Þjóðviljinn - 16.06.1976, Page 16

Þjóðviljinn - 16.06.1976, Page 16
Margir starfsmenn Ellingsen hafa starfaö i versluninni mjög lengi og verður ekki annaO sagt en að fyrirtækinu hafi haldistvel á starfsliöi. Hér er hluti þess, frá vinstri: Othar Ellingsen forstjóri, Óttar B. Ellingsen, Jónatan Guömundsson, Guðmundur Jónsson, Ragnar Engilbertsson, Björgvin Björnsson, Sigtryggur Jónsson, Steingrimur Ellingsen. Mynd: -eik. Ellingsen eina veiðar- fœrasérverslun heims? Þetta aldna og viðurkennda fyrir- tæki á 60 ára afmæli i dag Verslun 0. Ellingsen er sextiu ára i dag, en þetta gamalgróna fyrirtæki var stofnaö þann 16. júni 1916 og var þá strax sérhæft i verslun meö veiðarfæri og málningarvörur. Enn þann dag i dag hefur Ellingsen frumkvæðiö 1 hverskyns veiöarfæraverslun auk þess sem fleiri deildir hafa bæst við. Er ekki talið óliklegt aö hér séum aðræða einuverslun sinnar tegundar i öllum heiminum, en þjónusta við fiskimenn er hin ágætasta. Verslunin er nú til húsa i Ána- naustum við Grandagarð og er u.þ.b. ár liðið siðan siðustu flutn- ingar úr Tryggvagötunni áttu sér stað. Aður var verslunin á tveimur stöðum með lagera út um hvippinn og hvappinn en allur rekstur hefur verið færöur á einn rúmgóðan stað, i nálægð sjómannanna auk þess sem verslunin er vel staðsett hvað snertir umferð strætisvagna jafnt sem einkabifreiða. 1 dag vinna um 30 manns i verslun O.EUingsen sem sonur stofnandans, Othar Ellingsen veitir nú forstöðu. Lauslega ágiskaö. er reiknað meö að um 6000 hlutir séu ávallt á lager hjá fyrirtækinu og þykir það hin. myndarlegasta taia.Vörurnar eru keyptar frá yfir 250 erlendum og 80 innlendum framleiðendum auk þess sem skipt er við um 100 inn- lenda innflytjendur. 1 fréttatilkynningu segir m.a.: ,,0. Ellingsen rak verslun sina af miklum dugnaði og viðsýni til dauðadags janúar 1936. Það var hinum ört vaxandi fiskveiðiflota landsmanna mikil nauðsyn að geta fengið þann besta útbúnað sem þá var fáanlegur i öðrum löndum. Kunnátta hans og reynsla i þessum efnum var flot- anum ómetanleg. 1937 var fyrirtækinu breytt i hlutafélag og hefir sonur hans Othar Ellingsen veitt fyrirtækinu forstöðu siðan. Verslunin hefur áttþvi láni að fagna að hafa mjög gott starfsfólk sem starfað hefur hjá fyrirtækinu i áratugi. Þannig hafa 8starfsmenn unnið hjá fyrir- tækinu i meira en 30 ár og starfa nú hjá Ellingsen um 30 manns. Versíunin er tvimælalaust stærsta og jafnframt elsta veiðafæraverslun landsins meö alls konar útbúnað fyrir skipa- flotann, og selur jafnframt véla- nauðsynjar, málningarvörur, verkfæri alls konar, ásamt vinnu- fatnaði fyrir sjómenn og verka- menn. Verslunin þjónar þannig flestum atvinnuvegum þjóðar- innar. Forstöðumenn almennra lífeyrissjóða á ráðstefnu t gær hófst á Hótel Sögu ráð- stefna forstöðumanna Sambands almennra Lifeyrissjóða, hin fyrsta sinnar tegundar. Eðvarö Sigurðsson, formaður stjórnar SAL setti ráðstefnuna, en siðan hófst umræða um fjölmörg mál sem snerta starfsemi almennu lifeyrissjóðanna i landinu. Nokk- ur erindi eru flutt á ráðstefpunni og starfað er i starfshópum. Ráö- stefnunni verður haldið áfram i dag og lýkur henni i kvöld. Kjördœmisráð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra: Helgarfundur á Skagaströnd Fundur kjördæmisráðs á Norðurlandi vestra verður haldinn á Skagaströnd helgina 26. til 27. júní n.k. Fundurinn hefst kl. 3 á laugardag með umræðum um flokksstarfið i kjördæminu. Al- mennur fundurverður haldinn á Skagaströnd kl. 5 þennan dag og verða Lúðvik Jósepsson og Ragnar Arnalds framsögumenn. Á fundinum verður f jall- og umræður aö um stjórnmálaviðhorfið almennt og er hann öllum opinn. Dagskrá kvöldsins verður tilkynnt siöar, en ekki er gert ráð fyrir frekari fundum á laugardag. A sunnudagsmorgni starfa nefndir en fundi kjör- dæmisráös verður fram haldið kl. 13.30 og stefnt að þvi að honum ljúki um kaffileytið. Frá stjórn Kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra Millisvæðamót á Manila Mecldng efstur Manila 15/6 reuter — 1 Manila, höfuöborg Filippseyja, er nú háð millisvæðamót sem er liður i keppninni um réttinn til aö skora á heimsmeistarann i skák, Ana- toli Karpof. Þetta mót er geysisterkt enda hafa allir þátttakendur verið i tveim efstu sætum á svæðismót- um sem háð hafa veriö viöa um heim á siðustu misserum, þám. i Reykjavik eins og menn muna. Alls eru tuttugu þátttakendur á mótinu. Af frægum nöfnum i hópnum má nefna sovétmennina Boris Spasski, Lev Polugaéfski og Júri Balasjof, brasiliumanninn Henrique Mecking, tékkana Vlastimil Hort og Ludek Pach- man, júgóslavann Ljubomir Lju- bojevic, austur-þjóðverjann Wolfgang Uhlmann, bandarikja- mennina Walter Browne og Lu- bomir Kavalek, argentinumenn- ina Oscar Panno og Miguel Quin- teros, rúmenann Florin Cheor- ghiu og ungverjann Zoltan Ribli. Nú hafa verið tefldar þrjár um- feröir á mótinu. Mecking er efst- ur með 2 1/2 vinning en næstir koma Uhlmann, Kavalek og Polugaéfski með 2 vinninga (Uhl- mann hefur 1 biðskák). 1 5.-7. sæti eru Gheorghiu og sovétmennirnir Balasjof og Vitaly Czeskofski með 1 1/2 vinning hver. Mótið mun standa yfir i uþb. einn mánuð enda tefldar 19 um- ferðir. ,,Þá mátti ekki dilla sér i takt við músikina” sagði Hallbjörg og kyssti bónda sinn Fischer, en þau hafa farið viða um heim og skemmt saman. Mynd: — eik. „Við bjuggum í koffortum í fjölmörg ár á meðan við vorum í „showbissness” Hallbjörg Bjarnadóttir heldur um þessar mundir málverka- sýningu I kjallara Casa Nova, viðbyggingar Menntaskólans i Reykjavik og sýnir hún þar 33 verk auk þess sem eiginmaður hennar, Fischer, sýnir jafn- mörg eigin málverk. Hallbjörg á viðburðrrika ævi að baki svo ekki sé meira sagt en i mörg herrans ár ferðaðist hún um Evrópu með manni sinum og söng, hermdi eftir og lék fleiri kúnstir er þau voru i „showbiss- nessinum”. Þau eru nú búsett i Ameriku og hafa verið þar með fasta búsetu sl. 17 ár. — Góöi besti, viö bjuggum i koffortum i fleiri fleiri ár á með- an á þessum ferðalögum stóð, sagöi Hallbjörg þegar Þjv. kikti inn á sýningu hennar i gær. Ennþá kemur það nokkrum sinnum fyrir að við komum fram á skemmtunum þótt ég hafi nú misst röddina og t.d. skemmtum við á siðasta þjóð- hátiðardegi grikkja. — Ég gerði nú ekki alvöru úr þvi að mála eða teikna, fyrr en eftir aö ég kom til Ameriku til þess aö setjast þar endanlega að. Þá byrjaði ég á þvi að mála á bréfpoka sem fengust gefins i matvöruverslunum en sföan hefur nú margt breyst eins og gengur og gerist. Annars er ég fegin að hafa ekki byrjað fyrr, ég er ekki orðin brjáluð af málaralistinni eins og svo margir aðrir, ekki komin með fjögur nef og tvö hundruð eyru i myndirnar min- ar ennþá. Það er veruleiki i minum málverkum og i Ameriku get ég selt miklu meira en ég framleiði. Ég bara vil ekki selja, myndirnar eru ákveðinn hluti af mér sem ég get bara selt og vil a.m.k. ein- dregið að fari heim til islands. Framhald á bls. 14. BARUM BREGST EKK/ Jeppa I hjólbaröar I Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð ■ Á ÍSLAND/ H/F AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.