Þjóðviljinn - 29.06.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
Portúgal:
Eanes
vann yfirburð
sigur
Lissabon 28/6 reuter — António
Ramalho Eanes yfirmaður
portúgalska hersins vann yfir-
burðasigur i forsetakosningun-
um i Portúgal sem fram fóru I
gær, sunnudag. Þegar nær öll
atkvæöi höfðu verið talinn var
Eanes kominn meö fylgi 61%
kjósenda.
Þátttaka I kosningunum var
góð, 76.3% kjósenda mættu á
kjörstað sem er ivið minna en i
þingkosningúhum I vor. Kom
þessi góða þátttaka á óvart þvi
þetta er I þriðja sinn á 14 mán-
uðum sem portúgalir eru dregn-
ir að kjörborðinu.
Næstur á eftir Eanes að fylgi
var Otelo Carvalho fyrrum yfir-
maður öryggissveita hersins
sem settur var af og um tlma
stungiö I fangelsi eftir uppreisn-
ina sem hægriöflin undir forystu
Eanesar börðu á bak aftur 25.
nóvember sl. Hlaut Carvalho
16% atkvæða.
Þriðji varð Jose Pinheiro de
Azevedo forsætisráöherra sem
hlaut 14% atkvæða þrátt fyrir
það að hann varð fyrir hjarta-
áfalli 3 dögum fyrir kosningar.
Búisthafðiverið við þvi aöhann
veitti Eanesi mesta samkeppni
og getur þvi verið að sjiikleiki
hans hafi gert Eanesi leikinn
svo auðveldan sem raun ber
vitni.
Lestina rak frambjóðandi
kommúnista, Octavio Pato, sem
hlaut aðeins rúmlega 7% at-
kvæða. Pato viðurkenndi i gær-
kvöldi að úrslitin væru flokkn-
um vonbrigði en hét þvi að hann
myndi fylgja Eanesi aö málum
ef hann virti stjórnarskrá lands-
ins I einu og öllu.
crnnprc
cumpre
ÍASIS
cuopre'
cumprc
í-aúítta <í
Veggspjöld úr kosningabaráttunni I Portúgal þar sem menn eru
hvattir til að kjósa „frambjóöanda Portúgals”, Eanes.
Pólland:
Flokkurinn efnir
til fjöldafunda
Varsjá 28/6 reuter — Pólski
kommúnistaflokkurinn efndi til
útifunda I öllum helstu borgum
Póllands i dag til að sýna stefnu
stjórnvalda stuöning. Er þetta
mótleikur gegn mótmælaað-
gerðum og verkföllum sem urðu
fyrir helgina vegna þeirrar
ákvörðunar pólsku stjórnarinnar
að stórhækka verð á matvælum.
Ljóst er nú að mótmælaað-
gerðir verkafólks voru mun
viðtækari en stjórnvöld vildu
viðurkenna i fyrstu. A einum stað
beitti lögregla vatnsþrýsti-
byssum til að dreifa mannfjölda
sem hafði kveikt i skrifstofum
kommúnistaflokksins og á öðrum
stað rifu verkamenn upp járn-
brautarteina.
Pólska stjórnin svaraði
aðgerðum almennings með þvi að
hætta þegar I stað við hækkan-
irnar. Var tónninn i ræðumönnum
á fundum flokksins i dag sá að
ræða þyrfti málið ýtarlega við
verkafólk áður en endanleg
ákvöröun verður tekin.
Pólska fréttastofan PAP sagði
að á einum fundanna hefðu
fundarmenn verið um 200 þúsund.
Litið hefur borið á Edward
Gierek leiðtoga kommunista-
fiokksins eftir að óeirðirnar
hófust en hann var væntanlegur
til Austur-Berlinar I kvöld til að
Edward Gicrek - barátta gegn
vcrðhækkunum varð fyrir-
rennara hans að falli.
sitja ráðstefnu evrópskra
kommúnistaflokka sem hefst þar
á morgun.
Tító ræðir við Brésnjéf
Austur-Berlin 28/6 reuter ntb —
Þeir Titó forseti Júgóslaviu og
Brésjnéf flokksleiðtogi Sovétrikj-
anna ræddust við einslega i dag i
Austur-Berlin þar sem ráðstefna
í Uganda
Entebbe, Uganda 28/6 reuter —
Hópur manna sem sagöir eru
palestinuarabar héldu tæplega
250 farþegum franskrar farþega-
flugvélar i gislingu á flugvell- -
inum I Entebbe I Uganda og höfðu
hótað að sprengja þá alla I loft
upp ef öryggissveitir Idi Amins
komu nær þeim en 50 metrum.
Mennirnir rændu vélinni, sem
er gerð út af Air France, yfir
Grikklandi eftir að hún hafði lagt
upp frá Tel Aviv I gær áleiðis til
Parisar. Flugu þeir henni fyrst til
Libýu þar sem eldsneyti var tekið
en siðan lá leiðin til Uganda.
Idi Amin mætti sjálfur á flug-
völlinn i Entebbe til að freista
Mecking
Manila 28/G reuter — A milli-
svæðamótinu i skák i Manila á
Filippseyjum hafa nú verið
tefldar 12 umferðir af 19 og er
Mecking frá Brasiliu enn efstur
með 9 vinninga og eina skák
óteflda gegn Gheorghiu frá
Rúmeniu.
Mecking vann bandarikja-
manninn Brown i 12. umferð
,þegar sá siðarnefndi féll á tima
eftir 37 leiki. Tékkinn Hort sem
var i öðru sæti tapaði fyrir
sovétmanninum Czeskofski og
féll þvi niður i 3. sæti. í hans
stað kom sovétmaðurinn Lev
evrópskra kommúnistaflokka
hefst á morgun, þriðjudag.
Fréttamenn töldu að fyrir utan
mál þau sem snerta ráðstefnuna
hefðu þeir Titó og Brésjnéf rætt
þess að ná samkomulagi við
ræningjana. Flugvöllurinn var
umkringdur i viðtækustu öryggis-
ráðstöfunum sem gerðar hafa
verið i iandinu.
Þegar siðast fréttist höfðu ræn-
ingjarnir ekki sagt til sin eða sett
fram neinar kröfur. Þeir birtu
yfirlýsingu þar sem hörðum
orðum var farið um heimsvalda-
stefnu frakka og aðstoö þeirra við
tsrael.
Að skipun Amins voru farþegar
og áhöfn flugvélarinnar fluttir úr
vélinni i gamla flugsöðvar-
byggingu á vellinum sem ekki er
lengur notuð. Sá hann einnig til
þess að þeim var færður matur úr
nálægum veitingastað.
efstur
Polúgaéfski sem vann landa
sinn Balasjof i 33 leikjum og
hefur þvi 8 v. Hort er nú með 7
1/2 vinning. t 4.-6. sæti eru þeir
Czeskofskí, bandarikjamaður-
inn Kavalek og ungverjinn Ribli
með 7 vinninga. I 7.-8. sæti eru
júgóslavinn Ljubojevic og
austur-þjóðverjinn Uhlmann
með 6 1/2 vinning.
Mikið hefur verið um bið-
skákir á mótinu og á morgún
verður 13 biðskákum haldið
áfram auk þess sem þeir Meck-
ing og Gheorghiu tefla sina skák
sem var frestað.
réttarhöld þau sem nýlega voru
haldin i Júgóslaviu i málum and-
stöðuhópa sem fylgja Sovétrikj-
unum að málum. Þetta er I fyrsta
sinn siðan 1948 sem Titó sækir
fund evrópskra kommúnista.
Alls eiga 29 evrópskir
kommúnistaflokkar fulltrúa á
ráðstefnunni. Ekki er búist við að
neitt það gerist sem komið getur
á óvart þvi undirbúningur ráð-
stefnunnar hefur staðiö lengi og
henni verið frestað oftar en einu
sinni vegna þess að setja þurfti
niður ágreining.
Flokkarnir i Júgóslaviu,
Rúmeniu og Italiu hafa fylgt þvi
fast eftir að hugtakið
„aðþjóðahyggja öreiganna”
verði strikað út úr sameiginlegri
yfirlýsingu ráðstefnunnar en að i
þess stað komi „alþjóðleg sam-
vinna”. Sömu flokkar hafa einnig
neitað að undirrita yfirlýsingu
þar sem ráðist er á kinverska
kommúnistaflokkinn og hafa þeir
lýst velþóknun sinni á þvi að
sovétmenn fengust til að falla frá
henni.
Ken nsla í
sjúkraþjálf-
un hafin við
HÍ
Við byrjun haustmisseris tekur
til starfa i Háskóla tsiands náms-
braut í sjúkraþjálfun. Nám til
lokaprófs, B.S.-prófs i sjúkra-
þjálfun, verður fjögurra ára nám.
Fyrst um sinn verða á hverju
hausti aðeins innritaöir 18 nýjir
nemendur i þetta nám. Umsókn-
um um innritun nú i haust skal
skila i skrifstofu Háskólans á
timabilinu 1. júli — 15 júli. Auk
venjulegra innritunargagna
skulu umsækjendur skila uppiýs-
ingum um fyrri störf og heilbrigð-
isvottorði. Svör við umsóknum
munu send umsækjendum fyrir 1.
ágúst.
Flugrán yfir Grikklandi
Halda 250 gíslum
írska lýðveldið
10 þúsund banka-
menn í verkfalli
Dublin 28/6 reuter — Um það bil
10 þúsund irskir bankastarfs-
menn lögðu niður vinnu i dag til
að leggja áherslu á kröfur sinar
um kauphækkun sem nemur
meiru en „þaki” á launahækk-
unum sem stjórnin hyggst setja.
Þessir tiu þúsund starfsmenn
vinna i fjórum stærstu bönkum
Irska lýðveldisins. Ýmsir smærri
bankar og útibú erlendra banka
verða áfram opin.
Samsteypustjórn Verkamanna-
flokksins og Feine Gael flokksins
hefur lagt fram tillögur um að
launahækkanir fari ekki fram úr
13% og vonast hún til þess að
helstu verkalýðssambönd lands-
ins samþykki það á næstu dögum.
Bankastarfsmenn fóru fram á
18-20% kauphækkun og höfðu náð
samningum við bankastjórnirnar
þar sem þær ganga að kröfunum
gegn þvi að vinnutimi banka-
manna lengist um 30 minútur og
að þeir skuldbindi sig að gera
ekki verkfall næstu 13 mánuði.
Stjórnin hefur farið fram á frest
til að kanna þessa samninga sem
hún óttast að geti rift samkomu-
lagi við verkalýðshreyfinguna.
Margir óttast að verkfall
bankamanna verði eins langvinnt
og það sem efnt var til árið 1970.
Það stóð I hálft ár og olli miklum
glundroða , i viðskiptalifi lands-
manna. Miklar annir voru i bönk-
unum i siðustu viku og þurftu þeir
að reiða fram 350 miljónir
sterlingspunda til sparifjáreig-
enda, sem óttuðust að ná ekki til
peninga sinna næstu vikur eða
mánuði.
4 málaliðar
dæmdir til dauða
Luanda 28/6 reuter — Fjórir
málaliðar voru I dag dæmdir til
dauða frammi fyrú aftökusveit i
Luanda, höfuðborg Angólu.
Meðal þeirra er Costas Georgiou
frá Kýpur sem hlotið hefur upp-
nefnið „Callan höfuðsmaður”.
Callan var sekur fundinn um
dráp á einum hvitum málaliða og
skipun um að drepa 13 til
viðbótar. Þá var hann einnig
sekur fundinn um að drepa tvo
innfædda. Bretinn John
McKenzie var sagður samsekur
Callan. Landi hans John Barker
var dæmdur til dauða fyrir fram-
ferði sitt meðan hann var yfir-
maður flugvallarins i Sao Antonio
do Zaire á siðustu vikum striðs-
ins. Loks var bandarikjamaður-
inn Daniel Gearhart dæmdur til
dauða, en dómarinn, Emesto
Teixeira da Silva, lýsti honum
sem „stórhættulegri manngerð”
Hinir málaliðarnir níu sem
einnig voru fyrir rétti — sex
hlutar bretar, bandarikjamaður,
argentinumaður og iri — hlutu
16-30 ára fangelsisdóma.
Það var dómarinn da Silva sem
las upp úrskurð fimm manna
byltingardómstóls. Hann sagði aö
dauðadómunum fjórum yrði
skotið til forseta Angólu, Agostin-
ho Neto, sem tekur ákvörðun um
hvort þeim verður framfylgt eða
ekki. Ef hann breytir þeim ekki
getur svo farið að þeim verði full-
nægt innan tveggja sólarhringa
Verjendur málaliðanna kváöust
ætla að fara þessáleitvið Neto að
hann sýndi þeim miskunn og létti
dómana.
Mikið mannfall í
Beirut
Beirut 28/6 reuter ntb — Her-
sveitir Falangista slógust i lið
með öðrum fylkingum hægri-
manna i baráttunni um tvær
flóttamannabúðir palestinu-
manna i Beirut sem hafa verið
umsetnar i marga daga. Falang-
istar hafa ekki tekið þátt i þessum
átökum undanfarna daga.
Hægrimenn kváðu sveitir sinar
vera i þann mund að ná búðunum
á sitt vald og hvöttu ibúa þeirra til
að gefasl upp svo komast mætti
hjá bióðbaði. Otvarpsstöðvar
vinstrimanna visuðu þessum
fréttum á bug og kváðu sveitir
sinar og palestinumanna hafa
hrundið öllum árásum á búð-
irnar. Talsmaður PELP viður-
kenndi þó i dag að ástandið i búð-
unum væri hið hörmulegasta. Að
minnsta kosti 160 manns hafa
iallið og 300 særst undanfarinn
sólarhring i bardaganum um
flóttamannabúðirnar en siðan
umsátrið um þær hófst fyrir 6
dögum hafa sennilega yfir eitt
þúsund manns fallið.
Svo virðist sem herskárri
armar beggja fylkinga — hægri —
og vinstrimanna — hafi orðið ofan
á en þeir halda því fram að
vandamál landsins verði ekki til
lykta leidd nema með stríði.
Hefur þetta enn dregið úr horfum
á þvi að Jalloud forsætisráðherra
Libýu takist að koma á sáttum i
landinu. Hann kom upphaflega til
landsins i þvi skyni að stöðva bar-
daga sýrlenska hersins annars
vegar og libanskra vinstrimanna
og palestinskra skæruliða hins
vegar en nú stendur slagurinn
milli þeirra siðarnefndu og
hægrisinna og kristinna manna
eins og lengst af á þeim 14 mán-
uðum sem striðið i Libanon hefur
geysað.