Þjóðviljinn - 16.06.1976, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJODVIL.MNN MiOvikudagur 16. júnl 1976
öonrp
Skrifið
eða
hringið.
Sími: 17500
Undanhald
samkvœmt
áœtlun
Forsætisráðherrann er bara
prunkinn yfir rikisstjórninni
sinni og frammistööu hennar,
ekki sist hlut sjálfstm., sem von
er. Hann hefur nýlega sagt okk-
ur frá þvl, að henni hafi tekist að
„tryggja varnir landsins” svo
að við þurfum ekki að hafa
áhyggjur af ógnarflotanum úr
austri. Og henni hefur auðnast
að færa landhelgina út I 200 mil-
ur og samið við breta um að nú
skuii Efnahagsbandaiagið
semja við okkur næst. Þannig
hafa tvö af þeim stefnumálum,
sem ,,viö sjálfstæöismenn”
lögðum áherslu á að koma i
framkvæmd, þegar ólafur
myndaði rikisstjórnina, fengið
farsælan endi. Eftir er aðeins
eitt af þrennu: að greiöa úr
efnahagsfiækjunni. En það
kemur, sjáiði bara til.
Einhvernveginn er það nú
svo, að hinn stjórnarflokkurinn
er öllu hljóðari um afrekin. A
þeim bæ er minna talað um
„verndina”, enda er það
kannski dálitið úrhendis fyrir
menn, sem voru komnir á flug-
stig með að gera landið varnar-
laust og afhenda það þar með
rússum til fullrar eignar og
umráða. Það er þvi hyggilegast
að hafa bara yfir, og þá sem
hljóðlegast, trúarjátninguna um
„friðartimana”. Þvi verður
hvort sem er ekki neitað, aö það
er þó orðið „klassiskt” stef.
Timinn verður einnig hálf
kindarlegur á svipinn, þegar
Geir er að þakka ihaldinu alla
„sigra” i landhelgismálinu.
Segist ekki vita betur en aö upp-
haf landhelgisbaráttunnar sé að
rekja til samþykktar flokks-
þings framsóknarm. 1946. Siöan
hafi landhelgin þrisvar verið
færð út fyrir frumkvæði rikis-
stjórna,sem framsóknarm. hafi
veitt forystu. Og þó að Geir eigi
að heita forsætisráðh. I núver-
andi stjórn þá sé það nú i fyrsta
lagi fyrir náð Ölafs og i öðru lagi
hafi baráttan nú „mjög hvilt á
herðum” þeirra Einars og
ólafs, annar hafi stjórnað „út á
við ” en hinn „inn á viö”. Sem
sagt: skipting út á við og skipt-
ing inn á við, eins og á gömlu
dönsunum. Vonandi tekst þeim
þó að jafna þessa deilu meö sér i
rikisstjórninni.
Þegar illa liggur á Timanum
þá er það i rauninni aðeins eitt,
sem hann telur rikisstjórninni
til gildis: Hún hafi þó komið i
veg fyrir atvinnuleysi. Segjum
það. Ekki veröur nú samt annað
skilið á þingeyska bóndanum,
sem fær birta eftir sig grein i
Timanum 23. mai, en að honum
sýnist að einnig atvinnan standi
á brauðfótum. Hann segir:
„Mörgum þykir rikisstjórnin
ráðafá, en hún telur sig hafa
komið i veg fyrir atvinnuleysi.
Flýtur á meðan ekki sekkur,
segir gamall málsháttur. Meö-
an lifað er á takmarkalausum
erlendum Iánum, fengnum út á
beint eða óbeint veð i sjálfstæði
þjóðarinnar, er þetta engin
kúnst. Þegar stóra pennastrikið
kemur er hætt við að litið verði
um úrræöi hjá þessum mönn-
um”.
Og þó. Ef að hörfa þarf úr
fremstu viglinu þá er gott til
þess að vita, að geta búist um
við þá næstu. Eða er ekki eitt-
hvaö til, sem nefnt hefur verið,
á finu máli: hæfilegt atvinnu-
leysi. Það er „geysi hagleg
geit”, ekki sist fyrir þann eigin-
leika að geta verið talsvert
teygjanleg. Þaðer þvi alltaf von
til þess, ef aö þvi kæmi, að rikis-
stjórnin gæti ekki lengur talið
það til afreka sinna að „tryggja
fulla atvinnu” þá geti hún þó
hælt sér af þvi, að tryggja hæfi-
legt atvinnuleysi.
Glúmur
Opið hús hjá
mormónum
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi bréf, sem aö sjálfsögðu er
stilað til allra reykvikinga:
„Yður er hér með vinsamlega
boðið að sækja „Opið hús”, sem
haldið verður i Háskóla tslands-
, i Lögber gi, - dagana 17., 18., og
19. júni, milli kl. 2:00 og
10:00 e.h.
Okkur væri mikill heiður af
nærveru yðar' i þessu „Opna
húsi ” okkar, ef þér hefðuð ein-
hverja stund aflögu. Við munum
sýna litkvikmyndir, litskugga-
myndir, likön, myndasögur,
einnig stuttir fyrirlestrar, sýn-
ingar og annað það, sem þér
mættuð njóta eins og timi yðar
leyfði. Næstum allt þetta efni
verður flutt á islenskri tungu.
Kirkja Jesú Krists af siðari
daga heilögum (Mormóna-
kirkja) á tslandi, annast alla
framkvæmd þessa. Þetta er
okkar framlag til þess aö halda
hátiðlegan þjóðhátiöardag ts-
lendinga.
Við viljum bjóða yður að taka
með yður konu yðar, fjölskyldu
og vini, til að þau megi njóta
þess með yöur, sem við höfum
upp á að bjóða.
Við færum yður bestu kveðjur
okkar og óskir til yðar um
áframhaldandi velgengni og
viljum um leiö nota þetta tæki-
færi til að láta yður vita að við
metum mikils og erum þakklát
fyrir hinar ánægjulegu og vin-
samlegu móttökur, sem við höf-
um fengið hér á landi.
Virðingarfyllst,
Byron T. Gislason.”
nirin.i ■
...r.
*3.
■ ....
I I '
f 2s > t
*?■ »
jBf m
m
«si3
ftl
Blönduós.
5* : i i j
wm
I r* il
■ ..
Frá Blönduósi:
Horfir vel með
hitaveitu
— Já, kauptúniö á bráðlega
hundrað ára afmæli. Hinn 1.
janúar 1876 var Blönduós lög-
gillur sem verslunarstaður og
meiningin er að þess verði
minnst með nokkrum
hátföahöldum 3. og 4. júli, n.k.
Þannig mælti Jón isberg, sýslu-
maður á Blönduósi i viðtali viö
blaðið fyrir helgina.
— Lúðrasveitin okkar, sem
stofnuð var fyrir þremur árum,
æfir af miklu kappi i tilefni
afmælisins, en hún er undir
stjórn Arnar óskarssonar, tón-
listarkennara. Aðkomumaður,
Jón Sigurðsson að nafni,
aðstoðaði við að koma lúðra-
sveitinni á fót á sinum tima.
Annars er undirbúningur þessa
afmælis ekki fyrst nú að hefjast.
Nokkuð er siðan við byrjuðum á
þvi að græða upp melana hér i
kring og þeir hafa þegar tekið
verulegum stakkaskiptum. Það
myndirðu best sjá ef þú flygir
hér yfir. Þetta er nú okkar
„græma bylting”, sem nú er i
tisku að tala um og er liður i þvi
að minnast afmælisins, og
kannski ekki sá ómerkasti.Við
getum svo, að öðru leyti, talað
um afmælið seinna.
Raunar er nú hitaveita fyrir
Blönduós okkar mesta "áhuga-
og hagsmunamál um þessar
mundir. Við erum að bora eftir
heitu vatni hjá Reykjum á
Reykjabraut, og litur vel út með
árangur af þvi. Veriö er nú að
bora aðra holuna og fer vatns-
magnið vaxandi. Búið er að fá
15-20 sekúndulitra af 70 stiga
heitu vatni,en við þurfum að fá
að minnsta kosti 27 sek.l. og það
vatn þarf aö vera 70 stiga heitt,
komið á leiðarenda. Sýnist allt
útlit vera á þvi að sá árangur
náist.
Þá er verið að hefja fram-
kvæmdir við hraðbrautina
gegnum kauptúnið, en á þvi
verki var nokkuð byrjað i fyrra.
Töluvert er og um bygginga-
framkvæmdir.
Atvinna er þvi sæmileg.en þó
tæpast nóg fyrir unglinga og
kvenfólk. Prjónastofan bætir þó
þarna nokkuð úr fyrir kven-
fólkið en hér eru flikurnar
prjónaðar og svo saumaðar
annarsstaöar. Fatnaður þessi er
hinn ágætasti og eftirsóttasti út-
flutningsiðnaður.
Flug hefur nú hafist á ný og er
að þvi stórfelld samgöngubót.
Við vorum mjög óánægðir með
að þaö skyldi leggjast niður um
nokkurt skeið, þvi það er nú einu
sinni svo, aö þegar menn eru
komnir á eitthvað gott þá vilja
menn ógjarna sjá af þvi aftur.
Hér er blátt áfram stórkost-
lega gott veður dag hverr og sér
það lika á gróðrinum. —mhg.
ÍSmls