Þjóðviljinn - 16.06.1976, Side 10

Þjóðviljinn - 16.06.1976, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 16. júni 1976 17. júní-mótið í sundi: Vilborg og Þórunn íbaráttu við Ólympíulágmörkin 17. júnímótiö i sundi hefst á morgun í sund- laugunum í Laugardal kl. 15.30. A þessu móti munu Vilborg Sverrisdóttir og Þórunn Alf reðsdóttir keppa að því að ná ÓL- lágmörkunum, í 100 m. flugsundi og 100 m. skrið- sundi, en þær eru báðar mjög nærri þeim. Annars hefst islandsmótið í kvöld og þar eiga þær einnig möguleika á að ná lág- mörkunum í 200 m. flug- sundi og 200m. skriðsundi. En á mótinu á morgun verður keppt i eftirtöldum greinum: 100 m flugsund karla 100 m flugsund kvenna 50 m baksund telpna 14 ára og yngri 50 m bringusund sveina 14 ára og yngri 100 m skriðsund karla 100 m skriðsund kvenna 4x100 m skriðsund karla Einnig verður keppt i boðsundi (frjáls aðferð) á milli þjálfara - sundmanna og sundknattleiks- manna. Að lokum verður keppt í sundknattleik milli tveggja úrvalsliða. Þvi miður hefur verið ákveðið að 17. júnímótið i frjálsiþróttum fari fram á Melavellinum i Reykjavik, en ekki á Laugardals- vellinum eins og verið hefur undanfarin ár og ástæðan sögð vera sú að Laugardalsvöllurinn sé i viðgerð. Það er rétt að gert var við völlinn i vor. en þeirri við- gerð er löngu lokið, völlurinn orð- inn eins fallegur og hann getur orðið og búið að slá grasið á hon- um marg-oft. Þessi færsla á mót- inu yfir á Melavöllinn verður til þess að minni von er um góð afrek en ef mótið hefði farið fram á Laugardalsvellinum, en nú riður á fyrir frjálsiþróttafólk okkar að halda sem flest mót við sem bestar aðstæður. En nóg um það þær greinar sem keppt verður i á 17. júni mótinu, sem hefst raunar i kvöld verða þessar: 110 m grindahlaup -200mhl. -200 m hl. kvenna - 1500 m hl.- Þrístökk - Hástökk - Kringlukast - 1000 m boðhlaup - Langstökk kvenna - Kringlukast kvenna. A þjóðhátíðardaginn verður keppt i þessum greinum: Þórunn á möguleika á 17. júnl á morgun og íslandsmótinu I kvöld. 100 m grindahl. kvenna -100 m hl. kvenna - 400 m hl. kvenna - 800 m hl. kvenna - Hástökk kvenna - Spjótkast kvenna - 4x100 m boðhl. kvenna -100 m hl. - 400 m hl. - 800 m hl. - Kúluvarp - Langstökk - 4x 100 m boðhl. karla. Ástvaldur brattastur í stangaköstunum Astvaldur Jónsson sýndi yfir- burðastyrkleika á lslandsmótinu I stangaköstum, sem haldið var á kastvellinum i Laugardal um siðustu helgi. Hann sigraði i fjórum greinum af sex, varð annar I fimmtu og sjöttu greininni og sjötti I þeirri siðustu. Islandsmeistari varð þvi Ast- valdur Jónsson, en röð keppenda varð þessi: Astvaldur Jónsson 9653 stig Ásgeir Halldórsson 8715 stig Bjarni Karlsson 6015 stig Þórður Jónsson 4992 stig Völundur Þorgilsson 4610 stig Baldvin Haraldsson 4273 stig Svavar Gunnarsson 2744 stig fluguköst einhendis: Árangur: Stig. 1. Ástv. Jónss., 55,63m 1500 2. Svavar Gunnars., 53,71m 1388 3. Bjarni Karlss., 48,42m 1096 PR golfkeppnin 17. til 20. júní Hin árlega Pierre Roberts golf- keppni, sem undanfarin ár hefur verið eitt fjölmennasta golfmót sem haldið er hér á landi, fer fram á Nesvellinum á Seltjarnar- nesi dagana 17.-20. júni n.k. Að þessu sinni verður leikiö á átta flokkum — tveim unglinga- flokkum, tveim kvennaflokkum, og fjórum karlaflokkum. Er þetta einum flokki meir en var sl. ár. Raðað er i karlaflokkana og kvennaflokkana eftir forgjö^ en i unglinga flokkana eftir hinu nýja aldurstakmarki Golfsambands- ins, sem nú verður I fyrsta sinn notað hér á landi. 1 drengjaflokki leika piltar 15 ára og yngri, en i sveinaflokki piltar 16 til 20 árs. Þeir piltar sem hafa forgjöf 0 til 7 leika i meistaraflokki karla siðasta dag mótsins, en þá verður einnig bar- ist um stig I landslið Lslands i golfi i sumar. Þar má búast við mikilli keppni, enda flestir bestu kylfingar landsins meðal þátttakenda. Þeir leika 36 holur á sunnudeginum en i öðrum flokkum verða leiknar 18 holur. Keppnin hefst 17. júni með keppni i 3. flokki karla-forgjöf 19 og hærra. Daginn eftir hefst keppnin i unglinga- og kvenna- flokkunum kl. 16.00. Meistara- flokkur kvennaforgjöf Otil 18 og 1. flokkur kvenna forgjöf 19 til 36. Á laugardeginum verður leikið i 1. og 2. flokki karla. í 2. flokki leika þeir sem hafa forgjöf 14 til 18 og i 1. flokki þeir sem hafa forgjöf 8 til 13. Þeir bestu i 1. flokki fá rétKil að leika um stig i Stigakeppni GSI á sunnudeginum, en þá leikur meistaraflokkur karla, eða þeir sem hafa forgjöf 0 til 7. Fluguköst tvíhendis: 1. Ástv. Jónss., 66.59m 1500 2. Svavar Gunnarss., 63,58m 1356 3. Bjarni Karlsson 59,56m 1163 Lengdarköst með spinnhjóli og 18 gr. lóði: 1. Ástv. Jónss., 103.98m 1500 2. Asg. Halldórss., 97,93m 1314 3. Bjarni Karlsson 91.44m 1121 Lengdarköst með rúlluhjóli og 18 gr. lóði: 1. Ástv., Jónss., 92,57m 1500 2. Bjarni Karlsson 83,27m 1180 3. Ásg. Halldórss., 82,05m 1141 Framhald á 14. siðu. Óskar er nær öruggur um að komast á Olympluleikana. íslandsmet hjá Óskarí Jakobssyni í spjótkastinu Óskar Jakobsson bætti eigið tslandsmet i spjótkasti á móti i Stokkhólmi um siðustu helgi, kastaði 75.86 m en eldra metið var 75.80 m. Óskar dvelst við æfingar i Svlþjóð um þessar mundir og mun verða ytra til 10. júli. Greini- legt er að Óskar er i mjög góðri æfingu og er til enn frekari stór- ræða liklegur á næstunni. Það er alls ekki fjarri lagi að álykta að hann kasti yfir 8Ó m I sumar og hann hefur sagt að að þvi stefni hann i sumar. Óskar er nær öruggur um að komast á ÓL., spurningin er bara hvort hann fer yfir 80 m eða ekki i sumar. Þessi umgi glæsilegi kastari er rétt að byrja sinn feril og ekki óliklegt að hann eigi eftir að vinna stór afrek bæði I kringlukasti og spjótkasti. —S.dór. Landsleikurinn við færeyinga í kvöld í kvöld heyja fær- eyingar og íslendingar landsleik í knattspyrnu útií Þórshöfn í Færeyj- um. Fram til þessa hafa íslendingar ætíð sigrað i landsleik í knattspyrnu við færeyinga, og mjög sennilega verður engin breyting þar á í dag. Þó er þess að gæta að liðiö sem leikur I dag er langt frá þvi að vera okkar sterkasta lið, þar i vantar alla atvinnu- mennina okkar og auk þess þá Sigurð Dagsson og örn Óskarsson sem boðuðu forföll á siöustu stundu, en i þeirra stað koma þeir Þorsteinn Ólafsson og ólafur Danivals- son úr FH, og er liðið þá þannig skipað: Arni Stefánsson Fram Þorsteinn Ólafsson ÍBK Ólafur Sigurvinsson IBV Jón Pétursson Fram Marteinn Geirsson Fram Jón Gunnlaugsson 1A Ásgeir Eliasson Fram Árni Sveinsson 1A Matthias Hallgrlmsson tA Teitur Þórðarson ÍA Ölafur Danivalsson FH Viðar Halldörsson FH Guðmundur Þorbjörnsson Val Atli Eðvaldsson Val Vilhjálmur Kjartansson Val

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.