Þjóðviljinn - 16.06.1976, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. júni 1976
Leikfélag
Akureyrar
á listahátið:
Sýnir
í Iðnó
A miðvikudags- og föstudags-
kvöld mun hið unga atvinnuleik-
hús, Leikfélag Akureyrar, sýna
Glerdýrin eftir Tennessee
Williams i Iðnó umdir leikstjórn
Gisla Halldórssonar.
Leikfélagið er að koma úr leik-
ferð um NA-land, Austurland og
Suðurland með Kristnihaldið en
lýkur nú ferðinni með Glerdýr-
unum i Reykjavik.
Leikrit þetta sem var sýnt fyrir
18 árum i Reykjavik en þá lék
Gisli Halldórsson einmitt eitt af
hlutverkunum, er skrifað á
kreppuárunum i Bandarikjunum
oggerist þá. Tom Wingfield, sem
Aðalsteinn Bergdal leikur, segir
frá lifsreynslu sinni og inn i það
dragast minningar hans og
Saga Jónsdóttir og Þórir Stein
grimsson i „Glerdýrunum”.
draumsýnirum fjölskyldu sina og
samfélag i barnæsku sem hann er
búinn að yfirgefa en þær vilja
ekki yfirgefa hann.
Aðrir leikendur eru Sigurveig
Jónsdóttir sem leikur móðurina
Amöndu, Saga Jónsdóttir sem
leikur dótturina Láru og Þórir
Steingrimsson sem leikur Jim
O’Connor.
Leikmynd hefur Jónas bór
Pálsson frá Sauðárkróki gert,
aðstoðarleikstjóri er Gestur E.
Jónasson. býðandi er Gisli
Asmundsson.
Hjá Leikfélagi Akureyrar eru
nú 8 fastir starfsmenn og Eyvind-
ur Erlendsson er leikhússtjóri.
Færð hafa verið upp 5 verk 1
vetur. Meðal verkefna á næstunni
eru Skýin eftir Aristofanes i
þýðingu Karls Guðmundssonar.
—GFr
Læknanemar
Framhald af bls. 1
borvaldur sagði að ef vel tækist
til með störf islenskra lækna-
nema i Noregi i sumar myndi vel
koma til greina að koma á fram-
tiðarsamskiptum við norðmenn i
þessu efni. Það hefði um skeið
verið algengt, að læknanemar
færu i vinnu frá einu Norðurland-
anna til annars, eftir þvi hvar
þörf væri fyrir þá og hvar vinna
byðist. dþ.
Hallbjörg
Framhald af bls. 16
Ég hef meira að segja ekki
ennþá getað tekið ákvörðun um
hovrt ég ætla að selja mynd-
irnar á þessari fyrstu sýningu
minni hérna heima.
— Býstu við góðri aðsókn?
— Já, það vona ég. Að vfeu er
éghrædd um aðmargir trúi þvi
varlega að hún Hallbjörg
Bjarnadóttir söngkona kunni
eitthvað að mála, en i gamla
daga söng ég mikið og var m.a.
fyrsta jasssöngkonan á Islandi.
Þá voru nú ekki allir hrifnir af
þeirri músik og i einu dagblað-
anna var þvi slegið upp að ég
væri að flytja eintóma „frurn-
skógamúsik” af þvi ég dillaði
mér svolitið i takt viö lagið, en
hreyfingar á sviði þóttu þá hin
mesta hneisa.
— Þetta hlýtur að hafa verið
fyrir langa löngu, hvað ertu
gömul?
— Ég er rúmlega þritug og
svo ræðum við ekki meira um
það.
— gsp
Leiðréttingar
40 ár en
ekki 20
Við drógum heil tuttugu ár af
skipstjór aferli Magnúsar
Magnússonar, sem fylgt var i
grásleppuróður i siðustu viku.
Hann var skipstjóri i 40 ár af 55
ára sjómannsferli sinum.
Og ekki eru mistökin upp talin.
Við birtum mynd af Einari Jó-
hannessyni á næsta báti við
hliðina en ekki Magnúsi Jó-
hannessyni. Beðist er vel-
virðingar á hvorutveggja. — gsp
• •
Myndin var
af
sýningarbás
SÍS
I bjóðviljanum s.l. laugardag
birtist á baksiðu frétt um sýningu
Byggingaþjónustu Arkitekta-
félags tslands, sem nú stendur
yfir i húsi Málarans að Grensás-
vegi 11.
Mynd fylgdi fréttinni og var
hún sögð af garðáhöldunum, sem
Skógræktarfélag Reykjavikur
hefði til sýnis á þessari mynd.
Þarna var um misskilning að
ræða, — myndin var af sýningar-
bás SÍS á þessari sýningu Arki-
tektafélagsins, og leiðréttist þetta
hér með. Við biðjum hlutaðeig-
andur afsökunar á þessum mis-
töcum.
Fjölbreytt
Framhald af bls. 3.
messansr. Björn Jónsso í I Akra-
neskirkju. Klukkan 14 efst úti-
hátið á iþróttavellinum. Formað-
ur þjóðhátiðarnefndar, Gunnar
Sigurðsson, setur hátiðina, en
Bragi Þórðarson, prentsmiðju-
stjóri flytur hátiðarræðuna.
Laufey Skúladóttir kemur fram i
búningi fjallkonunnar. Þá verður
keppt i hlaupi og Kirkjukór Akra-
ness syngur undir stjórn Hauks
Guðlaugssonar. Kl. 15 verða
kaffiveitingar i Tónlistarskólan-
um á vegum Kirkjunefndar.
Kl. 16.45 Safnast saman á Akra-
torgi.Lúðrasveitin Svanur leikur
fyrir skrúðgöngu frá Akratorgi að
iþróttahúsinu: þá verður stað-
næmst við Sjúkrahús Akraness og
leikin nokkur lög.
KI. 17.00 Barnaskemmtun i
iþróttahúsinu. 1. Skagaleikflokk-
urinn skemmtir. 2. Ragnar Skúla-
son syngur. 3. Gísli og Baldur
skemmta. Lúðrasveitin Svanur
leikur á milli atriða.
Kl. 21.00 Skemmtun á Akratorgi.
1. Avarp, Magnús Oddsson,
bæjarstjóri. 2. Karlakórinn Svan-
ir syngur undir stjórn Hauks Guð-
laugsson. 3. GIsli og Baldur
skemmta. 4. Skagaleikflokkurinn
skemmtir. 5. Ragnar Skúlason
syngur. 6. Verðlaunakafhending
v/hlaups. 7. Skátafélag Akraness
skemmtir. Um kvöldið verður
dansleikur I Hótel Akranes.
Asvaldur
Framhald aí bls. 10.
Lengdarköst með spinnhjóli
og 7,5 gr. lóði:
1. Baldvin
Haraldss., 63,41m 1500
2. Bjarni Karlss., 62,55m 1455
3. Völundur
Þorgilss., 58,29m 1241
Hittiköst með spinnhjóli
og 7,5 gr. lóði:
1. Asgeir Halldórss., 40st 1500
2. Astv. Jónss., 35 st 1110
3. Þórður Jónsson 20 st 300
Hittiköst með rúiluhjóli
og 18 gr. lóði:
1-2 Asg. Halldórss., 25 st 1500
1-2 Astv. Jónss., 25 st 1500
3. Þórður Jónss., 15 st 460
4. Völundur Þorgilss.,5 st 60
Óperusöngur
Framhald af bls. 3.
ustuleikurum þjóðarinnar syngja
og leika. Má nefna Gisla Hall-
dórsson, Róbert Arnfinnsson,
Guðrúnu Þ. Stephensen og Gisla
Alfreðsson og auk þess verður
skemmtiþáttur Halla og Ladda.
Sigurvegurunum i viðavangs-
hiaupi verða afhent verðlaun og
Kópa-Dixie-bandið blæs. Skóla-
hljómsveit Kópavogs leikur á
milli atriða undir stjórn Björns
Guðjónssonar, og leikur einnig
undir söng Sigriðar Ellu Magnús-
dóttur og Guðmundar Jónssonar.
Öperusöngvararnir syngja ein-
söng og tvisöng. Hátiðarsvæðið á
Rútstúni verður listilega skreytt
á ýmsa vegu, þar verða seld
merki dagsins og hátiðaleikföng,
veitingar verða á boðstólum við
allra hæfi og dýr úr Sædýrasafn-
inu verða til sýnis allan daginn á
hátfðarsvæðinu. Kynnir verður
Jón Múli Árnason.
Klukkan 17.00 verða HLEKKIR
komnir á sviðið við Kópavogs-
skóla og leika þar á unglinga-
dansleik og klukkan 18.00 hefst
knattspyrnukeppni á grasvellin-
um. Þar keppir Breiðablik við
Unglingalandsliðið.
Um kvöldið hefst dansleikur við
Kópavogsskóla kl. 21.00, þar leik-
ur ERESS flokkurinn, þar til
hátiðarhöldum lýkur á miðnætti.
Ráðstefna
Framhald af bls 8.
Gæði fisks eru lökust allra
siðustu dagana fyrir hrygningu
og fyrstu dagana eftir hana.
Þorskhrygna hrygnir álika
mörgum miljónum þorskhrogna
ogþyngd hennar i kilóum segir til
um, þannig að til dæmis ætti 10
kg. hrygna að skila frá sér 10
miljón hrognum. 99,9% þessa
hrognafjölda kemst ekki á legg,
þannig að af miljón hrognum
komast aðeins 10 þúsund til fisks.
Tilraunir verða gerðar á
togaranum Runólfi með veiðar á-
langhala á djúpmiðum i sumar.
A svokölluðu núgildi peninga
kostaði hver rúmlest skips fyrir
þremur áratugum 100 þúsund
krónur en núorðið kostar sama
rúmlest um 300 þúsund krónur.
Norðlensk útgerðarmál
Snöggsoðinn samdráttur úr máli
heimamanna litur þannig út:
Það kostar 250 krónur að fram-
leiða hvern bandarikjadal, sem
seldur er I bönkum á 184 krónur.
(Er þetta bón um gengis-
fellingu?)
21 togari er gerður út frá
Norðurlandi; og þaðan eru gerð út
16 önnur skip yfir 100 rúmlestir.
Arið 1974 barst á land á Norður-
landi 17,6% heildarafla lands-
manna en 18,8% árið 1975. Þá er
loðna ekki meðtalin.
1527 lestir bárust á land fyrir
Norðurlandi af rækju á siðasta
ári, og þann tima, sem rækju-
veiðar hafa verið stundaöar þar á
þessu ári, hafa aflast 1200 lestir.
Frá Norðurlandi var á árinu
1974 komin 67% af grásleppu-
hrognaútflutningi landsmanna.
Aðeins 2,4% af iandsmönnum
vinna sem sjómenn.
Þorskurinn elst upp fyrir
Norðurlandi, en er drepinn rétt
fyrir hrygningu við Suðurland.
Skolli úr sauðalegg.
Eyjólfur Konráð Jónsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
svaraði fyrirspurn eins
ráðstefnumanns um nauðsyn
samninga við v-þjóðverja á þá
leið að það hefði verið „ hyggilegt
að semja við v-þjóðverja til að
dreifa kröftum andstæðinga
okkar.”
Þeir, sem til máls tóku auk
visindamanna og ráðherra voru :
Heimir Ingimarsson, Raufar-
höfn, Marteinn Friðriksson,
Sauðárkróki, Stefán Jónsson,
alþm., Haukur Harðarson,Húsa-
vik, Stefán Guðmundsson, Sauð-
árkróki, Arni Guðmundsson,
Sauðárkróki, Ragnar Arnalds,
alþm., Helgi Jónatansson, Þórs-
höfn, Stefán Valgeirsson, alþm.,
Alfreð Jónsson, Grimsey,
Vilhjáimur Þorsteinsson, Húsa-
vik, Jónas Þorsteinsson, Akur-
eyri, Friðrik Þorsteinsson,
Akureyri, og Eyjólfur Konráð
Jónsson, alþm.
Fundarstjóri á ráðstefnunni
var Jóhann Saiberg Guðmunds-
son, sýslumaður, Sauðárkróki, og
fundarritari Rögnvaldur Gisla-
son, sýsluskrifari. Ráðstefnu-
stjóri var Þórir Hilmarsson, bæj-
arstjóri á Sauðárkróki. Að veru-
legustu leyti var ráðstefna þessi
skipulögð af Askeli Einarssyni,
framkv.stj. Fjórðungssambands
norðlendinga.
Framhaldið.
Ráðstefnugestir voru ágætlega
haldnir i mat og drykk i boði
bæjarstjórnar Sauðárkróks,
sjávarútvegsráðherra og
útgerðarfyrirtækja á Sauðár-
króki.
Töluð orð á ráðstefnunni voru
tekin upp á segulband og verður
samstarfsnefnd, skipuð aðiljum
fiskiðnaðar, útgerðar og verka-
lýðs ásamt stjórn Fjórðungs
sambandsins falið að vinna upp
úr þvi, sem fram kom á ráð-
stefnunni, og leggja fyrir þing
Fjórðungssambandsins, sem
haldið verður á Siglufirði i haust,
tillögur i' samræmi við það, sem
rætt var á ráðstefnu þessari.
—úþ.
Kristján
Framhald af 13. siðu.
strendingar búa við I samgöngu-
málum. Mér þykir lika trúlegt að
það yrði örðugt um rekstur hjá
Mjólkurstöðinni á Patreksfirði
eftir að Barðastrandarhreppur
væri hættur allri mjólkursölu,þvf
vafalaust er betra að hafa sauð-
fjárbúskap eingöngu heldur en
kúabúskap upp á það að þurfa að
hella mjókinni niður. Eða þá að
hver og einn flytji sina mjölk
vestur á Kleifaheiði eins og
gerðist 17. april sl. þegar bændur
urðu að flytja mjólkina á móti
jarðýtu einsog fyrr var getið. Hjá
þeim sem lengst átti að fara er
það um 70km keyrsla oghefði átt
að fá leigubil þá leið þá hefði það
orðið um 4290 kr. miðað við það að
laugardagur var. Það er orðinn
dýr flutningskostnaður ofan á
allan annan kostnað.
Ég held að það væri ekki til of
mikils mælst að Ræktunarsam-
bandið hefði eina af jarðýtum
sinum fyrir sunnan Kleifaheiði
yfir veturna ef það gæti bætt eitt-
hvað úr þeirri örðugu vega-
þjónustu sem barðstrendingar
verða að búa við.
Skrifað 7. mai 1976 að
Skriðnafelii.
ÞJÓÐLEIKHÚSIS
INÚK
á aðalsviðinu
föstudag kl. 20
laugardag kl. 20
Litla sviðið:
SIZWE BANSI AR DÖD
i kvöld kl. 20.30 Uppselt
Siðasta sinn.
Miðasala 13,15—20.
Simi 1-1200
LEIKFELAG 2(2 22
REYKJAVlKUR
Leikfélag Akureyrar
sýnir
GLERDÝRIN
i kvöld kl. 20,30
Föstudag kl. 20,30
Aðeins þessar 2 sýningar.
SKJALDHAMRAR
laugardag. — Uppselt
SAGAN AF DATANUM
sunnudag kl. 20,30. Græn á-
skriftarkort gilda
Siðustu sýningar LR á leikár-
inu.
Leikvika landsbyggðar-
innar:
Leikfélag Óiafsfjarðar
sýnir
TOBACCO ROAD
mánudag kl. 20,30
Þriðjudag kl. 20,30.
miðasalan I Iðnó er opin kl. 14
til 20,30 — Sími 1-66-20.
Handaritsbrot
Framhald af 6. siðu.
hverfi er Arnbjörg hér og var
„ein órik kona”. Var hún „kviðug
að barni” en vildi ekki fæða, þótt
komið væri fram yfir tima. Gerði
hún þá eins og margir aðrir að
hún leitaði til hinna helgu manna I
bænum sinum og ákallaði jafnt
ungfrú Mariu guðsmóður og
hennar oddvita Guðmund góða
biskup. Rættist úr fyrir Arn-
björgu og fékk hún fætt barn sitt
án erfiðleika.
ráa
Alþýðubandalag Kópavogs: Félagsfundur verður i Þinghól
MIÐVIKUDAGINN 16. júni, kl. 8.30. Rætt um sumarferðalagið. Þið,
sem eigið litskuggamyndir úr síðustu ferð, vinsamlegast komið með
þær. Kaffiveitingar. Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Vestur-Barðastrandarsýslu
Almennur stjórnmálafundur i
félagsheimilinu á Patreksfirði
föstudaginn 18. júni n.k. kl. 21.
Málshef jendur:
Lúðvik Jósepsson, alþingismaður
og Kjartan ólafsson, ritstjóri
Frjálsar umræður
Alþýðubandalagið I Vestur-
Barðastrandarsýslu
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins
eru áminntir um að greiða framlag sitt fyrir árið 1976. Gíróseðlar hafa
verið sendir út, en nýir styrktarmenn eru beðnir um að senda framlag
sitt inn á hlaupareikning nr. 47901 Alþýðubankanum eða greiöa þaö til
skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3.
Alþýðubandalagið
Ragnar
Lúðvflc
Kjördœmaþing
Fundur kjördæmisráðs á Norðurlandi vestra
verður haldinn á Skagaströnd helgina 26-27. júnl
n.k.
Fundurinn hefst kl. 3 á laugardag með um-
ræðum um flokksstarfið I kjördæminu.
Almennur fundur verður haldinn á Skaga-
strönd kl. 5 þennan dag og framsögumenn veröa
Lúðvik Jósepsson og Ragnar Arnalds. Fund-
urinn fjallar um stjórnmálaviðhorfið almennt og
er hann öllum opinn.
Dagskrá kvöldsins verður tilkynnt siöar, en
ekki er gert ráð fyrir frekari fundum þann dag.
A sunnudagsmorgni starfa nefndir, en fundir
kjördæmisráðs verður fram haldið kl. 1.30 og
stefnt að þvi aö honum ljúki um kaffileytiö. —
Stjórn kjördæmisráðs.