Þjóðviljinn - 29.06.1976, Síða 5

Þjóðviljinn - 29.06.1976, Síða 5
Þriöjudagur 29. júnl 1976. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 Glímuskj álfti með kurteisi r r I kosningaslag á Italíu 1. grein r eftir Arna Bergmann Siðustu dagar kosningarbar- áttunnar I Róm voru frek- ar rólegir. Að minnsta kosti kom ekki neinna stórtiðinda i Róm. Borgin var að visu þakin dreifimiðum og plakötum flokk- anna, en ekki i þeim mæli sem maður hefði haldið. Kristilegir demókratar, DC, og nýfasistar, MSI, voru einna harðastir i svaí- dögum: Aldrei hættum við frels- inu I hendur á kommúnistum! sögðu þeir, en merki DC er reynd- ar latneska orðið Libertas, frelsi, á grænum krossi. Sumir fram- bjóðendur töldu það sér einkum til ágætis I sérstökum áróðurs- miðum, að þeir „hefðu alltaf verið á móti kommúnistum”. Stundum mátti finna miða á göt- unum þar sem vitnað var i póli- tisk afskipti páfagarðs fyrr og nú: „Það er dauðasynd að kjósa kommúnista,” stóð þar. En yfir- leitt var tónninn miklu vinsam- legri milli flokka en maður hefði getað ætlað úr nokkrum fjarska. Kurteisi Kommúnistar töluðu um endur- nýjun, nýtt siðgæði um samhjálp helstu pólitisku aflanna um að koma landinu út úr rammri kreppu. Kommúnistar og sósial- istar töluðu einkar vinsamlega hverjir um aðra, enda lýstu báðir óspart yfir þvi, að þeir gætu ekki án hins flokksins verið. Það var gott dæmi, að blað sósialista neitaði að taka viö borgaðri aug- lýsingu frá nýjum smáflokki, radikölum, vegna þess að I textanum sagði, að foringi kommúnista Berlinguer, hefði logið. „Þetta er ekki hægt,” sagði blaðið, sem heitir Republica, „kommúnistarnir erú félagár okkar.” Meira aö segja hóparnir lengst til vinstri, Alræði öreig- anna, Democrazia Proietria, sýndu konmúnistum flestir fulla kurteisi, en máltækið segir þó að frændur séu frændum verstir. Svo mætti lengi telja. En auð- vitað hefði engu að síður verið gott og skemmtilegt að geta rakið tiðindi af kosningabaráttunni jafnóðum og hún gerðist úr þvi ég var svo heppinn að vera á staðn- um. En mér reyndist það svo, að Island væri simasambandslaust þessa daga, ef ekki við umheim- inn, þá allavega við Rómaborg. Lesendur Þjóðviljans verða þvi að bita i það súra epli með mér, að frásögnin kemur eftir á. Þetta er semsagt fyrsta grein, og veit ég satt að segja ekki hve margar koma á eftir, þvi að af nógu er að taka þar sem eru itölsk stjórn- mál. Vitnað með PCI Vitanlega voru blöðin full með pólitik. Blað kommúnista, l’Unitá, hafði að þvi leyti sér- stöðu, að þar gerðust mjög marg- ir til að vitna um stuðning sinn við flokkinn og nauðsyn þess að kjósa hann. Þetta minnti nokkuð á Island. Og satt að segja voru stuðningsyfirlýsingar þess einatt stórbrotnar og traustvekjandi. Siðast á kjördag vitnuðu 118 há-‘ skólakennarar frá Genúa einni um stuðning við kommúnista- flokkinn, þeim fylgdu 30 lista- menn og 20 tónlistarmenn frá sömu borg, og 20—30 manna hóp- ar blaðamanna frá Corriere della Sera og II Giorno, sem eru alls engin vinstriblöð. Mikill hópur visindamanna frá „lnstituto Superiore de Sanitá” kom einnig á vettvang. Menn tóku undir það hve PCI, en svo er flokkurinn skamm- staf., væri trúverðugur I fyrir- heitum um endurnýjun, þjóð- félagslegt siðgæði og réttlátara samfélag. Og svo komu lika óháðu frambjóðendurnir, nokkir þekktir kaþólskir menn sem voru á listum hjá PCI. Antonio Brusca kvaðst bjóða sig fram þvi að „þar með fæ ég möguleika á að vinna sjálfur gegn ástandi (eink- um i heilbrigðismálum) sem er andstyggð samvisku minni sem læknis og samfélagsþegns”, en Brusca er þekktur h'jartasér- fræðingur. Angelo Romano, fyrrum ritstjóri kaþólsks blaðs og nú einn af deildarstjórum italska sjónvarpsins sagði, að sitt fram- boð, sem óháðs hjá PCI þýddi ,,að taka stöðu með flokki sem hefur sýnt ágæta hæfni til að samsama sig itölsku samfélagi I öllum þess flækjum og sem I dag er fær um að tala ekki aðeins fyrir hönd sinna kjósenda heldur og fyrir hönd mikils hluta landsmanna. Það þýðir og að leggja fram sinn skerf til hins lýðræðislega kerfis okkar. Það þýðir ekki að við skiptum um hugmyndafræði, en að vinna að pólitisku vali við að- stæður þegar okkur finnst teflt um undirstöðuverðmæti I stjórn- málum”. Upptalningu af þessu tagi mætti lengi halda áfram með — enhún sýnir m.a. vel, að höfuð- vigorð PCI um „sögulega mála- miðlun”sem oft verður minnst á hér á eftir, voru tekin mjög alvar- lega langt út fyrir flokkinn. Þess skal og getið strax, áöur' en lengra er haldið, að kaþólskir aðilar og páfagarður sjálfur virtust sérlega óánægðir með traustsyfirlýsingar af þessu tagi frá kaþólskum áhrifamönnum. Frá Prag og USA Ég vil heldur ekki láta hjá liða að minna á tvær stuðningsyfir- lýsingar við PCI, sem komu i l’Unita rétt fyrir kjördag. önnur kom þann 18 — þar voru nokkrir fulltrúar Dubcekstefnunnar frá Prag 1968 (siðar kom á daginn að þar fóru m.a. Hajek, fyrrum utanrikisráðherra og ekkja Smrkovskis) að lýsa stuðningi við italska kommúnista. Hin kom daginn eftir: Bandariskir menntamenn (m.a. Chomsky) höfðu myndað sérstaka nefnd til að vinna gegn hótunum banda- riskra aðila um ihlutanir ýmis- konár um itölsk mál, enda gátu menntamennirnir auðveldlega fært rök að þvi að Kissinger, Connally og fleiri slikir hefðu annað i huga en áhyggjur af itölsku lýðræði i bramboltd sinu. A hinn bóginn var mikið um greiddar auglýsingar frá hægri- flokkunum og sósialdemókrötum i borgaralegum blöðum. Þær voru fæstar meira en áminning um að styðja tiltekinn mann (kosningarnar eru að vissu marki persónulegar) og eitthvað um ágæti hans. En stundum mátti rekast á skemmtilega hluti. Eins og þegar lesa mátti i II Tempo að „Samtök fasteignamanna i Róm” höfðu komið sér saman um að auglýsa upp hóp af kristilegum, frjálslyndum (PLI) og nýfasist- um (MSI) sem allir voru taldir Það þarf PCI tii að einhverju verði breytt! hrópuðu ungkommún- istar. Þeir gömlu gátu einnig kreppt hnefann: Potere a chi lavora! • *C-.j liflfr - •• 1 B - tæ~.~***'. n hN^'^v fj ■ <r I 1» 9| •y-r • fpvt <m i ,4 . V«i .vwjr tf Kristilegir skildu eftir sig mikið af papplr á Pizza del Popoio. nokkuð liklegir til að vernda fasteignaréttinn fyrir hinum rauðu flokkum. Daufleg fundahöld Fundahöld voru ekki nærri eins voldug og búast mætti við. Yfir- leitt tekst itölskum flokkum ekki að ná þeim afrekum sem islenskir eru farnir að sýna með smölun i Laugardalshöllina. Morguninn sautjánda júni vakna ég t.d. við tölverðan fyrirgang (en þá var krikjulegur fridagur i landinu, þeir eru margir). Byltingar- söngvar og rauðir fánar voru á torginu fyrir neðan. Ég hélt fyrst að þetta væru kommúnistar, en þetta voru sósíalistar. Báðir flokkar hafa nefnilega sömu söngva (Avanti popolo, Fram all- ir verkamenn ofl.) báðir nota sem merki hamar og sigð — en af mis- munandi gerðum. Þetta var sem- sagt aðalfundur sósialista fyrir kosningar. Mörgu var til tjaldað: De Martion var aðalræðumaður fljúgandi mælskur og hafði sér til stuðnings bæði Panagúlis frá Grikklandi (bróðir hins myrta þingmanns) og Mario Soares frá Portúgal. En fundurinn var ber- sýnilega misheppnaður, þarna voru 4—5 þúsundir manna. Þó er þetta þriðji stærsti flokkur landsins, hefur um 10% atkvæða þarna I borg- inni. Það hafði eiginlega verið meira fjör á sama torgi daginn áður, þá voru þar hópar lengst frá vinstri, úr öreigalýðræðinu, DP, sem héldu uppi skemmtan, en þeim fylgir m.a. söngur ágætur. En DP fær örlitið af atkvæðum og þar eru hópar nokkuð svo sundur- þykkir innbyrðis, eins og siðar verður að vikið. Kristilegir, DC, héldu sinn aðalfund þann 18. júni á Piazza del Popolo. Hann var lika dauf- legur af blöðum að dæma. Hann fór fram undir vlgorðunum „Hinn nýi DC er þegar byrjaður” — en þvi trúir enginn, sagöi italskur blaðamaður við mig. Skipulagsstyrkur En það voru, eins og við mátti búast, kommúnistar, sem sýndu — einmitt sama kvöld — firnaleg- an skipulagsstyrk sinn. Við erum eini flokkurinn, sagði áróðurs- málafulltrúi þeirra i bæki- stöðvum á Via delle Botteghe Oscure, sem getur sent fólk i hvert hús. Við höfum reynt af fremsta megni að fá i gang persónulegt samband. Berlinguer gaf þann tón i kosningabaráttunni þegar á fyrsta fundi i litilli borg i Abruzzi — hann var i formi sam- tala við fólk. Og við ekki aðeins göngum á milli manna. T.d. fara ábyrgðarmenn deilda út á götu og efna til umræðu viðgestiog gang- andi um það sem þeir vilja helst ræða — en vissulega gengur slikt betur i smærri borgum en Róm. Eða þá að ungir menn fara út, búa til kvikmyndir um næsta um- hverfi og sýna siðan á torgi til að efna þar til kappræðu. Við viljum forðast sem mest ræðumennsku- glósur og stóryrði, sagði hann. Tvenn vígorö Þessi mikla skipulagning kom vel fram þegar fólk var að koma saman á lokafund kommúnista kvöldið 18. júni. Göngur komu að úr ýmsum áttum, og voru göngu- stjórar sem höfðu frumkvæði um fánaburð, vigorðakall og söng. Bæði þá og svo siðar, þegar komið var á torg San Giovannis var það mjög greinilegt að yfrið nógur mannskapur var til allra hluta. Einnig til að halda uppi „ordine” lögum og reglu, halda frá óeirð: mönnum frá hægri ef þeir þyrð, að láta sjá sig. Enda hélt hi eiginlega lögregla sig i hæfilegri fjarlægð. Ég fylgdist semsagt með ungkommúnistum frá Santa Maria Maggiore til San Giovanni og voru þeir mjög hressir. Mest fór fyrir tveim vigorðum i bland við Avanti popolo — Annarsvegar Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.