Þjóðviljinn - 23.05.1976, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 23.05.1976, Qupperneq 7
Sunnudagur 23. mai 1976 ÞJÓÐVILJINN — Stp'A 7 Karlakór Reykjavikur á tónleikum i Zagreb i Júgóslaviu 1973. Karlakór Reykjavíkur á fimmtugsafmæli Á þessu ári er Karlakór Reykjavíkur fimmtugur og verður haldið upp á afmælið nú í vikunni, dag- ana 27, 28. og 29. mai. í tilefni af þvi hefur kórinn boð- ið hingað til lands þrem karlakór- um erlendum,alls um 150 manns. Allir halda þeir tónleika fyrir styrktarfélaga kórsins, og með kórnum — verða þessir tónleikar þrir alls — á uppstigningardag. A föstudaginn, 28. mai, mun einn kórinn, hinn frægi Muntra musikanter frá Helsinki, halda sérstaka tónleika fyrir almenning i Háskólabiói. En norski kórinn Gulberg Akademiske kor frá Osló, mun halda tónleika i Mosfellssveit og amriskur kór, The Norwegian Singing Society frá New York, mun syngja á Keflavikurflugvelli. Þann 29. mai verður svo allmikið hóf á Hótel Borg. Karlakórinn mun koma fram á Norrænum músikdögum i Reykjavik að lokinni listahátið, og flytja þá m.a. nýtt verk eftir norska tónskáldið John Farsen, sem sérstaklega er fyrir kórinn samið. t haust mun kórinn flytja ásamt Sinfóniuhljómsveitinni Hátiðamessu Sigurðar Þórðar- sonar, sem var aðalhvatamaður að stofnun kórsins og söngstjóri hans i 36 ár. Stjórnandi kórsins er nú Páll Pamplicher Pálsson og hefur verið það siðan 1964. Formaður kórsins er Ragnar Ingólfsson. Lausar stööur Eftirtaldar stöður við fjármálaráðuneytið eru lausar til umsóknar: 1. Staða launaskrárritara. 2. Staða fulltrúa við launadeild. 3. Staða fulltrúa við skjalavörslu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 1. júni nk. Fjármálaráðuneytið, 21. mai 1976 Kennarar Kennarastöður eru lausar við Dalvikur- skóla n$esta vetur. Leikfimikennsla stúlkna æskileg. Umsóknarfrestur er til 4. júni næstkomandi. Upplýsingar veitir skólastjóri i sima 96-61140 eða 96-61162. 8) Læknaritari Stöður læknaritara við Borgarspitalann eru lausar til umsóknar. Góð undirstöðu- menntun svo og starfsreynsla æskileg. Umsóknir, á þar til gerðum umsóknar- eyðublöðum, skulu sendar skrifstofustjóra fyrir 1. júni nk. Reykjavik, 20. mai 1976 BORGARSPÍTALINN Ein umferð af þessari frábæru utanhúss- máfningu frá Málningu h/f jafngildir 3 til 4 umferðum af venjulegri plastmálningu. Hraun hefur ótrúlega góða viðloðun við flest byggingarefni og frábært veðrunarþol. Hraun fæst með tvennskonar áferð, — fínni eða grófri. HRAUN SENDIN PLASTMÁLNING málningbf argus

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.