Þjóðviljinn - 23.05.1976, Blaðsíða 3
Sunnudagur 23. mai 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
800 týndu lífinu, en tugir
þúsunda örkumlamenn
Sagan um lyfið chino-
form er sagan um mesta
lyfjahneyksli okkar tíma.
Lyf þetta hefur gert um 30
þúsundir japana að
örkumlamönnum og valdið
dauða a.m.k. 800 manna/
enda þótt framleiðandinn,
alþjóðlegi hringurinn
CIBA-Geigy, hafi lýst því
yfir, að það hefði verið
ýtarlega rannsakað hvort
það gæti haft aukaverk-
anir og hafi það reynst
með öllu skaðlaust.
Mál þetta hefur verið fyrir
dómstólum i ein fimm ár og hafa
þegar komið fram skaðabóta-
kröfur á framleiðendur, japanska
rikið og um 30 lækna sem svara til
um 70 miljarða islenskra króna.
Kröfuhafar eru þegar 3200 og
fjölgar stöðugt.
Mikiö auglýst
magalyf
Chinoform er lyf sem hefur
verið óspart auglýst sem áhrifa-
mikið og um leið skaðlaust meðal
við allskonar magakvillum (Það
var m.a. i Entero-Vioform og
Mexaform sem allir norðurlanda-
túristar höfðu i töskum sinum
fyrir nokkrum árum). Það er
hinsvegar staðreynd, sem ekki
verður hrakin, að það er beint
samhengi milli lyfs þessa og svo-
nefnds SMON-sjúkdóms (sem er
taugasjúkdómur, sem hefst i
mænunni og getur m.a. haft áhrif
á sjónina). Að visu hafa japönsk
blöð lengi vel þagað þunnu hljóði
yfir þessu máli vegna þess að
lyfjaiðnaðurinn hefur hótað að
hætta að auglýsa i þeim ef þau
hafi hátt.
Lyfið var viðurkennt af jap-
anska heilbrigðismálaráðu-
neytinu árið 1953. Fimm árum
siðar tóku menn eftir þvi að allút-
breiddur var nýr sjúkdómur, sem
liktist I ýmsu afleiðingum alvar-
legrar æðakölkunar. Þetta var
SMON. En sjúkdómi þessum var
litill gaumur gefinn og heil-
brigðisráðuneytið japanska varði
ekki nema sem svarar 250 þús.
krónum á ári til að rannsaka
hann. Það var ekki fyrr en um
1970 að það tókst að sanna sam-
bandið á milli chinoforms og
sjúkdómsins — samt er lyfið, eða
lyf sem það gengur upp i, enn selt
um viðan heim, þótt það hafi
verið bannað i Bandarikjunum,
Sviþjóð og Japan seint um síöir.
Reynt að þegja
málin í hel
Þegar betur er að gáð, finnst
enginn sjúklingur, sem þetta lyf
hefur gert minnsta gagn. Þvert á
móti: jafnvel i litlum bæ má finna
10—15 dauðsföll af völdum þess og
fleiri eru máttlausir að neðan og -
dæmdir til að sitja i hjólastól. Alls
eru dauðsföllin um 800 sem fyrr
segir. 200 sjúklingar hafa misst^
sjónina af völdum lyfsins.
Talsmaður þeirra iögfræðinga
sem flytja mál fórnarlambanna
telur sig hafa komist að þvi, að
chinoform hafi aldrei verið
prófað almennilega, tilraunir þær
sem CIBA segir að hafi farið fram
á dýrum voru allsendis ófull-
nægjandi. Þegar árið 1953 voru
gerðar athuganir á lyfinu, sem
hefðu átt aö vara menn við, og svo
sömuleiðis það, að árið 1960 voru
settar sterkar hömlur viö notkun
lyfsins i Bandarikjunum. Allt
kom fyrir ekki, chinoform náði
mikilli útbreiðslu vegna sniðugr-
ar auglýsingaherferðar, og
læknaiðnaðurinn og læknarnir
(sem hafa um helming tekna
sinna af lyfjasölu) sameinuðust
um að þagga allar umkvartanir
niður.
Hingað til hefur það fengist
staðfest að um 10 þús. j^panir
hafa orðið fyrir miklu heilsutjóni
vegna lyfs þessa. En um 20 þús-
undir I viðbót eru dæmdir til
gleymsku. Þetta stafar af því, að
margir læknar neita að afhenda
sjúkdómssögur sjúklinga sinna,
svo að margir SMON-sjúklingar
hafa ekki möguleika á að sanna
hvaöa lyf þeir hafa fengið. Aðrir
iæknar hafa breytt sjúkdóms-
greiningunni eða þá lýst þvi yfir
að kladdar þeirra séu týndir.
Sumir hóta að hætta að stunda
sjúklingana nema þeir þegi, og
það gera þeir m.a. vegna þess að
úti um sveitir er skortur á
læknum.
Spillinga rkerfiö
Hvernig var hægt i fimmtán ár
að halda áfram mikilli sölu á lyfi
sem svo tortryggilegt var, hjálp-
aði engum (oft var það gefið gegn
þeim sjúkdómseinkennum sem
það hafði sjálft valdið) og varað
var við a.m.k. f Bandarikjunum
og á Norðurlöndum? Svarið er
fólgið i spillingarkerfi sem miklu
verra er en öll Lockheedmál.
Heilbrigðisráðuneytið, lækna-
samtökin og lyfjaiðnaðurinn eru
samanreyrð I kerfi sem gagn-
rýnendur telja bókstgflega
háskalegt heilsu þjóðarinnár.
Dæmin eru mörg: ráðuneytið
hefur siðan i striðslok samþykkt
um 100 þús. lyfjategundir og um
30 þús. eru enn á markaði.
Samsvarandi tala á Norður-
löndum er 2.500.
Læknasambandið segir
getnaðarvarnapillur heilsuspill-
andi og neitar að gefa þær
frjálsar. Hin raunverulega
ástæða er sú, að læknar græða
meira á fóstureyðingum (um
tvær miljónir á ári) en á pillunum.
Lyfjafyrirtækið Ðai Nippon
hafði leyfi til að selja neurosedyn
(sama og Thaliodomid sem bar
ábyrgð á fjölda vanskapaðra
barna) heilt ár eftir að búiö var
að banna þetta lyf i Evrópu.
Að minnsta kosti 400 manns
hafa beðið tjón á sjón sinni vegna
chloroquins, sem selt var i Japan
fram til 1970 enda þótt skaðlegar
aukaverkanir þess væru
þekktarþegar árið 1952.
Og talið er að neysla lyfja og
vitamina fari árið 1977 upp i kiló á
hvert mannsbarn.
Ný trúarbrögö
Með hinu mikla vinnuálagi og
streitu sem einkennt hefur
japanskt samfélag hefur með
mörgum ráðum verið ýtt undir
lyfjaneyslu sem allra meina bót.
Lyfin hafa orðið að nýjum trúar-
brögðum, sem menn halda sér
uppi á.
Heilsugæsla er i þeim mæli
miðuð við gróða i Japan að með
ólikindum er. Samkvæmt sér-
stöku punktakerfi fá læknar
aukaþóknun i gegnum almanna-
tryggingar fyrir allar pillur sem
þeir selja. Praktiserandi læknar
reka venjulega eigið apótek og
græða — m.a. með bónusafslætti
frá lyfjaiðnaöinum, oft 2—3
sinnum meira á lyfjasölu en á þvi
að taka á móti sjúklingum.
Masao Hirasawa, sem hefur
skrifað mikið um heilbrigðismál I
Japan segir, að þetta kerfi skapi
fleiri sjúklinga en það lækni. Og
nýlegar skýrslur frá heilbrigðis-
ráðuneytinu staðfesta hinar illu
grunsemdir. Samkvæmt þeim
leita 7,5 niljónir japana á degi
hverjum til lækna eða eru lagðir
inn á sjúkrahús — eða um fimmt-
ándi hver landsmaður. Þetta er
69% aukning frá árinu 1960 og það
er ekki hægt að útskýra hana með
fólksfjölgun, auknum upp-
lýsingum um heilsuvernd eða þvi,
að meira fé sé nú veitt til heilsu-
gæslu.
Heilsu þjóðarinnar hnignar i
næstum þvi réttu hlutfalli við
aukningu lyfjaneyslunnar.
Læknanám er mjög dýrt i
Japan, en það er talið góð fjár-
festing, sem skilar sér á 5—7
árum. Læknar eru mjög áhrifa-
mikill þrýstihópur, sem leggur
hinum ráðandi flokki til stórfé i
kosningasjóði. Þess i stað gera
stjórnvöld mikið fyrir lækna:
greiða niður lyf i rikum mæli til
að þeir fái grætt meira á sölunni
(punktakerfið sem fyrr er sagt
frá). Auk þess eru hinar miklu
tekjur lækna ekki skattlagðar
hátt — þeir borga um 28% af þeim
i skatt. Það þykir þó nokkur von i
þvi, að yngri læknar hafa margir
hverjir skömm á mikium gróöa
og forréttindum stéttarinnar og
hafa reynt að þoka áleiðis ýmsum
umbótum.
Seld hér?
Upplýsingar þessar sem hér
hafa veri raktar eru úr danska
blaðinu Information. Blaðið
kannaði i leiðinni hvort Chino-
form væri selt i Danmörku. Það
kom i ljós að svo er. Chinoform er
i entereovioform, sem er notað
sem meðal við hugsanlegum
magakvillum á ferðum i sólar-
löndum. Þá er það einnig i maga-
lyfjunum mexaform, entestopan
og joklokinol.
Skyldu þessi lyf vera seld hér?
Frá skólunum í
Mosfellssveit
Innritun nýrra nemenda
fer fram i skólunum mánudaginn 24, mai
og þriðjudaginn 25. mai kl. 9 til 12 báða
dagana. Þess er fastlega vænst að þeir
sem gera ráð fyrir að flytjast i Mosfells-
sveit á þessu ári láti innrita börn sin
nefnda daga.
Barnskólinn á Varmá, simar 66154 og
66267
Gagnfræðaskólinn i Mosfeilssveit, simar
66186 og 66586
Skólastjórar