinum I 4öa bekk gagnfræöa-
skóla, en nú verður samræmd-
um prófum fækkað, þar eð þau
hafa verið haldin hingað til mest
til þess að greina i sundur nem-
endur, sem létt eiga með bók-
legt nám og hina, sem erfiöara
eiga með það.
Höröur sagði, að næsta vor
tækju allir nemendur 9da
bekkjar grunnskóla lokapróf úr
honum og verður þaö samræmt
aöeins að hluta til og á annan
hátt en verið hefur, og hlutur
skólanna I brautskráningu
verður mun stærri en veriö
hefur hingað til. Próf i móður-
máli, stærðfræði, sameiginlegt
próf I sögu og landafræöi og próf
I raungreinum, eðlisfræði og lif-
fræði, verða samræmd yfir
landið. Skólarnir semja hver
fyrirsig próf i öðrum greinum.
Auk þes gefa þeir nemendum
umsagnir i samræmdu
prófunum eftir frammistööu
þeirra yíir veturinn, eftir
ritgerðum, vinnubókum og fl.
Sá vitnisburður verður siðan
hafður til hliösjónar viö ein-
kunnargjöf fyrir prófúrlausnir.
1 framhaldi af þessu er siöan
verið að undirbúa framhalds-
skóla til þess að taka við
nemendum með svo
breyttriundirstöðuþekkingu
eftir breyttri námsskipan. -úþ
Þessa dagana ganga
um 1600 nemendur gagn-
fræðaskóla undir lands-
próf. Þetta er í sfðasta
sinn, sem landspróf verð-
ur þreytt við núverandi
skipulag, en við tekur að
hluta til samræmt próf
upp úr 3ja bekk grunn-
skóla.
Landspróf hefur verið þreytt
siðan 1946 að sögn Harðar
Larussonar i menntamála-
ráöuneytinu. í fréttabréfi frá '
menntamáiaráðuneytinu 25.10.
1975 er gerð grein fyrir ástæðun-
um fyrir þvi að landspróf skuli
aflagt i núverandi mynd, og er
þar fyrst vitnað til grunnskóla-
laganna frá 1974. Breytingar
þær, sem grunnskólalögin fela i
sér, eru þær helstar, aö skyldu-
námi iýkur i 9da bekk, þeim hin-
um sama og áöur var 3ji
bekkur i gagnfræða
skóla og sjálfstæði skóla
er aukiö varðandi
námstilhögun og gerð
prófa. Er með þessum
breytingum reynt að miöa
nám meira við sérstök áhuga-
sviö nemenda en veriö hefur.
Samræmd próf hafa veriö
haldin i öllum lesgreinum i
Af hverju er nú þetta fjárans kort?
—Ég hefði átt að lesa betur! —Erða ekki ...?
—Þetta er nú ekki mjög þungt.