Þjóðviljinn - 23.05.1976, Qupperneq 23
Sunnudagur 23. maí 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Umsjón: |Vilborg Dagbjartsdóttir
Sagan af henni Kisu
Ég á kisu sem heitir Ósk.
Ósk er voða feit og einn
daginn var hún með voða
mikla kippi, og við héld-
um að hún ætlaði að fara
að gjóta, af því að hún
var svo feit. Við vorum að
fara í afmæli til afa okk-
arsem býr á Selfossi. Svo
bað pabbi mig að fara
fyrir sig í sendiferð, þeg-
ar ég kom aftur til baka
var kisa búin að gjóta ein-
um kettling, en þegar við
vorum búin að skoða
kettlinginn sagði mamma
okkur að fara út í bíl, því
að ferðin var löng. Bróðir
minn varð eftir til að
gæta að kisu.
Þegar við komum til
afa og ömmu um átta-
leytið föttuðum við, að
kettlingurinn átti afmæli
sama dag og afi.
Um tiuleytið hringdum
við heim til að spyrja
bróður minn hvort fleiri
kettlingar hefðu bæst við,
og voru þeir orðnir f jórir
að tölu.
Nokkrum stundum
seinna fórum við heim,
þá voru þeir orðnir f imm.
Eftir nokkra dagá
sagði mamma að kett -
lingarnir gætu ekki verið
lengur svo við ættum að
reyna að gefa þá, en eng-
inn vildi eiga þá, svo kom
stelpa og sagðist mega fá
kettling, en við þurftum
að losa okkur við hina
kettlingana, þá náði
mamma i lögregluþjón.
Meðan við vorum í skól-
anum kom lögreglu-
þjónninn og tók kettling-
ana og svæfði þá.
Skömmu seinna kom
stelpan og tók hinn með
sér heim.
Ásdis Geirsdóttir, 10 ára,
Þúfubarði 2,
Hafnarfirði.
KROSSGÁTAN
Krossgáta barnanna er
létt. I númeruðu reitun-
um byrja orðin. Það eru
bæði mynd - og orðskýr-
ingar. Skýringarorðin eru
prentuð fyrir neðan og
bera sömu tölu og tölu-
settu reitirnir, fyrst
lárétt (þversum) og svo
lóðrétt (langsum). Mynd-
in hjálpar til að finna
samheiti skýringarorðs-
ins.
SKÝRINGAR:
Lárétt: 1. ein af
árstíðunum fjórum
6ónothæfur8.|eit í blað, 9
drykkur, 10. hvíldi, 12
útbíað.
Lóðrétt: 1. guit blóm al-
gengt á túnum, 2. nafn, 3.
litil mús, 4. bardagi, 5.
nafn, 7. vond, 11. borðaði.
Idí áljónaveiðum
Eftir Gunni
Sigurgeirsdóttur,
7 ára,
Hraunbæ 36,
Reykjavík
IDÍ Á LJÓNAVEIÐUM
eftir Gunni Sigurgeirs-
dóttur, 7 ára, Hraunbæ 36,
Reykjavík
Gunnur var með pabba
sinum i vinnunni. Hún sat
og dundaði við að gera
klippimyndir á vinnu-
stofu hans. Myndirnar
litaði hún fallega. Afríku-
maðurinn Idi er kolsvart-
ur með stórar, rauðar
varir, Ijónið er gult og
spjótið Ijósbrúnt. Þessu
þrennu raðaði hún svo á
blað, eins og þið sjáið, og
pabbi hennar hjálpaði
henni til að I jósrita mynd-
irnar. Þetta er skemmti-
leg aðferð til að gera
myndasögu,og ekki alveg
ósvipað þessu fara menn
að, þegar þeir búa til
teiknimyndirnar sem þið j
horf ið á í sjónvarpinu eða
bió.
Stelpan er á sjó en strákurinn pilkar heima á bryggju.
Þóra Gunnarsdóttir, Skólavörðustig 33, Reykjavík,
sendi myndina. Þóra hefur oft sent Kompunni teikn-
ingar og var ekki nema sex ára þegar við fengum
fyrst bréf frá henni. Nú er Þóra orðin 8 ára.