Þjóðviljinn - 19.05.1976, Qupperneq 9
Miövikudagur 19. mai 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Kristín Reynisdóttir og Guðný Dóra Gestsdóttir,
nemendur í 8. bekk Öldutúnsskóla, sem eru í
starfskynningu á Þjóðviljanum, ræða við
fjórar landsprófsstelpur.
Landsprófsstelpurnar úr Garðaskóla i Garðabæ, frá vinstri Ragnheiður Bjarna-
dóttir, Helga Guðmundsdóttir, Salómc Kristjánsdóttir og Elinborg Pétursdóttir.
Saga og stæröfræöi
þyngst, enska léttust
Þeir sem
fá sumar-
vinnu fá
hana í
gegnum
klíku
Stúlkurnar úr öldutúnsskóla, Kristin Reynisdóttir og Guðný
Póra Gestsdóttir, sem eru i starfskynningu á Þjóðviljanum.
— Eruð þið með eða á móti
prófum?
— Stelpurnar vildu að meira
tillit væri tekið til skyndiprófa
sem væru tekin öðru hverju yfir
veturinn og frammistaða nem-
enda i timum. En samt vildu
þær sameiginleg burtfarar-
próf yfir allt landið.
— Haldið þið að landspróf sé
erfiðara nú en fyrir svona 10 ár-
um?
— Nei við höldum þau hafa
verið erfiðari fyrir 10 árum.
— Hversvegna völduð þið
landspróf frekar en 3. bekk?
— Til þess að sameina 2 bekki,
og spara timann
— Haldið þið að þeir sem eru i
8. bekk grunnskólans-' núna
græði á þvi að landsprófið skuli
hafa verið lagt niður.
— Já, vegna þess að við vilj-
um hafa skólgönguna sem
stysta.
— Er talið fint að vera i lands-
prófi?
— Nei, það höldum við ekki,
það er ekki nema einstaka
manneskja sem telur það fint.
— Ætlið þið að halda áfram i
skóla næsta ár?
— Elinborg ætlaði i
Verslunarskólann en Salóme
Ragnheiður og Helga voru að
hugsa um að fara i mennta-
skóla, en allt var þetta
óákveðið.
— Eruð þið búnar að fá vinnu i
sumar?
Ragnheiður var búin að fá
garðyrkjuvinnu.
Elinborg gat kannski fengið
vinnu úti á landi i frystihúsi, en
hinar tvær höfðu enga vinnu
fengið þó þær hefðu viða leitað.
Sögðu þær að erfitt væri að fá
sumarvinnu fyrir unglinga, en
þeir sem fengju vinnu heföu
fengið hana i gegnum kliku.
— Nú er síðasta lands-
prófi miðskóla að Ijúka.
Þeir landsprófsnem-
endur sem nú þreyta próf
hafa heiðurinn af því að
vera þeir síðustu sem það
gera. Þjóðviljinn tók
nokkra landsprófsnem-
endur tali. Það voru þær
Elinborg Bárðardóttir,
Salome Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Bjarnadóttir
og Helga Guðmunds-
dóttir, en þær eru a llar í 9.
bekk K í Garðaskóla í
Garðabæ.
— Hvernig hefur ykkur gengið
i prófunum?
— Okkur hefur gengið ágæt-
lega eða eins og við bjuggumst
við. Annars er litið hægt að
segja um það, þvi við erum ekki
enn búnar að fá einkunnirnar.
— Þarf að leggja mikið á sig
til að ná sæmilegum einkunn-
um?
— Bara einsog i venjulegum
prófum en fólk þarf ekki að
halda að þaö fari eftir gáfum,
þvi að hver og einn getur náð
landsprófi ef hann leggur sig
fram við námið.
— Hvaða próf fannst ykkur
erfiðast og hvað, fannst ykkur
léttast?
— Við erum sammála um að
saga og stærðfræði hafi verið
þyngstu prófin, en enskan létt-
ust.
Kristin Asmundsdóttir er ein af dyggustu blaðberum Þjóðviljans. Hún
segir að blaðburðurinn sé ein besta heilsubót sem hægt sé að hugsa sér.
Dregið í blaðberahappdrætti
Þjóðviljans á morgun:
Sækið
strax í
Nú eru allra siðustu
forvöð fyrir blaðbera
Þjóðviljans að krækja sér í
miða í Blaðberahappdrætti
blaðsins. Dregið verður á
morgun, 20. mai. Enn eiga
nokkrir blaðberar í
Reykjavík eftir að sækja
miða sína fyrir síðasta
tveggja mánaða timabilið,
mars og apríl. Umboðs-
menn eru beðnir að hafa
samband við afgreiðslu
blaðsins strax i dag, ef á
þeirra snærum eru blað-
berar sem eiga rétt á
miðum.
Sérhver blaðberi, hvar
sem er á landinu, sem
borið hefur út Þjóðviljann
a.m.k. tvo mánuði frá 1.
september í haust, á rétt á
einum happdrættismiða
f yrir hverja 2 heila mánuði
i starfi.
Aðalvinningurinn er ferð
til Færeyja með blaða
manni Þjóðviljans og viku-
miöa
dag
dvöl þar, auk sextán
annarra góðra vinninga, en
það eru segulbandstæki,
útvarpstæki, bækur og
hljómplötur. Það er Flug-
félag íslands sem hefur
verið svo vinsamlegt að
greiða fyrir Færeyja-
ferðinni.
Sækið því miðana ykkar
strax í dag — blaðberar.
Tryggingabætur
víða greiddar út á
þriggja mán.fresti
Engin lagafyrirmæli hljóða upp
á það, að tryggingarbætur skuli
greiðast út mánaöarlega, en hins
vegar er sú regla viðhöfð, að sá
sem bætur á og ber sig eftir þeim
mánaðarlega fái þær útgreiddar,
þótt svo ekki sé til siðs að greiða
þær út mánaðarlega i þvi umboði.
Einu ákvæðin í tryggingar-
lögunum þessu aö lútandi eru
þau, aö ekki skuli liða nema þrir
mánuöir á milli bótagreiðslna.
Ekki mun Tryggingastofnun
rikisins hafa sent út tilskipun til
umboðsmanna um aö greiða
bætur út mánaðarlega.
A mörgum stöðum eru
bæturnar aðeins greiddar út á
þriggja mánaða fresti, og gefur
augaleið að i slfkri verðbólgutið
er það hagur bótaþega að fá
bæturnar mánaöarlega, og ættu
þeir að ganga sig til umboðs-
manna og óska eftir þeim viö
hver mánaðarmót.
—úþ