Þjóðviljinn - 23.05.1976, Side 22
22 SÍÐA — ÞJÖÐVIIyJINN Sunnudagur 23. mal 1976
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík sem halda átti miöviku-
daginn 26.5. kl. 20.301 Lindarbæ er frestað til mánudagsins 31. mal.
Dagskrá: Stjórnin
Venjuleg aðalfundarstörf
AÍþýðubandalagið á Akranesi
Framhaldsaðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi og nágrenni
verður haldinn i Rein mánudaginn 24. mai kl. 21. Dagskrá: 1. Venjuleg
aðalfundarstörf. 2. önnur mál.
Ályktanir frá
láglaunaráöstefnu
Fyrri hluti ályktana ráðstefnunnar
birtist í síðasta miðvikudagsblaði
Stéttaskipting
Ráðstefna um kjör láglauna-
kvenna haldin að Hótel Loft-
leiðum 16. mai 1976 ályktar:
t stéttaþjóðfélagi er það
jafnan reglan að etja þeim
saman, sem i raun og veru hafa
sameiginlegra hagsmuna að
gæta. Með þvi er alið á stétta-
skiptingu og sundrung. Berjast
verður sameiginlega fyrir betri
kjörum og gegn stéttaskiptingu
á vinnustað og mismunun eftir
stéttum.
Skorað er á fjölmiðla að
kynna sér þá stéttaskiptingu
sem viðgengst á sjúkrahúsum
og viðar og láta að sér kveða i
baráttu gegn henni. Ráðstefnan
telur óeðlilegt að vissar stéttir
hafi forgangsrétt til að hafa
börn sin á dagheimilum sem
starfrækt eru við sjúkrahús eða
aðrar stofnanir og telur, að
tryggja verði að þar sem slik
barnagæsla er fyrir hendi sé
nægilegt rými til að ekki þurfi
að gera upp á milli starfsfólks.
Stéttarvitund
Ráðstefna um kjör láglauna-
kvenna haldin að Hótel Loft-
leiðum 16. mai 1976, skorar á
stjórnir verkalýðsfélaganna að
beita sér fyrir þvi, að gert verði
átak i að glæða stéttarvitund og
virkni i félögunum með reglu-
legum fræðslufundum og að
unnið verði markvisst að þvi að
efla trúnaðarmannakerfi
verkalýðsfélaganna.
óbreytt mjólkurdreifing
Ráðstefna láglaunakvenna,
haldin að Hótel Loftleiöum 16.
mai 1976 samþykkir einróma
það álit sitt, að mjólkurdreif-
ingarkerfi skuli haldast óbreytt
og að konur þær, sem starfa i
versiunum Mjólkursam-
sölunnar, verði ekki sviptar
starfi á sinum vinnustaö og tapi
i engu öryggi eða félagslegum
réttindum, sem þær hafa öðlast
með margra ára starfi. Ráð-
stefnan skorar á verkalýðssam-
tökin að standa fast að baki
þessara kvenna I baráttu þeirra
fyrir fullu atvinnuöryggi.
Fæðingarorlof
Ráðstefna um kjör láglauna-
kvenna haldin að Hótel Loft-
leiðum 16. mai, ályktar að
núverandi skipan, að fæðingar-
orlof kvenna i verkalýðs-
félögunum er greitt úr atvinnu-
leysistry ggingasjóði sé
óviðunandi og ófullnægjandi og
telur að allar konur eigi að njóta
fæðingarorlofs, er greitt sé af
almannatryggingum.
Skref afturábak
Ráðstefna um kjör láglauna-
kvenna, haldin að Hótel Loft-
leiðum 16. mai 1976, fordæmir
þá breytingu sem gerð var á
lögunum um þátttöku rikisins i
stofnun og rekstri dagvistunar-
stofnana, að fella niður hlut-
deild rikissjóðs i rekstrar-
kostnaði stofnananna og telur
það stórt skref afturábak. Ráð-
stefnan telur að varanleg lausn
á uppbyggingu nægilegra
margra dagvistunarstofnanna
fáist ekki nema riki og sveitar-
félög stofni þau og reki eins og
aðrar uppeldisstofnanir og
skóla þjóðfélagsins, svo aö öll
börn geti átt aðgang að þeim.
Ennfremur telur ráðstefnan
æskilegt að stéttarfélögin beiti
sér fyrir þvi að tekið verði inn i
kjarasamninga þeirra að
atvinnurekendur greiði ákveðiö
gjald i byggingasjóð dag-
vistunarstofnana, til þess að
flýta fyrir framkvæmdum.
Samningsrétt
handa Ijósmæörum
Ráðstefnan um kjör láglauna-
kvenna haldin að Hótel Loft-
leiðum 16. mai 1976, litur svo á,
að störf umdæmisljósmæðra
séu mjög mikilvæg, eins og heil-
brigðisþjónustunni er nú háttað
viðsvegar á landinu.
Ráðstefnan telur það alger-
lega óverjandi að i gildi skuli
lagabókstafur sem dæmir hóp
manna, frá samningsrétti eða
nokkrum afskiptum um kjör sin
og laun, svo sem gildir nú um
umdæmisljósmæður. Sjálfsögð
krafa er að launakjör skipaðra
ljósmæðra verði ákveðin með
kjarasamningum á sama hátt
og laun annarra opinbera
starfsmanna.
Heilalestur
Framhald af bls. 4.
Pentagon. Hann gaf ýmislegt til
kynna um heilalestaráætlunina i
árlegri skýrslu sem hann flutti
bandariska þinginu. Hann fór litt
út i smáatriði, en sagði nóg tíl
þess að ástæða þykir til að bera
fram ýmsar spurningar,
Til hvers má nota
þetta?
Til dæmis: væri hægt að nota
þessi kerfi til að lesa hug striðs-
fanga eða tíl að „hlera” heila ó-
breyttra borgara, sem eiga sér
| einskis ills von?
Sérfræðingar telia það reyndar
óliklegt. beir visa til þess, að mat
á heilalinuriti er einstaklings-
bundið. Svipaðar heilabylgjur
hafa mismunandi merkingu eftir
einstaklingum. Þvi er nauðsyn-
legt að fá fram visst grundvallar-
linurit fyrir hvern einstakling
(með þvi að láta hann hugsa um
vissa hluti i ákveðinni röð) áður
en hægt er að ráða fram úr viö-
. brögðum heila hans við nýjum
aðstæðum.
Einn visindamaður segir, að
það sé fljótgert og auðvelt að
meta EEG-merkin, en það verði
að gera sérstaklega fyrir hvern
einstakan.
Auk þess felur sú aðferð, sem
nú eru gerðar tilraunir með,
það i sér, að koma verður raf-
- skautum fyrir á höfði þess manns
sem „lesið er af”, og það er alla-
vega ekki hægt að gera svo leynt
fari.
Framtiðin
En i MIT (Massachuttes Insti-
tute of Technology) eru visinda-
menn að kanna segulbylgjur frá
heilanum, sem geta skráð linurit
rétt eins og þær rafbylgjur heil-
ans, sem nú er veriö að
mæla. Vlsindamenn sem starfa á
vegum „Framsækinna áætlana”
(ARPA) segja mögulegt, að ná
segulbylgjum i eins eða tveggja
feta fjarlægð frá höfði þess sem
skoðaður er — til dæmis með þvi
að koma^móttökutæki fyrir i baki
stóls þess sem viðkomandi situr i.
Spurt er: er hægt aö senda
þessar bylgjur um lengri veg en
sem svarar nokkrum fetum?
Einn þeirra visindamann sem
verður fyrir svörum segir sem
svo, að nú sé talað um fet, eða
nokkur fet. En allar tæknispár
hafa reynst rangar. Hver veit
hvað gerast mun i þessum efnum
á næstu öld?
I Rochesterháskóla vonast
visindamenn til að geta notað
heilabylgjur til að glíma við ýmsa
óreiðu og óvissu i málnotkun. Ef
að heilabylgjur, bæði þess sem
talar og þess sem hlustar, eru
sendarinn ieitt tölvukerfi, þá ætti
e.t.v. að vera mögulegtað komast
að þvi', hvort báðir skilja hvert
orð á sama veg. Tölvan mundi
gera vart við misjafna túlkun
orða.
Enginn veit enn hvert þessar
rannsóknir muni leiða. En það er
vitað, að eftir að EEG-merki hafa
verið ráðin af tölvu, þá ganga þau
inn á minnisbanka tölvunnar og
siðan er hægt að senda þau yfir
til annarra tölva. (byggt á IHT).
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu viö frá- fall eiginmanns mins, fööur okkar, tengdaföður og afa, Magnúsar Vigfússonar húsasmiðameistara, Stigahiið 42. Sólveig Guðmundsdóttir, Guðmundur Kr. Magnússon, Hólmfríöur Magnúsdóttir, Grétar Ólafsson, Vigfús Magnússon, Fanney Reykdal og barnabörn.
UTHOi)
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i lagningu dreifi-
kerfis i Keflavik 1. áfanga.
tJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja,
Vesturbraut 10A, Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f.
Álftamýri 9, Reykjavik gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja
miðvikudaginn 9. júni kl. 14.00
P0STSENDUM
TROLOFUNARHRINGA
jfoljanncs Hcifsson
i.nngnbcgi 30
é>imi 19 209
Pípulagnir
Nvlagnir, breytingar,
[hita\í‘itutengingar.
jSimi :5(i!)2í) (niilli kl.
l? og 1 og eftir kl.
7 á kvöklin).
tlnhaltl 4 Slmar 76677 og U7S4
dðSMM
bladió
semvitnaðerí
Áskriftarsími I 75 05
5 ára reynsla
SÓLARIS
Strimla-gluggatjöldin höfum við
framleitt fyrir flestar stærri bygg-
ingar. Athugið verð og gaeði
Rennibrautin mjög
Einungis
U('I7EPSAL
brautir notaðar.
gluggatjöld
Lindargötu 25- Símar 13743 og 15833
Áskriftarsími 175 05
Kaupfélagsstjóri
Starf Kaupfélagsstjóra við Kaupfélag
Tálknafjarðar er laust til umsóknar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist for-
manni félagsins Páli Guðlaugssyniy
Tálknafirði eða Baldvini Einarssyni,
starfsmannastjóra Sambandsins, fyrir 30.
þ. mánaðar.
Kaupfélag Tálknafjarðar