Þjóðviljinn - 01.06.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 1. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Capablanca-mótið:
Guðmundur í 2.-3. sæti
Havana 31/5 reuter — Eftir að
tefldar hafa veriö 11 umferðir á
minningarmótinu um Capa-
blanca f Cienfuegos á Kúbu er
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari 12. — 3. sæti meö 6 og
hálfan vinning.
1 11. umferðinni vann Guð-
mundur sovéska stórmeistar-
ann Alexander Beljafski. Efsti
maður mótsins, sovétmaðurinn
Boris Gulko, gerði jafntefli við
tékkann Julius Kosma. Sviinn
Ulf Andersson sem unnið hefur
þetta mót tvivegis vann Alex-
ander Sznapik frá Pólandi.
Eftir 11 umferðir er staða
efstu manna þessi: 1. Boris
Gulko með 71/2 vinning, 2. — 3.
Guðmundur og Peev frá
Búlgariu með 6 1/2,4. — 5.
Razuvaéf frá Sovétrikjúnum og
Vogt frá Þýska alýðulýðveldinu
með 5 1/2 vinning og 6. — 7.
Beljafski og Andersson með
fimm vinninga.
Þessmá geta að allir þátttak-
endur sitja hjá i einni umferð og
hefur Guðmundur þegar gert
það en svo mun ekki vera um
ýmsa af nágrönnum hans i efstu
sætum.
Endurhæfingarstöð
Kópavogs á götunni
og engin lausn á húsnæðisleysinu er framundan
Endurhæfingarstöð Kópavogs
hefur nú um eins mánaðar skeið
veriðhúsnæðislaus og engin lausn
er ennþá framundan. Starfsemin
liggur að mestu niðri þótt tekist
hafi að koma nokkrum sjúkling-
um fyrir i húsnæði Lamaðra og
fatlaðra við Háaleitisbraut i
Reykjavik.
Endurhæfingarstöðin hefur
starfað um nokkurra ára skeið i
húsnæði Sparisjóðs Kópavogs, en
lengi hefur verið vitað að sú skip-
an mála væri ekki til frambúðar.
Sparisjóðurinn hefur tekiö hús-
næðið i eigin þjónustu og af hálfu
bæjaryfirvalda i Kópavogi hefur
ekki verið tekin ákvörðun um
hvert skuli flytja starfsemina.
Rætt er um framtiðarhúsnæði i
nýja miðbænum en nokkur ár
geta jafnvel liðið áður en sá
draumur rætist.
Langurbiðlisti hefur ávallt ver-
ið eftir meðhöndlun hjá Endur-
hæfingarstöðinni, sem einkum
þjálfar gamalt fólk þótt einnig
komi þar fólk i meðferð eftir slys
og veikindi. Er ekki að efa að enn
lengist leistinn á meðan starf-
semin liggur niðri að miklu leyti.
Að sögn Bergs Vigfússonar hjá
Sjúkrasamlagi Kópavogs, sem
séð hefur um rekstur stöðvarinn-
ar, hafa tveir sjúkraþjálfar unnið
i Endurhæfingarstöðinni, annar i
heilu starfi en hinn i hálfu. Þessa
stundina eruþeir báðir i vinnu
annart staðar. Bergur sagði það
há starfi sem þessu mjög, að
erfitt væri að fá sjúkraþjálfa til
starfa þar sem ekki væri um
neina menntunarmöguleika að
ræða hér heima og nám erlendis
dýrara en svo, að mönnum þætti
námið freistandi.
Bergur sagði alveg óráðið hvert
eða hvenær nýtt húsaskjól fengist
og tók jafnframt fram að unnið
væri að verulegum breytingum á
rekstrinum og þvi væri enn ekki
allt tilbúið til þess að byrja starfið
af fullu fullum krafti á ný.
— gsp
UNCTAD IV lokið:
Stefnt skal að....
Nairobi 31/5 reuter ntb — 1 morg-
un lauk fjórðu ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um þróunar— og
efnahagsmál (UNCTAD IV) en
hún hefur staðið yfir i Nairobi i
Kenýa undanfarnar vikur og ver-
ið framlengd um marga daga
vegna djúpstæðs ágreinings.
t lok ráðstefnunnar sagði full-
trúi Alsir að árangur hennar væri
siðferðilegur sigur fyrir þróunar-
löndin. En hann lagði þó áherslu á
að enn ætti eftir að fá riku löndin
til þess að framkvæma sam-
þykktir ráðstefnunnar.
Umræður um þann vanda sem
steðjar sifellt að þróunarlöndun-
um og birtist i miklum sveiflum i
hráefnaverði og eftirspurn iðn-
rikjanna eftir þeim skyggðu á
allt annað á ráðstefnunni. Þar
lögðu þróunarlöndin áherslu á
stofnun sjóðs sem hefði það hlut-
verk að vinna gegn áhrifum fyrr-
nefndra sveiflna á efnahagslif
fátækustu landa heims.
25 riki, þám. tvö af stærstu oliu-
útflutningsrikjum heims, Iran og
Saudi-Arabia, samykktu að
skuldbinda sig til að leggja fram
ákyeðið fjármagn til sjóðsins.
Auðvaldsheimurinn, sem taldi
24 lönd, var hins vegar klofinn i
tvennt i afstöðu sinni til sjóðstofn-
unar. Bandarikin, Bretland,
Vestur-Þýskaland og Japan af-
tóku með öllu að leggja fram fé i
sjóðinn fyrirfram. Af þessari
stifni hlutust fjölmargar deilur,
fyrst innan Efnahagsbandalags-
ins, þá meðal allra iðnrikjanna og
loks milli helstu talsmanna riku
og fátæku þjóðanna.
Loks skar fulltrúi Hollands á
hnútinn er hann lýsti þvi yfir fyrir
hönd 16 iðnrikja að þau væru
reiðubúin að taka þátt i gerð
heildaráætlunar um hráefnaverð
og þróun þess. Var þetta sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum. Eftir er að ganga frá
öllum smáatriðum varðandi
þessa áætlun en halda á aðra ráð-
stefnu um málið eigi siðar en i
mars á næsta ári.
Þess má geta að tillögum
Kissingers um aljóðlegan auð-
lindabanka var hafnað með at-
kvæðagreiðslu.
RÓDESÍA:
Stríðið magnast stöðugt
Salisbury 31/5 reuter — Tölur um
mannfall I striðinu I Ródesiu sem
hernaðaryfirvöld f Salisbury hafa
sent frá sér sýna glögglega hve
mjög átökin fara harðnandi milli
hersveita hvíta minnihlutans og
blakkra frelsissinna.
Samkvæmt þessum tölum féll
231 maður af völdum striðsins i
mai. Þar af voru 104 skæruliðar
og 18 stjórnarhermenn. Til við-
bótar voru 29 manns skotnir til
bana fyrir að brjóta gegn út-
göngubanni sem rikir i landinu og
80féllu af öðrum orsökum, flestir
af völdum jarðsprengja sem
komið hefur verið fyrir við landa-
mærin. 1 siðasttöldu hópunum
tveim eru eingöngu blökkumenn.
Nú er talið að 1.500 skæruliöar
taki þátt i bardögum innan landa:
mæra Ródesiu. Til viðbótar eru
þúsundir i þjálfunarbúðum i
Mósambik. Athyglin beinist nú
einna mest að þvi hvort Kenneth
Kaunda forseti Sambiu opnar
landamæri lands sins fyrir
skæruliðum en þau hafa verið
þeim lokuð.
Greinilegt er að striðið nær nú
til miklu stærri hluta landsins en
fyrrþvi til skamms tima var ein-
ungis getið um átök i landamæra-
héruðunum. Nú fréttist hins
vegar af átökum viðsvegar um
land og allt niður i 60 km fjarlægð
frá höfuðborginni Salisbury.
Striðið hefur sin áhrif á lif hvita
minnihlutans. Það hefur valdið
auknum erfiðleikum vegna al-
menns herútboðs, skattahækkun-
um og mikilli óvissu um fram-
tiðarhorfur hvita mannsins. Allt
saman hefur þetta leitt til mikils
landflótta hvitra manna og hefur
hann ekki verið meiri siðan hviti
minnihlutinn lýsti landið sjálf-
stætt i trássi við nýlenduveldi
breta árið 1965.
ÍTALÍA:
Enn harnar á
dalnum
Róm 31/5 reuter — Efnahags-
kreppan á ttaliu verður æ djúp-
tækari. t nýútkominni skýrslu frá
itölsku hagstofunni segir að
viðskiptahallinn sé nú nær þrefalt
meiri en I fyrra óg verðbólgan
geysar á uþb. 20% hraða á ári.
Viðskiptahallinn nam i april 708
miljörðum lira. Hallinn fyrstu
fióra mánuði ársins er þvi orðinn
rúmlega tvö þúsund miljarðar
lira en var 724 miljarðar á sama
tima I fyrra.
Verðbólgantókstökkfram á við
i april og nam 5.2% i þeim mánuði
einum. Verðlag i april var 20.1%
hærra en i aprfl i fyrra. Hluti af
skýringunni á þessari miklu verð-
bólgu er gengisfall lirunnar en
hún hefur fallið um 23% gagnvart
döllar það sem af er árinu.
Leiðtogi italskra kommunista,
Enrico Berlinguer, hélt þvi fram i
siðustu viku að stjórn kristilegra
leyndi raunverulegu efnahags-
ástandi i landinu fyrir almenn-
ingi, það væri mun verra en af
væri látið.
Sýning Jóhönnu
framlengd
Grafiksýning Jóhönnu Bogadóttur, i Galleri SCM sem ljúka átti um
helgina, hefur verið framlengdtil miðvikudagskvölds. Sýningin er opin
i dag og á morgun frá kl. 14 til 22.
Slysið i Eyjafjarðará:
Bílbelti var
ekki notað
Vegna fréttar i nokkrum fjöl-
miðlum um umferðarslys er varð
aðfaranótt laugardagsins 29. mai
á Eyjafjarðarbraut skammt
framan við Kristsnes er bifreið
lenti á hvolfi út- i Eyjafjarðará
þykir rétt að taka eftirfarandi
fram.
Við rannsókn á slysi þessu hef-
ur komið fram að fullvist er að
bflbeltið var ekki spennter slysið
varð. ökumaður bifreiðar mun
hins vegar hafa flækt sig i beltinu
er hann reyndi að komast út úr
bifreiðinni. Leiða má að þvi
sterkar likur að þegar bifreiðin
lenti á hvolfi i ánni hafi lykkja
beltisins flotið upp vegna þess að
beltiö var ekki notað. Það er þvi
algjörlega rangt sem komiðhefur
fram i frétt af atburði þessum að
ökumanni hafi ekki tekistað losa
lásinn á bflbeltinu.
Fréttir þær sem birst hafa hafa
þvi miður gefið alranga mynd af
atburði þessum og varða á engan
hátt mat á varnareiginleikum bil-
belta i umferðarslysum.
Rannsóknir sérfræðinga hafa
sannað að meiri likur eru á að
bjargast þegar bifreið lendir i
vatni ef ökumaður og farþegar
nota bilbelti.
Segir sig úr
kratabandalagi
London 31/5 reuter — Flokkur
Lee Kuan Yew sem fer mað völd
á Singapore sagði sig i gær úr al-
þjóðasamtökum sósialdemókrata
— 2. Intcrnationale — og til-
greindi þá ástæðu að evrópskir
bræðraflokkar vildu segja fyrir
verkum um stjórnarhætti á
Singapore.
Orsögnin fylgdi i kjölfar tillögu
um brottrekstur flokksins i Singa-
pore (RAP) fyrir grun um brot
gegn mannréttindum og fangels-
un pókitiskra fanga utan við lög
og rétt. Barst þessi tillaga frá hol-
lenska flokknum.
A fundi framkvæmdanefndar
samtakanna i gær var lesið upp
bréf frá Lee þar sem úrsögn var
hótað ef tillaga hollendinga yrði
ekki dregin til baka. Hollendingar
neituðu þvi og var þá lesin upp úr-
sagnarbeiðni PAP.
Á fundinum urðu nokkur orða-
skipti milli hollendinga og Devan
Nair fulltrúa PAP. Sakaði sá
siðarnefndi evrópska krataflokka
um að treysta um of á fréttaflutn-
ing kommúnista frá Suöaustur-
Asiu. Kvað hann einu ástæðuna
fyrir kæru hollendinga vera þá að
yfirvöld i Singapore neituðu að
sleppa úr haldi fóki sem styddi
vopnaðar byltingartilraunir
kommúnistaflokks Malasíu. Nú
væri 64 i haldi fyrir þessar sakir,
af þeim hafa 42 verið handteknir
eftir sigur frelsisafla i Indókina i
fyrra.
Framkvæmdanefndin neitaði
að taka úrsögnina til greina og
verður hún rædd á næsta fundi
nefndarinnar 11. september nk.