Þjóðviljinn - 16.06.1976, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 16.06.1976, Qupperneq 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. júni 1976 Bætt þjónusta Flugleiða Erlendar fréttir Flugleiðir hafa nú bætt þjón- ustu sina við farþega i millilanda- flugi með þvi að nú er hægt að taka flugrútuna til Keflavikur, bæði við Asgarð i Garðabæ og viö gatnamót Reykjanesbrautar og Flatahrauns i Hafnarfirði, en ekki einungis við afgreiðslu Flug- I«RÓM MÚSGÖGN Grensásvegi 7 Sími 86511 Skrifstofu- stólarnir vinsælu Ábyrgð og þjónusta Skrifborð ss tólar J 1 gerðir Verö frá kr. 13.430,- leiða á Hótel Loftleiðum eins og tiðkaðist áður. Frá Hótel Loftleiö- um leggja áætlunarbilarnir jafn- an af stað 90 minútum fyrir brott- för flugs. Tekið skal fram að aðeins er stansað á þessum stöðum á leið suður til Keflavikur. Millilanda- farþegar á leið til Reykjavikur þurfa, vegna afgreiðslu farangurs, að ferðast með bflunum alla leiö til millilandaafgreiöslu Flugleiða i Reykjavik. Farþegar sem hyggjast koma i rútuna i Garða- bæ eða Hafnarfiröi verða að láta vita samdægurs til þess aö hægt sé að ætla þeim pláss. Fargjaldið er kr. 310. Kaffisala Hjálp- ræðishersins Eins og undanfarin ár efnir Hjálpræðisherinn til kaffisölu 17. júni, og geta þreyttir veg- farendur komið inn i sam- komusalinn, hvilt þreytta fæt- ur og drukkið hressandi kaffi frá kl. 2 eftir hádegi alveg til miðnættis. Börnin geta fengið gos, og einnig er úrval af ljúf- fengum kökum og pönsum að gæða sér á. Agóðinn af kaffi- sölunni fer til styrktar starfi Hjálpræðishersins meðal barna og fullorðinna hér i borg. Frétt frá Hjálpræðishernum. mnnmíL semvitnaðerí Áskrif'laiMiiii I 75 05 Gengur illa að manna breska togara I grein i breska blaöinu Fishing News 16. april s.l. segir að breskir útgerðarmenn i Grimsby hafi átt i miklum erfiðleikum með að geta mannað togara sina að undan- förnu. Þrátt fyrir að þá var ný- búið aö leggja hópi togara og yfir 100 sjómenn sem á þeim voru höfðu verið afskráðir fyrir um hálfum mánuði. Samkvæmt þess- ari grein i Fishing News þá hafa breskir útgerðarmenn kvartað yfir þvi að hvergi væri sjómenn að fá. Blaðið hafði það eftir einum sjómanni er hafði fyrir konu og þremur börnum að sjá, að fjár- hagslega væri hagkvæmara fyrir sig sem næmi 7 sterlingspundum á viku, að lifa á atvinnuleysis- styrk i landi heldur en að fara á sjóinn. Meiri afli á heimamiðum Norska blaöið Fiskaren segir þær fréttir frá Færeyjum 10. mai s.l. aðfiskafli á heimamiðum fær- eyinga hafi á fyrstu þremur mán- uðum ársins orðið 10.000 tonn, sem sé 800 tonnum meira en yfir sama timabil i fyrra. Mestur hluti þessa afla er sagður þorskur og ýsa af góðri nýtingar- stærð. Reiknað er með mikilli þátttöku færeyskra báta á veiðum á heimamiðum nú i sumar. Kolmunnaveiðar norðrnanna Talsverð þátttaka frá hendi norska fiskveiðiflotans hefur ver- ið i kolmunnaveiðunum nú á þessu vori. Fyrstu skipin hófu veiðar norövestur af Irlandi i aprilmánuði og fengu þá strax umtalsverðan afla, sem að meginhluta var nýttur i mjöl- vinnslu i norskum fiskimjöls- verksmiðjum. Þann 10. mai s.l. er getið um sex veiðiskip sem komu af kolmunnaveiðum þann dag og lögðu afla sinn á land til mjöl- vinnslu hjá verksmiðjum bæði fyrir sunnan og norðan Stad. Afli skipanna var frá 4000 hektólitrum upp i 8000 hl. Þessi afli var tekinn á Færeyjamiðum. Fréttir siðar i mai sögðu góðan kolmunnaafla. Óánœgja meðal sjómanna í Norður-Noregi A aðalfundi hjá Norland Sild- fiskarlag sem haldinn var nýlega, kom fram mikil og sterk gagnrýni á þá ráðstöfun stjórnvalda að fallast á þá kröfu sildarverk- smiðjanna að leyfa ekki bræðslu- skipinu Norglobal að taka á móti loðnu á s.l. vetrarvertið við Norð- ur-Noreg. Töldu fiskimennirnir að þetta hefði skaðað sig um gifurlegar upphæðir, þar sem skipin hefðu þurft að fara til los- unar um alltof langan veg af þessum sökum. Kröfðust þeir þess að þessi ráðstöfun yrði ekki endurtekin á næstu vetrarvertið og Norglobal notað i þágu norskra loðnuveiðimanna. Skreiðarverkun norðmanna Það hefur ekki verið hengdur upp jafnrnikill fiskur f skreiðar- verkun i Noregi siðan árið 1970. Bara i fiskiverunum við Lófót var búið að hengja á hjalla fyrir 20. mai um 21 þúsund tonn miðað við hausaðan og slægðan fisk. A sama tima voru allir hjallar á Finnmörku sagðir fullir af fiski. Norðmenn reikna með góðum skreiðarmarkaði i Nigeriu nú með haustinu, þar sem verð þar á skreið hefur verið hátt að undan- förnu. Kaupgeta fólks hefur aukist mjög hratt i Nigeriu sið- ustu árin, sérstaklega á þetta þó við um suðurhluta landsins. Það er oliuvinnslan i landinu sem er fyrst og fremst undir staða vaxandi velmegunar-þar. Aftur á móti reikna nú norðmenn með samdrætti á skreiðarmark- aðnum á Italiu sökum margskon- ar erfiðleika þar I landi. Norð- menn hafa hengt upp i ár talsvert af ráskornum ufsá og er hann aðallega ætlaður fyrir Sviþjóðar- og Finnlandsmarkað. Þessi verk- un er með mesta móti nú i Vestur- Noregi. fiskimál ^eftir Jóhann J. E. Kúld^ Norðmenn kaupa fiskibáta frá íslandi Nýlega keyptu tveir útgerðar- menn i Malöy i Vestur-Noregi m/s Kristbjörgu frá Vestmanna- eyjum. Kristbjörg var smiðuð i Austur-Þýskalandi árið 1967 og er 114 fet á lengd, breidd 23,7 fet og dýpt 11,9 fet. Aðalvél skipsins er 660 hestafla Lister. Hinir nýju eigendur m/s Kristbjargar ætla nú að láta byggja yfir þilfar skipsins og gera ráö fyrir að þvi verki verði lokið i júli eða ágúst. Að þessari breytingu lokinni er meiningin að gera skipið út á veiðar með linu á fjarlægum mið- um. I blaðaviðtali hrósuðu hinir nýju eigendur skipinu og töldu sig hafa gert góð kaup. Laxveiðar dana Laxveiðar dana, sem hófust i aprilmánuði á hafinu milli Jan Mayen og Norður-Noregs hafa gengið mjög vel i ár. Veiðin er sögð hafa verið að meðaltali 150 laxar á bát yfir daginn. Laxinn er sagður yfirleitt smár, eða frá 3-5 kiló. Verðið sem fiskimennirnir fá, er i kringum 30 danskar krón- ur fyrir kg., en það samsvarar 894, - islenskum krónum. Tvö frystiskip, annað danskt en hitt færeyskt, hafa tekið við laxinum og hraðfryst hann um borð. Um 30 danskir fiskibátar hafa stundað þessar veiðar i vor, og nær ein- göngu notað flotlinu. Koma neðansjávar oliulindir í hlut fœreyinga? Samkvæmt frétt i norska blað- inu Fiskaren, 13. mai s.l., þá er ekki talið óliklegt, að eitthvað af neðansjávaroliulindum geti kom- ið i hlut færeyinga, þegar endan- leg skipting hafsbotnsins á milli Færeyja og Skotlands verður ákveðin. Visindamenn i Dan- mörku telja nú frekar liklegt, að á þessu hafsvæði sé að finna oliu, og geti þvi linan, sem dregin verður til að skipta hafsvæöinu orðið mjög þýðingarmikil. Sagt er að landstjórn Færeyja muni sjálf vilja ráðstafa oliuvinnslu, ef til hennar kæmi i framtiðinni. En hins vegar eru menn ekki á einu máli um hver hefur hinn lagalega rétt, eins og stendur. 1 heima- stjórnarlögum Fæíéýja frá árinu 1948, er landgrunn Færeyja sagt heyra undir landstjórn Færeyja. Hins vegar mun gert ráð fyrir þvi i heimastjórnarlögunum, að nýt- ing færeyskra hráefna geti orðið samningsatriði á milli færeyinga og dana, þar sem Færeyjar teljist hluti af danska rikinu. Sagt er að oliulindirnar við Hjaltlandseyjar, sem nýbyrjað er að starfrækja, hafi nú þegar umturnað hinu fast- mótaða gamla samfélagi á eyjun- um. Það er þvi ekki með eintómri gleði, sem færeyingar hugsa til þess að verða e.t.v. oliuþjóð. Tal- ið er að ýmsir færeyingar vilji fara sér hægt á þessu sviði og ekki rasa um ráð fram. Norsku nýfisksamlögunum fengið í hendur dómsvald Þann 18. mai s.l. samykkti norska óðalsþingið með 68 at- kvæðum gegn 18, að fá nýfisk- sölusamlögunum i hendur dóms- vald til að gera upptækan afla þeirra skipa, sem brotleg yrðu við settar reglur um veiðitakmark- anir innan norskrar fiskveiðilög- sögu. Hingað til hafa það verið norskir dómstólar, sem gert hafa út um slik mál, og vildu norskir ihaldsmenn á þinginu að sama til- högun héldist áfram. Ráfisklaget fór fram á þessa breytingu á ný- fisklögunum snemma á þessu ári, þar sem það taldi eldra fyrir- komulag þessara mála alltof seinvirkt i framkvæmd. Þá voru nokkrar fleiri breytingar gerðar á lögunum, sem allar miða að þvi að fá nýfisksölusamlögunum i hendur vald til stjórnunar á veið- um, þegar með þarf. Þá er ein breytingin, sem gerð var sú, að sjávarútvegsráðuneytinu er heimilt að fela nýfisksölusamlög- unum i hendur vald til að ákveða hámarksafla einstakra skipa, og hvað einstakar veiðiaðferðir varðar, ef nauðsyn þyki bera til. Tilraunir með flökun á kolmunna í Grimsby I vor hafa verið gerðar tilraunir með flökun kolmunna i Grimsby. Hér var um handflökun að ræða, og unnu þjálfaðir flakarar verkið. Útkoman varð sú, að flakanýting varð 25% á móti 40% flakanýtingu á þroski. Við samanburð á afköst- um við handflökun á kolmunna og þorski af meðalstærð varð út- koman sú, að einn flakari afkast- aði hérumbil þrisvar sinnum meiri þyngd i þorskflökum, held- ur en þrir flakarar sem flökuðu kolmunna. Enn hefur ekki fengist nein reynsla af þvi, hvort breskar hús- mæður geta felltsig við kolmunna á matborðið á stað þorsks, en bragð af fiskvöðva kolmunna er sagt ekki ósvipað og af þorski. Ritari óskast i launadeild i 2/3 hluta stöðu. Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 23. júni n.k. Fjármálaráðuneytið, 15. júni 1976. Frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýja nemendur er til 15. ágúst. Inntökuskilyrði i 1. bekk eru: 1. Gagnfræðapróf eða hliðstætt próf. 2. 24 mánaða hásetatimi eftir 15 ára aldur. Þá þurfa umsækjendur að leggja fram augnvottorð frá augnlækni, heilbrigðis- vottorð og sakarvottorð. Fyrir þá sem fullnægja ekki skilyrði 1) er haldin undirbúningsdeild við skólann. Einnig er heimilt að reyna við inntöku- próf i 1. bekk i haust. Prófgreinar eru: Stærðfræði, eðlisfræði, íslenska, enska og danska. Haldin verða stutt námskeið i þessum greinum og hefjast þau 14. september. Inntökuskilyrði i undirbúningsdeild eru 17 mánaða hásetatimi auk fyrrgreindra vott- orða. 4. stigs deild (varðskipadeild) verður væntanlega haldin i vetur. 1. bekkjardeildir verða haldnar á eftir- töldum stöðum ef næg þátttaka fæst: Akureyri, ísafirði og Neskaupstað. Skólinn verður settur 1. október kl. 14. Skólastjórinn. Verslunin hættir Nú er tækifærið aö gera góö kaup. Allar vörur seldar með miklum afsiætti. Allt fallegar og góðar barnavörur. Barnafataverslunin Rauðhetta Iðnaðarbúsinu v/Hallveigarstig fœreyinga en ífyrra

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.