Þjóðviljinn - 01.06.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 01.06.1976, Blaðsíða 10
10 Sil).\ — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. júni 1976. Ingunni vantar aðeins herslu- muninn í Ol-lágmarkið! en Elíasi Sveinssyni mistókst í tugþrautinni Ingunn Einarsdóttir náði mjög góðum árangri á Meistaramóti islands í fimmtarþraut um helgina. Hana vantaði aðeins örfá stig í íslandsmet Láru ' Sveinsdóttur og sömuleiðis virðist stutt f Olympíulág- markið/ sem er 3.900 stig. Ingunn náði 3.751 stigi að þessu sinni og smábæting í verstu greinunum myndi lyfta henni upp fyrir Ol - lágmarkið á svipstundu. Ingunn byrjaði á 100 m. grinda- hlaupi og fékk timann 14.3 sek. Betri timi en gildandi íslandsmet hennar en meðvindur mæidist of mikill og timinn þvi ekki löglegur sem met þött hann fáist staðfest- ur i fimmtarþrautinni. Ingunn kastaði siöan kúlunni 8.78 metra, stökk 1.60 i hástökki og jafnaði eigið tslandsmet i 200 m. hlaupi, hlaut timann 25.0 sek. í öðru sæti varð Erna Guð- mundsdóttir með 3.486 stig, sem er 83 stigum betri en fyrri árang- ur hennar. Þriðja sætið hlaut Kristin Björnsdóttir Breiðabliki með 2.970 stig. Elias vann en mistókst samt Elias Sveinsson freistaði þess að ná Olympiulágmarkinu i tug- þraut en gekk ekki sem skyldi að þessu sinni og var iangt frá sinu besta þótt hann hlyti fyrsta sætið i keppninni. Hann fékk meira en 1000 stigum minna en hann hefur náð sem besta árangri. Um helg- ina fékk hann 6.274 stig en á best 7.320 stig. Elias hefur átt við meiðsli að striða og segist stað- ráðinn i þvi að ná sér betur upp i næstu tilraun, en það verður i Póllandi dagana 12. og 13. júni. Mistakist honum þá er eina vonin um 01 — lágmarkið á Meistara- mótinu i frjálsum, sem fer fram 19. og 20. júni. Sextán keppendur voru skráðir til leiks i tugþrautinni en aðeins sjö luku keppni. Elias náði eftir- töldum árangri: lOOm.hlaup 11.2 sek. langstökk 6.17 m., kúluvarp 13.75m, hástökk 1.85 m, 400 m. hlaup 54.3 sek, 110 m grindahlaup 15.5 sek., kringlukast 38.86 m., stangarstökk 3.50 m., spjótkast 49.50 m. og 1500 m. hlaup 6.23.6. min. Annar i tugþrautinni varð Jón Sævar Jónsson með 5909 stig og þriðji Björn Blöndal með 5550 stig. Sjálfsmark eftir 10 sekúndur og ísfirðingar náðu sér ekki á strik og töpuðu 0:2 fyrir IBV Það liöu ekki nema 10 sekúndur af leik ÍBÍ og IBV I 2. deildar keppninni sl. sunnudag þar til boltinn lá I neti ÍBt-marksins og þaö var einn af varnarmönnum ÍBÍ sem skoraði rnarkið. Auövitaö var þetta mikiö áfall fyrir hiö baráttuglaöa isafjaröar- liö sem hefur komið á óvart I vor meö ágætum leikjum og eyja- menn náöu undirtökunum i leiknum og sigruðu 2:0. Siðara mark þeirra skoraði Tómas Pálsson, sú gamla kempa, sem lengi hefur verið markakóngur þeirra eyjamanna. Vestmannaeyingjar hafa nú lokið 31eikjum 1 i 2. deild og unnið þá alla, og virðist ljóst að þeir fara upp i 1. deild aftur I haust. Þeir eru greinilega sterkastir allra i 2. deild i ár, og kemur það raunar ekki á óvart. Þrumuskot Jóns færði Ármanni bæði stigin Þrumuskot frá Jóni Hermanns- syni á 13. min. seinni hálfleiks færöi Ármanni bæöi stigin úr leiknum gegn Haukum, sem var afar þýöingarmikill fyrir bæöi liöin. Jón skoraöi beint úr auka- spyrnu meö vinstrifótar skoti, sem smali i þverslána og siöan inn fyrir marklinu. Þar meö var staöan orðin 2:1 fyrir Ármann og tókst hafnfiröingum ekki aö jafna metin þrátt fyrir ákafar tilraunir. Það voru Haukar sem skoruðu fyrsta markið. Var það á 30. min. að Guðmundur Sigmarsson skoraði úr þvögu. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks jafnaði Birgir Einarsson með skalla eftir hornspyrnu frá Jóni Hermanns- syni, sem sjálfur skoraði svo sigurmarkið. Armenningar misstu leikinn nokkuö niður, eftir að hafa náð forystunni og lögöust i vörn. Haukarnir sóttu eftir það nokkuð stlft,en án árangurs, og urðu þvi að sjá af tveimur stigum. Bjarni Bjarnason, vinstri bakvörður Breiðabliks, stöövar hér Arna Guðmundsson inni I vitateigi blikanna. Fjær sést 1 Þór Hreiöarsson fylgjast meö. Mvnd: —gsp. Breiðablik—KR 0:0 Blikarnir náðu í fyrsta stigið Breiða bliksmenn fengu sitt fyrsta stig i 1. deildinni sl. laugardag er þeir gerðu 0—0 jafn- tefli við KR á hinum nýja grasvelli kópa- vogsbúa. óneitanlega þótti mörgum sem þetta eina stig væri nokkuð ódýrt fengið, ekki sist eftir mikinn sóknar- þunga KR-inga upp úr miðjum seinni háifleik. eina umtalsverða marktækifærið var þegar Arni Guðmundsson stóð einn og óvaldaöur á vítapunkti meðboltann iskotfæri. Þrumuskot hans stefndi undir markslána.en Ólafur Hákonarson i marki Breiðabliks bjargaöi lag- lega með þvi að gripa boltann. 1 siðari hálfleik var áfram bar- ist, Breiðablik með spilið sitt og KR með kraftinn. Vignir Baldurs- son komst fyrstur á blaö eftir hlé með stórglæsilegt skot viðstöðu- laust frá vitateigshorni. Boltinn stefndi i samskeytin fjær, en Magnúsi markverði tókst aö bjarga á elleftu stundu. Skömmu siðar átti Olafur Ólafsson hörkuskalla aö marki Breiðabliks frá markteigslinu en Ólafur Hákonarson varði. Upp úr þvi sótti KR öllu meiraog oft skall hurð nærri hælum. Undir lokin tóku blikarnir sig slðan saman i andlitinu, rifu sig upp úr sóknar- pressu KR-inga og ógnuðu nokkuö. En leiknum lauk meö mark- lausu jafntefli þrátt fyrir nokkur sæmileg tækifæri. Markveröirnir komu báðir vel frá sinum hlut- verkum. t liði Breiðabliks bar mest á þeim Einari Þórhallssyni i vörninni, Vigni Baldurssyni og Gisla Sigurðssyni á meðan hans naut við, en hann meiddist og varð að yfirgefa völlinn um Framhald á bls. 14. Engu að siður voru það blikarnir sem reyndu ávallt að láta boltann ganga og sýna skemmtilegt samspil. Þeim tókst það enda betur en reykvikingum sem komu á móti með mikinn baráttukraft og snerpu. Eins og oft áöur var það krafturinn sem haföi yfirhöndina, KR-ingar voru nær þvi aðskora þegar á heildina er litið. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og litið um tækifæri. Breiða- bliksmenn sóttu þá öllu meira, en KA skoraði 5 mörk á Árskógströnd KA skoraði hvorki meira né tvisvar að svara fyrir sig. Uröu minna en fimm mörk hjá sjó- lokatölur leiksins þvi 5:2 fyrir mönnum frá Árskógströnd um akureyringa. helgina, og náöu þeir aöeins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.