Þjóðviljinn - 16.06.1976, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Þjóöhátíð í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Akranesi
„Svarti Örninn” fer
fyrir skrúðgöngu á
17. júní í Reykjavík
17. júni hátiðahöldin i Reykja-
vik hefjast að venju með þvi að
blómsveigur verður lagður að
leiði Jóns Sigurðssonar i kirkju-
garðinum við Suðurgötu og mun
Lúðrasveit Verkalýðsins leika við
það tækifæri. Bryddað verður upp
á þeirri nýjung að hafa siðdegis-
skemmtun sem hefst skömmu
eftir að barnaskemmtun á Lækj-
artorgi lýkur og verður þar ein-
göngu um hljómlistarflutning að
ræða.
1 Árbæjar- og Breiðholtshverfi
verða að venju sérstök hátiðar-
höld, en æ meiri áhersla er lögð á
að vanda tilþeirrar dagskrár sem
boðið er uppá i úthverfunum, ekki
sist vegna þess vanda, sem skap-
astmyndi ef öllum reykvikingum
yrðistefnt til miðbæjarinsá þess-
um hátiðisdegi.
Tæknileg vandamál eru mörg i
sambandi við framkvæmd hátið-
arhalda á borð vií þessi og mörg
nokkuð skemmtileg, þ.e.a.s. þeg-
ar þau hafa verið leyst. Eitt kom
t.d. upp i Breiðholtinu. Þar verð-
ur m.a. gengið eftir Breiðholts-
braut,-sem er nokkuð brött, eða
a.m.k. nógu brött til þess að
lúðrasveitin taldi ekki nokkum
möguleika á þvi að ganga upp
brekkuna, blása i hljóðfærin um
leið og halda takti þar i ofanálag.
Var þvi brugðið á það ráð að
skreyta vagn einn fagurlega og
láta hann flytja hljómsveitina
upp brekkuna.
Þess má geta að vélhjólaklúbb-
urinn „Svarti örninn” mun fara
fyrir Breiðholtsgöngunni og mun
það vera i fyrsta sinn sem skelli-
nöðrur eru hafðar i fararbroddi á
17. júni. Auk þeirra leiða skátar
og iþróttafólk gönguna ásamt
lúðrasveit.
Hátiðarhöldin á Lækjartorgi
byrja að þessu sinni seinna en
venjulega og er það gert til þess
að mæta óskum margra, sem um
það hafa beðið, aö þvi er Már
Gunnarsson, formaður Þjóð-
hátiðarnefndar, sagði frétta-
mönnum i gær. Um 20 sölutjöld
verða i miðbænum og voru
félagasamtök látin hafa forgang i
úthlutun „versiunarleyfanna”.
Ekki er reiknað með að unnt
verði að útvarpa frá skemmtun-
inni á Lækjartorgi vegna yfir-
vinnubanns fréttamanna hljóð-
varpsins. Fjallkona verður Helga
Bachmann. _gSp
Meiri- og minni-
hlutinn keppa í
pokahlaupi
Þjófthátiðin i Hafnarfirði hefst
• meft þvi aft fánar verfta dregnir aft
húni kl. 8. Kl. 10 sýnir Siglinga-
kiúbburinn Þytur i höfninni og
kynnir athafnasvæfti sitt við
Arnarvog frá 11 til 12. Kl. 10
verftur Hús Bjarna Sivertsen opn-
aft. Hátiftarguftsþjónustur verfta i
báðum kirkjunum kl. 14 og kl. 15
verftur farin skrúftganga frá
Þjóftkirkju um Strandgötu,
Reykjavikurveg og Arnarhraun
til Hörftuvalla. Lúftrasveit
Hafnarfjarftar leikur i broddi
fylkingar. Stjórnandi er Hans
Ploder.
Kl. 15.30 verður útisamkoma
sett á Hörðuvöllum, af Snorra
Jónssyni. Hátiðarræðu flytur
Ólafur Halldórsson, handrita-
fræðingur. Avarp fjallkonunnar
flytur Sigurveig Hanna Eiriks-
dóttir. Tóti trúður kemur i heim-
sókn og stúlkur úr Fimleikafélag-
inu Björk sýna ásamt tveimur
fimleikamönnum. Þá er
skemmtiþátturinn „Gunna og
Nonni”, sem leikararnir Guðrún
Asmundsdóttir og Jón Hjartarson
flytja við undirleik Carl Billichs.
Þá keppa meiri- og minnihluti
bæjarstjórnar i pokahlaupi.
Ókeypis kvikmyndasýningar
verða fyrir börn i báðum kvik-
myndahúsum bæjarins kl. 17.15
og eru miðar afhentir i iþrótta-
húsi Lækjarskóla frá 13.30 til 15.
Kl. 17.15 keppa Haukar og FH um
17. júni bikarinn i handbolta. 1
leikhléi verður knattspyrnu-
keppni milli stúlkna úr Suður- og
Vesturbæ.
Um kvöldið verður skemmtun
við Lækjarskóla, þar sem Ómar
Smári Armannsson, nýstúdent
flyturávarp, Lúðrasveitin leikur.
Eirikur Sigtryggsson stjórnar
blönduöum kór úr Hafnarfirði,
Jörundur Guðmundsson flytur
gamanmál Loks leikur hljóm-
sveit Þorsteins Guðmundssonar
frá Selfossi nýju- og gömlu
dansana til kl. 12.30.
Fjölbreytt
dagskrá á
Akranesi
Dagskrá 17. júni hátiða-
haldanna á Akranesi er þessi:
Klukkan tiu hefst 17. júni hlaup á
vegur UMF Skipaskaga. Kl. 13
Framhald á bls. 14.
Öperusöngur með Skóla-
hljómsveit Kópavogs
17. júni hátiðarhöldin i Kópa-
vogi verða með svipuðu sniði og
undanfarin ár og hefur veriö
vandað hið besta til dagskrárinn-
ar, sem Skólahljómsveit Kópa-
vogs sett saman. Hefur
lúðrasveitin annast alla skipu-
lagningu dagsins fyrir kópavogs-
búa og sóst undirbúningsstarfið
vel.
Meðal dagskráratriða er óperu-
söngur þeirra Sigriðar Ellu
Magnúsdóttur og Guðmundar
Jónssonar við undirleik Skóla-
hljómsveitarinnar, en næsta fátitt
mun vera að slikri tónlist sé
blandað saman. Er þetta i fyrsta
sinn sem Sigriður Ella syngur við
undirleik lúðrasveitar.
Hátiðarhöld hefjast við Kópa-
vogshæli kl. 10 árdegis; þar leikur
Skólahljómsveitin, en klukkan
10.30 hefst viðavangshlaup skól-
anna i bænum og koma iþrótta-
mennirnir i mark á hátiðar-
svæðinu.
Kl. 13.30 verður farið i skrúð-
göngu undir forystu skáta og
Skólahljómsveitarinnar, en þá
stjórnar Guörún Lóa Jónsdóttir
hljómsveitinni. Göngunni lýkur á
Rútstúni og þar hefst hátíðardag-
skrá kl. 14.00.
Jón Guðlaugur Magnússon,
bæjarritari, setur hátiöina, Þór
Magnússon, þjóðminjavörður,
flytur ræðu, nýstúdent ávarpar
hátíðargesti og margir af vinsæl-
Óperusöngur og lúörasveitar-
blástur er blanda sem krefst
nokkurra æfinga og þessi mynd
var tekin á einni slikri I fyrra-
kvöld. Fremstur er Björn
Guðjónsson stjórnandi Skóla-
hljómsveitar Kópavogs, en
einnig sést i þau Sigriði Ellu og
Guðmund Jónsson auk krakk-
anna i hljómsveitinni. Mynd: eik.
Sumarferð Alþýðubandalagsins 27. júní
Skoðuð verða mestu mannvirki
á Islandi
Hér sést hin tröllaukna stifla ofan vift Sigöldu, en hún er lögft malbiki aft utanverftu. i horninu sést hvar
verift er aft malbika.
Þáttakendur i Alþýðubanda-
lagsferðinni sunnudaginn 27.
júni nk. geta látið skrá sig á
skrifstofu Alþýðubandalagsins
Grettisgötu 3.
Siminn er 28655. Æskilegt er
aö miðarnir verði sóttir fljót-
lega en fargjaldið, sem er
ótrúlega lágt, er 1800 krónur
fyrir fullorðna en 900 krónur
fyrir börn. Mæting er kl. 7.30 á
sunnudagsmorgni og reiknað er
með að komið verði heim um 9-
leytið um kvöldið. Aðalfarar-
stjóri verður Þór Vigfússon
menntaskólakennari en i hverri
rútu verða úrvals leiðsögu-
menn. Alþýðubandalags-
ferðirnar eru með þeim
skemmtilegustu sem farnar eru
og hefur verið mjög fjölmennt
undanfarin ár.
Að þessu sinni verður farið
austur fyrir fjall, yfir Þjórsár-
.brú og upp Land, þaðan sem leið
liggur upp að Sigöldu, og Þóris-
vatni og um Þjórsárdal, Hreppa
og Skeið til baka. Lengst verður
stoppað I Drætti, ööru nafni
Galtalækjarskógi, en þar er
unaðsfagurt i skjóli við drottn-
ingu eldf jallanna, Heklu.
Meðal þess sem skoðaö
verður vandlega núna eru
virkjunarframkvæmdir við Sig-
öldu og Þórisvatn. Munu verk-
fræðingar við Sigöldu taka að
sér að fræða fólk um þessar
risavöxnu framkvæmdir.
Framkvæmdir hófust 1973 og
fyrsti áfangi verður tekinn i
notkun núna i nóvember i ár.
Stiflað er yfir gljúfrið og
hraunið ofan við Sigöldu og
vatninu veitt um göng I
aðrennslisskurð, mikið mann-
virki sem fólki gefst kostur á að
lita ofan i, og þaðan um þrýsti-
vatnspipur að stöðvarhúsi, sem
grafið er inn i hliöina við
Sigöldu, norðan Tungnaár. Frá
stöðvarhúsi er frárennslis-
skurður út i ána rétt neðan við
núverandi brú yfir Tungnaá.
Nýtanleg fallhæð er 74 metrar.
Lónið sem myndast við stifluna
verður um 175 miljón rúm-
metrar. Aðalstiflan verður um
920 m löng grjótstifla, lögð
malbiki vatnsmegin, 38 m há i
gljúfrinu, þar sem hún er hæst
og rúmmál hennar veröur um
1,3 milljón rúmmetrar.
Aðrennslisskurðurinn verður
580 metra langur, 10 m breiður I
botni og 24 m djúpur frá hæsta
vatnsboröi. tJr aðrennslisskurði
verður vatnið leitt i stál-
fóðruðum þrýstivatnspipum að
stöövarhúsi, einni fyrir hverja
vél.
Stöðvarhús veröur gert fyrir
þrjár vélasamstæöur sem hver
um sig verður 50.000 kW.
Það er ekki að efa að allir fá
eitthvað við sitt hæfi i Alþýðu-
bandalagsferðinni. Sumir geta
skoðað mestu framkvæmdir á
íslandi, sumir unað sér i fagurri
náttúru, sumir litið á merkar
fornminjar i Þjórsárdal og
viðar eða yljað sér viö upprifjun
á sögu lands og þjóðar.
—GFr